Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000
I>V
Milosevic formælt
Námsmenn í Belgrad efndu til mót-
mæla gegn stjórnvöldum í gær.
Þúsundir náms-
manna krefjast
afsagnar Slobod-
ans Milosevics
Rúmlega fimm þúsund náms-
menn í Belgrad fóru í mótmæla-
göngu í gær og kröföust afsagnar
Slobodans Milosevics Júgóslavíu-
forseta og stjórnar hans. Þá kröfö-
ust námsmenn þess að stjómvöld
létu af ofsóknum sinum á hendur
stj ómarandstæðingum.
í borginni Nis í sunnanverðri
Serbíu stöðvaðist öll umferð um
tíma þegar sjö þúsund manns efndu
þar tU mótmælaaðgerða.
Námsmennimir í Belgrad hvöttu
leiðtoga stjórnarandstöðunnar til
að móta árangursríkari stefnu í
baráttunni gegn Milosevic. Stjóm-
arandstöðuleiðtogamir hittust í
ráðhúsi Belgrad til aö undirbúa
mótmælaaðgerðir gegn stjórn
landsins síðdegis í dag.
Mútur í líkhúsum
danskra spítala
Danska lögreglan hefur upplýst
að starfsfólk á líkhúsum nokkurra
sjúkrahúsa hefur þegið mútur fyrir
að mæla með sérstökum útfararstof-
um viö ættingja látinna sjúklinga.
Starfsfólk líkhússins á Bispebjerg
sjúkrahúsinu hefur til dæmis þegið
mútur 50 til 100 sinnum.
Tveir starfsmenn likhússins á
ríkissjúkrahúsinu í Kaupmanna-
höfn misstu vinnuna vegna þessa í
vikunni, að sögn danska blaðsins
Politiken.
Málið nær aftur tO ársins 1997
þegar útfararstjóri sem nýlega hafði
tekið til starfa borgaði fyrir aö fá
upp gefin nöfn aðstandenda látinna.
Elian hjá pabba
Kúbudrengurinn Elian Gonzaiez áttar
sig á aö móöir hans er látin.
Elian viðurkennir
lát móður sinnar
Kúbverski drengurinn Elian
Gonzalez er nú loks búinn að átta
sig á því að móðir hans lést við
flóttatilraun þeirra frá Kúbu til
Bandaríkjanna í nóvember síöast-
liðnum, að sögn fjölskylduvinar.
Elian var bjargað úr sjávarháska
og komið fyrir í umsjá ættingja
sinna á Flórída sem neituðu síðan
að afhenda drenginn foður hans.
Lögreglan fjarlægöi Elian með
valdi fyrir fimm vikum og hefur
hann siðan dvalið með föður sinum
sem kom til að sækja hann. Að sögn
er Elian nú farinn að tala um dauða
móður sinnar við foður sinn.
Fulltrúi SÞ við landamæri Líbanons og ísraels:
Skil gleðina yfir
frelsun landsins
Terje Röd-Larsen, sáttasemjari
Sameinuðu þjóðanna í Mið-Austur-
löndum, stóð við landamæri Lí-
banons og ísraels í gær og sagðist
skilja gleði Líbana við frelsun
landsins eftir 22 ára hersetu ísraela.
Hundruð íbúa líbanska bæjarins
Marwa hylltu norska stjómarerind-
rekann ákaft þegar hann fylgdist
með starfsmönnum SÞ, hermönn-
um, landmælingamönnum og korta-
gerðarmönnum, við mælingar sem
staðfestu að ísraelar hefðu skilað
aftur alþjóðlegum landamærum
ríkjanna.
„Ég skil mjög létti og gleði
líbönsku þjóðarinnar yfir því að rétt
landamæri hafa loks verið endur-
heimt og að land þeirra hefur verið
frelsað,“ sagði Röd-Larsen og horfði
yfir til ísraels í aðeins um eitt
hundrað metra fjarlægð.
Röd-Larsen fór um svæði sem
Gæsluliöar SÞ á ferð
írskir friöargæsluliöar SÞ í eftirlits-
ferö í Suður-Líbanon í gær.
friðargæsluliðar SÞ höfðu ekki get-
að farið um þar til í þessari viku
þegar vopnaðar sveitir bandamanna
ísraels í Suður-Líbanon leystust upp
og ísraelski herinn flýtti heimferð
sinni um sex vikur.
Leiðtogi Hizbollah skæruliða-
hreyfmgarinnar, Hassan Nasrallah
sjeik, krafðist þess í gær að ísraelar
fylgdu eftir brottflutningi hersveita
sinna frá Suöur-Líbanon og færu
einnig frá umdeildu fjalllendi nærri
Golanhæðunum, á landamærum
Sýrlands og ísraels. Þá krafðist
Nasrallah þess einnig að ísraelar
létu alla líbanska fanga lausa.
Skæruliðar hafa hótað að berjast
áfram nema ísraelsk stjórnvöld
gangi að þessum kröfum. Nasrallah
sagði að sigurinn væri allra Líbana
og hvatti múslima og kristna tO að
sameinast en krafðist refsingar yfir
bandamönnum ísraela.
Sandskúlptúrar í Singapore
Galvaskir námsmenn frá Singapore reyna sig í sandskúlptúragerð á sumarleyfiseyjunni Sentosa úti fyrir ströndum
landsins. Rúmlega tuttugu áhugamenn alls staöar aö úr heiminum hafa keppst við aö búa tii sem fallegasta
skúlptúra í sandinn á eyjunni í þeirri von aö hreppa tíu þúsund doliara fyrstu verötaun.
Rússlandsforseti fær falleinkunn:
Pútín klúðraði síðasta
stóra njósnaverkefninu
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
klúðraði heldur betur síðasta stóra
verkefninu sinu sem útsendari sov-
ésku leyniþjónustunnar KGB í
Austur-Þýskalandi og upp komst
um njósnahring sem hann setti á
laggimar.
„Hann var ekki mjög góður. Eftir
því sem við vitum best gekk honum
ekki vel. Honum varð alvarlega á í
messunni," segir Johannes Legner,
talsmaður þýskrar stofnunar sem
hefur umsjón með skjölum austur-
þýsku leyniþjónustunnar Stasi.
Pútin starfaði sem njósnari KGB í
Dresden á árunum 1984 til 1990, áð-
ur en hann klifraði upp metorða-
stigann í rússneskum stjómmálum
eftir fall kommúnismans. Hann hef-
ur orð á sér fyrir að vera skilvirkur
og koma hlutunum í framkvæmd.
Engu að síður virðist hann hafa
Ekki góður njósnari
Vladímír Pútín Rússlandsforseti þótti
ekki standa sig of vel hjá KGB.
klúðrað síðasta verkefhinu svo um
munaði. Legner segir að eftir hrun
Berlínarmúrsins hafi Pútín fengið
þaö verkefni að stofha hring njósn-
ara sem átti að halda áfram að
vinna fyrir Sovétmenn eftir yfirvof-
andi hrun Austur-Þýskalands.
Pútín sneri sér til fyrrum liðs-
manna Stasi en ekki viidi betur til
en að höfuðpaurinn gekk til liðs við
þýsku gagnnjósnastofnunina tveim-
ur mánuðum síðar og kjaftaði frá.
Nokkrir menn vom handteknir í
kjölfarið. Pútín sneri aftur heim og
nokkrum árum síðar varð hann yf-
irmaður FSB, arftaka KGB.
„Vandinn er að stjóm okkar viU
ekki gera neitt í þessu,“ segir
Legner. „Svo lengi sem hann er
svona mikilvægur vilja þeir ekki
spilla samskiptunum með þetta
gömlum sögum.“
Stuttar fréttir
Blair situr heima
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, ætlar ekki að
mæta á ráðstefnu
leiðtoga helstu rikja
heimsins í Berlín í
næstu viku. Þess í
stað ætlar hann að
sitja heima yfir litla
syni sínum Leo sem fæddist fyrir
viku, eða svo.
Prestastríð í Klakksvík
Undirskriftasöfnun er hafin meðal
sóknarbarna í Klakksvík í Færeyj-
um til að mótmæla því að prestar
bæjarins hafa neitað að biskupinn af
Víborg í Danmörku prédiki þar á
kristnitökuafinælinu í sumar.
Danska þingið setur met
Þingmenn á danska þinginu slógu
eigið met i fiýtimeðferð í gær þegar
þeir áttu að afgreiða 78 fmmvörp
fyrir sumarfrí.
Danir gætu losnað
Danir gætu sagt sig úr myntsam-
starfi Evrópusambandsins ef það
gerðist þannig að ESB skaðaðist
ekki. Þetta segir Romano Prodi í
viðtali við breska tímaritið Specta-
tor. Þjóðaratkvæðagreiðsla verður í
Danmörku í haust um hvort taka
eigi upp evruna, mynt ESB.
Til hjálpar flóttamönnum
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins ætlar að leggja til rúmlega
þrjá mUljarða króna til að aðstoða
flóttamenn frá Bosníu að snúa aftur
til síns heima.
Komið aftur í janúar
BiU Clinton
Bandaríkjaforseti
segist ekki vera far-
inn að ihuga af
neinni alvöra hvað
hann ætlar að taka
sér fyrir hendur
þegar hann yfirgef-
ur Hvíta húsið í
janúar á næsta ári. Ef einhver reyn-
ir að brydda upp á þessu við hann,
segir hann hinum sama að koma
aftur að finna sig i janúar.
Eþíópar sækja fram
Hersveitir Eþíópa sóttu lengra
inn í Erítreu í gær, þrátt fyrir yfir-
lýsingar óvinanna um að þeir ætl-
uðu að kalla allar sveitir sínar burt
frá umdeildum landamærasvæðum.
Amnesty gagnrýnir
Mannréttindasamtökin Amnesty
Intemational segja að ekkert lát
verði á mannréttindabrotum i Si-
erra Leone fyrr en bundinn verði
endi á þá stefnu að gefa stríðandi
fylkingum upp sakir fyrir stríös-
glæpi og mannréttindabrot.
Biðlar til kaþólikka
George W. Bush,
forsetaefni repúblik-
anaflokksins í Banda-
ríkjunum, biðlaði í
gær til kaþólskra
kjósenda og lýsti yfir
stuðningi sínum við
að Páfagarður fái
áheymarfulltrúa hjá Sameinuðu
þjóðunum.
Prinsinn í flugskóla
Friðrik krónprins af Danmörku
hefur flugmannsnám hjá danska
flughemum í ágúst í sumar.