Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000
I>V
29
Helgarblað
Kvöldið sem John Westcott
fór á sinn fyrsta fund hjá El-
eutheros hafði hann enga
hugmynd um hvert líf hans stefndi
en hann vissi að hann vildi fyrir
alla muni breytast. „Biðjið fyrir
mér,“ hafði hann tilkynnt félögum
sínum nokkrum mánuðum áður.
Að því búnu tilkynnti hann
unnusta sínum til átta ára að hann
vildi slíta sambandinu þar sem
hann ætlaði að afneita samkyn-
hneigð sinni. „Þetta er ekki það sem
Drottinn hefur ætlað okkur,“ sagði
hann þar sem hann sat við eldhús-
borðið og unnusti hans eldaði svína-
kótilettur í kvöldmatinn. „Þetta er
ekki það sem Guð hefur ætlað mér.
Ég vildi aldrei vera þannig.“
Vilja iosna undan samkyn-
hneigðinni
Eleutheros, kristinn söfnuður
sem auglýsir „frelsi frá samkyn-
hneigð", virtist vera lausnin fyrir
Westcott, 38 ára gamlan fjármála-
ráðgjafa. í litlu herbergi safnaðarins
með neonljósum í lofti og stálhús-
gögnum á víð og dreif, gafst honum
í fyrsta sinn færi á að kynnast öðr-
um mönnum sem einnig voru að
berjast gegn kynferðislegri freist-
ingu til annarra karlmanna og sem
þeir álitu ónáttúrlega. Sumir þess-
ara manna voru giftir og héldu fram
hjá eiginkonum sínum með öðrum
mönnum. Margir þeirra höfðu orðið
fyrir kynferðislegri misnotkun sem
böm eða alist upp hjá einstæðri
móður og skort foðurímyndina. Líkt
og Westcott höfðu þónokkrir þeirra
ætla sér að reyna slíkt?
Þetta er meðal þeirra spuminga
sem hafa vaknað eftir ráðstefnu á
vegum samtaka bandarískra geð-
lækna í Chicago i siðustu viku. APA
hafði áætlað að efna til umræðna
um hvort hægt væri að útrýma sam-
kynhneigð með svokallaðri endur-
áttunaraðferð þegar tveir ráðstefnu-
gesta drógu þátttöku sína til baka á
þeim forsendum að málið væri of
viðkvæmt og pólitískt fyrir hlut-
lausar umræður.
Það að APA skyldi hætta við að
efna til umræðna um málið vakti
hins vegar hörð viðbrögð í herbúö-
um Exodus Intemational sem eru
regnhlífarsamtök kristinna safnaða
fyrrum samkynhneigðra.
„Ég er mjög vonsvikinn," sagði
framkvæmdastjóri Exodus, Bob
Davies. „Samtök fyrrum samkyn-
hneigðra eru að komast i slíkt há-
mæli að það ekki er lengur hægt að
neita fullyrðingum okkar. Við mun-
um ekki hverfa af vettvangi."
Leiðtogar fyrrum samkyn-
hneigðra segjast geta fært fram
óyggjandi sannanir fyrir því að að
hægt sé að snúa kynlífslöngunum
til sama kyns upp í andhverfu sína.
„Breytingin er aukaafleiðing innri
lækningar," segir Richard Cohen,
meðferðarfulltrúi frá Maryland sem
notar aðferðir allt frá að vagga karl-
kyns sjúklingum sínum í örmum
sér yfir í að kenna sjúklingum að-
ferðir við að taka á og leysa vanda-
mál sín. „Með þvi að kafa í brunn-
inn og í myrkustu afkima munu
þeir koma niður á leyndarmál. Þeg-
Er hægt að snúa kynhvöt manna tll sama kyns upp í andhverfu sína?
Inn
einnig átt við áfengis- og fikniefna-
vandamál að stríða. Óháð bak-
grunni voru þessir menn þó fyrst og
fremst saman komnir þar eð þeir
báni í brjósti sömu von um að losna
undan samkynhneigð sinni sem þar
með myndi bæta þeirra eigið líf og
tilveru meira en orð fengju lýst.
Munum ekki hverfa
af vettvangi
En er þetta mögulegt, og það sem
meira er um vert, er hættulegt að
Nýtt meðferðarform fyrir homma og lesbíur:
í skápinn á ný
- hefur vakið mikla umfjöllun og deilur á erlendri grund
ar þeir hafa læknað sár sin munu
þeir komast í tæri við kynhvöt sína.
Afleiðing þess er að kynhvötin til
sama kyns fjarar út.“
Mikill meirihluti ósammála
Cohen viðurkennir að hann hafi
aðeins náð viðunandi árangri með
„lítinn hluta sjúklinga sinna" og flest-
ir leiðtogar fyrrum samkynhneigðra
segjast aðeins hafa ná fullum árangri
í um 30 prósentum tilvika. „Það ligg-
ur mikil vinna að baki,“ segir Cohen,
„og það er ekki vinsælt á tímum
skyndisúpa frá Campbell."
Eins og gefur að skilja hafa um-
mæli Cohens vakið hörð viðbrögð
meðal samkynhneigðra og ekki síður
meðal geðlækna og sálfræðinga. „Þú
getur breytt hegðun einstaklinga með
því að verðlauna þá og refsa á víxl,“
segir sálkönnuðurinn Christopher
Wallis frá San Francisco. „Hins vegar
er mun erfiðara að breyta innri til-
veru þeirra. Hættan er sú að einstak-
lingurinn fari að líta á líf sitt sem lygi
og skörnm." Samtök geðlækna víða
um Bandaríkin hafa tekið undir
þessa skoðun Wallis og segja að slík-
ar tilraunir ali aðeins á sektarkennd
viðkomandi auk þess sem engar sann-
anir hafi verið færðar fyrir þvi að
hægt sé að breyta kynhvöt manna.
John Westcott er þó ekki í þeirra
hópi því hann ásamt þúsundum ann-
arra homma og lesbía halda því fram
að þau hafi „læknast" af samkyn-
hneigð.
Eftir stendur hins vegar að mikill
meirihluti samkynhneigðra svo og
almenningur er ósammála hug-
myndum Cohens. Fólk spyr sig eðli-
lega hvort þessum mönnum geti
verið alvara eða hvort hér sé aðeins
um að ræða öfgasinnaða hreintrúar-
sinna sem vilja vekja athygli á mál-
stað sínum.
Hvað sem öðru líður hefur ten-
ingunum allténd verið kastað.-KGP
(Unnið upp úr grein í tímarit-
inu Salon)
Nóg aö gera hjá rithöfundimim Sigurði Pálssyni:
Nýtt leikrit á
fjalirnar og
bók í smíðum
„Þetta er tragikómidía sem
byggist á tilfinningum og fram-
vindu tilfinninga en er samt á
gamansömum nótum,“ segir Sig-
urður Pálsson um sitt nýjasta leik-
rit, Einhver í dyrunum, sem verö-
ur frumsýnt á Litla sviði Borgar-
leikhússins í dag, laugardag. Leik-
ritið fiallar i stuttu máli um fyrr-
verandi leikkonu sem hefur lokað
sig inni á heimili sinu og neitar að
fara út. Hún fær hins vegar lítinn
frið því það er alltaf einhver sem
bankar upp á. Það er Kristbjörg
Kjeld sem fer með hlutverk
leikkonunnar en þetta er í fyrsta
sinn sem hún sést á fiölum Borgar-
leikhússins. „Það er alltaf spenn-
andi að vinna með íslensk leikrit
og það eina sem hægt er að segja
um þetta verk er að þaö er marg-
slungið," segir Kristbjörg sem vill
ekki láta of mikið uppi fyrir vænt-
anlega áhorfendur.
Fáar sýningar núna
Leikritið Einhver í dyrunum er
ekki það eina sem Sigurður hefur
verið að fást við í vetur. Um síð-
ustu jól gaf hann út ljóðabókina
Ljóðtímaskyn en fyrir hana hlaut
hann tilnefningu til menningar-
verðlaiuia DV og þessa stundina
er hann að vinna að skáldsögu.
Forsýningamar á hinu nýja leik-
riti verða fiórar þessi mánaða-
mótin en svo verður leikritið ekki
sýnt fyrr en af fullum krafti í
haust.
„Það er hugsanlegt að það verði
gerðar smávægilegar breytingar á
sýningunni á haust,“ segir Sig-
urður sem heldur öllum mögu-
leikum opnum.
Eri til hverra höföar þetta verk?
„Ég held að verkið ætti að
höfða til allra þeirra sem hafa á
annað borð gaman af leikhúsi og
tilfinningum,“ er skoðun Sigurð-
ar. Sumarið er alla vega vel plan-
lagt hjá honum. Það verður notað
til skrifta en skáldsagan sem
hann er með í vinnslu kemst von-
andi í jólabókaflóðið: „Og ef ekki
þá verður hún alveg ömgglega
með næsta ár,“ skýtur skáldið inn
í. -snæ
Einhver í dyrunum er heitiö á leikriti eftir Sigurö Pálsson sem veröur frum-
sýnt í Borgarlelkhúsinu í dag.