Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Page 28
28 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________PV DV-MYNDIR GVA Guöni Ágústsson er alinn upp í sveit Ég er ekki smíöaöur á auglýsingastofu. Þaö sem ég segi kemur beint frá hjartanu og er hæfileiki sem hefur þróast meö mér. Ég var alinn upp af foreldrum sem höföu gott vald á íslensku máli og tók mér þau til fyrírmyndar. Ég hef sem stjórnmálamaöur talaö. af mér og reynt aö læra af þeim mistökum. “ Guðni í kröppum dansi - Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra tjáir sig um kúariðu, fósturvísa, varaformennsku, frammistöðu ríkisstjórnar og sinn persónulega stíl Það er eitthvað bjargfast en þó heiðskírt í fari Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra. Þetta er þrek- inn og háleitur maður með stórt andlit og breitt sem er mótað í fáum skýrum dráttum. Stundum þegar Guðni talar við þjóðina, fastmæltur og nokkuð forn í tali á köflum, flnnst manni að hjarta hans sé eins og andlitið - stórt og skýrt. Guðni er alinn upp í hópi sextán systkina austur á Brúnastöðum í Flóa og starfaði í 10 ár sem mjólkur- eftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóa- manna áður en hann settist á þing. Hann virðist hafa hugsað um kjör- dæmið af kostgæfni því að Suður- landskjördæmi var það eina þar sem Framsóknarflokkurinn jók fylgi sitt í síðustu kosningum. f krafti þess góða árangurs varð Guðni landbúnaðarráðherra og um þessar mundir má segja að hann standi í eldlínunni í krafti síns emb- ættis þegar hart er deilt um hvort leyfa eigi innflutning á norskum fósturvísum til þess að kynbæta ís- lenskar kýr. Þegar þetta kom til tals sagði Guðni að þetta væri erfiðasta ákvörðun sem íslendingur hefði tek- ið síðan Þorgeir Ljósvetningagoði lá undir feldi forðum á Lögbergi og skyldi ákveða hvort íslendingar yrðu kristnir. Þorgeir lá í tvö dæg- ur en Guðni hugsaði málið í sautján mánuöi áður en hann ákvað að leyfa Landssambandi kúabænda og Bændasamtökunum að flytja inn umrædda fósturvísa. Málið hefur á ný komist í fókus eftir að kúariða og smithætta urðu aðalumræðuefnin á íslandi og Sig- urður Sigurðarson dýralæknir og fyrrverandi yfirdýralæknir Páll A. Pálsson hafa báðir lýst sig mjög andvíga innflutningi fósturvísanna. Hvað ætlar Guðni að gera í málinu? Mitt erfiðasta verkefni „Þetta er mitt erfíðasta pólitíska verkefni hingað til. Ég mun fylgjast mjög grannt með framvindu málsins og ekki síst fór þeirra Halldórs Run- ólfssonar yfirdýralæknis og Sigurðar Sigurðarsonar td Noregs. Þetta eru vísindamenn í miðju hringiðunnar og þeir munu taka ástandið í Noregi út. Það var farið eins varlega í þetta mál og hægt var og skilyrðin þrengd eins og kostur var. Norska kýrin er alls ekki komin hingað inn og það munu líða 8-10 ár þangað til um það verður fjallað. Þangað til eru alitaf tækifæri tU að breyta um stefnu ef mönnum sýnist svo. Ég er mjög ánægður með það fé sem fékkst til rannsókna á framþróun íslensku kýrinnar og gæðum mjólkurinnar. Mér finnst Búkollu-félagið gott framtak og hef fundað með forsvars- mönnum þess. Mér er ljóst að inn- flutningurinn er umdeildur en ég vil taka fram að við látum færustu visindamönnum eftir að fylgjast með öllu sem nýtt kemur fram í þessu máli. Það starf mun leiða dr. Ágúst Sigurðsson búfjárfræðingur. Ég hefði ekki getað fengið betri mann tU þess „ - En verður þú ekki að höggva á hnútinn og banna innflutning fóst- urvísanna? „Það er ekki í mínu valdi á þessu stigi málsins." Þjóðin fékk hroll - Það fór hroUur um íslenska þjóð þegar það varð heyrinkunnugt að írskar nautalundir hefðu verið fluttar inn til landsins án þess að tilskilin vottorð um kúariðufrítt upprunaland í sex mánuði lægju fyrir. Lundirnar voru háfaðar upp úr frystiborðum Nóatúnsverslana og seldust vel þangað tU um miðjan janúar að ljóst varð um þennan formgaUa á innflutningi þeirra. Sváfu þínir menn á verðinum? „Ég vU taka fram við höfum ver- ið aðUar að GATT í átta ár og þrátt fyrir að menn reyni að þrengja nál- araugað eins og hægt er þá virðast „Ég held að þetta hafi verið óheppilegt að þessi innflutningur var leyfður en það mdl er allt saman í rannsókn og við bíðum niðurstöðu. “ margir innUytjendur standa í þeirri trú að hingað megi Uytja kjöt frá hvaða landi sem er. Við þessa menn hefur yfirdýralæknir verið að slást og margoft látið senda kjöt úr landi. Ég held að þetta hafi verið óheppi- legt að þessi innUutningur var leyfður en það mál er aUt saman í rannsókn og við bíðum niður- stöðu.“ Ástæöulaust aö hræða fólk DV hefur spurt Paul Brown, yfir- manna Bandarísku heUbrigðisstofn- unarinnar og ráðgjafa FDA um sjúkdóma af þessu tagi, hvort óhætt væri að neyta einhverra afurða af sýktum skepnum og hann sagði þvert nei. Var þetta ekki hættulegt athæfi? „Ég vil benda á að í Evrópu hafa aðeins greinst 100 tilfelli af kúariðu í mönnum svo þetta er auðvitað mjög sjaldgæfur sjúkdómur. Það er engin ástæða tU þess að vera að hræða fólk þótt varúðar sé gætt.“ Guðni hefur skipað menn til þess að fara yfir allan innflutning matvæla sem hingað tU lands kemur sam- kvæmt ákvæðum EES-samnings og inniheldur kjöt eða kjötafurðir. „Það er ekkert launungarmál að ég vil gjarnan herða reglur um inn- Uutning á þessu sviði og hef gefið mínum mönnum fyrirmæli um að skoða reglurnar með það í huga. ís- lendingar eru ferðaglaðasta þjóð i heimi og borða án efa nautasteikur hvar sem þeir koma en einstak- lingsábyrgð er mikU í þessum efn- um. Ég vil að íslenski neytandinn njóti vafans. Það eru miklar tilfinn- ingar í þessu máli, tilfmningar sem ég skil mjög vel og engin ástæða til að gera lítið úr þeim. íslenski bónd- inn er maður dagsins og það eru góðu fréttirnar í þessu máli.“ Ekki höggva saklaust höfuö - Það varð ekki til að lina ótta ís- lenskra kjötætna þegar það upp- götvaðist að Aðfangaeftirlitið hafði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.