Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Qupperneq 46
54
•■Tilvera
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
X>V
Rómantík á
Signubökkum
- París er paradís paranna
1 hugum margra er París ein
rómantlskasta borg heimsins. Þó
halda megi fram að hún sé aðeins
stór og óhrein borg á árbakka fá
flestir glampa í augun og fara að
tala um vorið og ástina eða eitt-
hvað álíka kjánalegt.
Vor og haust eru að margra
mati skemmtilegasti tíminn til að
heimsækja París því þá eru veður
þar oft bærileg. Yfir hásumarið
getur orðið óbærilega heitt og þá
nær mengun og molla slíku flugi
að einungis innfæddir geta þolað
við en í ágúst yfirgefa þeir flestir
borgina.
í París mætti dvelja í marga
daga við það eitt að skoða lista-
söfn, merkar byggingar, snuðra á
flóamörkuðum og hlusta á nið ald-
anna eins og hann bærist frá
veðruðum veggjum og steinlögð-
um strætum þessarar öldnu borg-
ar. Lítum á nokkur ómissandi at-
riði.
Bestu söfnln
Frægasta listasafn heims og eitt
það stærsta er Louvre-safnið í
gamalli konungshöll í hjarta bæj-
arins. Sagt er að gangamir i Lou-
vre séu samtals 17 kílómetrar að
lengd en ekki er þörf á að ganga
það allt til að sjá fræg málverk.
Við innganginn er hægt að kaupa
prýðisgóð kort sem á eru merkt
frægustu verk safnsins, s.s. Mona
Lisa, Venus frá MUo og ótal fleiri.
Á Louvre er list gegnum aldimar
tU 19. aldar.
Orsay-safnið er steinsnar hand-
ar árinnar frá Louvre og eru bygg-
ingamar að stofni tU gömul járn-
brautarstöð. Þar er list frá 19. og
20. öld og skrautfjaðrir safnsins
eru höggmyndir Rodins og mál-
verk frönsku impressionistanna.
Pompidou-safnið er ein frægasta
bygging Parísar á seinni timum.
Safnið opnaði aftur nýverið eftir
gagngerar
endurbætur. Þar er gott safn nú-
tímalistar og m.a. myndir eftir
Erró og Dieter Roth.
ÖU þessi söfn er hægt að skoða
undir leiðsögn en einnig má fá
afbragðsgóða bæklinga og kort í
anddyri sem gera leið-
angur upp á eigin
spýtur mjög auð-
veldan.
Glæsilegustu
torgin
Place de la
Concorde er rétt
hjá Louvre-safiiinu.
Þar stendur stein-
súla ein mikU kom-
in aUa leið frá Eg-
yptalandi og er
3500 ára gömul.
Hér stóð fallöxin
sem sneið höfuð
margra af i kjölfar
frönsku stjórnar-
byltingarinnar.
Beint vestur frá
torginu liggur
hin fræga breið-
gata Champs
Elysées tU Sig-
urbogans. Á
sumrin er Par-
isarhjól starf-
rækt í
garðinum við
torgið og er
þá hægt
að
kaupa
sér
snún-
ing í
því fyr-
ir 70
'FZfiFZ&L
franka eða svo og fást þrír hringir
fyrir. Hjólið er nógu hátt tU þess
að í góðu veðri gefist óviðjafnan-
legt útsýni yfir borgina efst úr því,
sérstaklega snemma á sunnudegi
þegar umferð er ekki mikU.
Mörgum finnst Concorde-torgið
eitt hið glæsUegasta í heimi en
París státar af fleiri faUegum torg-
um og má þar nefna Place de Vos-
ges sem er í 4. hverfi kenndu við
Marais eða mýrina. Þetta er elsta
torg Parisar, frá 1612, og óspUlt
með öUu. Einnig mætti nefna
Place Vendóme i 1. hverfi og Place
de Victoires í 2. hverfi.
Ekkert gefur eins góða tilfinn-
ingu fyrir stórborg eins og að sitja
við torg og virða fyrir sér mannlif-
ið. Þar er lifað sérstöku torglífi
sem er óþekkt í svölu íslensku veð-
urfari.
Besta útsýnið
Mörgum ferðamönnum finnst
gaman að prUa upp í eitthvað eða
upp á eitthvað tU þess að sjá yfir
nánasta umhverfi sitt. Mörg tæki-
færi bjóðast tU þess í París. Eitt
væri að nefna Eiffeltuminn sem er
trúlega eitt frægasta mannvirki
borgarinnar en þar er oft löng röð
eftir hinu merka útsýni. Sama má
segja um tuma og rið Notre-Dame
eða Vorrar Frúarkirkju. Ef menn
nenna að pjakka upp foma stiga
gefst afar fagurt útsýni yfir mið-
borg Parísar en það getur þurft aö
hinkra í röð. Af Sigurboganum
er einnig faUegt útsýni.
Margir segja að besta út-
sýnið yfir París sé af efstu
hæð verslunarmiðstöðvarinn-
ar La Samaritaine sem stend-
ur skammt frá Louvre-
safninu i miðri París. Þar
er veitingastaður einn
virðulegur fyrir þreytta
verslunargesti og borg-
in liggur við fætur
manna aUan hring-
inn.
í Mont-
pamasse-
tuminum í
14. hverfi,
sem er eini
skýja-
kljúf-
ur-
IT\
inn í París, er hægt að þjóta upp á
56. hæð í einni hröðustu lyftu í
Evrópu. Hún fer upp 56 hæðir á 38
sekúndum.
Margir ganga um Montmartre-
hæðina þar sem Sacré-Cœur-kirkj-
an gnæfir við loft. Af kirkjutröpp-
unum þegar kvöldsólin slær
bjarma á þreytta elskendur er
óviðjafnanlegt útsýni yfir þökin í
París og hægt að þekkja nokkur
frægustu kennUeiti borgarinnar.
Hvernlg kemst ég á stað-
fnn?
Það er hægt að ferðast með
strætó, leigubUum, rútum og lestum
í París. Besta og þægUegasta aðferð-
in er samt að nota neðanjarðarlest-
ina, le métro. Fyrir einn miða sem
kostar 8 franka (88 kr. ísl) er hægt
að vafra um borgina þvera og endi-
langa og skipta eins oft og maður
þarf. Mjög skýrt og gott skUtakerfi,
í inngöngum, á pöUunum og inni í
vögnunum, gerir nær ómögulegt að
vUlast. Þetta er sú aðferð sem
heimamenn nota tU aö komast mUli
staða og gefur skemmtUega sýn inn
í mannlífið.
Útsýnið er þó snöggtum betra úr
strætó og er hægt að kaupa camet
eða búnt 10 miöa, sem gUda jafnt í
strætó sem metró, á 55 franka.
Hvað kostar þetta?
Stakur miði í metró kostar 88
krónur. KaffiboUi kostar 70-300
krónur eftir því hve fint kaffihús-
ið er og hvort þú sýpur það við
barinn eða sitjandi úti á stétt. Það
er dýrast á stéttinni. Bjór, 33 cl.,
kostar 150-300 krónur eftir stöð-
um.
Það er hægt að borða í Paris fyr-
ir 1000 krónur á mann og upp úr.
En það sem ljær París sína töfra er
iðandi litríkt mannlífið, andrúms-
loft margra alda menningar, stríða
og átaka og matarmenningin fjöl-
breytta. AUt þetta kostar i raun-
inni ekki neitt nema opinn huga,
augu og eyru.
Paris
Engin borg hefur á sér
eins rómantíska ímynd
og París aö vori.
Vikulegar gönguferðir
Á hverjum sunnudegi ieggur hópur
íslands Center upp frá Ráöhústorgi
og gengur síöan um gamla bæinn.
Kaupmannahöfn:
Gönguferð á
íslendinga-
slóðum
Á tímabUinu 7. maí tU 1. október í
sumar stendur íslands Center í Kaup-
mannahöfn fyrir vikulegum göngu-
ferðum á íslendingaslóöir í borginni.
Ferðimar verða famar á hverjum
sunnudegi þetta tímabU og hefjast
stundvíslega kl. 11. Lagt verður af stað
frá H.C. Andersen styttunni á Ráðhús-
torgi og gengið sem leið hggur um
gamla bæinn með viðkomu á stöðum
sem sérstaklega snerta sögu íslands
bæði fym og nú.
Á Kolatorgi verður gerður stuttur
stans og fólki er gefinn kostur á að fá
sér hressingu. Gönguferðin endar kl.
13 í Jónshúsi þar sem safn Jóns Sig-
urðssonar verður skoðað. Þátttöku-
gjald fyrir fuUorðna er dkr. 100 en
ókeypis fyrir böm yngri en 12 ára.
Leiðsögumenn í þessum sívinsælu
gönguferðum eru: Guðlaugur Arason
rithöfundur og Bjarmi Guðlaugsson
námsmaður. Hópum er gefmn kostur
á leiðsögn um íslendingaslóðir utan
þessa tíma ef minnst 5 manns er í
hópnum. Nánari upplýsingar í síma:
+45 21908207 eða +45 20427056.
Framnás:
Sænsku-
námskeið
Norræna félagið á íslandi, í sam-
vinnu við Nomæna félagið í Nombott-
en i Norður-Svíþjóð, gefúr 15 íslend-
ingum kost á 2ja vikna sænskunám-
skeiði við lýðháskólann i Framnas
dagana 30. júlí tU 11. ágúst nk. Um-
sóknarfrestur er tU 7. maí nk. Um-
sóknareyðublað og allar nánari upp-
lýsingar um kennsluform og kostnað
er hægt að fá á skrifstofu Norræna fé-
lagsins, Bröttugötu 3b, Reykjavik, simi
5510165.
Hátækni á herbergi 217:
Fjarstýrð lykt
og fuglasöngur
Hótelherbergi
gerast æ tækni-
væddari ef marka
má nýjustu fréttir
frá Arc de Tri-
omphe-hótelinu í
París en þar hef-
ur herbergi 217
verið tölvuvætt
svo um munar.
Kostnaður við
framkvæmdimar
hljóp á mUljónum
en hugmynd hót-
elhaldaranna er
að gjörbreyta
upplifun hótel-
gesta. Þeir sem
gista í herbergi
217 geta með
tölvubúnaði breytt lýsmgu, hljóðum og
lykt í herberginu með því einu að nota
flarstýringuna. Þá geta þeir sem
kunna lítt að meta óhljóð í vekjara-
klukkum vaknað við fúglasöng eða
öldunið og tU að auka enn á stemning-
una er hægt að stilla búnaðinn þannig
að blómailmur fylgi með.
Gisting á herbergi 217 kostar um 30
þúsund krónur. Franska hótelkeðjan
Sofitel hyggst koma upp fleiri hátækni-
herbergjum á næstu misserum og geta
gestir hótelkeðjunnar í Feneyjum,
Köln, Amsterdam, Genf og London val-
ið að gista á slíku herbergi.
Fuglasöngur
Á herbergi 217 er
hægt aö stilla
fuglasönginn í
botn aö morgni
og jafnvel yfir-
gnæfa hávaöa
sem fylgirgjarna
öskukörlum sem
eru aö sinna
morgunverkum.