Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Qupperneq 18
18 Helgarblað LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 DV Brunáhanar, Hitler og Mussolíni - sextíu ár frá andláti Ferdinands , Jelly Roll“ Mortons! Ég tók eftir honum daginn sem ég flutti yflr á 107undu götu. Hita- mælirinn á apótekinu sýndi ábyggi- lega rúmlega 36 gráður á Celcius en það gerði hann að visu oftast nær, bæði sumar, vetur, vor og haust! Hitinn var næstum því óbærilegur. En þarna var hann, eldri maður með skrúflykil, að rembast við að skrúfa frá brunahananum. Hann var klæddur í fölbleika skyrtu við röndótt jakkafötin. í kringum hann var hópur af krökk- um úr hverfinu sem biðu eftir bun- unni. Hann skildi skrúflykilinn eft- ir þegar bunan þeyttist úr hanan- um, greip töskuna sína og hélt bros- andi í áttina að söbbanum. Krakk- amir böðuðu sig í bununni þar til löggan kom og skrúfaði fyrir. Þetta var stutt bað. Vatnsbunuleikur á götum New York á heitum sumardögum er eins gamall og borgin sjálf. Þess vegna kemur löggan og skrúfar fyrir án þess að sekta einn eða neinn. Stund- um fara löggurnar meira að segja sjálfar undir bununa áður en þær skrúfa fyrir. Maðurinn meö klarínettið Það kom í Ijós nokkrum dögum seinna að maðurinn með töskuna var enginn annar en Omer Simeon, einn virtasti klarínettleikari New Orleans djassins, virðulegasti íbú- inn á hundraðogsjö, predikari í sunnudagaskóla St. Agnesar niðri við Riverside Drive og einleikari með hljómsveit de Paris-bræðra, Wilburs og Sidneys, bandinu sem hélt djassklúbbi Condons gangandi í nokkur ár. Simeon var alvöruklar- ínettleikari. Hann var kreóli. Kreólamir frá New Orleans voru sagðir afburða tónlistarmenn, hrokafullir og málglaöir. Margir þeirra voru vel menntaöir, sumir höfðu meira að segja notið tilsagnar i tónlistarfræðum i París. Þeir sem léku með Jelly Roll Morton í „The Red Hot Peppers" voru allir kreólar, töluðu frönskublending og báru af öðrum í klæðaburði. Einn þeirra var Omer Simeon. Indæll karl og góður granni. Upphafsmaður eða ekki? Hljómsveitarstjóri „The Red Hot Peppers" var þar engin undantekn- ing. Jelly Roll Morton var hreykinn af þvi að vera kreólskur. Hann var kominn með eigin hljómsveit í New Orleans löngu áður en Armstrong kom til sögunnar. Hann var kjaftfor fjárhættuspilari, billjardhákur, melludólgur, svindlari, píanóleikari og tónskáld. Tíu ára gamall var hann byrjaður að leika á píanó á gleðihúsum borgarinnar. Morton er talinn fyrsti mikils- verði tónsmiður djasstónlistarinnar en tónsmíðar hans báru keim af franskri, spænskri og karabískri Jelly Roll Morton Auglýsingamynd frá Victor, sennilega frá árinu 1926. Á myndinni er texti sem segir hann vera upphafsmann djassins og stompsins „The originator ofJazz and Stomp“. tónlist með gospel- og blúsívafi. Morton ferðaðist víða strax upp úr aldamótunum 1900 og verður að telja að áhrifa þessara ferða gæti í tónsmíðum hans. Að vísu var þessi litríki persónuleiki ekki alveg á því að viðurkenna utanaðkomandi tón- listaráhrif. Það var fyrir neðan virð- ingu hans. Jelly Roll Morton sagðist vera upphafsmaður djasstónlistarinnar - hvorki meira né minna en höfundur hennar. Hann var ófeiminn við að tala um ágæti eigin tónsmíða, m.a. við sagnfræðinginn Alan Lomax, þar sem Morton jafnvel laug til um tónlistarsöguna, atburði og tónverk. Samt sem áður verður að telja Símatorg Hæstaréttar Rúnar Georgsson er 27 ára gam- all síbrotamaður nýkominn út af Hrauninu eftir að hafa afplánað þar 7 ára dóm fyrir mannsdráp. Hann er staddur í eldhúsi í kjallaraíbúð í Grindavík klukkan 03.22 á sunnu- dagsmorgni. Hann heldur á búrhníf í annarri hendi. Á gólfinu liggur fé- lagi hans, Þorkell Magni Ingvarsson (24) í hnipri og heldur um magann á sér. LítiU blóðpollur á gulbrúnum gólfílísunum stækkar hægt og ró- lega. Þorkell kveinkar sér á milli þess sem hann bölvar félaga sínum. „Helvítis fáviti þarna ...“ Þetta fer í taugarnar á Rúnari. Hann gefur honum duglegt spark í hausinn með nýlegum Timberland- skónum sem hann hafði stolið fyrr um daginn úr verslun í Kringlunni. Þorkell hendist upp aö eldhússkápn- um og raknar úr fósturstellingunni; tekur um hausinn á sér meö annarri hendi. Rúnar eygir góðan möguleika á því að gefa vini sínum aðra stungu í kviðinn. En allt í einu birtist nýja fangelsisbyggingin á Litla Hrauni í höfði hans og hann hikar eitt andartak, og man þá eftir Símatorgi Hæstaréttar sem hann hafði séð auglýst í DV um daginn. Hann man meira að segja númerið. 905 0001. Rúnar tekur gemsann úr innri vasanum á mittis-gallajakkanum sínum, leggur búrhnífinn skjálf- hentur frá sér á eldhúsborðið og vel- ur númerið. Hann fær mekaníska karlmannsrödd í eyrað: „Þú ert kominn í samband við Símatorg Hæstaréttar. Mínútan kostar 9.999 krónur. Gjaldtaka hefst við upphaf þjónustu. Athugið að símaþjónusta þessi er einungis ætl- uð þeim sem hafa gerst brotlegir við landslög. Hafir þú ekki verið dæmd- ur í Hæstarétti skaltu leggja á núna.“ Rúnar heyrir slefmæltan vin sinn á gólfinu blóta sér enn á ný áður en önnur og enn mekanískari karl- mannsrödd heyrist á hinum enda línunnar: „Þetta er símaráðgjöf Hæstarétt- ar. Hér gefst þér kostur á að ræða persónulega við fjóra af dómurum Hæstaréttar. Veldu „einn“ fyrir út- skýringar á eldri dómum. Veldu „tvo“ fyrir játanir á frömdum brot- um. Veldu „þrjá“ fyrir upplýsingar um refsingar við frömdum brotum. Veldu „fjóra“ fyrir útskýringu á dómi í öryrkjamálinu. Veldu núna.“ Rúnar velur „þrjá“. Sama röddin áfram: „Þú ert kominn í samband við Garðar Gíslason." Fremur syfjuleg rödd forseta Hæstaréttar birtist í símanum: „Uhum... Gott kvöld.“ RÚNAR: „Jáh ... hérna, gott kvöld. Heyrðu ... Ég er búinn að stingann..." GARÐAR: „Gætirðu gefið mér kennitölu." RÚNAR: „Já ... e ... 14.02.73-1435.“ GARÐAR: „Já, Rúnar Georgsson?" RÚNAR: „Já.“ GARÐAR: „Sjö ára dómur í septem- ber 1993 fyrir mannsdráp í húsi við Sæviðarsund." RÚNAR: „Já, eða Njörvasundi...“ GARÐAR: „Sæviðarsund stendur hér..." RÚNAR: „Já, whatever ... En nú er ég í Grindavik og búinn að stingann ... búinn að stingann einu sinni..." GARÐAR: „Já? Og hvar þá?“ RÚNAR: „Æ, ég veit það ekki, ein- hver rottuhola héma í Grindavík ... rétt hjá höfninni..." GARÐAR: „Nei. Ég átti við hvar ertu búinn að stinga hann? í brjósthol eða..." RÚNAR: „Stakkann í magann ...“ GARÐAR: „Magann já ... og er maðurinn látinn?" RÚNAR: „Nei, hann er lifandi, þetta helvíti..." GARÐAR: „Lifandi já ..." RÚNAR: „Hérna, vildi bara fá að vita hvað hérna ... fær maður meiri dóm eftir því sem stungurnar eru fleiri eða?“ GARÐAR: „Ja, það veltur á ýmsu. Það veltur á ýmsu. Hefur þú í hyggju að deyða manninn?" RÚNAR: „Jáh, já já ... ég veit það alveg, ég á eftir að drepa helvítið á honum. En ég bara ... þú veist... ég nenni ekki að fara að sitja inni sjö ár í viðbót í þessu helvíti bitsi, á þessu helvítis Hrauni. ÞEGIÐU ÞAR-NA HELVÍTIÐ ÞITT!“ GARÐAR: „Ha?“ RÚNAR: „Nei, ég var bara að tala við hann, Kela. En hvað má ég stingann oft? Fæ ég meira en sjö ár ef ég stingann oftar?“ GARÐAR: „Sjö segirðu? Við dæmdum þig í sjö ár síðast. Bíddu aðeins ... já, það var hornabolta- kylfa ..." RÚNAR: „Já, það var öðruvísi! En nú er ég með hníf, einhvern helvít- is búrhníf... GARÐAR: „Já ... Rúnar, erum við að tala hér um manndráp af gáleysi eða ásetningi?" RÚNAR: „GÁLEYSI?! ERTU FÁ- VITI?! ER EKKERT FOKKING GÁ- LEYSI! ÉG ER AÐ DREPA HANN HÉRNA AF ÞVÍ HANN Á ÞAÐ SKILIÐ, SKILURU ÞAÐ EKKI!!!“ GARÐAR: „Já, við skulum nú reyna að halda ró okkar, Rúnar." RÚNAR: „Djöfusins ..." Hallgrímur Helgason skrífar GARÐAR: „Þú myndir kannski vilja endurskoða þá afstöðu þína, Rúnar? Er þetta slæmt sár?“ RÚNAR: „Hann er dauður á hálf- tíma.“ GARÐAR: „Já, nú get ég gefið þér samband við sjúkrabíl ef þú vilt. Og hann þá ... sloppið með áverka, í versta falli orðið öryrki ... Er fóm- arlambið í sambúð, ég á við er hann kvæntur maður?“ RÚNAR: „Hvað fokking máli skiptir það?“ GARÐAR: „Ja, við vorum nýverið að dæma öryrkjum í vil í sambandi við tekjutengingu við maka ...“ RÚNAR: „Ekkert djöfulsins kjaftæði, ég er að borga hérna fokk- ing þúsund kall á mínútuna, já hey, ég gleymdi því, hann er með tvö þúsund e-töflur á sér. Fæ ég ekki af- slátt útá það?“ GARÐAR: „Tvö þúsund e-töflur segirðu? Jú, það má skoða það ..." RÚNAR: „Ókei, gerum díl, ég fæ eins margar stungur og ég vil og þið dæmið mig max og svo fæ ég náðun eftir fimm ár útá extasíið." GARÐAR: „Já, það má vissulega skoða það ..." RÚNAR: „Helvítis fáviti..." Rún- ar skellir á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.