Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Page 23
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 DV 23 Helgarblað Kóngurinn vinsæll Jack Nicholson sannaði það svo sannarlega við síðustu óskarsverð- launaafhendingu að hann er kóngur- inn í Hollywood. Með svöl sólgleraug- un gjammaði hann fram í fyrir kynn- inum Billy Crystal og reytti af sér brandarana hingað og þangað. Þegar hann svo veitti Warren Beatty verð- laun fyrir ævistarf hans tóku þeir fé- lagarnir sér góðan tíma og spjölluðu vítt og breitt og fóru með gamanmál - meðan óskarstónlistin slökkti niður í öðrum verðlaunahöfum jafnskjótt og þeir tóku til máls. Annars eru víst gömlu félagamir eitthvað ósáttir við nýju kærustuna hans - hina ægifögru Löru Flynn Boyle. Þótt Nicholson sé orðinn 63 ára er hin þrítuga Boyle nú alveg í það elsta fyrir kónginn og læt- ur hann vist ekki ganga yflr sig. Hún á meira að segja að hafa yfirgefið hót- el þeirra Jacks á nýársnótt og það með fótin hans með sér. Því neitar talskona Boyles þótt hún viðurkenni að rifrildið hafi átt sér stað. Og bætir við að gamlir félagar Jacks séu að dreifa dylgjum um hana því þeir séu hreinlega öfundsjúkir. Kóngurinn hef- ur ekki lengur tima fyrir þá. Notaðar búvélar á kostakjörum Mikil verðlækkun Mikið úrval é = = i Ingvar s s s -= Helgason hf. Sœvarhöfba 2 - Sími 525 8000 - Beinn sími 525 8070 Fax: 587 9577- www.ih.is - Véladeild -E-mail: veladeild@ih.is Sarneinci&i lífeyrissjóSurinn Arsfundur 2000 Ársfundur Sameinaða lífeyríssjóðsins áríð 2000 verður haldinn mánudaginn 15. mai kl. 16:00 að Grand Hótel; Reykjavík, Sigtúni 38. Dagskrá — 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóósins. — 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. — 3. Önnur mál löglega upp borin. Fyrir fundinum liggur tillaga stjórnar um 7% aukningu áunninna réttinda umfram verðbólgu. Þeim sjóðfélögum sem hafa áhuga á kynna sér tillögur um breytingar á samþykktum Sameinaða lífeyríssjóðsins er bent á að hægt er að nálgast þær á eftirfarandi hátt: 1. Á skrifstofu sjóðsins að Borgartúni 30, Reykjavík 2. Fá þær sendar með því að hafa samband í síma 510-5000 3. Fletta þeim upp á heimasíðu sjóðsins á slóðinni www.lifeyrir.is Sameinaði lífeyrissjóðurinn er 4. stærsti lífeyrissjóður landsins og voru heildareignir hans 39,6 miUjarðar í árslok 1999. Rekstur sjóðsins gekk afar veL á árinu 1999 og er tillaga um réttindaaukningu lögð fram í Ljósi þess. Raunávöxtun sjóðsins var 17,8% og rúmLega 10.000 sjóðfélagar greiddu til hans. Reykjavik 17. april 2000, stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins Borgartún 30 • 105 Reykjavík • sími 510 5000 • fax 510 5010 • mottaka@lifeyrir.is * lifeyrir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.