Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
Fréttir I>'Vr
Formaöur Karlakórsins Heimis segir sér hafa verið bolaö út:
Hallarbylting gerð
í frægu m karlakór
- meöferö áfengis í kórferöum ásteytingarsteinn, segir formaöurinn
bvTSAUÐARKRðKI: ~
Þorvaldur (L Óskarsson, sem
gegndi starfi formanns Karlakórs-
ins Heimis í samfellt 28 ár, er í dag
maður í sárum. Hann segist ekki
hafa verið búinn að ákveða hvort
hann léti af formannsstarfinu í
haust en verið að hugleiða að gefa
kost á sér eitt ár í viðbót þar sem
töluverð vinna sé fram undan við
gerð nýs geisladisks. Þeirri vinnu
hefði hann gjaman viljað ljúka áður
en hann léti af störfum. En á síðasta
stjómarfundinum í haust fyrir aðal-
fundinn tilkynntu samstarfsmenn
Þorvalds i stjórninni að þeir stæðu
ekki lengur að baki honum, þrátt
fyrir að sumir þeirra hefðu sagt
honum annað skömmu áður, og
mætti hann búast við mótframboði
byði hann sig fram. Þungt var i Þor-
valdi vegna þessara málaloka, þegar
blaðamaður DV ræddi við hann á
dögunum.
Þegar Þorvald-
ur hafði spurnir
af þvi að til stæði
að heiðra hann á
einhvem hátt á
þrettánda-
skemmtuninni
nú eftir áramótin
fannst honum
það ekki koma til
greina eftir það
sem á undan var
gengið, enda þrir
menn ennþá í stjórn af fyrrverandi
stjórn.
Eflaust hefur einhver skuggi hvílt
yfir starfi Heimis að undanförnu
vegna þessa, þrátt fyrir að eining
ríki um nýjan formann, Pál Dag-
bjartsson, en Páll, sem var utan
stjórnar áður, varð við beiðni Þor-
valds að verða eftirmaður hans í
formannssætinu.
Þorvaldur segir alveg ljóst að það
hafi verið samantekin ráð hjá ungu
mönnunum í stjórninni að koma sér
frá og hann hafi viljað komast hjá
þvi að þeir gerðu meiri vitleysu
með mótframboði og klyfu þannig
kórinn í herðar niður. Þorvaldur
kveðst þess fullviss að ef hann hefði
haft með sér gamlan félaga úr
stjórninni, Pétur Pétursson, hefði
þetta ekki farið svona, öldumar
hefðu verið lægðar. Vitaskuld hafi
sér alltaf verið ljóst að hann sé ekki
allra, enda vandi að gera svo öllum
líki í svo fjölmennu félagi sem kór-
inn er. En það sé illt að þola það að
nokkrir menn ráði ferðinni, meiri-
hlutinn fái ekki að ráða eins og á að
vera þegar formaður er kosinn.
Aðspurður hvað haíi valdið því
að meirihluti stjómarinnar stóð
ekki lengur að baki honum segist
hann gruna að eitt tiltekið mál hafi
fyllt mælinn. Þorvaldur kveðst
alltaf hafa viljað leggja mikla
áherslu á að kórinn kæmi óaðfinn-
anlega fyrir og vissulega væri hegð-
un langflestra kórmanna til mikill-
ar fyrirmyndar. Honum hafi þó
fundist örfáir menn ekki fara nógu
gætilega með áfengi í kórferðum og
hafi viljað setja strangar reglur þar
um. Kannski hafi það verið þetta
sem fyllti mælinn.
Þorvaldur segist vita til þess að
þessi endalok hafi valdið bæði nú-
verandi og fyrrverandi kórfélögum
leiðindum og margir hafi haft við
sig samband. Sjálfur sé hann mjög
sár vegna þessa og geti ekki hugsað
sér að starfa með þeim mönnum
sem að þessu stóðu. Því sé staðan
þannig í dag að hann sé hættur í
Heimi. Þetta séu sár sem seint grói
enda megi segja að hann og kona
hans hafi nánast iagt lífsstarfíð í að
starfa fyrir Karlakórinn Heimi.
-ÞÁ
, Þorvaldur G.
Óskarsson, fyrr-
verandi formað-
ur Heimis.
Tj örublæðing Norðurlandsvegarins:
Vegagerðin leitar upplýsinga erlendis
„Malbikið varð ægilega lint og
varð bara að drullu, og þegar við
keyrðum í þetta byrjaði bíllinn all-
ur að hristast og manni fannst bíll-
inn vera bara að hrynja," sagði Al-
exander Stefánsson, flutningabíl-
stjóri hjá Alla Geira hf. á Húsavík.
Alexander var farþegi hjá félaga
sínum og samstarfsmanni þegar
þeir lentu í tjörublæðingu á vegin-
um frá Holtavörðuheiði í Borgar-
nes á miðvikudagskvöldið. Tjaran
settist í raufarnar á hjólbörðum
farartækja sem áttu leið um veg-
inn og kastaðist síðan af hjólbörð-
unum.
Að sögn lögregiunnar í Borgar-
nesi bárust tiikynningar um
skemmdir á tveimur farartækjum.
Bíll félaga Alexanders var útatað-
ur í tjöru og brettin brotnuðu und-
an honum.
Að sögn Ingva Árnasonar, deild-
arstjóra framkvæmdadeildar Vega-
gerðarinnar, er ekki alveg ljóst af
DV-MYND HARI
Tjara safnaöist á bíla
Alexander Stefánsson var farþegi í vöruflutningabíl á leið suður á Norður-
landsveginum í fyrrakvöld þegar vegurinn tók að blæöa tjöru.
hverju tjörublæðingin verður, en
talið er að hún standi að einhverju
leyti í tengslum við saltnotkun á
vegum. Rannsóknarhópur á vegum
Vegagerðarinnar er nú að leita upp-
lýsinga um fyrirbrigðið erlendis frá,
meðal annars frá Svíþjóð.
Ingvi sagði mest hafa verið um
blæðinguna á miðvikudag en lítið
hafi borið á henni síðan.
„Það beinast öll spjót að Holta-
vörðuheiði og Norðurárdal, en í
raun og veru getur þetta alveg eins
átt sér stað á allri leiðinni frá Borg-
amesi og norður undir Blönduós.
Það sér ekkert á slitlaginu sjálfu,
það er eins og yfirborð vegarins
mýkist eða þynnist vegna efnafræði-
legra aðstæðna og nái þá að safnast
á löngum kafla á dekk bíla, sérstak-
lega stóru bílanna," sagði Ingvi.
„Þegar þeir byrja að þeyta þessum
uppsöfnuðu tjöruklumpum af dekkj-
unum geta þeir verið komnir langt
frá upptökunum." -SMK
Hæstiréttur íslands.
i Fimm konur og tveir karlar sóttu um
: stöðu hæstaréttardómara, en staða
losnar 1. mars næstkomandi.
Staða hæstaréttardómara:
Fimm konur og
tveir karlar
sóttu um
Sjö umsóknir bárust um embætti
hæstaréttardómara sem losnar hinn
1. mars næstkomandi þegar Hirti
Torfasyni verður veitt lausn frá störf-
um. Umsóknarfrestur rann út á
fimmtudag. Fimm konur og tveir
karlar sóttu um embættið, en í dag er
aðeins ein kona af níu hæstaréttar-
dómendum. Guðrún Erlendsdóttir
: hæstaréttardómari er jafnframt eina
konan sem hefur verið skipuð hæsta-
j réttardómari, en auk hennar hefur
Ingibjörg Benediktsdóttir verið settur
; hæstaréttardómari til skamms tima.
Sólveig Pétursdóttir dóms- og
! kirkjumálaráðherra mun skipa í stöð-
j una.
Þeir sem sóttu um eru: Dögg Páls-
j dóttir, hæstaréttarlögmaður; Hjördís
1 Björk Hákonardóttir, héraðsdómari;
Ingibjörg Benediktsdóttir, héraðs-
dómari; Ingibjörg Þórunn Rafnar,
hæstaréttarlögmaður; Jakob R. Möll-
er, hæstaréttarlögmaður; Sigríður
Ingvarsdóttir, héraðsdómari; og Sig-
I urður G. Guðjónsson, hæstaréttarlög-
maður. -SMK
Reykjavík:
Reyksprengja í
Réttarholtsskóla
Heimatilbúin reykbomba var
j sprengd í Réttarholtsskóla um hádeg-
isbilið í gær. Sprengjunni hafði verið
komið fyrir í skáp í skólanum þar
sem hún sprakk. Nemendur og kenn-
j arar skólans yfirgáfu skólann eftir að
I sprengjan sprakk og slökkviliðið og
1 lögreglan voru kölluð á staðinn.
Slökkviliðið þurfti þó ekki að
I reykræsta því það nægði að opna
: glugga og um klukkutíma eftir að
j sprengjan sprakk var kennsla hafin á
ný í skólanum. Ekki er vitað hver
kom sprengjunni fyrir. -SMK
Veðrið í kvöld
0» ?
<v jt; o (e
..;vc^Vy \v WX éQ i
: * Jt
-•X '
Sp ' S t
X , k r,
.f6
V
Norðan- og norðaustanátt
Norðan- og norðaustanátt, 13 til 15 m/s
noröan til á Vestfjöröum en 8 til 10 m/s
annars staöar. Slydda eöa snjókoma meö
köflum austanlands og dálítil él norðanlands
en annars léttskýjaö. Hiti 0 til 4 stig á
láglendi.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 17.00 16.31
Sólarupprás á morgun 10.19 10.19
Síðdegisflóó 20.26 00.59
Árdegisflóö á morgun 08.42 13.15
Skýringar á voðurtáknum
^VINDATT 10V-HITI
lö -10°
•V ra„„ HEIOSKIRT
xFR0ST
'VINDSTYRKUR
I metrum á sokúndu
LÉTTSKÝJAÐ HALF-
SKÝJAD
W:
RIGNING
Xý-i
SKÚRIR
skýjað alskyjað
\ 3 .
SLYDDA SNJÓKOMA
& "i"
ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF-
VEÐUR RENNINGUR
Urkomulaust sunnanlands
Á morgun veröur norölæg átt, 5-10 m/s um land allt. Dálítil él
noröanlands en víða úrkomulaust syðra. Frost veröur um allt land, á bilinu
0 til 5 stig.
Mánudagur | Þriöjudagur l7MW.IiiV..if
Vindur: vAy 5-8 irt/s Hití3°tii-4° Vindur; Hiti3° til-4" ' Vindun 10-13 m/s1 ' Hitir «16° w
Suöaustan 10 til 13 m/s
Austlæg átt, víöast 5 til 8 Austlæg átt, víöast 5 tll 8 og rigning eöa slydda
m/s. Skúrir eöa slydduél m/s. Skúrlr eöa slydduél sunnan og vestanlands en
vlö suöurströndina en vlö suöurströndlna en úrkomulítiö á Norö-
annars úrkomulaust og annars úrkomulaust og austurlandi. Hiti 1 til 6
víöa bjart veöur. víöa bjart veöur. stig.
Veðrið mm
AKUREYRI snjókoma 0
BERGSSTAÐIR skýjaö 0
BOLUNGARVÍK snjóél 0
EGILSSTAÐIR 0
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjað 2
KEFLAVÍK úrkoma 2
RAUFARHÖFN rigning 0
REYKJAVÍK skýjaö 1
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 4
BERGEN skúrir 3
HELSINKI alskýjaö 2
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 4
ÓSLÓ rigning 3
STOKKHÓLMUR þokumóöa 3
ÞÓRSHÖFN léttskýjað 6
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað 6
ALGARVE alskýjaö 14
AMSTERDAM skúrir 5
BARCELONA hálfskýjaö 11
BERLÍN léttskýjaö 7
CHICAGO skýjað -5
DUBLIN léttskýjað 5
HALIFAX léttskýjaö -9
FRANKFURT skúrir 7
HAMBORG skúrir 6
JAN MAYEN þokumóöa 1
LONDON hálfskýjaö 8
LÚXEMBORG skúrir 3
MALLORCA skýjaö 14
MONTREAL -9
NARSSARSSUAQ snjókoma -9
NEWYORK heiöskírt -6
ORLANDO heiöskírt 2
PARÍS skýjaö 7
VÍN rigning 4
WASHINGTON heiöskírt -8
WINNIPEG þoka -8