Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Blaðsíða 33
41 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 T>'ST________________________________________________________________________________________________Helgarblað Jónas Franklín læknir Jónasi var sagt upp störfum á kvennadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í vor eftir 18 ára starf. Hann telur gjörning þennan ólögmætan og hefur iagt fram stjórnsýslukæru þar sem hann krefst þess að fá starfið aftur. var staðið og krafðist þess að fá skrifleg gögn málsins þegar í stað í hendur. Þau bárust ekki frá Hall- dóri Jónssyni fyrr en 25. febrúar eða ríflega þremur vikum seinna. í framhaldinu leitaði Jónas til lög- mannastofunnar Logos í Reykjavík sem hefur lagt fram stjórnsýslu- kæru til heilbrigðisráðuneytisins vegna þessa máls. í rökstuðningi með kærunni er því haldið fram að uppsögnin brjóti í bága við ákvæði laga um réttindi og skyldur opin- berra starfsmanna, efnisleg skilyrði hafi ekki verið til staðar og að baki búi ómálefnaleg sjónarmið. Þess vegna er þess krafist í kærunni að ákvörðun forstjóra FSA verði ógilt og Jónasi Franklín veitt starfið aft- ur. Kæran var ásamt fylgiskjölum send ráðuneytinu 12. apríl sl. í lok apríl voru afrit send stjóm FSA til umsagnar og er úrskurðar ráðu- neytisins að vænta eftir nokkrar vikur héðan í frá. Hvaö meö áminningarnar? I rökstuðningi fyrir stjómsýslu- kærunni kemur fram að Jónasi höfðu verið veittar fjórar áminning- ar í starfl hans sem læknis á kvennadeild FSA. Sú fyrsta er frá 14. febrúar 1989, frá Halldóri Jónssyni, fram- kvæmdastjóra FSA, og er Jónas áminntur fyrir að stunda mæðra- vemd á eigin vegum og vinna með því gegn samningi Heilsugæslu- stöðvarinnar á Akureyri og FSA um framkvæmd mæðravemdar. „Það er að mínu mati alrangt að ég hafi unnið gegn hagsmunum spít- alans. Það er ekkert sem mælir í raun gegn því að ég bjóði svipaða eða sömu þjónustu og sjúkrahúsið og veiti því þannig samkeppni," seg- ir Jónas en um þetta mál urðu tals- verðar deilur sem leiddu m.a. til þess að Tryggingastofnun sagði upp samningi sínum við Jónas í eitt ár. Áminning númer tvö er veitt 14. apríl 1992 vegna fjarveru frá vinnu- stað á dagvinnutíma og áminning vegna þess sama er veitt Jónasi í bréfi frá framkvæmdastjóra FSA í apríl 1996. „Af þessum tveimur áminningum er önnur frá árinu 1992. Þá þurfti ég að fara af deildinni klukkan 15.00 og klukkustundu síðar kom inn sjúk- lingur sem ég hefði þurft að líta á en gerði ekki fyrr en morguninn eftir. Ég viðurkenni að þetta var ekki nógu gott og hefði ekki átt að vera svona. Ég hef alltaf talið að ég mætti sinna skyldum mínum utan sjúkra- hússins við kennslu, rannsóknir og á minni stofu án þess að það kæmi niður á dagvinnuskyldu minni á sjúkrahúsinu. Ég uppfyllti hana með öðrum hætti, ég skrásetti t.d. sögu deildarinnar, hannaði skrá- setningarforrit fyrir tölvur okkar og sitthvað fleira mætti tína til sem var í þágu deildarinnar þó það væri ekki unnið á staðnum á dagvinnu- tíma.“ „Stolna" sónartækiö Áminning númer fjögur er frá 24. júlí 1998, frá Vilhjálmi Kr. Andréssyni yfirlækni, vegna notk- unar Jónasar á ómtæki sjúkra- hússins. Jónas hefur starfað á eig- in stofu á Akureyri um árabil og þegar sónartæki sem þar var í notkun bilaði fékk hann lánað sams konar tæki sem ekki var í notkun á sjúkrahúsinu og hugðist nota það meðan hans eigið tæki væri í viðgerð. í stjómsýslu- kærunni segir um þetta mál: „Umbj. okkar hafði einungis hug á að fá það lánað eða leigt f mjög stuttan tima en ekki stela því eins og yfirlæknir gefur í skyn í bréfi sínu frá 24. júlí 1998.“ Jónas segir að þetta mál snúist í raun ekki um það hvenær maður stelur sónartæki og hvenær maður stelur ekki sónartæki heldur snú- ist það um átök milli hans og yfir- læknisins. Þegar sónartæki á stofu Jónasar bilaði á síðasta ári fékk hann rafvirkja sjúkrahússins til að hjálpa sér að flytja tæki sem staðið hafði ónotað langa hríð á FSA. Tveim dögum síðar fékk hann bréf frá yflrlækni sem krafðist þess að fá tækið aftur sem Jónas varð við þegar i stað. Tækið hélt áfram að standa ónotað og í október sl. fékk Jónas það aftur flutt á stofu sína og nú með munnlegum samningi við yflrlækni um að tækinu yrði skil- að þegar sjúkrahúsið þyrfti á því að halda. „Tækið var hjá mér fram til loka janúar. Ég fékk skilaboð frá yflr- lækni 25. janúar um að skila tæk- inu þar sem ætti að selja það. Ég var á leið úr landi og hafði ekki tök á að skila því samdægurs. Þeg- ar ég kom aftur til vinnu eftir ferð- ina var fundurinn þar sem mér var sagt upp fyrsta mál á dagskránni. Ég fékk bréf frá yflrlækni 2. febrú- ar þar sem ég var áminntur um að skila tækinu sem ég gerði samdæg- urs. Þegar ég lét af störfum í lok mars grennslaðist ég fyrir mn tæk- ið sem þá stóð ónotað bak við hurð á sjúkrahúsinu eins og það hafði lengi gert. Ég tel að í þessu máli sjáist glöggt óvild yflrlæknis í minn garð og veit að hann hefur lengi stefnt að því að losa sig við mig.“ Enn einn liður i rökstuðningi FSA skv. bréfl forstjóra frá 17. febr sl. með uppsögn Jónasar er að hann hafi sýnt óviðunandi fram- komu í garð yfirmanna sinna og staðið að baktali og rógi. Jónas seg- ist ekki skilja þessar fullyrðingar. „Ég er ekki alltaf sammála yfir- mönnum mínum og ligg ekkert sérstaklega á þeim skoðunum enda teldi ég það óeðlilegt. Það voru gerðar skipulagsbreytingar á deild- inni sem ég var afar ósáttur við og taldi að hefði átt að standa öðru- vísi að. Ég lýsti þeim skoðunum rnínmn við samstarfsmenn og aðra. Ég hef ekki talið það róg eða baktal að tjá skoðanir sínar. Ég hef aldrei fengið neina skýringu á því hvað nákvæmlega er átt við með þessu og hlýt að visa þessu á bug.“ Allir gera mistök í rökstuðningi stjórnar er minnst á „ófullnægjandi árangur í starfl“. Þama er vísað til mistaka i starfl en tvisvar sinnum á ferlinum hafa slík mistök, þar sem Jónas átti hlut að máli, verið kærð og i annað skiptið var sjúkrahúsið dæmt til að greiða sjúklingi bætur. „Það gera allir mistök. Ég tel að ég hafl ekki orðið fyrir slíkum áföll- um oftar en aðrir sérfræðingar nema síður sé.“ í stjórnsýslukærunni er því hald- iö fram að engar af þessum áminn- ingum uppfylli skilyrði sem sett eru í lögum um slíkar áminningar og því hafi þær engin réttaráhrif. Því er haldið fram aö uppsögnin sé ólög- mæt vegna þess að Jónasi hafi ekki verið gefmn kostur á neyta and- mælaréttar né að bæta ráð sitt áður en til uppsagnar kom. Einnig er því haldið fram að Halldór Jónsson, for- stjóri FSA, hafl brotið meðalhófs- reglu 12. gr. stjómsýslulaga. Að lok- um er þess krafist að Jónasi Frank- lín verði þegar heimilað að hefja störf aftur við Fjórðungssjúkrahús- ið á Akureyri. „í byrjun árs 1997 þótti ástandið vera orðið svo slœmt að Högni Óskars- son geðlceknir og Hulda Guðmundsdóttir félags- ráðgjafi voru fengin til þess að halda fundi með starfsfólki og bceta starfsandann. Þau héldu fjóra fundi á 12 mánaða tímabili og skiluðu skýrslu þar sem fram kemur það álit þeirra að Jónas eigi verulegan þátt í slcemum starfsanda og best vceri ef deildin gceti „losað“ sig við hann.“ Jónas segir að af sinni hálfu sé enn sáttavilji fyrir hendi og nokkurt svigrúm til þess ef vilji sé fyrir hendi af hálfu stjórnar sjúkrahúss- ins, sem reyndar hefur lýst því yfir við Jónas að hún vilji ekkert skipta sér af þessu máli. Það sama hefur læknaráð FSA gert. Synjaö um aöstööu En hvað verður um Jónas Franklín? Verður honum kleift að starfa áfram á Akureyri eftir þetta áfall? „Ég sendi skömmu eftir upp- sögnina beiðni til stjórnar sjúkra- hússins þar sem ég fór þess á leit að mér yrði veitt leyfi til að vinna ferliverk á sjúkrahúsinu. Þessari beiðni hefur framkvæmdastjórn sjúkrahússins hafnað þó nokkur fordæmi séu fyrir því að læknar sem ekki eru starfandi við sjúkra- húsið geri þar aðgerðir. Með þessu dregur talsvert úr möguleikum mínum á að starfa á Akureyri og þetta eru mér talsverð vonbrigði. Ég hef íhugað þann möguleika að flytja frá Akureyri en einnig kemur til greina að starfa að hluta í Reykjavik á stofu þar. Þessar erf- iðu ákvarðanir verða að bíða þar til ljóst er um afdrif stjórnsýslu- kærunnar." Þegar Jónas hafði lokið við gerð greinargerðar sinnar, sem var lát- in fylgja stjórnsýslukærunni, leyfði hann samstarfsfólki sínu að lesa hana. Þetta barst stjórn sjúkrahússins til eyma sem kærði atvikið til landlæknis sem áminnti Jónas fyrir að hafa sýnt samstarfs- fólki sínu gögn sem innihéldu trúnaðarmál. „Mér finnst þetta einkennilegur rökstuðningur, sérstaklega í ljósi þess að í lögfræðilegum skilningi eru þetta orðin opinber gögn þar sem greinargerðin fylgir kærunni." Klúbbur safnar undirskriftum Skömmu eftir að heyrinkunnugt varð um uppsögn Jónasar voru settir af stað undirskriftalistar þar sem skorað var á stjórn FSA aö draga uppsögnina til baka þegar í stað. Listamir vom látnir liggja frammi i nokkrum verslunum á Akureyri og líkcunsræktarstöðv- rnn. Tæplega 400 manns rituðu nöfn sín á listana, nær eingöngu konur, og hafa þeir veriö afhentir forstjóra sjúkrahússins og afrit sent heilbrigðisráðherra. „Þessi hugmynd kom upp í sauma- klúbbnum okkar og við ákváðum að láta til skarar skríða. Jónas er okkar læknir og hefur verið lengi og við viljum hafa hann áfram,“ sagði Sess- elja Einarsdóttir, kaupmaður í versl- uninni Ynju á Akureyri, í samtali við DV, en hún var meðal hvatamanna þess að listinn varð til. Segjum ekkl orö Forsvarsmenn Fjórðungssjúkra- húss Akureyrar, þeir Halldór Jóns- son forstjóri og Bjarni Hjarðar stjómarformaður, vörðust allra frétta um þetta mál þegar DV hafði samband við þá. Halldór Jónsson sagðist ekki ræða atriði málsins í fjölmiðlum að svo komnu þar sem starfsmannamál væru bundin frið- helgi. -PÁÁ „Sama dag og mér er tilkynnt um uppsögnina er allt starfsfólkið kallað á fund. Þar tilkynnir yfirlceknir kvennadeildar því að mér hafi verið sagt upp störf- um. Engar frekari útskýringar voru gefnar af hálfu hans og starfsmannastjóra en sagt að þeir vildu mín vegna ekki rekja ástceður uppsagnarinnar. Þetta var það versta sem þeir gátu gert því fólk fór strax að gera sér í hugarlund að ég hefði brotið stórkostlega af mér. Þetta barst síðan um allan bce. “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.