Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Síða 58
66
_____LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000
Tilvera jov
1 í f Í Ö
Skagfirska
söngsveitin á
vortónleikum
Hinir árlegu vortónleikar
Skagíirsku söngsveitarinnar i
Reykjavík verða haldnir í Lang-
holtskirkju kl. 17. Efnisskráin er
fjölbreytt en þess má geta að þar
verða tvö ný lög eftir kórstjór-
ann, Björgvin V. Valdimarsson,
frumflutt við texta Bjarna Stef-
áns Konráðssonar.
Klassík
■ KAMMERKOR KOPAVOGS
Kammerkór Kópavogs heldur út-
gáfutónleika sem bera yfirskriftina
Gömul vísa um vorið. Tónleikarnir
hefjast í Selfosskirkju klukkan 16.
■ TRÉSMIÐIR SYNGJA Samkór
Trésmlöafélags Reykjavíkur heldur
tónlelka í Bústaöakirkju klukkan
17.
■ VORTÓNLEIKAR KARLAKÓRS
REYKJAVIKUR Islands lag er yfir-
skrift vortónleika Karlakórs Reykja-
víkur að þessu sinni. Tónleikarnir
eru sex talsins og er það kórnum
sérstakt fagnaöarefni að geta nú
haldið vortónleika i hinu nýja og
glæsilega tónleikahúsi sínu, Ýml, í
Skógarhlíö 20.
■ VORTÓNLEIKAR TÓNUSTAR-
SKOLA GARÐABÆJAR Vortónleik
ar Tónllstarskóla Garöabæjar verða
haldnir í sal skólans að Kirkjulundi
11 og hefjast þeir meö tónleikum
forskóladeilda kl. 13. Sama dag, kl.
16, mun Margrét Ásgeirsdóttir
sópran halda burtfarartónleika sína
en Margrét lýkur 8. stigi frá skólan-
um nú i vor.
■ ÞRESTIR SYNGJA Karlakórinn
Þrestir heldur tónleika ? Glerárkirkju
klukkan 17. Stjórnandi Karlakórsins
Þrasta er Jón Kristinn Cortez og
undirleikari Sigrún Grendal. Einsöng
með Þröstum syngur Þorgeir J.
Andrésson tenór.
■ STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR Stór-
sveit Reykjavíkur efnir til stórsveit-
arveislu í Ráöhúsinu klukkan 16.
Aðgangur er ókeypis og eru allir vel-
komnir á meðan húsrúm leyfir.
Kabarett
■ FI.ÓAMÁRkÁÍ)UR i MÓSO íbúar
í Mosfellsbæ hafa veriö að laga til í
geymslunum hjá sér og ætla að
selja það sem þar fannst á flóa-,
markaöi í risatjaldi fyrir framan Ála-
fossföt bezt í dag. Ágóöinn rennur til
yngri deildar Aftureldingar í knatt-
spyrnu.
■ UPPBOÐ Á ÓSKILAMUNUM Lög
reglan heldur uppboö á óskilamun-
um aö Eldshöfða 4 kl. 13.30. Þar er
hægt aö gera góð kaup, m.a. á reið-
hjólum, kerrum og úrum. Fínt að
næla sér í reiöhjól fýrir sumarið á
góðu veröi.
Opnanir
■ BARNAUST Leikskólar Reykja-
víkur eru meö opiö hús þar sem
listsköpun barna í tengslum við
verkefniö 2000 börn í Reykjavík,
veröur til sýnis.
■ FÓLK ÚR RUSLIÍ PERLUNNI
Keflvíkingurinn Jóhann Maríusson
opnar skúlptúrsýningu á 4. hæð
Perlunnar í dag.
■ HAFNARBORG Sýning á verkum
Elsu Stansfield og Madelon
Hooykaas veröur opnuð í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, kl. 16.
Sjá ná.iar: Líflö eftir vinnu á Vísi.is
I gær voru 8 reikistjörnur í beinni línu sem gerist aöeins á margra þúsunda ára fresti
Hugleitt meðan
heiðlóan syngur
Umhverflð í kringum samkomu-
húsið Garðaholt á Álftanesi hefur
óneitanlega dulúðugan blæ. Víðáttan
er grá, sjórinn úflnn og himinninn
þungur; nokkrar rollur eru á beit við
sveitabæ skammt frá og handan við
þær grillir í álverið i Straumsvík. Á
hægri hönd er sveitakirkja en út úr
dyrunum á samkomuhúsinu berst
sterkur reykelsisilmur og nokkrar
konur birtast sem eru þama til að
hugleiða vegna stöðu átta reikistjarna
sem liggja í beinni línu þennan dag-
inn en það gerist aðeins á nokkurra
þúsunda ára fresti. Konurnar heOsa
glaðlega og skora samstundis á mig að
setjast inn í hugleiðslusalinn og upp-
lifa andrúmsloftið persónulega. Ég
þigg vitanlega boöið enda er okkur
ekki fært aö festa sjálfa hugleiðsluna
á mynd svo eina ráðið er að lýsa
henni í orðum.
Gat á tánni
Það má ekki fara inn á skónum og
mér til mikillar hreOingar er ég í
sokkum hvorn af sinni sortinni og
auk þess með gat á tánni. Konurnar
láta þó eins og ekkert sé og vísa mér
til sætis i hugleiðsluherberginu. Þar
em margir stólar og fólkið situr dreift
með lokuð augu og djúpa tóna í eyrun-
um, sem hljóma indverskir. Yst trónir
altari með kertum, appelsínugulum
rósum í vasa og innrömmuðum mynd-
um af andlitum sem virðast indversk.
Þetta er óneitanlega frábrugðið um-
hverfinu úti og skyndOega heyri ég
söng í heiðlóu sem berst inn í gegnum
vindinn og bárujárnið. Það er þægi-
legt að sitja þarna, tónlistin hljómar
róandi, líkaminn slaknar, reykelsis-
lyktin er sefjandi og mig langar
ósjálfrátt tO að gleyma mér í hug-
leiðslu en slík óskhyggja gengur ekki
meðan meðvitundin er fóst við ljós-
myndarann sem bíður óþolinmóður
og sötrar te, svo ekki sé minnst á
mismunandi sokka og gatið á tánni.
Vakning í andlegum málum
Eftir hugleiðsluna koma konumar
fjórar með mér inn á klósett i viðtal
því hávaði er óæskOegur meðan fólk
hugleiöir. Fyrir vikið hvislum við og
þær segja mér nöfnin sín: Kristbjörg
Kristmundsdóttir, Guðfmna Svavars-
dóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir og
RagnhOdur Gísladóttir. Þær stunda
hugleiðslu reglulega og hafa adar
fengið leiðsögn hjá Guru Maha Ma-
harishi, dr. Paranjothyar, en hann
sagði þeim frá sérstöðu dagsins og var
hvatamaður hugleiðslusamkomunnar
vegna stöðu stjamanna. Stjömumar
skipta þó ekki höfuðmáli því aðalat-
riðið er að ólíklegasta fóLk komi sam-
an tO að hugleiða. Samkvæmt útskýr-
ingum kvennanna felst hugleiðsla að
miklu leyti í því að yfirvinna órólegar
kenndir og hugsanir þar tO maður
nær því stigi að „vera bara“ og þá
hefst hin raunverulega hugleiðsla.
Hún gefur fólki m.a. meiri meðvitund
svo að það verður frekar eigin örlaga-
valdur en leiksoppur atburða og að-
stæðna. Aðspurðar viðurkenna kon-
umar að það sé geysOeg vakning í
andlegum málum - og álíta að það sé
þörf sem knýi fólk áfram í nútíman-
um, sem sé fudur af fylgikvidum á
borð við stess, aukna glæpi, vímuefni,
svo fátt eitt sé upptalið.
-AJ
Ný sýning opnuð í Þjóðarbókhlöðunni:
Klerkar, kaupmenn og karfamið
- varpar ljósi á samskipti íslendinga og Brimara í þúsund ár
Klerkar - kaupmenn - karfamið:
íslandsferðir Brimara í 1000 ár heit-
ir sýning sem opnuð var í gær í
Þjóðarbókhlöðunni. Sýningin, sem
er framlag Brimarborgar til Reykja-
víkur menningarborgar árið 2000,
skiptist í þrjá hluta og fjadar sá
fyrsti um tengsl íslendinga og
Brima í kringum árið 1000. Þau
tengsl voru einkum trúarleg en
fyrsti íslenski biskupinn, ísleifur
Gissurarson, var vígður í dóm-
kirkju borgarinnar árið 1056. Fyrir-
ferðarmesti sýningargripurinn í
þeim hluta er einmitt dkan af dóm-
kirkjunni eins og hún leit út á tíma
ísleifs. Einnig má þar sjá eftirlíking-
ar af súluhöfðum sem standa í graf-
hvelfingu kirkjunnar og menn telja
að tengist eddukvæðunum.
Annar hluti sýningarinnar er
helgaður verslun Hansaborgara viö
íslendinga á 15. og 16. öld en þá voru
viðskipti þjóðanna mjög blómleg.
Meðal annars getur þar að líta
gamla viðskiptabók sem varpar ljósi
á hvaða vörur voru fluttar frá Evr-
ópu td íslands og ýmsan verslunar-
vaming frá tímabilinu, svo sem skó,
hnífa og búsáhöld.
Þriðji hlutinn tengist síðan flsk-
veiðum Brimara við Islandsstrend-
ur en þær hófust seint á 19. öld og
allar götur síðan hafa Islendingar
átt í miklum samskiptum við Brim-
ara í tengslum við sjávarútveg.
Meðal annars voru margir togarar
íslendinga smíðaðir í borginni við
Weser-fljót og íslensk fisksölufyrir-
tæki hafa bækistöðvar þar.
Sýningargripimir koma frá ýms-
um söfnum, bæði hér á landi og í
Þýskalandi, og er í flestum tdvikum
um upprunalega muni að ræða. Um
hönnun sýningarinnar sér Peter
Gössel en hann þykir i fremstu röð
á sinu sviði í Þýskalandi. Sýningin
stendur td 28. maí. -EÖJ
DVA1YND HILMAR ÞÓR
Sýning um tengsl Brimara og íslendinga
Uwe Beckmeyer, formaöur þýsk-íslenska félagsins í Bremer-
haven/Bremen, er einn af þeim sem stendur aö sýningunni í Þjóöarbók-
hlööunni.