Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Page 20
20
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
Fréttir__________________________________________________DV
Bandarískur sérfræðingur á sviði Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómsins:
Ekkert kjöt af sýktri
skepnu hættulaust
- yfirdýralæknir ósammála en hefur áhyggjur af kjötsmygli
Hræöslan við Creutzfeldt-Jakob
Kúariðuhræöslan er komin til íslands eftir mikla umræðu um innflutning á írskum nautalundum.
Kúariðuhræðslan er komin til ís-
lands. Margir höfðu talið að einungis
væri íslenskt kjöt í boði á íslandi en
vöknuðu upp við vondan draum þegar
upp kom að Nóatún bauö upp á nauta-
lundir frá írlandi, landi þar sem
kúariða hefur komið upp og er í öðru
sæti á eftir Bretlandi hvað varðar
fjölda tilfella. Skömmu síðar kom í
ljós að kjötmjöl er notað við fram-
leiðslu gelatíns, matarlíms sem er not-
að í margar tegundir matvæla og sæl-
gætis.
Þegar svið pólitíkur og vísinda
skarast myndast oft margur sannleik-
ur. Menn halda misjöfnum sjónarmið-
um og vísindaskýringum á lofti og
erfitt verður fyrir fólk að vita hver
hefur rétt (eða réttast) fyrir sér. Oft
grípa menn þá í það haldreipi að
ganga inn í annað „liðið“ og vona það
besta.
Innflutningur á kjöti
Halldór Runólfsson yfirdýralæknir
segir að samkvæmt GATT og Alþjóða-
viðskiptastofnuninni WTO séu Islend-
ingar skuldbundnir til að veita öðrum
þjóðum markaðsaðgengi fyrir kjöt hér
á landi. Það fari þannig fram að toll-
kvótar séu seldir og síðan þurfi inn-
flytjendur að fara í gegnum nálarauga
embættisins til að fá tilskilin leyfi.
Innflutningur á þeim árum sem lið-
in eru frá því landið var opnað hefur
ekki verið mikill. Flutt hefur verið
inn kjöt af kalkúni og kjúklingum frá
Svíþjóð og Finnlandi en einnig hefur
verið flutt inn nautakjöt frá Dan-
mörku og kálfakjöt frá Hollandi. Fyr-
ir jólin var svo flutt inn sending af
írsku nautakjöti sem boðið var upp á
í verslunum Nóatúns. Sem kunnugt er
hefur nokkur styr staðið um þann
innflutning þar sem írland er það
land sem hefur næsthæsta tíðni
kúariðu. Endaði málið með því að
Nóatún seldi afganginn af sending-
unni aftur úr landi.
Til að fá innflutningsleyfi þarf með-
al annars að skila inn upprunavott-
orðum og heilbrigðisvottoröum sem
sýna fram á að kjötið sé heilbrigt og
ekki hafi veriö notaðir hormónar og
fúkkalyf við ræktun nautgripanna.
„Það er mjög mikilvægt í ferlinu að
kjötið þarf að vera í frysti í einn mán-
uð áður en það er flutt inn. Á þeim
tíma liggur Ijóst fyrir hvort einhverj-
ir sjúkdómar eða vandamál hafi kom-
ið upp sem tengjast kjötinu," segir
Halldór.
Smygl á kjöti
Samkvæmt heimildum DV er ekki
óalgengt að boðið sé upp á erlent kjöt
á veitingahúsum. Einn af viðmælend-
um blaðsins, sem komið hefur nálægt
rekstri veitingahúss, vildi ekki tala
undir nafni en sagði að nokkur brögð
væru að því að í hann væri hringt og
honum boðið smyglað kjöt, ýmist frá
Evrópu, Argentínu eða Bandaríkjun-
um. Hann segir að oft sé um mjög
mikið magn að ræða - til dæmis hafi
honum einu sinni verið boðið að
kaupa kjöt fyrir eina milljón króna.
Allar greiðslur verða að vera í reiðu-
fé. Verð á smygluðu kjöti er talsvert
lægra en verð á íslensku kjöti, oft í
kringum 1.500 krónur kílóið. Með það
verð til hliðsjónar má sjá að tilboðið
sem viðmælanda blaðsins var gefið er
allt að 700 kíló af kjöti. Verð á ís-
lensku kjöti er hins vegar um og yfir
2.900 krónur.
Viðmælandi DV segir að þegar
smyglað kjöt sé keypt séu frystihólf
leigð undir fólsku nafni úti i bæ og
síðan sótt í þau hæfilegt magn í einu.
Kjötið er vanalega í lofttæmdum plast-
umbúðum og án merkinga. Aðspurð-
ur hvort heilbrigðiseftirlitið geri ekki
athugasemdir við merkingar á slíku
kjöti segir viðmælandinn að hann
hafi aldrei séð að eftirlit sé haft með
þeim. „Heilbrigðiseftirlitið kemur á
staðinn, skoðar hreinlæti og hitastig í
kælum og frystum. Ég hef aldrei orð-
ið var viö að litið sé á merkingar,
hvað þá að rótað sé í kistum og merk-
ingar skoðaðar."
Kjaftagangur um smygl
„Við höfum miklar áhyggjur af
smygli," segir HaOdór Runólfsson yf-
irdýralæknir. „Á síðasta ári fórum
við þess á leit við tollstjóra að hafa
augun sérstaklega opin fyrir kjöti.
Ekki er vitað um heilbrigði þess kjöts
sem smyglað er til landsins og því eru
áhyggjur okkar verulegar.
Við höfum ekki neinar sannanir í
höndunum en höfum heyrt mikinn
kjaftagang um smygl á kjöti. Ef við
Sigtryggur Magnason
blaðamaður
fengjum vísbendingar um slíkt mynd-
um við að sjálfsögðu kæra,“ segir
HaUdór.
Rögnvaldur Ingólfsson, sviðsstjóri á
matvælasviði Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, segir að starfsmenn eft-
irlitsins hafi ekki orðið varir við
smyglað kjöt á veitingahúsum borgar-
innar.
„Mín tilfinning er sú að ef mikið
væri um að veitingahús væru að
bjóða upp á smyglað kjöt þá myndum
við vita um það. Og þá yrði að sjálf-
sögðu kært,“ segir Rögnvaldur.
Rögnvaldur segir að farið hafi ver-
ið fram á það við Hollustuvernd að
Heilbrigðiseftirlitið fái upplýsingar
um löglegan innflutning en þær upp-
lýsingar hefðu ekki enn borist.
Við eftirlit er ekki spurt hvaðan
kjötið sé. Áhersla er lögð á að athuga
þá vöru sem er í kælum og frystum og
ganga úr skugga um að merkingar séu
fullnægjandi.
„Ef ekki er i lagi með merkingar þá
látum við veitingahúsin vita og höf-
um einnig samband við vinnslurnar,"
segir Rögnvaldur.
Pylsur í pósti
Sveinbjöm Guðmundsson, yfirtoll-
vörður hjá Tollstjóranum í Reykjavík,
segir að alltaf séu einhver brögð að
því að fólk smygli kjöti en þá er það
yfirleitt til einkanota. Það hafi til
dæmis komið fyrir að fólk hafi reynt
að senda pylsur með pósti til landsins.
„Smygl á nautakjöti var vandamál
fyrir allmörgum árum,“ segir Svein-
björn. Hann segir að áður hefðu
„ákveðnir veitingastaðir" sóst eftir
argentínskum nautavöðvum. „En það
er æðilangt síðan.“ Sveinbjörn segir
að vísbendingar sem tollurinn hafi
bendi til samdráttar í kjötsmygli.
Ekki fundið fyrir samdrætti
Sigurður Gunnarsson er fram-
kvæmdastjóri og eigandi Kjötsmiðj-
unnar. Hann segir að 99% af því kjöti
sem fer í gegnum fyrirtækið sé ís-
lenskt. Hann hafi flutt inn nautalund-
ir en sá innflutningur sé stopp í bili.
Sigurður segir að stundum hafi verið
skortur á nautalundum og því hafi
þurft að grípa til innflutnings.
Það sem af er hefur Sigurður ekki
fundið fyrir samdrætti á sölu nauta-
kjöts.
„Það er yfirleitt rólegra á veitinga-
húsum í janúar og í ár hefur salan
ekki minnkað meira en í fyrra," segir
Sigurður.
Sigurður í Kjötsmiðjunni segist vel
geta ímyndað sér að töluvert sé um
smygl á kjöti til landsins.
„Ég held samt að smygl hafi minnk-
að eftir að innflutningur var leyfður.
Það er þó eins með kjöt og annað, það
verður alltaf eitthvert smygl,“ segir
Sigurður. Hann segir að fyrir
nokkrum árum hafi verið þrýstingur
frá veitingahúsum að fá nautalundir
og smyglarar hafi því haft markað fyr-
ir vöru sína.
Fósturvísar ekki
hættulausir?
Halldór Runólfsson sagði eftir inn-
flutning írsku nautalundanna að sam-
kvæmt bestu fáanlegu vísindalegum
upplýsingum embættisins stafaði
fólki ekki hætta af því að borða
vöðvana. Halldór segist, aðspurður,
standa við þessi orð sín.
„Það er samkvæmt því sem færustu
vísindamenn hafa sagt, vísindamenn
hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni
WHO og fleiri alþjóðastofnunum,"
segir Halldór.
Dr. Paul Brown er sérfræðingur hjá
National Institute of Neurological Dis-
orders and Stroke sem er hluti af
National Institute of Health, heilbrigð-
isstofnun Bandaríkjanna. Hann hefur
sent frá sér nærri 300 vísindagreinar
og þær síðustu fjalla nær eingöngu
um Creutzfeldt-Jakob-sjúkdóminn og
hugsanlegt smit með blóði. Að auki
hefur hann verið formaður ráðgjafar-
nefndar FDA (Matar- og lyfjaeftirlits
Bandaríkjanna) um TSE-sjúkdóma.
Kúariðan (BSE) er hluti af þeirri teg-
und sjúkdóma sem TSE stendur fyrir.
Dr. Brown segir að hættulegast sé
að borða þá hluta skepnunnar sem
eru miðtaugakerfið og annað nátengt
því.
„Það er hættulegt að borða augu og
það kjöt sem er með eitla, svo sem
hóstarkirtil. Lifur, nýru og þess hátt-
ar er mun hættuminna," segir Brown.
Við spurningunni: Er hættulaust að
borða einhvern hluta sýktrar skepnu?
„Nei,“ segir Brown og undirstrikar
að ekki sé mögulegt að matreiða eða
gera neitt við sýkt kjöt til að gera það
hættulaust.
Paul Brown segir að blóðgjöf og líf-
færaflutningar með þeim reglrnn sem
gilda í Bandaríkjunum eigi að vera
hættulaus. Varðandi spurninguna: Er
óhætt að flytja inn fósturvísa úr sýkt-
um stofni og rækta saman við ís-
lenska kynið?
„Líklega ekki, en vísindamenn eru
ekki sammála."
-sm