Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Page 32
32
Helgarblað
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
Jónas Franklín, læknir á Akureyri:
- kærir sjúkrahúsið og vill fá starfið aftur
„Mér finnst með þessari uppsögn
ómaklega vegið að starfsheiðri mín-
um og mannorði og mér finnst hafa
verið komið fram við mig eins og
einhvern glæpamann. Ég tel að
brotið hafi verið á rétti mínum og
vil berjast fyrir honum. Ég vil helst
ekki þurfa að sækja þetta mál fyrir
dómstólum landsins því ég bind
vonir við að enn megi ná sáttum en
sjái ráðuneytið enga ástæðu til að
grípa inn í verð ég að gera það.“
Þetta segir Jónas Franklín, kven-
sjúkdómalæknir á Akureyri, um
samskipti sín við stjórn og yfir-
menn Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri en 18 ára starfsferli Jónasar
er nýlokið með uppsögn.
Þegar Jónasi Franklin var sagt
upp störfum sem lækni við kvenna-
deild Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri hafði hann verið fastráðinn
þar frá október 1982 en hann kom
fyrst til starfa sem ungur lækna-
stúdent sumarið 1972.
Uppsögnin áfall
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
erflðleikar eru í samskiptum for-
stöðumanna sjúkrahússins á Akur-
eyri og lækna þar því 1996 sagði
Kristján Baldvinsson yfirlæknir
upp störfum undir miklum þrýst-
ingi frá stjórn FSA og nokkrum
árum áður var Gauti Arnþórsson
yfirlæknir einnig látinn hætta
störfum við sjúkrahúsið.
„Ég var á sínum tíma beðinn aö
sækja um þessa stöðu þegar ég var
í framhaldsnámi í Svíþjóð og ég
var mjög sáttur við það enda við
hjónin bæði innfæddir Akureyr-
ingar og fognuðum því að fá tæki-
færi til að setjast að á heimaslóð-
um.
Þessi uppsögn varð mér töluvert
áfall. Ég veit vel að ég er ekki alltaf
auðveldur í samstarfi, ég er ráðrík-
ur og vil helst hafa hlutina eftir
mínu höfði og rekst því illa í hóp.
Samstarfið á deildinni hefur verið
með þeim hætti undanfarin ár að
ég hafði hugleitt að gera breyting-
ar á starfstilhögun minni þar en
ekki náð að ræða það neitt við
stjórn sjúkrahússins sem mér
fannst taka því illa.
Ég átti gott samstarf við starfs-
fólkið á deildinni almennt og tel að
ég hafi verulegan stuðning í þeim
hópi. Ég tel mig ekki hafa sýnt
óviðunandi framkomu eða athafnir
í starfi og uppsögnin var því fyrir-
varalaus og samkvæmt því ólög-
mæt.“
Þetta eru ástæðurnar
Það var 31. janúar sl. sem stjóm
FSA boðaði Jónas á sinn fund
skömmu fyrir hádegi. Þar tilkynnti
Halldór Jónsson forstjóri honum
munnlega að honum væri sagt upp
störfum með hefðbundnum þriggja
mánaða fyrirvara frá 1. febrúar.
Á þessum fundi rökstuddi Halldór
uppsögnina munnlega og drap eink-
um á fjögur atriði sem helstu ástæð-
ur uppsagnarinnar. Þau eru:
a) „samstarfsörðugleikar".
b) „óviðunandi framkoma" sem
annars vegar fælist í baktali og rógi
og hins vegar „óhlýðni við löglegt
boð yfirmanna".
c) „ófullnægjandi árangur í starfí".
Jónas segir að fyrir utan það að
hann telji uppsögnina ólöglega þá
telji hann hafa verið vegið að mann-
orði sínu og starfsheiðri.
„Sama dag og mér er tilkynnt um
uppsögnina er allt starfsfólkið kallað
á fund. Þar tilkynnir yfirlæknir
kvennadeOdar því að mér hafi verið
sagt upp störfum. Engar frekari út-
skýringar voru gefnar af hálfu hans
og starfsmannastjóra en sagt að þeir
vildu mín vegna ekki rekja ástæður
uppsagnarinnar. Þetta var það versta
sem þeir gátu gert því fólk fór strax
að gera sér í hugarlund að ég hefði
brotið stórkostlega af mér. Þetta
barst síðan um allan bæ.“
Jónas og Vilhjálmur
Samkvæmt bestu heimildum DV
hefur samstarf Jónasar og yfirlækn-
is deildarinnar, Vilhjálms Kr. Andr-
éssonar, lengi verið mjög stirt og i
togstreitu og árekstrum þeirra á
milli mun vera að flnna uppsprettu
ósamkomulagsins. Vilhjálmur kom
til starfa á FSA 1996, eftir að Krist-
ján Baldvinsson lét af störfum, en
Jónas sótti um starfið á móti hon-
um. Kunnugir segja að Jónas og Vil-
hjálmur hafi gert sér flest að deilu-
efni, bæði meðferð sjúklinga og
skipulag starfsins. Starfsandinn á
deildinni var því oft mjög erfiður af
þessum ástæðum og ýmsum fleiri
áfóllum sem komu upp. I byrjun árs
1997 þótti ástandið vera orðið svo
slæmt að Högni Óskarsson geðlækn-
ir og Hulda Guðmundsdóttir félags-
ráðgjafi voru fengin til þess að
halda fundi með starfsfólki og bæta
starfsandann. Þau héldu fjóra fundi
á 12 mánaða tímabili og skiluðu
skýrslu þar sem fram kemur það
álit þeirra að Jónas eigi verulegan
þátt í slæmum starfsanda og best
væri ef deildin gæti „losað" sig við
hann. Þessa skýrslu fékk Jónas ekki
að sjá fyrr en eftir að honum var
sagt upp í vetur og er verulega óá-
nægður með það.
Jónas leitar lögfræðinga
Jónas var þegar í stað afar ósátt-
ur við það hvemig að uppsögninni
DV-MYNDIR: TEITUR
Saumaklúbbur á Akureyri safnaði undirskriftum til stuðnings Jónasi þar sem skorað er á sjúkrahúsið að draga uppsögnina til baka. Nærri 400 skrifuðu á listann.