Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Blaðsíða 37
45
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000
X>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Laðurinn
iri
fræga rak á íjörur hans. „Þetta er
stórt verkefni sem er rekið áfram
af Craig McCaw, einum ríkasta
manni í Bandaríkjunum. Sá vinn-
ur nú að því ásamt tölvukóngin-
um Bill Gates að koma 288 gervi-
hnöttum á braut umhverfis jörðu
fyrir þráðlaust Intemet framtíðar-
innar.“
Að mati sérfræðinga er þó sam-
eining sveitarfélaga á Austurlandi
eitt mesta afrek sem Hallur Halls-
son hefur unnið á ferli sínum. Það
að koma Neskaupstað, Eskifirði
og Reyðarflrði í eitt sveitarfélag,
Fjarðabyggð, þótti óvinnandi verk
og þá helst vegna mikillar og al-
mennrar andstöðu við sameining-
una á Eskifirði þar sem flestcillir
voru á móti og Alli ríki líka. Hall-
ur fór austur og beindi kastljósum
fjölmiðla að Eskifirði og langvinn-
um sameiningardeilum þar.
Alli ríki áttaði sig ekki á
sjónvarpinu
„Þarna skipti máli að varpa sem
skýrustu ljósi á málefnið sem til
umræðu var. Ég samdi við Stöð
2 um beinar sjónvarpssút-
sendingar frá kosningum og
i öUu því fljóðljósi sem
fylgdi gekk sameiningin
; eftir. Helsti þröskuldur-
inn í þessari baráttu var
Alli ríki á Eskifirði sem
var á móti. Hann féllst
, hins vegar á að kosta
sjónvarpsútsending-
arnar frá Eskifirði
sem urðu í raun til
þess að hann varð
undir í kosningun-
um. Hann áttaði
sig ekki á áhrifa-
mætti sjónvarps-
ins. Þegar fjöl-
miðlaljósið skin
sem skærast
lætur aUt und-
an. Kosturinn
við það er sá að
aUt er fyrir opn-
um tjöldum og
myrkraverk
vinna menn
ekki í kastljós-
um,“ segir
HaUur og um
framkvæmd
norðurpóls-
ferðarinnar
hefur hann
SsjPi
Bókaútgefandinn
Metsölubækur ár eftir ár.
þetta að segja:
„Þarna vorum við með tvo
hörkuduglega menn með ákveðið
markmið sem þeir ætluðu sér að
ná. Við þá sögðum við í bakvarða-
sveitinni (sem er nýyrði) einfald-
lega: Einbeitið þið ykkur að göng-
unni á pólinn og við sjáum um aUt
hitt. Við opnuðum miðstöð í Úti-
lífi í Glæsibæ þar sem fólk gat
komið og fylgst með göngu pólfar-
anna og jafnvel heyrt í þeim. Þetta
gekk aUt upp og ég var ekki óá-
nægður þegar ég sá myndir í blöð-
unum af forsætisráðherra tala við
Harald Örn í síma með merki Úti-
lífs í bakgrunni. Þetta hefði allt
snúist í höndunum á mér ef Har-
aldur hefði ekki náð á norðurpól-
inn en ég veðjaði á strákana og
reiknaði dæmið rétt. í því fólst
sigur minn.“
Mistök I forsetakosning-
um
Hallur HaUsson viðurkennir þó
að einu sinni hafi honum mistek-
ist en það hafi ekki verið sér að
kenna heldur viðskiptavininum
sem pantaði þjónustu hans. Og í
Fjarskiptakóngurinn
Hallur kynnir stórbrotin áform Frjálsra fjarskipta um aö gera ísland aö al-
þjóölegri miöstöö fyrir GSM-símtöl.
raun hefði hann aldrei átt að taka
að sér verkefnið. Þetta var þegar
hann féUst á að stjórna kynning-
armálum fyrir forsetaframboð
Péturs Kr. Hafstein í forsetakosn-
ingunum vorið 1996. HaUur lét sér
þessi mistök að kenningu verða
og hefur síðan aldrei tekið að sér
vinnu fyrir stjórnmálamenn.
Hann segir að málefhin skipti
mestu enda byggist árangur vinnu
hans fyrst og síðast á djúpri sann-
færingu hans sjálfs á tilgangi þess
sem unnið er að.
Ef hugurinn er opinn flæð-
ir lífið til manns
„Ég er góður í svona „project-
um“ aUs konar þar sem binda
verður saman marga enda í einni
góðri grunnhugmynd. Síðan er að
ganga með opinn huga að verkinu
og til þeirra sem maður þarf að
hafa samskipti við. Ef hugurinn
er opinn flæðir lífið tU manns. Ég
held að það sé mergurinn málsins
og ég er þakklátur fyrir að hafa
komist að þessum sannindum þó
seint hafi verið. Sumir komast
aldrei að þessu,“ segir HaUur sem
byrjaði að stunda innhverfa íhug-
un um það leyti sem þau straum-
hvörf urðu í lífi hans sem hér er
um rætt. Sem bam í Bústaða-
hverfinu í Reykjavík var hann
dulur og aUt að því einrænn en nú
tekur hann hverjum manni sem
jafningja og vini og ávextimir láta
ekki á sér standa.
„í þessu sambandi má ekki
gleyma þeim áhrifum sem árin
min i sjónvarpi hafa haft á núver-
andi starf. Fólk þekkir mig af
skjánum og ég var í mörg ár gest-
ur í stofum landsmanna. Þegar ég
svo birtist núna með erindi mín
þá þekkir fólk mig og það opnast
ýmsar dyr sem væru ef til viU öðr-
um lokaðar. En númer eitt, tvö og
þrjú er að vera opinn; þá flæðir
aUt og gengur upp,“ segir HaUur
sem er kennaramenntaður og
stundaði nám í ensku við Háskóla
íslands áður en hann sneri sér að
blaðamennsku.
Ætlar að hætta að vínna
eftir flmm ár
„Ég kláraði aldrei BA-ritgerð-
ina i Háskólanum en hvaða máli
skiptir það nú? Blaðamennska tU
margra ára er besti skóli og lík-
lega besta menntun sem völ er á
fyrir það starf sem ég sinni nú.
Blaðamenn vita lítið um aUt og sjá
fyrir bragðið samhengi hlutanna.
Þéir þekkja stjórnkerfið út og inn
og ekki skyldi vanmeta þær þús-
undir manna sem maður hefur
talað við í gegnum tíðina í blaða-
mennskunni og þekkir jafnvel
ævUangt. Blaðamennskureynslan
er dýrmæt þegar maður er kom-
inn á nýjan vettvang og án henn-
ar gæti ég ekkert þar sem ég er
nú. En ef menn ætla að hasla sér
vöU á nýju sviði verða þeir að
þora. Það þarf bæði kjark og trú á
sjálfan sig til að gera slíkt og ég
þekki marga sem hefðu gott af því
að fylgja fordæmi mínu. Þessi
breyting hefur orðið mér tU góðs,“
segir HaUur sem stefnir að því að
hætta að vinna eftir fimm ár:
„Ekki svo að skUja að ég setjist í
helgan stein, heldur frekar hitt að
ég fari að velja mér verkefni sjálf-
ur. Ég hef verið heppinn en ekkert
af þessu hefði gerst ef ég hefði
ekki verið opinn fyrir nýjum hug-
myndum og óhræddur við breyt-
ingar. í þvi felst gæfa mín,“ segir
HaUur HaUsson og klípur sig aftur
í handleginn tU að vera viss um
að hann sé af þessum heimi en
ekki öðrum. „Kannski er þetta
kraftaverk," hvíslar hann lágt.
Hallur í fyrsta kynningarverkefni sínu sem sjálfstæöur atvinnurekandi. Kynn-
ing á starfi ísaksskóla og hann fékk Davíð Oddsson til aö mæta enda for-
sætisráðherrann gamall nemandi skólans.
Fréttamaðurinn
Hallur fyrir framan myndavélina meö Olís t baksýn. Nú er hann aö leggja
lokahönd á sögu Olíuverslunar íslands sem hann hefur unniö
meö fram öörum störfum.
Pólfarinn
Hallur meö Haraldi Erni - pólfaranum sem komst á toppinn meö aöstoö r ■
Halls.