Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Blaðsíða 36
36
Helgarblað
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000
DV
- sem heilsaöi lífinu á miöjum ah
Hallur Hallsson yfirgaf öruggt starf fyrir fimm árum og
gékk út í lífið án þess að hafa hugmynd um hvað
tœki við. Síðan hefur allt leikið í höndunum á hon-
um og starf hans verið ein allsherjar sigurganga -
með einni undantekningu.
„Þetta er spuming um að þora
að taka áhættu, segja upp starfi
sem fullnægir manni ekki, ganga
út í lífið og segja: Hér er ég! í raun
og veru vissi ég ekkert hvort
nokkur hefði áhuga á mér eða
starfskröftum mínum,“ segir Hall-
ur HaHsson fyrrum sjónvarps-
fréttamaður og teygir úr sér á
skrifstofu sinni hjá Frjálsum fjar-
skiptum sem stefnir að því að gera
ísland að miðstöð fyrir alþjóðlegt
GSM-símanet með tUheyrandi
fjárfestingum í samvinnu við
símafyrirtækið MintTelecom sem
hefur höfuðstöðvar sinar í Lund-
únum. „Hér eru möguleikarnir í
framtíðinni og ég verð stundum
að klípa mig í handlegginn tH að
vera viss um að þetta sé aUt satt,“
segir HaUur sem hefur ásamt fé-
lögum sínum sótt um skráningu á
flmm milljón símanúmerum með
íslensku landsnúmeri til að láta
drauminn rætast. Þá sér hann
fram á að Frjáls ijarskipti verði
komin með mörg hundruð manns
í vinnu eftir nokkur ár.
Galdurinn er að gera sem
minnst en koma öllu í
verk
Sjálfur er Hallur með höfuð-
stöðvar sínar við Skúlagötuna
þaðan sem hann gerir út og er
með fleiri jám í eldinum en tölu
verður á komið í fljótu bragði.
Auk þess að gegna stjómarfor-
mennsku í Frjálsum fjarskiptum
rekur HaUur almannatengslafyrir-
tækið Menn og málefni og bókaút-
gáfuna Vöxt:
„Galdurinn er að gera sem
minnst en koma öUu í verk
þannig að starf manns verði eins
og óstöðvandi elfur,“ segir HaUur,
mjúkri og hálfhvíslandi röddu
sem gerði hann að góðkunningja
þjóðarinnar á meðan hann starf-
aði sem sjónvarpsfréttamaður.
Þegar hann talar er eins og yflr
Kelkó
Það var mikill happafengur fyrir Hall þegar höfrunginn heimsfræga rak á
fjörur hans.
honum hvHi dulúð, jafnvel trúar-
festa enda er hann með stóran
guUkross um hálsinn: „Konan
mín gaf mér krossinn fyrir 25
árum. Hann kemur starfi 'mínu
ekki við,“ segir HaUur sem verður
flmmtugur á næsta ári og viður-
kennir aðspurður að líklega hafi
hann þroskast seint - en vel.
Fréttastjóradraumurinn
sem varð að engu
Þegar Hallur yfirgaf fréttastofu
Stöðvar 2 fyrir fimm árum eftir 20
ára blaðamennskuferU var
ástæðan einföld. Hann sá ekki
fram á að verða fréttastjóri A
þrátt fyrir langan starfsald-
ur og mikla reynslu og
fram undan var ekkert
annað en að hjakka i
sama farinu og enda á eft-
irlaunum með höfuðið
fuUt af draumum sem
ekki höfðu ræst. Þá stóð
hann upp og heilsaði
heiminum í annað sinn.
„Ég byrjaði vel þegar
ég gaf út metsölubókina
Karlmenn eru frá Mars -
konur eru frá Venus. Sú
bók hitti beint í mark og
það sama má segja um
Lögmálin 7 um vel-
gengni eftir Deepak
Chobra, í þýðingu Gunn-
ars Dal, bók um Díönu
prinsessu, aðra um móð-
ur Theresu, svo og met-
sölubók Jónasar Jónas-
sonar, Náðuga frúin frá
Ruzomberok," segir
HaUur sem þama skaut
stoðum undir heimUis-
fjárhaginn og gat farið
að sinna öðru. HaUur
gerðist sérstakur um-
boðsmaður Keikós hér á
landi, sameinaði sveit-
arfélög á Austurlandi
sem aUir töldu vonlaust
verk, skipulagði heim-
sókn HiUary Clinton
hingað tU lands, kom
Haraldi Erni á norður-
pólinn og á kvöldin
sat hann við skriftir
og reit sögu Olíu-
verslunar Islands:
Hvaft heffti
gerst ef
Keikó heffti
drepist og
Haraldur
Orn aldrei
komist á
norftur-
pólinn?
„Það
fylgir því
ákveðin
áhætta að
taka að sér
svona verkefni. Hver
hefði orðstír minn og fyrir-
tækis míns orðið ef Keikó
hefði drepist í kvínni í Vest-
mannaeyjum eða Haraldur Örn
aldrei komist á norðurpólinn?
Maður verður aUtaf að vera
sigurliðinu til að geta haldið
áfram og ég hef svo sannarlega
neitað verkefnum sem ég
hef ekki haft trú á. Erflð-
ast i þessu er að sjá at-
burðarásina fyrir.
Strax og maður ger-
ir einhver mistök
stöðvast flæðið og
hlutimir verða
flóknir. Á meðan
maður hefur yfirsýn
og byggir á réttum
ákvörðunum gengur
þetta upp. Þá verður
maður líka að halda
sig við heUdarmynd-
ina og láta aðra um
smáatriðin. Þvl er mik-
ilvægt að vinna með
góðu fólki sem maður
treystir," segir HaUur og
dregur ekki diU á að Keikó
hafi orðið honum mikiU
happafengur þegar
höfrunginn
heims-
m
-
ss
mt
í-í.- 1