Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2000, Qupperneq 65
73
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000
I>"V Tilvera
Giuliani 56 ára
Rudolph Giuliani fæddist í Brook-
lyn þennan dag árið 1944. Giuliani hef-
ur verið borgarstjóri New York borgar
frá árinu 1994. Um skeið hugðist Giuli-
ani bjóða sig fram til öldungadeildar
Bandaríkjaþings og keppa þar með við
frú Hillary Clinton. Nýverið hætti
Giuliani hins vegar við framboð og er
ástæðan talin tvíþætt; annars vegar
skilnaður hans við eiginkonuna og
hins vegar krabbamein sem hann
greindist nýlega með.
Afmælisbörn
Joseph þrítugur
Enski leikarinn Joseph Fiennes er
þrítugur í dag. Joseph á að baki
glæstan feril í leikhúsum Lundúna-
borgar og í kvikmyndum. Hann er
litli bróðir annars frægs leikara,
Ralph Fiennes. Meðal frægra kvik-
mynda Josephs er vert að nefna
Elizabeth, þar sem hann lék á móti
Cate Blanchett og Shakespeare in
Love, en þar var mótleikari hans
engin önnur en Gwyneth Paltrow.
Stjörnuspá
Cildir fyrir sunnudaginn 28. maí og mánudaginn 29. maí
œm
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.):
Spá sunnudagsins:
Þér gengur óvanalega vel
1 að einbeita þér og verður
EÉsíi mikið úr verki. Þess vegna
verður þú ekkert uppriflnn þegar stung-
ið verður upp á skemmtun í kvöld.
Spa mánudagsins:
Þú ert fremur einmana um þessar
mundir. Þú þarft sjálfur að gera eitt-
hvað til að bæta þar úr þar sem ekk-
ert gerist algjörlega án fyrirhafnar.
Hrúturinn (21. mars-19. aprih:
Breytingar eru í aðsigi,
jafnvel búferlaflutning-
» ar. Þú fagnar þeim þar
sem þú hefur beðið þeirra lengi.
Happatölur þínar eru 5, 28 og 30.
Spá mánudagsins:
Þér veitir ekki af að nýta morgun-
inn vel til allra verka þar sem þú
verður fyrir truflunum síðdegis.
Þú færð fréttir af fjarlægum vini.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi:
Spá synnudagsins:
' Miklar breytingar verða
á lífi þínu á næstunni.
Þú fagnar þeim þar sem
þér finnst tilveran hafa verið harla
tilbreytingarlítil undanfarið.
Spá mánudagsins:
Mikiivægt er að þú haldir ró þinni
þó að fólk sé eitthvað að æsa sig í
kringum þig. Gefðu þér góðan tíma
áður en þú tekur erfiða ákvörðun.
Liónið (23. iúlí- 22. áeústl:
Spá sunnudagsins:
Vinur þinn endurgeld-
ur þér gamla skuld
sem þú varst nærri bú-
inn að gleyma. Heimilisstörfin
taka mikið af tíma þínum.
Spá mánudagsins:
Hikaðu ekki við að leita þér að-
stoðar við að leysa erfitt verkefni
sem þú þarft að leysa. Vinur þinn
borgar þér gamla skuld.
Vogín (23. seot.-23. okt.):
Spa sunnudagsins:
I Best er að tala hreint út
um mál sem er farið að
*,f verða talsvert þrúgandi
í samskiptum vina. Þér kemur á
óvart hve lausnin reynist einföld.
Spá mánudagsins:
Þú hittir gamlan vin og þið rifjið
upp gömul kynni. Þetta kemur
töluverðu róti á huga þinn. Kvöld-
ið verður ánægjulegt.
Bogamaðuf (22. nóv.-21. des.i:
Spa sunnudagsins:
’ Þú ættir að finna þér
_ nýtt áhugmál. Það
gæti hleypt nýju lifi í
tilveruna hjá þér. Þú verður fyrir
óvæntu happi í fjármálum.
Spá mánudagsins:
Gerðu þér glaðan dag. Þú átt það
virkilega inni þar sem þú hefur
staðið í ströngu undanfarið. Ung-
viðið er í stóru hlutverki.
Rskarnir (19. febr.-20. marsi:
Spa sunnudagsins:
’ Þú ferð á fjarlægar slóðir
og kynnist nýjum háttum
og siðum. Þú vinnur að
undirbúningi þessa og miðar vel.
Happatölur þínar eru 5,18 og 26.
Spá manudagsins:
Þér gengur ekki vel að koma þér
að verki. Töluverð samkeppni rík-
ir í kringum þig og hún gæti vald-
ið dálitilli streitu.
Nautið (20. april-20. maí.l:
Kergja viröist vera að
f hlaupa í mál sem er
Nar bráðnauðsynlegt að leysa
með einhverju móti. Þú ert fremur
ráðalaus gagnvart þessrnn vanda.
Spá mánudagsins:
Þér verða falin flókin verkefni í vinn-
unni og þú veist ekki alveg hvemig
best er að snúa sér í þeim. Þegar þú
loksins þorir að byija gengur allt vel.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi:
Spá sunnudagsins:
| Hætta er á misklíð
milli vina. Ef þú átt
einhverja sök ertu
maður að meiri ef þú viðurkennir
það og biðst afsökimar.
Spa manudagsins:
Áætlanir þinar ættu að standast ef þú
fylgir þeim vel eftir. Þú þarft að vera
vakandi fyrir nýjum tækifærum.
Happatölur þínar eru 7,14 og 17.
Mevian 123. áeúst-22. sept.):
Spá sunnudagsins:
^ Vinur þinn biður þig
að lána sér peninga.
’ Þú ættir aö fara var-
lega, að minnsta kosti í að láta frá
þér stórar upphæðir.
Spa manudagsins:
Láttu ekki happ úr hendi sleppa.
Tækifærin eru nefnilega allt í
kringum þig ef þú bara kemur
auga á þau. Vinir standa saman.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóvö:
Spá sunnudagsins
Þú gerir einhveijum
fgreiða. Þú þarft ekki að
sjá eftir því þar sem þú
færð hann margfalt endurgoldinn.
Happatölur þinar eru 7, 17 og 36.
Spá mánudagsins:
Hætta er á misklíð í vinnunni. Ef
hún snertir þig ekki beint er best
að blanda sér ekki í málin. Þér
verður falin aukin ábyrgö.
Steingeltln (22. des.-19. ian.l:
ISr Nauðsynlegt er að fólk ræði
saman um þá stöðu sem upp
er komin í fjölskyldunni.
Þar þarf að leysa ákveðið mál sem best
verður gert með samstíUtu átaki.
Spá mánudagsins:
Þeir sem ekki eru ástfangnir nú
þegar, verða það svo um munar á
næstunni. Rómantíkin tekur öU
völd.
Háskólinn opnar dyrnar fyrir almenningi um helgina:
Mjög af hinu góða
- segir Gísli Pálsson mannfræðingur sem fjallar sjálfur um erfðavísindi
Gísli Pálsson mannfræðingur
„Ég held aö háskólinn hafi á undanförnum árum opnaö gáttirnar og þessi
dagskrá nú sé ekkert einsdæmi."
Háskóli íslands býður almenningi
í heimsókn um helgina undir yfir-
skriftinni Líf í borg. Fjöldi fræði-
manna og annarra borgara halda er-
indi er snúa að ólíkustu hliöum
borgarlífsins. Erindunum er raðað
niður eftir þemum til að auðvelda
gestum að finna efni við sitt hæfi.
Meðal efnisflokka eru Borgarfjöl-
skyldan, Huliðsheimur Reykjavík-
ur, Kirkja og trú í borg, Tíminn og
tímamót, Útivist og borgarskipulag
og svo mætti lengi telja. Eftirtekt
vekur dagskráin Borgarlikaminn
sem haldin er í hátíðarsal Aðalbygg-
ingar Háskólans frá 14.00 til 16.45 í
dag og síðan 10.00 til 13.00 á morg-
un. Aðalbyggingin er aukinheldur
skreytt myndum af líkömum borg-
arinnar sem nemendur hafa valið í
samvinnu við Ljósmyndasafn
Reykjavíkur.
Gísli Pálsson, prófessor í mann-
fræði, er annar umsjónarmanna
dagskrárinnar. Hann segir það mik-
inn feng að fá Evelyn Fox Keller,
prófessor í sögu og vísindaheim-
speki, til landsins en hún sé
heimskunn fyrir umfjöllun sína um
lífvísindi og sérstaklega erfðafræði:
„Keller mun opna þessa dagskrá
með fyrirlestri sínum, Genetics in
the next millenium. í honum spyr
hún m.a. róttækra spurninga um
erfðahyggju, þá hugmynd að allt
stýrist af genum, t.d. alkóhólismi og
afbrotahneigð. Þetta verður ekki
síst spennandi þar sem hún hefur
unnið að bók um þetta efni sem
kemur út á næstunni.“ Rétt er að
benda á að þótt fyrirlestur Keller sé
á ensku eru öll önnur erindi flutt á
íslensku.
Erfðatæknin umdeiid
Sjálfur flytur Gísli ásamt Krist-
fnu Erlu Harðardóttur erindi sem
nefnist Líkamlegur varningur: „Við
erum að fjalla um rannsókn þar
sem við könnum viðhorf til lífsýna,
líffæra og erfðaupplýsinga. Hvemig
líkamseindum er safnað og hvaða
reglur gilda um varðveislu og með-
ferð þeirra. Á að gefa þau eða selja
á opnum markaði? Viðfangsefni
mannfræðinga er að bera saman
ólík viðhorf en skoðanir em afskap-
lega skiptar en það er ekki okkar
hlutverk að taka afstöðu til þeirra.“
Nokkrir íslendingar koma að
þessari rannsókn sem er hluti af
samnorrænu verkefni, auk þess
sem evrópskir fræðimenn em
vinna sambærilegar rannsóknir.
Gísli segir afstöðu almennings til
erfðavísindanna misjafna eftir
löndum: „Lýtalækningar og líf-
tæknin hafa tekið stórstígum fram-
forum á sama tíma og frelsi mark-
aðarins hefur aukist. Það er síðan
afskaplega misjafnt hvort tengslin
þar á milli eru friðsamleg eða
valda deilum líkt og hér varð með
gagnagrunnsfrumvarpið. Við höf-
um safnað að okkur gríðarmiklu
efhi um þær deilur en fleiri hundr-
uð blaðagreinar hafa verið skrifað-
ar nú þegar. Við skoðum m.a. tfðni
þeirra á ólíkum tímabilum og inn-
tak greinanna sem er afskaplega
breytilegt."
Lýtdlœkningar og
líftœknin hafa tekið
stórstígum framför-
um á sama tíma og
frelsi markaðarins
hefur aukist. Það er
síðan afskaplega mis-
jafnt hvort tengslin
þar á milli eru frið-
samleg eða valda
deilum líkt og hér
varð með gagna-
grunnsfrumvarpið.
Háskólinn opinn
Háskólinn hefur oft á tíðum verið
gagnrýndur fyrir að vera lokuð stofn-
un og fræðimenn hans sakaðir um að
vera í litlum tengslum við samfélagið.
Þetta segir Gísli Pálsson ekki vera
rétt: „Ég held að háskólinn hafi á
undanfómum árum opnað gáttimar
og þessi dagskrá nú sé ekkert eins-
dæmi. Þá era fræðimenn óhræddir
við að tjá sig um málefiii líðandi
stundar á opinberum vettvangi. Þessi
opnun núna er Ijóslega mjög af hinu
góða og háskólinn ætti tvímælalaust
að halda áfram á sömu braut.“ Það er
rétt að hvetja abnenning að taka Lifi
í borg opnum örmum og fjölmenna
upp í Háskóla í dag og á morgun.
Ókeypis aðgangur er að öllum dag-
skrárliðum og námsmenn selja veit-
ingar á stúdentakjörum. -BÆN
*
Krakkar drifu upp tombólu
- senda bágstöddum í Suður-Afríku ágóðann
DV. ESKIFIRDI:_________________________
Þrjár ungar stúlkur á Eskifirði af-
hentu nýlega fulltrúum Rauða kross
Suður-Afríku afrakstur tombólu
sem þær héldu. Peningamir verða
notaðir til að aðstoöa fátæk börn á
Western Cape-svæðinu þar í landi.
Á myndinni, sem var tekin við fé-
lagsheimilið Valhöll í blíðunni í
gær, eru talið frá vinstri: Douglas
Davidson, Kristin Jónsdóttir, 8 ára,
Iðunn Kara Valdimarsdóttir, 6 ára,
Vala Jónsdóttir, 3ja ára, og Zulfan
Davidson. -HG