Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Page 25
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
I>V
25
Helgarblað
Hér er liöiö sem stóö aö baki sýningarinnar „I syngjandi sveiflu" á Broadway
Frá vinstri: Ari Jónsson, Sólmundur Friðriksson, Guðrún Gunnarsdóttir, Eirikur Hilmisson, Kristján Baldvinsson,
Magnús Kjartansson, Einar Bragi, Geirmundur Valtýsson, Ásgeir Steingrímsson og Bergiind Björk Jónasdóttir.
Alec Baldwin og
Kim Basinger skilja
Kim Basinger og Alec Baldwin hafa
verið gift í allmörg ár miðað við það
sem gerist og gengur í heimi frægra
kvikmyndastjama. Nú berast fréttir
um yfirvofandi skilnað þeirra sem er
talinn á næsta leiti.
Þau góðu hjón sáust rífast á al-
mannafæri á dögunum en slíkt hefur
aldrei þótt mjög góð latína, hvorki þar
né hér. Enn fremur berast fréttir af
því að Baldwin hafi viðrað hjóna-
bandsörðugleika sína við flugfreyju á
leiðinni milli New York og Hollywood
og leitað ráða hjá henni.
Eitt helsta ágreiningsefni þeirra
hjóna mun einmitt vera búseta þeirra.
Kim Basinger vildi flytja aftur frá
New York til Los Angeles en Baldwin
vildi ekki taka þátt í þeirri byggða-
röskun heldur vera um kyrrt í New
York.
Þetta varðar ekki síður dóttur
þeirra hjóna sem þau kusu að skíra
Ireland eða írland en móðir barnsins
mun vera fylgjandi því að það búi á
einum stað en ekki tveimur. Það er
auðvitað umhugsunarefni hvort það
hafi verið skynsamlegt að skíra barn-
ið í höfuðið á landi þar sem stöðugur
ófriður hefur ríkt öldum saman. Þó
býður þetta upp á ákveðið samræmi í
nafngiftum komi fleiri börn til sög-
unnar. Næstu dætur gætu t.d. heitið
Bosnía, Króatía eða jafnvel ísrael.
mannahelgarböllin í Miðgarði voru
toppurinn á tilverunni, húsið að
springa utan af mannþrönginni og
tjaldað allt í kring.“
- En þetta hefur breyst ansi mik-
ið í ballmenningunni, það eru færri
staðir en áður þar sem böllin eru
haldin?
„Já, við erum ekkert að standa í
þessum slag um sveitaböllin lengur.
Það eru þessar vinsælustu unglinga-
hljómsveitir sem hafa gert það og
Sálin hefur átt þetta undanfarið.
Við erum að spila á þessum stærstu
böllum hérna sem skipta máli, kór-
böllunum og réttarböllunum. Borg-
arfjörðurinn er alltaf sterkur hjá
okkur og við spilum þar annað slag-
ið. Við spilum mikið á dansstöðum
í Reykjavík, þar sem fólk vill koma
saman og dansa, á Hótel íslandi og
víðar.
Spilað fyrir þrjár kynslóðir
í haust spiluðum við t.d. á réttar-
balli í Úthlíð í Biskupstungum og
þetta sama kvöld voru Gildran og
Eiki Hauks að spila í Ingólfskaffii í
Ölfusi. Við vorum kannski svolítið
uggandi um þetta ball því Eiki var í
Queen-sjóinu á Broadway sem gekk
vel.
En við fengum mikið af ungu
fólki á ballið hjá okkur. Þar á með-
al gaf sig þarna á tal við mig sonur
eins góðkunningja míns, Bjössa rak-
ara á Selfossi. Hann sagði aö það
væri flnt að skemmta sér með okk-
ur, þeir krakkarnir hefðu ætlað í
Ingólfskaffi en þar hefði verið fátt
fólk. Strákurinn sagðist hafa hringt
í pabba sinn á leiðinni i Úthlið og
vakið kallinn, sem hafi verið úrillur
í fyrstu.
„Pabbi, veistu hvert ég er að fara
núna? Við erum að fara á ball með
Geirmundi."
„Jæja, blessaður, ég bið nú kær-
lega að heilsa kallinum," sagði
Bjössi og lagðist sig svo á hitt eyrað.
En það er nú svona, maður var að
spila fyrir Bjössa og frú hér á árum
áður og svo fyrir öll börnin hans,
þetta var sá yngsti.
Ég verð var við það hér að núna
er ég farinn að spila fyrir þriðju
kynslóðina og það er náttúrlega
mjög gaman að við skulum ennþá
ná til unglinganna."
Slagsmálin horfin
- En flnnst þér ballmenningin
hafa breyst mikið? Hér áður fyrr
var t.d. mikið um slagsmál á böll-
um, verður þú var við þau ennþá?
„Nei, það hefur alltaf verið mjög
lítið um það á böllum hjá okkur.
Við höfum alltaf lagt áherslu á að
spila mikið og taka litlar pásur. Það
er ekki nema svona korterspása um
mitt ballið og þá setjum við á spilar-
ann lög hljómsveitarinnar eða mín
lög. Ég held að aðalpirringurinn og
vesenið á böllunum sé fyrir það að
verið sé að taka of miklar pásur og
þegar ekkert er í gangi þá fer fólk að
vera með eitthvert vesen.“
Þaö er vinna að vera í stuði
- Hver er galdurinn við að ná
upp stuði á böllum?
„Þetta er vinna þar sem maður
verður alltaf að vera í góðu skapi
og í stuði. Ég þarf ekki endilega að
vera í stuði þegar ég mæti í vinn-
una í kaupfélaginu, þó það sé vita-
skuld betra að það liggi vel á mér.
En þarna verður maður að vera í
stuði og geta spjallaö létt við fólkið,
spilað lögin sem það vill heyra og
dansa eftir og drífa það út á gólfið.
Við spiluðum á balli i Borgarnesi í
haust og þangað kom hún Anna
Sigga söngkona, sem hérna var
lengi en fór víst ekki mikið á böll
með okkur meðan hún var hérna.
Þama var hún með vinkonu sinni
úr Borgarnesi og gaf sig á tal við
mig. Hún sagði að það væri ein-
kennandi við hljómsveitina þessi
lífsgleði sem smitaði svo út frá sér,
skapaði skemmtilega stemningu og
kæmi fólkinu í stuð. Það hafa
margir fleiri minnst á þetta og
þetta er það sem gildir, að vera já-
kvæður og ákveðinn í að skemmta
fólki.“
- En Geiri, þú hlýtur nú ein-
hvern tímann að hafa hugsað um
það hvernig verði að hætta, því ein-
hvern tíma kemur að því eins og
öllu öðru?
„Nei, ég hef nú eiginlega ekki
gert það, mér flnnst bara nógur
tími til að takast á við það þegar
þar að kemur. Jú, vitaskuld verða
það gríðarleg viðbrigði þegar mað-
ur er vanur því að spila á böllum
um hverja einustu helgi.“
Kvíði aldrei fyrir helgunum
- Ertu virkilega ekkert að verða
leiður á spilamennskunni?"
„Nei, alls ekki, mér finnst þetta
alltaf jafngaman og það vottar ekki
fyrir að ég kvíði fyrir að rifa mig af
stað með hljómsveitina helgi eftir
helgi. Það gefur náttúrlega augaleið
að yflr svona langt tímabil verða
alltaf einhverjar mannabreytingar í
hljómsveitum. Með mér hafa spilað
á þessum tíma 19 menn en kannski
er það ekki mikið á 30 árum. Vita-
skuld hefur þetta ekki alltaf verið
alveg slétt og fellt en ég held að
hljómsveitaskipanin í dag sé með
allra besta móti, mórallinn góður og
sveitin mjög vel spilandi.
Toppurinn á ferlinum og mesta
viðurkenningin sem hljómsveitin
hefur fengið og ég sem tónlistar-
maður var þegar Óli Laufdal bauð
mér að setja upp söngskemmtun á
Hótel íslandi. „Látum sönginn
hljóma". Þetta byrjaði í febrúar 1993
og heppnaðist alveg afskaplega vel.
Sýningarnar urðu 14, mun fleiri og
meiri aðsókn en búist var við. Gísli
Jónsson í Sjallanum bauð okkur síð-
an árið eftir að koma með sýning-
una norður og þar voru viðtökurnar
lika gifurlegar, fólk dansaði uppi á
borðum helgi eftir helgi og urðu
sýningarnar 10 þar. Síðan gerði af-
mælisnefnd Sauðárkróks ákaflega
vel við mig þegar efnt var til Geir-
mundarkvölds á lokahátíðinni þar
sem m.a. Ólafur Ragnar, forseti is-
lands, og Guðrún Katrín voru við-
stödd. Ég vissi svo sem ekki við
hverju var að búast varðandi að-
sóknina en hún var alveg glimr-
andi, um 1200 manns í íþróttahús-
inu á heitu júlíkvöldi og stemningin
með ólíkindum.“
-ÞÁ
Alec Baldwin og Kim Basinger
Haft er fyrir satt í Hollywood að skötuhjúin séu að skilja eftir langt hjónaband
á mælikvarða Hollywood.
Nu er gaman!
Þvottavél og þurrkari saman
burrkar/ Se