Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Side 30
30
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
Helgarblað
Leitaði morðingja dóttur sinnar í sex ár:
Lést eftir að
hafa fundið
morðingjann
Karkutfjölskyldan 1 Gel-
senkirchen í Ruhrhéraði í Þýska-
landi var samheldin og hamingju-
söm fjölskylda. Þegar fjölskyldu-
faðirinn Franz og Edith kona hans
áttu silfurbrúðkaupsafmæli létu
þau taka margar myndir af sér
ásamt dætrunum Claudiu og Sil-
viu í tilefni dagsins. Þá grunaði
ekkert þeirra að þetta yrðu sið-
ustu myndirnir sem teknar yrðu
af allri fjölskyldunni.
Nú eru Claudia og faðir hennar
látin. Claudia var myrt á grimmi-
legan hátt en faðir hennar veslað-
ist upp af sorg og lést að iokum af
völdum heilaæxlis.
Áður hafði Franz Karkut varið
sex árum i leit að morðingja dótt-
ur sinnar. Hann ók frá einum
bænum til annars með mynd af
dótturinni og stöðvaði fólk á götu
úti. Hann reyndi að afla sér upp-
lýsinga á kaffihúsum og veitinga-
húsum og spurði ails staðar hvort
einhver vissi eitthvað um dauða
Claudiu og hver morðingi hennar
gæti verið.
í mörg ár fékk hann engin svör
við spumingum sínum. Þegar
hann gat að lokum farið á fund
lögreglunnar með kæru var hann
svo langt leiddur af sjúkdómi sín-
um að hann lést stuttu síðar.
Ljósiö logaði stööugt
Claudia Karkut hafði lært
blómaskreytingar og var flutt í
eigin íbúð í aðeins nokkurra kiló-
metra fjarlægð frá bústað foreldra
sinna. Hún átti kærasta, Gúnter,
og var hann oft með Claudiu og
vinkonum hennar. Ciaudia var
einnig í stöðugu sambandi við for-
eldra sína. Hún heimsótti þá að
minnsta kosti annan hvern dag í
ibúð þeirra í Fritz Reuterstrasse.
Moröinginn
Udo Bausch, til hægri,
gekk laus í sex ár.
Moröstaöurinn
Claudia var myrt
í íbúö sinni i þessu húsi.
Föstudaginn þann 30. júní 1989
var Claudia í heimsókn hjá for-
eldrunum sínum. Allt var eins og
það var vant að vera. En eftir
þessa síðustu heimsókn heyrðist
ekkert frá Claudiu í þrjá daga og
það var mjög óvenjulegt.
Edith og Franz höfðu samband
við Silviu, dóttur sína. Hún lofaði
að koma við hjá systur sinni. Sil-
via tók strax eftir því að það log-
aði ljós í íbúðinni og skipti þá
ekki máli á hvaða tíma hún ók
framhjá.
Nú voru þau öll orðin óróleg og
á miðvikudagskvöldið um 20 leyt-
ið fóru þau öll til íbúðarinnar.
Franz hafði tekið verkfæri með
sér svo að hann gæti brotið upp
dymar ef ekki yrði opnað fyrir
þeim. Enginn kom til dyra þegar
þau börðu að dyrum eða hringdu
dyrabjöllunni. Franz braut upp
lásinn og gekk inn í íbúðina.
Stífnaöi af geöshræringu
Enginn svaraði kalli hans.
Hann gekk í gegnum anddyrið,
inn í stofuna og stífnaði af geðs-
hræringu. Claudia lá látin á gólf-
inu. Hún lá á bakinu, hún var
nakin og með brostin augu. Franz
Karkut féll næstum því 1 yfirlið.
Hann brast í grát og varð að
styðja sig við dyrakarminn. Edith
og Silvia urðu að hringja í lög-
reglu og á sjúkrabíl.
Þegar sjúkraiiðsflutningamenn-
irnir komu staðfestu þeir lát
Claudiu og lögreglan hóf þegar
morðrannsókn. Krufning leiddi í
ljós að Claudia hafði verið bundin
i svefnherberginu. Henni hafði
jafnframt verið misþyrmt og
nauðgað. Því næst var hún dregin
inn í stofuna þar sem hún hafði
verið kyrkt.
A banabeöinum
Franz Karkut var lagöur inn á sjúkrahús skömmu eftir aö hann fann moröingja dóttur sinnar.
Augasteinn fööur síns
Franz Karkut varö veikur af sorg yfir grimmilegum dauödaga dóttur sinnar.
Kaffibollar í stofunni
Lögreglan gerði ráð fyrir því að
Claudia hefði þekkt morðingjann.
Þau höfðu augsýnilega drukkið
kaffi saman. í stofunni voru tveir
kaffibollar og hálffull kaffikanna.
„Morðingjarnir hljóta þá að hafa
verið tveir,“ sagði Franz Karkut.
„Claudia drakk aldrei kaffi, bara
te.“
Lögreglan yfirheyrði alla sem
þekktu Claudiu. En allir höfðu
„Franz haföi tekið
verkfæri með sér svo
hann gæti brotið upp
dyrnar ef ekki yrði
opnað fyrir þeim. Eng-
inn kom tii dyra þegar
þau börðu að dyrum
eða hringdu dyrabjöll-
unni.“
pottþétta fjarvistarsönnun. Og það
fundust engin fingraför í íbúðinni.
Það var greinilegt að morðinginn
eða morðingjarnir höfðu fjarlægt
þau.
Grimmilegur dauðdagi Claudiu
var áfall fyrir alla í fjölskyldunni,
ekki síst fyrir föður hennar.
„Sorgin vegna örlaga Claudiu
og vanmáttug reiði vegna voða-
verksins gekk nærri Franz,“ segir
eiginkona hans nú. Hann missti
matarlystina og svaf illa. Hann
hugsaði dag og nótt um þennan
óskiljanlega og óupplýsta glæp.
Lögreglan gafst að lokum upp á
rannsókn málsins. En það sætti
Franz Karkut sig ekki við. Hann
hélt áfram sinni eigin rannsókn
og notaði til þess allan frítíma
sinn. Hann gekk um alla ná-
grannabæi með mynd af Claudiu í
þeirri von að hann fyndi morð-
ingjann.
Dag nokkurn, sex árum eftir
morðið, kom hann á kaffistofu þar
sem menn gátu tippað. í einu
horni kaffistofunnar sat Emil
Hohlmeister, 44 ára, sem Franz
þekkti lítils háttar til.
„Þú þekktir líka hana Claudiu
okkar og þú kemur oft í bæinn.
Veist þú ef til vill eitthvað um það
hver myrti dóttur okkar?“ spurði
hann.
Flóttalegt augnaráö
Augnaráð Emils Hohlmeisters
varð flóttalegt en svo sagði hann:
„Ég er með verulega slæma
samvisku og verð að játa svolítið
fyrir þér. Já, ég veit hver myrti
Claudiu. Það gerði Udo Bausch,
slátrarinn, þú veist. Ég reyndi að
halda aftur af honum en hann var
of sterkur."
Franz Karkut flýtti sér til lög-
reglunnar sem samstundis hand-
tók Udo Bausch. Hann bjó reynd-
ar rétt hjá ibúð Karkut-fjölskyld-
unnar.
Udo Bausch var ákærður fyrir
morðið á Claudiu. Sæðisleifar
tengdu hann við glæpinn og hann
var dæmdur i lífstíðarfangelsi.
Óþreytandi leit Franz leiddi til
þess að morðinginn fannst og var
dæmdur. En langur og kvalafullur
biðtími hafði gengið nærri hon-
um.
„Ég er sannfærð um að örlög
Claudiu brutu niður líkamlegt og
andlegt mótstöðuafl Franz og
leiddu til veikinda hans,“ segir
Edith Karkut.
Heilsu hans hrakaði eftir því
sem árin liðu og loks greindist
hann með heilaæxli. Það leiddi til
dauða hans, stuttu eftir handtöku
Udos Bauschs.
„Syrgið mig ekki,“ sagði Franz
við eiginkonu sína og dóttur á
banabeðinum. „Gleðjist í staðinn
yfir því að morðingi Claudiu skuli
vera fundinn. Nú get ég dáið í
friði.“
Óp að næturlagi
Systurnar þögðu í tuttugu ár yfir hræðilegum glæp.