Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Side 31
31 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 X>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað Norski krónprinsinn er með einstæðri móður: Fallinn fyrir stúlku með fortíð - norska þjóðin er ósátt við nýju kærustuna Það hefur varla verið skrifað um annað i norskum blöðum undanfar- iö en ástarsamband Hákonar krón- prins og stúlkunnar Mette-Marit Tjessem Hoiby. Kærustur Hákonar hafa reyndar alltaf vakið áhuga al- mennings enda verður sú kona sem hann velur sem eiginkonu sína drottning þegar kemur að því að hann taki við völdum í konungs- höllinni. Engin af vinkonum prins- ins hefur hins vegar hlotið eins mikla athygli og Mette-Marit og í landinu hefur skapast eins konar Mette-Marit hysteria. Saman síöan í sumar Mette-Marit er 26 ára mannfræði- nemi við háskólann í Ósló. Með náminu hefur hún verið að vinna sem þjónn en hún á einnig 3 ára gamlan son sem heitir Maríus. Mette-Marit er lýst sem sjálfstæðri og jarðbundinni manneskju með áhuga á ferðalögum og tónlist og var hún m.a. skiptinemi í Ástraliu. Parið kynntist fyrir þremur árum en það var ekki fyrr en síðasta sum- ar að eitthvað fór að gerast á milli þeirra og síðan þá hefur parið svo að segja verið óaðskiljanlegt. Mette- Marit býr ásamt syni sínum og vin- konu i vesturhluta Óslóarborgar en sjálfur býr prinsinn einnig í íbúð í þeim hluta borgarinnar. Hann er í spænskunámi og tekur einnig lög- fræðiáfanga við sama skóla og Mette-Marit. Barnsfaðirinn eiturlyfjasali Það dylst engum að prinsinn er mjög hamingjusamur með Mette- Marit en sambandið hefur þó vakið upp miklar umræður meðal norsku þjóðarinnar. I fyrsta lagi eru sumir ekki sáttir við það að Hákon skuli velja sér konu sem ekki er með blátt blóð en það sem fer þó meira í taugamar á fólki er það að stúlkan skuli vera einstæð móðir. Almenn- ingur veltir fyrir sér hvaða stöðu sonur Mette-Marit muni fá innan konungsíjölskyldunnar ef parið myndi giftast og hvort hann gæti orðið erfmgi að krúnunni. Faðir Þetta er konan sem stoliö hefur hjarta norska krónprinsins. Hún heit- ir Mette-Marit og er einstæö móöir og afþeim sökum vilja margir Norö- menn ekki fá hana sem drottningu. Hákonar, Haraldur, valdi sér ekki heldur konungboma konu sem eig- inkonu en almenningur er fyrir löngu orðinn sáttur við drottning- una Sonju Haraldsen enda var hún ekki einstæð móðir þegar hún gift- ist kónginum þannig að því er ekki saman að líkja. Til að bæta gráu ofan á svart hvað vinsældir Mette- Marit varðar þá er fortíð stúlkunn- ar einnig skrautleg. Hún lifði og hrærðist lengi í House-umhverfinu innan um eiturlyf og mjög skraut- legt fólk. Bamsfaðir hennar er t.d síður en svo með hreint sakavott- orð og er margdæmdur smá- krimmi. Þetta hefur sitt að segja um álit fólks á stúlkunni og mörg- um finnst óviðeigandi aö Hákon sé með stúlku sem kemur úr þessu umhverfi. Yngra fólkiö sáttara Það er reyndar ekki öll norska þjóðin á móti sambandi parsins því í könnun, sem gerð var fyrir norska blaðið Dagbladet, kom í ljós að yngra fólkinu virðist vera alveg sama og segir að Hákon geti verið myndu vilja búa í norsku konungs- höllinni en þjóöin vill ekki hvaöa stúlku sem er í höllina. Konungs- hjónin Haraldur og Sonja styðja val sonar síns og vilja aö hann láti hjartaö ráöa. með hvaða konu sem er. Hann eigi bara að fylgja hjartanu. Eldra fólk- inu finnst hins vegar að konungs- fjölskyldan veröi að vanda maka- Hákon hefur aöallega tagt lag sitt viö módelstelpur hingaö til en hefur nú falliö fyrir stúlku meö fortíö. Hann sá sig tilneyddan til aö ræöa ástarsambandiö í sjónvarpsviötali þar sem fréttirnar hafa valdiö miklu fjaðrafoki meöal þjóöarinnar. valið og fólk hefur jafnvel gengið svo langt að segja að Hákon verði að afsala sér tilkalli til krúnunnar taki hann þessa stúlku fyrir eigin- konu þar sem konungsfjölskyldan eigi að vera gott fordæmi fyrir þjóð- ina. Mette-Marit er ailavega ekki talin vera gott fordæmi þar sem hún hafi tengingu við dóp og sé ein- stæð móðir. Umræðan hefur einnig verið um það hvort konungs'- fjölskyldan sé ekki orðin úrelt og hvort ekki sé kominn tími til að Noregur fái sér forseta í staðinn fyrir kóng. Almenningi finnst alla- vega konungsfjölskyldan oft ekki hegða sér eins og eðalborinni kon- ungsfjölskyldu sæmir og skemmst er að minnast þess að þjóðin saup hveljur þegar það fréttist að Hákon hefði stigið fæti sínum inn á hommabar. Hvað sem skoðunum maima líður á konuefhi prinsins og konungsíjölskyldunni yfirleitt þá eru menn sammála um það að Mette-Marit sé aðlaöandi og mynd- arleg stúlka. Parið á sér mörg sam- eiginleg áhugamál og Hákon er ánægður með henni. En það hvort maður er ástfanginn eða ekki skipt- ir greinilega ekki mestu máli þegar maður ert konungborinn. -snæ Sviösljós Ricky Martin kann svo sannarlega aö hreyfa sig á dansgólfinu og myndi taka sig vel út í nýrri útgáfu af Durty Dancing. |V Ricky Martin í Durty Dancing 2? Jennifer Grey og Patrick Swayze heilluðu áhorfendur í kvikmynd- inni Dirty Dancing árið 1987. Nú er hins vegar von á nýrri dansmynd og þar með nýju danspari því sam- kvæmt blaðinu Variety hefur kvik- myndafyrirtækið Artisan Entertain- ment og Miramax plön um að búa til framhald af myndinni. Þau sem koma til greina i aðal- hlutverkin eru enginn annar en lat- ínósmjörið Ricky Martin og Star Wars stjaman Natalie Portman. Það hefur nú þegar verið haft samband við Portman og Martin og sam- kvæmt frásögnum bandarískra blaða hafa þau sýnt áhuga á því að dilla sér saman á hvíta tjaldinu. Alveg frá 1996 hefur kvikmynda- fyrirtækið verið að spá í að gera framhald af myndinni og var t.d Patrick Swayze boðin dágóð summa fyrir að taka hlutverk að sér í myndinni en hann afþakkaði boðið. Spuming er hvort sagan um hina saklausu unglingsstúlku, sem verð- ur ástfangin í danskennara, fellur eins vel í kramið hjá fólki og fyrir 13 árum. Vill ekki börn Síðustu ár og misseri hafa margir spáð og spekúlerað í kvennamálum George Clooneys og héldu flestir að um sfðir myndi hann festa ráð sitt og fjölga mannkyninu. Þessi hefur ekki orðið raunin og í nýjasta hefti Playboys birtist viðtal við kappann þar sem álit hans hans og afstaða til bameigna og fjöl- skyldu er nokkuð afdráttarlaus, svo ekki sé meira sagt. Þar kem- ur m.a. fram að barneignir em það síðasta sem hann myndi taka þátt í. „Ég held að ég muni ekki kvænast," segir Clooney f ítarlegu viðtali. „Ég held aö hug- myndin með að giftast sé að þá ætli maður að stofna til fjöl- skyldu og eignast böm. Ég hef ekkert af því innra með mér sem flestir hafa - að þeir verði að fjölga sér. Ég yrði ekki góður faðir. Og ef það þýðir að maður eigi ekki að eiga börn þá á ég svo sannarlega ekki að verða faðir.“ Mamma rak fleyg í milli Fyrr í vikunni sögðum við frá því að Liz Hurley og Hugh Grant væri skilin að borði og sæng. En hvað veldur þessum snögga endi á þrettán ára sambandi þeirra? Var ástæðan í raun og vem sú að Grant vildi ekki eignast böm? Margir höfðu haldið að þar sem Liz gat fyrigefið Hugh Divine Brown hneykslið hefði samband þeirra komist yfir erf- iðasta hjallann. Sagan kennir okkur þó að veröldin er hverful og mennirnir með. Samkvæmt nýjustu heimildum mun hvorki barnleysi né samband við hórur vera ástæðan. Sumir af félögum Grants hafa nefnilega stigið fram eftir skilnaðinn og fullyrt að Hugh hafi ekki viljað hafa brothætt hjónaband þeirra á bakinu á sama tíma og hann annast sjúka móður sína sem liggur á dánarbeði. Fynvola Gr- ant, móðir Hughs, þjáist af krabbameini og segja kunnugir að mömmu gömlu hafi ætíð ver- ið í nöp við Liz. Spuming hvort mamma hafi togað í einhverja spotta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.