Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Side 10
10
Skoðun
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
DV
Útgáfufélag: Frjáls flölmiðlun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjórl: Sveinn R. Eyjölfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Gr»n númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafrœn útgáfa: Helmasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@>ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf.
Filmu- og plótugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverö 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Nú reynir á Össur
Össur Skarphéðinsson alþingismaður var kjörinn for-
maður Samfylkingarinnar á stofnfundi hennar í gær.
Hann sigraði Tryggva Harðarson, mótframbjóðanda sinn,
með yfirburðum. Þrír af hverjum fjórum greiddu Össuri
atkvæði sitt. Úrslitin eru góð stuðningsyfirlýsing við hinn
nýja formann en koma ekki á óvart. Þótt Tryggvi gerði
Samfylkingunni gagn með framboði sínu var hann hann
aldrei raunverulegur keppinautur Össurar um for-
mennskuna.
Eðli máls samkvæmt er þingflokkur stjórnmálaflokks
helsta forystuafl hans. Það kom ekki á óvart þegar Össur
Skarphéðinsson tilkynnti um framboð sitt til formennsku
en hitt var óvæntara að hann fékk ekki mótframboð úr
þingflokki Samfylkingarinnar. Það var veikleikamerki í
aðdraganda stofnunar hins nýja flokks. Össur er hins veg-
ar vel að þessum sigri kominn. Hann er vaskur maður,
baráttuglaður og enginn veifiskati. íslensku stjórnmálalífi
er því fengur að slíkum manni í forystu og raunar verður
ekki séð að nokkur maður innan Samfylkingarinnar hefði
skákað Össuri í formannskjöri.
í ræðu sinni, eftir að úrslit í formannskosningunni lágu
fyrir, sagði Össur að Samfylkingin væri reiðubúin að taka
við stjórnartaumunum hvenær sem er, hvort heldur væri
á þessu kjörtímabili eða eftir næstu þingkosningar. Hvað
sig varðaði hæfist kosningabaráttan strax í dag. Ekki er
að efa að festa verður meiri í starfi flokksins eftir að hann
er orðinn að formlegu afli með kjörinni forystu. Hitt verð-
ur ekki séð að hann taki við á þessu kjörtímabili. Til þess
er þingflokkur hans einfaldlega of veikburða. Áður en
Samfylkingin getur gert tilkall til meiri valda þarf hún að
skerpa á stefnumálum en ekki síður að styrkja liðssveit
sína. Kosningaúrslit voru ekki viðunandi miðað við vænt-
ingar þeirra sem að sameiningu flokkanna stóðu og úr-
ræðaleysi eftir kosningar augljóst. Vandræðræðagangur
þingflokksins opinberaðist síðan með eftirminnilegum
hætti þegar burðugur mótframbjóðandi gegn Össuri
Skarphéðinssyni fannst hreinlega ekki.
Nýrrar forystu Samfylkingarinnar bíður mikið starf en
hún fær um leið fágætt tækifæri til þess að ná árangri.
Skoðanakannanir sýndu að stöðugt dró úr fylgi Samfylk-
ingarinnar eftir kosningar þar til í síðustu könnun DV
undir lok marsmánaðar. Þá náði fylkingin kjörfylgi sínu
á ný enda var umræða þá komin á skrið um væntanlegan
stofnfund sem og formannskjörið. Því verður fróðlegt að
fylgjast með gengi hins nýstofnaða flokks næstu misserin.
Össur Skarphéðinsson hvatti flokkssystkini sín til dáða
í ræðu sinni í gær. Þar reifaði hinn nýkjörni formaður
helstu baráttumál og dró þá víglínu sem liggur milli
flokksins og ríkisstjórnarflokkanna. Sú lína þarf að vera
skýr svo kjósendur hafi kosti og viti að hverju þeir ganga.
Um leið má vænta meiri festu í stjórnarandstöðuna sem
hefur verðið, með fáum undantekningum, bragðdauf
lengi.
Það kemur í hlut hins nýja formanns Samfylkingarinn-
ar að reyna að ná markmiðum flokksins og vinna að því
að flokkurinn geti orðið raunverulegt mótvægi við sterka
stöðu Sjálfstæðisflokksins. Það hlutverk er ekki auðvelt.
Hins nýja jafnaðarmannaflokks bíður í senn að skapa sér
sérstöðu en um leið að róa að hluta á sömu mið og Sjálf-
stæðisflokkurinn, ætli hann að ná fjöldafylgi. Slíkur
flokkur þarf að þola innri átök og rúma mörg sjónarmið.
Þar reynir-á Össur Skarphéðinsson í leiðtogahlutverkinu.
Jónas Haraldsson
Vladimir Pútín:
Pilturinn frá Péturs-
borg sem varð leiðtogi
Vladimir Pútín, tilvonandi forseti
Rússlands, verður settur inn embætti
við hátíðlega athöfn sunnudaginn 7.
maí. Fram til þessa hefur lítið verið
vitað um bakgrunn og einkalíf þessa
tilvonandi leiðtoga en nú verður
reynt að bæta úr þvi.
Forsetafrúin tilvonandi heitir Ljúd-
míla. Þau kynntust á svokölluðu
blindu stefnumóti í leikhúsi í Péturs-
borg árið 1980. Þá var Vladimir njósn-
ari fyrir hina illræmdu leyniþjónustu
Rússa, KGB en þar starfaði hann um
árabil. Ljúdmíla vann sem flugfreyja
hjá ríkisflugfélaginu Aeroflot. Það fór
strax vel á með Vladimir og Ljúdmílu
en hann sagði henni samt ekki sann-
leikann um starf sitt fyrr en þremur
árurn eftir að þau kynntust.
Þau giftust rúmum þremur árum
eftir að þau kynntust og eignuðust
tvær dætur saman sem nú eru á tán-
ingsaldri og stunda skóla eins og
hverjir aðrir unglingar. Þær heita
Masha og Katya. I Rússlandi er lítið
vitað um forsetafrúna og dæturnar en
þó er vitað að hún hefur lítið kært sig
um sviðsljósið þrátt fyrir framapot
Vladimir Pútín
Maöurinn sem er leiötogi einnar stærstu þjóöar heims er mörgum ráögáta.
Lítið er vitaö um bakgrunn hans og fjölskyldulíf.
Vladimir fœddist á friðartím-
um og stóð sig vel í skólanum
en var samt aldrei yfir meðal-
lagi. Hann þótti góður í
tungumálum og sýndi þá þeg-
ar mikinn áhuga á júdó og
fleiri slíkum sjálfsvamar- og
bardagaíþróttum. í dag talar
Vladimir ensku og þýsku
reiprennandi og er með svarta
beltið í karate.
eiginmannsins. Haft er fyrir satt að
hún hafi grátið fógrum tárum þegar
hún frétti að Borís Jeltsín, fyrrver-
andi forseti, hefði valið Vladimir, eig-
inmann hennar, sem eftirmann sinn.
Hún vissi að það myndi binda enda á
friðhelgi einkalífs hennar. Dæturnar
hafa enn ekki sést opinberlega í Rúss-
landi og engir vita hverjar þær eru.
í byrjun þessa árs kom Ljúdmíla
fram ásamt eiginmanni sínum og var
það í eitt af fyrstu skiptunum sem
hún sást opinberlega eftir að hann tók
við leiðtogahlutverkinu. Hún fylgdi
þá manni sínum til Tsjetsjeniu þar
sem rússneskir hermenn börðust við
uppreisnarmenn upp á líf og dauða og
forsetinn tilvonandi mætti á staðinn
til að stappa stálinu í sina menn.
Pútín heitir reyndar fullu nafni
Vladimir Vladimirovich Putin og
hann fæddist 7. október 1952 í merki
vogarinnar sem spekingar segja að
séu alveg sérlega friðelskandi og leiti
alltaf jafnvægis i öllum hlutum. Hann
fæddist í Leníngrad sem nú heitir Pét-
ursborg. Vladimir eldri gegndi her-
þjónustu um borð í sovéskum kafbát-
um í seinni heimsstyrjöldinni þar til
hann særðist og hélt heimleiðis til
konu sinnar, Maríu, sem hafði þá
mátt þola hið iOræmda 900 daga um-
sátur herja Þriðja rikisins um borg-
ina. Fjölmargir íbúar Pétursborgar
létust í þessu umsátri bæði úr kulda,
sjúkdómum og hungri. María og Vla-
dimir misstu tvo elstu syni sina úr
hungri og blóðkreppusótt.
Vladimir fæddist á friðartimum og
gekk vel í skólanum en var samt
aldrei yfir meðaUagi. Hann þótti góð-
ur í tungumálum og sýndi þá þegar
mikinn áhuga á júdó og fleiri slíkum
sjálfsvarnar- og bardagaíþróttum. í
dag talar Vladimir ensku og þýsku
reiprennandi og er með svarta beltið í
karate.
Þegar Vladimir var sextán ára
ákvað hann að velja sér starfsferU
sem njósnari og hélt á fund KGB og
sótti um inngöngu. Honum var Ula
mm
tekið í fyrstu því KGB-menn sögðust
ekki taka sjálfboðaliða, hvað þá svo
unga og ómenntaða. Vladimir settist
því á skólabekk í háskólanum í
heimaborg sinni og lauk námi í lög-
fræði. Fleiri þjóðarleiðtogar hafa lært
lögfræði og nægir að minna á Davíð
Oddsson.
Á árunum frá 1975 tU 1991 starfaði
Pútín sem njósnari fyrir KGB og bjó
meðal annars í Austur-Þýskalandi í
nokkur ár með fjölskyldu sinni. Hann
ferðaðist á vegabréfi sendiráðstarfs-
manna um aUa Evrópu og beitti sér
einkum að njósnum á sviði tölvu-
tækni og gervigreindar en Rússar
fylgdust grannt með framförum á því
sviði á Vesturlöndum.
1985 var hann Uuttur tU Dresden og
þar varð hann vitni að því þegar
Berlinarmúrinn féU og ríki sósíalism-
ans leið undir lok. Hann sneri aftur
heim tU Rússlands eftir faU múrsins
og fór að starfa með Anatoli Sobchak,
stjómmálamanni í Pétursborg, sem
bauð sig fram tU borgarstjóra þar og
var kjörinn. Hann vakti athygli fyrir
innsýn sína i efnahagsmál og það var
Anatolí Chubais, hægri hönd Jeltsíns,
sem kvaddi hann til Moskvu árið
1994. Hann vann fljótt traust Jeltsíns
sem átti við versnandi heilsufar að
stríða þegar þarna var komið sögu og
slíkt varð traust hans á pUtinum frá
Pétursborg að hann útnefndi hann
sem eftirmann sinn á þessu ári.