Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Page 51
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
59 *
DV__________________________________________________________Tilvera
Hún kyngdi
ósköpunum
brosandi
- en sagöi mér síðar hversu hræðilegt þetta hefði verið
Stefnum á stóra hluti í framtíöinni
„Þetta er fjölskyldufyrirtæki og þaö kemur fyrir aö ég elda ofan
í kvikmyndatökutiöiö. “
Bragi Þór Hinriksson er tuttugu
og fimm ára leikstjóri. Hann er eig-
andi Hreyflmyndasmiðjunnar sem
framleiðir sjónvarpsþætti, kvik-
myndir og sjónvarpsauglýsingar.
Það er meira en nóg að gera hjá
þessum unga manni og þegar blaða-
maður náði tali af honum var hann
á fullu í að vinna að auglýsingu fyr-
ir auglýsingastofuna Birtingu en gaf
sér þó tíma til að spjalla eilítið og
segja sitt litið af hverju um hvað
drífur á daga hans.
„Núna er ég að vinna að auglýs-
ingu fyrir auglýsingastofuna Birt-
ing. Ég hef verið að leikstýra aug-
lýsingum í rúm tvö ár. Meðal þess
sem komið hefur frá Hreyfimynda-
smiðjunni eru auglýsingar fyrir
Intersport, Pop Secret, Sinalco, Sam
tónlist, Teymi og Humarhúsið. Við
vinnum auglýsingar fyrir auglýs-
ingastofur og fyrirtæki. Ég er ný-
kominn frá Los Angeles þar sem ég
var viðstaddur frumsýningu á
minni fyrstu kvikmynd í fullri
lengd þar sem ég stjómaði upptök-
um. Hún var frumsýnd í SUNSET 5
í Hollywood og hefur verið vel tek-
ið. Það eru fullt af hlutum í gangi
hvað þetta varðar og við í Hreyfi-
myndasmiðjunni stefnum á stóra
hluti í framtíðinni," sagði Bragi Þór
og bætti svo við:
„Hreyfimyndasmiðjan er fjöl-
skyldufyrirtæki og það kemur fyrir
að ég elda ofan í kvikmyndatökulið-
ið.
Ég fékk þessa uppskrift hjá vin-
konu hennar Jóhönnu eiginkonu
minnar. Hún hafði gefið okkur þetta
að smakka og mér leist svo vel á
þetta að ég nappaði af henni upp-
skriftinni við gott tækifæri.
Þetta klikkar ekki viijir þú slá í
gegn hjá konunni á blómlegum síð-
kvöldum," sagði Bragi Þór sem að
sögn eiginkonu hans er alveg ein-
staklega rómantískur þegar hann
tekur sig til. Blaðamanni lék for-
vitni á hans fyrstu reynslu í matar-
gerð.
„Fyrst þegar ég eldaði fyrir konuna
þá var það pastaréttur sem karl faðir
minn hefur haft sem hefð hjá sér.
Þetta var eitthvað sem aðeins var
hægt að fá hjá honum. Ég hélt að ég
væri sömu hæfileikum gæddur og
hann. „0, boy, was I wrong.“ Annað
eins klúður er held ég ekki hægt að
hugsa sér. Þetta var stuttu eftir að við
kynntumst og hún var svo kurteis við
mig og kyngdi ósköpunum brosandi.
Hún sagði mér svo síðar frá hversu
hræðilegt þetta pasta hefði verið hjá
mér. Síðan þá hef ég farið í pastaskóla
Hinriks Þórhallssonar og lært mitt fag
beint frá meistaranum og konan hefur
ekki kvartað síðan," sagði Bragi.
Rækjukokkteill
Forréttur
Rækjur í kokkteilsósu
bornar fram með ristuðu brauði
Núðluréttur A La Bragi
Eftirréttur
1 dós sýrður rjómi
1/2 lítil dós majones
1 peli rjómi
1 msk. sinnep
1 tsk. karrí
ltsk. pasta+pizza krydd
3 hvítlauksrif (pressuð)
1 púrrulaukur
1 paprika
10 cm skinka (skorin)
nýir sveppir
1 pk. tortellini
Öllu er blandað saman. Tortellini
soðiö eftir leiðbeiningum og bland-
að saman við. Allt sett í eldfast mót
og mozzarella ostur settur ofan á rif-
inn. Bakast við 200 gráður í 20 mín.
Borið fram með salati og brauði.
Bláber í rjóma
Eftirréttur
Uppskriftir
Logandi
jardarber Fyrir 6
500 g fersk jarðarber
50 g sykur
50 g smjör
börkur og safi úr einni appelsínu
1/2 dl Grand Mamier
11 vanilluís
Rífið börkinn af appelsínunni
með rifjárni. Kreistið safann í
skál. Brúnið sykurinn á pönnu,
bætið í smjörinu og appel-
sínusafanmn. Takið pönnuna af
hitanum og hrærið i með sleif
þangað tO sykurinn er uppleystur.
Setjið aftur yfir hitann, bætið í
berkinum og jarðarberjunum. Setj-
Nykaup
Þarsc’niferskltiikiiin býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
Bláber í sykri
með þeyttum rjóma.
„Ég vil að endingu skora á
Gunnar Árnason hjá Hljóðsetn-
ingu ehf. að koma með uppskrift.
Hann hljóðsetur allar mínar aug-
lýsingar og er mikill fjölskyldu-
maður. Ég hefði gaman af að sjá í
hans kokkabækur," sagði Bragi
Þór að lokum.
ið jarðarberin á pönnuna og veltið
í sykurblöndunni, hellið líkjörn-
um yfir og kveikið í (ekki nauð-
synlegt). Berið fram með vanillu-
ískúlu.
Hollráð
Verið varkár þegar kveikt er í
vínanda á pönnu. Notið langar eld-
spýtur - ekki kveikjara. Kveikið
aldrei undir viftu eða innréttingu.
Haldið pönnunni þannig að logamir
valdi ekki hættu.
Siglufjörður
Nýr umboðsmaður l> »ví á Siglufirði er
Sigurbjörg Gunnólfsdóttir, Laugarvegi 34,
Sími 467 1286 og eftir kl. 13 sími 467 2067.
Upplýsingar í síma 550 5
Félágsþjónustan
Árbær og Breiðholt
Starfsfólk vantar í félagslega heimaþjónustu fyrir 67 ára og
yngri í Árbæjarhverfi. Starfshlutfall og vinnutími eftir sam-
komulagi á dagvinnutíma. Laun skv. kjarasamningi Eflingar
og Reykjavíkurborgar.Einnig vantar starfsfólk í sérverkefni í
Breiðholti mánud.-fimmtud., frá kl. 15.00-18.00, og einnig
aðra hverja viku frá kl. 16.00-19.00.Allar nánari uppl. veita
Hlíf Geirsdóttir deildarstjóri og Svanhildur Hauksdóttir flokks-
stjóri á hverfaskrifstofu Félagsþjónustunnar, Álfabakka 12,
í síma 535 3300 eða 535 3360.
Félagsþjónustan er fjölmennur vinnustaður sem veitir
borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunin leggur
mikla áherslu á fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk sitt, að
upplýsa það um stefnu stofnunarinnar og Reykjavíkurborgar í
málefnum starfsmanna og að kynna markmið þeirrar þjónustu
sem veitt er. Allir nýir starfsmenn fá sérstaka fræðslu og
kynningu um Félagsþjónustuna og borgarkerfið og fréttabréf
reglulega um starfsemi stofnunarinnar.