Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Síða 18
18 Helgarblað LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 DV Magavandræði hjá Friends- stjörnunni Hinn vinsæli leikari Matthew Perry, betur þekktur sem Chandler í Friends-þáttunum, hefur ekki verið alveg heill heilsu upp á síðkastið. Fyrir skömmu var hann lagður inn á sjúkra- hús í Los Angeles vegna mag- ans en er nú á batavegi. „Maga- verkirnir voru óbærilegir en nú er ég út- skrifaður og liður miklu betur,“ sagði Perry við blaðamann People. Perry neitar hins vegar að það sé eitthvað að lifrinni á honum eins og fleiri erlendir fjölmiðlar hafa haldið fram. M.a. var það orðið altalað að dreng- urinn þyrfti nýja lifur ef hann ætti að halda lífi en það er sem sagt sem betur fer ekkert til í þeim sögusögnum. Claudia óvinsæl á Mallorca Cfaudia Schiffer er ekki vel liðin á MaUorca þessa dagana. Girðingin sem hún hefur látið reisa 1 kringum hús sitt á vestur- strönd eyj- unnar fer virkifega í taugarnar á yfirvaldinu. Girðingin veldur því að ekki er hægt að ganga leng- ur að vita einum sem er á ströndinni. Böövar Magnússon, fyrrum útibússtjóri Búnaöarbankans og nú skemmtanastjóri DAS, þykir liötækur á nikkuna og segja menn aö hann blómstri hreinlega í nýja starfinu. áhugamál og starf og fá borgað fyr- ir það. Böðvar er nefnilega mikill harmoníkuspilari og hefur um ára- bil verið félagi í Harmoníkufélagi Reykjavíkur auk þess að spila á tón- leikum víðs vegar um landið. Áður fyrr þandi hann nikkuna á árshátíð- um Búnaðarbankans, nú glymur hins vegar i hljóðfærinu suður í Hafnarfirði. Böðvar gerir þó meira en að koma fram fyrir áhorfendur því hann sér um að halda uppi stuð- inu þar á bæ og skipuleggja skemmtidagskrá en þar er af nógu að taka. En hvemig stóð eiginlega á því að þú ákvaðst að gera skemmtanastjóri á DAS? „Ég sá starfið auglýst og sótti ein- faldlega um,“ segir Böðvar en að sögn kunnugra blómstrar hann í nýja starfinu. Bjórkvöldfn vinsæl „Mitt hlutverk er að taka á móti þeim sem vilja koma fram og eins að falast eftir listamönnum. Kórar og tónlistaratriði hafa alltaf verið vinsæl skemmtiatriði. Ég er með hóp af aðstoðarfólki sem hjálpar mér að halda utan um þetta, bæði aðstandendur og starfsfólk hér á Hrafnistu," segir Böðvar og ekki veitir af af lýsingum hans að dæma, þegar rúlla þarf hjólastólum inn og út úr leikhúsum svo dæmi séu nefnd og því fer best á að hafa snör handtök. „Við gerum okkur ýmislegt til skemmtunar og spilum m.a. boccia, félagsvist, skjótum pílum, spilum bingó förum í leikfimi og eins er púttvöllur á lóðinni. Þá dönsum við alla fostudaga, hér er starfræktur kór og bjórkvöldin eru alltaf vin- sæl,“ segir Böðvar um starfsemina sem fram fer á DAS. Böðvar er heldur ekki i vafa um að reynsla hans sem útibússtjóri nýtist honum í nýja starfinu. „í gamla starfinu reyndi náttúr- lega mikið á mannleg samskipti og það reynir ekki á síður á þau í Fyrrum útibússtjóri gerist skemmtanastjóri á DAS: „Þetta brýtur gegn venjum eyjarinnar um það að allir veg- ir skuli vera opnir fyrir al- menning, þó að þeir liggi yfir einkalóðir," skrifar Die Welt. Lögreglan og ekki minnst fót- gangandi íbúar eyjarinnar eru alla vega mjög ósáttir við girð- inguna og vilja hana burt svo þeir geti áfram komist leiðar sinnar meðfram ströndinni. Úr banka á böll - fær borgað fyrir það sem honum finnst skemmtilegast Böðvar Magnússon er einn af þessum mönnum sem starfa við það sem honum þykir mest gaman að gera. í 41 ár starfaði Böðvar hjá Búnaðarbankanum, var m.a. útibús- stjóri í Miðbæjar- og Austurbæjar- útibúi, en þegar því sleppti og Böðv- ar var orðinn sextugur ákvað hann að söðla um og gerast skemmtana- stjóri DAS í Hafnafirði. Með því má segja að hann hafi orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að samræma þessu starfi," segir Böðvar Guð- mundsson, fyrrum útibús- og nú skemmtanastjóri sem hefur aldrei verið ánægðari. \c-t'tí - Át-'Ax ... Kynhvörf Eftir að aldur færðist yfir mig hef ég venjulega vaknað einhvern tímann úr miðjum morgni um sexleytið, stigið framúr og gengið hægum en þungum skrefum fram í bæjardyrnar, gáð til veð- urs, pissað á bæjarhelluna og tekið sól- arhæðina. Síðan huga ég ögn að jarmi fugla og fénaðar undir Snældubjörgmn og signi mig. Svo geng ég aftur til hvílu og verð andvaka. í morgun gekk þetta allt sinn vana- gang. Ég lét hugann reika, hugsaði sold- ið um dauðann, já og lífið og allar þær hremmingar sem þvi fylgja, ellina og gamlingjamál, framtíð fegurðardrottn- inga og sauðfjárbænda, velgengni Bjark- ar, minn eigin hag, húsbréfin, ástandið í Persíu eða Líbanon, eða hvar það nú er. Svo fór ég að hugsa um það hvers vegna konan mín hefði ekki látið það eftir mér að steikja ketbollurnar sem voru í kvöld- mat í gærkvöldi uppúr sméri, heldur jurtafeiti, sem er í mínum augum leður- feiti notuð til að smyrja beisli á haustin. Og mér fannst ég hafa gilda ástæðu til að undrast það að þessi kona sem lá þarna í fastasvefni við hliðina á mér á þessum fagra vormorgni skyldi telja það einsog sjálfgefið að hún mætti sofa út, ef sér byði svo við að horfa. Það var semsagt rétt fyrir klukkan sex í morgun sem ég stjakaði við konu minni og spurði hana blíðlega, einsog mér er svo einkar lagið, hvort hún skildi það ekki að þegar ég fengi ketbollur þá vildi ég hafa þær steiktar uppúr sméri en ekki leðurfeiti. Svo ýtti ég aftur við henni. Þegar hún loksins vaknaði leit hún á mig en sagði síðan: „Ég held þú sért að breytast í kell- ingu.“ Ég þagði við en komst svo að þeirri niðurstöðu að líklega ætti hún kollgát- una. Líklega er ég að breytast í kellingu. Stundum þegar konur eru mikið í brennidepli langtímum saman kemst ég einsog í undarlegt sálarástand. Ég hef ekki þorað að segja frá því fyrr en núna en um síðustu helgi, þegar Björk var að slá í gegn og fegurðardrottningar fylltu alla fjölmiðla, fór ég að hafa undarlegar draumfarir. Þúsundir, milljónir eða trilljónir af fegurðardísum sóttu að mér úr öllum áttum og ég, gamli maðurinn, hugsaði sem svo: „Ég drukkna í þessu læraflóði." Þá varð það mér til lífs í draumnum að ég hætti að vera hinn drukknandi og breyttist í drekkjandann. Ég hafði, í draumnum, breyst úr karli í konu. Og í morgun fann ég að draumurinn hafði ræst. Ég var orðinn kona. Það fyrsta sem ég gerði í morgun var að fara framúr og framá bað. Þar pissaði ég sitjandi og kláraði svo á mér morgun- verkin að hætti kvenna. Við þessi hamskipti varð margt af því sem áður var mér óskiljanlegt, deginum Ijósara. Nú skil ég hvað það er sem hefur stað- ið í vegi fyrir frama mínum í lífinu. Nú skil ég hversvegna ég er ekki brunaliðsmaður, kafari, ráðuneytisstjóri, fjallkóngur, bankastjóri, útkastari, skip- stjóri, aðalritari Sameinuðu þjóðanna eða jarðýtumaður. Það er einfaldlega vegna þess að ég er kona. Núna, eftir að ég er orðinn kona verð- ur mér óglatt þegar ég hugsa til þess hvílíkt karlrembusvín ég hef verið í gegnum tíðina. Til marks um það má geta þess að á meðan ég var karlmaður gaf ég fallegum konum alltaf meiri gaum en ljótum kon- um. Mér fannst löngum að fallegar konur ættu sífellt að vera á vappi um allar trissur, flangsandi, daðrandi og duflandi, stígandi í vænginn við mann og gefandi undir fótinn eða hvað það nú heitir. Ljótar konur fannst mér hins vegar ættu ekki að vera mikið á ferli innanum fólk. Þessi afstaða mín til ófríðra kvenna hefur gerbreyst eftir að ég varð sjálfur kona. Ófríð kona. Nú hafa augu mín opnast fyrir því að ljótar konur eiga tilverurétt einsog fal- legar konur. Það er sorglegt og svívirðilegt og raun- ar brot á mannréttindum að í fegurðar- samkeppninni sem er nýafstaðin var ekki ein einasta ófríð kona. Og ekki verður annað séð en laglausar konur hafi verið gersamlega sniðgengnar á kvikmyndahátíðinni þar sem Björk var að slá í gegn. Þetta segir sína sögu og verður ekki liðið öllu lengur. Flosi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.