Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Síða 41
49
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
DV Tilvera
Kristur á Karlsbrú
Ótrúlegar skreytingar eru á hinni þekktu Karlsbrú sem ber hátt merki hinnar fornu byggingarlistar Bæheims sem um
aldir var hluti af veldi Habsborgaraættarinnar.
Opin allan
sólarhringinn
Prag:
Reykjavík
Einn helsti matsölustaðurinn er Restaurant Reykjavík þar sem boðið er upþ á
safaríkar steikur og ýmsa fiskrétti. Til að mynda eru þarna á boðstólum af-
bragös saltfiskréttir, auk þess sem íslenskur þjónn ber þessar
Prag, höfuðborg Tékklands, er ein
af fegurstu borgum álfunnar. Borgin
státar af fomum byggingum sem
haldist hafa óspilltar um aldir og
fyrir þá sem gaman hafa af fagurri
húsagerðarlist er borgin ótæmandi
uppspretta. Miðbær borgarinnar
iðar af lífi alia daga enda koma miilj-
ónir ferðamanna til Prag á ári
hverju til viðbótar þeim tólf hund-
ruð þúsund íbúum sem borgina
byggja. Listalíf er mikið og byggist á
fomri hefð en fyrir seinni heims-
styrjöld var Prag ein af háborgum
menningar og lista í Evrópu. Hægt
er að komast á ýmsa tónleika alla
daga vikunnar og Qóran er svo fjöl-
breytt að allir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Sífellt er verið
að sýna söngleiki eins og Hair, Cats,
My Fair Lady og Yellow Submarine
Bítlanna. Djass skipar veglegan sess
í tónlistarlífinu og er fjöldi góðra
djassklúbba í borginni. Af klassískri
tónlist ber mest á verkum eftir
Vivaldi, Tsjajkovskí, Schubert, Moz-
art og marga fleiri snillinga. Þess
má geta að Prag var ein af menning-
arborgum Evrópu 2000 þegar undir-
ritaður var þar á ferö.
Á daginn eru leikarar og söngfólk
á götum úti að kynna verk sin og
selja aðgöngumiða og ljóst er að
listafólkið þarf mikið á sig að leggja
til að komast af og spuming hvort
fleiri þjóðir ættu ekki að taka þessa
listamenn sér til fyrirmyndar.
Deep Purple
Frægir popp- og rokktónlistar-
menn finna sér einnig farveg í tón-
listaborginni. Undirritaður var svo
heppinn að á meðan á dvöl hans
stóð hélt hin fræga þungarokks-
hljómsveit Deep Purple tónleika í
Paegas Arena-höllinni í Prag ásamt
rúmenskri sinfóníuhljómsveit þar
sem stjómandinn fór á kostum með
geðveikislegum töktum snillingsins.
Sérstakur gestasöngvari var hinn
þekkti Ronni James Dio og stemn-
ingin á tónleikunum var ólýsanleg.
Steingerðustu menn ofan af klakan-
um kalda náðu engan veginn að
hemja tiifinningar sínar og væri at-
hugandi fyrir einhverjar góðhjartað-
ar konur að reyna að fá þessa frá-
bæru hljómsveit hingað til lands.
Aldagömul hefð er fyrir kristal-
gerð i Tékklandi og stendur ferða-
mönnum til boða að skoða kristal-
verksmiðjur í nágrenni höfuðborg-
arinnar. Verð á kristal er langt frá
því sem við þekkjum hér á landi og
hafa margir nýtt sér að gera góð
kaup þama, enda var svo mikið af
kristaltærum handfarangri þegar
flogið var heim að einhverjir óttuð-
ust að flugvélin kæmist ekki á loft.
Skoðunarferðir
Nokkur tékknesk ferðaþjónustu-
fyrirtæki bjóða fjölbreyttar skoðun-
arferðir um borgina og nágrenni
hennar við afar vægu verði. Þessi
fyrirtæki bjóða einnig upp á sigl-
ingu um fljótið Moldá sem rennur í
gegnum borgina. í boði em siglingar
með djassbát þar sem hljómsveit
leikur fyrir gesti á meðan siglt er og
hægt er að fá siglingu þar sem boð-
ið er upp á veglegt matarhlaðborð,
auk bara venjulegrar siglingar.
Einkar fagurt er að sigla á ánni eft-
ir að skyggja tekur og flóðlýstar
stórbyggingar og kastalar njóta sín í
myrkrinu, auk þess sem margar fal-
legar brýr eru yfir fljótið og er
þeirra merkust Karlsbrúin sem
byggð var á 14. öld og nýtur sín afar
vel í flóðljósunum.
Mikið er um góða matsölustaði í
borginni og kemur þægilega á óvart
hvað tékknesk matargerð stendur
framarlega. Einn helsti matsölustað-
urinn er Restaurant Reykjavík þar
sem boðið er upp á safaríkar steikur
og ýmsa fiskrétti. Til að mynda em
þama á boðstólum afbragðs saltfisk-
réttir, auk þess sem íslenskur þjónn
ber þessar kræsingar á borð fyrir
fólk.
Portkonur
Eftir að skyggja tekur em lista-
menn hættir að kynna sín verk á
götum úti en í staðinn eru komnir
útsendarar frá næturklúbbunum
sem eru hreint ekki fáir í borginni,
enda má segja aö Prag sé opin allan
sólarhringinn. Þessir kynningar-
fulltrúar klúbbanna stoppa ferða-
langa og kynna þeim sína klúbba
þar sem allt er falt við vægu verði.
Blíða með heitum pottum og nuddi
virðist vinsæl, auk þess sem boðið
er upp á alls kyns sýningar sem
kvenréttindakonur á íslandi
myndu seint sætt sig við. Nektar-
dansstaðimir hér heima em hrein-
ir sunnudagaskólar miðað viö það
sem þama er í boði. Portkonumar
fara lika á stjá eftir að birtu bregð-
ur og er ekki annað að sjá en fram-
boðið sé langt umfram eftirspum
enda landið fátækt þó þess sjáist
vart merki á helstu ferðamanna-
Upplýst nótt
Flóðlýstar stórbyggingar og kastalar
njóta sín í myrkrinu, auk þess sem
margar fallegar brýr eru yfir fljótiö og
er þeirra merkust Karlsbrúin sem
byggð var á 14. öld og nýtur sín afar
vel í flóðljósunum.
DV-MYNDIR GS
Blúsað á brúnnl
Hvarvetna í miðborg Prag má sjá
götulistamenn sýna listir sínar.
Þessi skemmtilega blússveit var á
Karlsbrúnni.
Löggan og búðarmaðurinn
Laganna verðir eru almennt vingjarn-
legir í Prag og taka lífinu meö ró.
Ekki þykir tiltökumál að sjá lögreglu-
mann meö sígarettu í munnvikinu
enda eru öfgar þeim framandi.
Járnið hamrað
Þessir eldsmiöir sýndu ótrúlega
færni enda aldagömul hefö fyrir
þessari iöngrein i Tékklandi.
stöðum, utan stöku betlara og róna.
Það sem ferðafólk sem kemur til
Prag þarf að varast eru leigubílstjór-
ar. Enginn ætti að fara upp í leigu-
bfl án þess að vera búinn að semja
um verð fyrir fram. Ef samið er í
upphafi ferðar getur verðið orðið
allt að fimm sinnum lægra en ella.
Framkoma þessara bflstjóra minnir
mjög á þá umræðu sem var um kefl-
víska leigubflstjóra í rútuverkfall-
inu á síðasta sumri.
Staðsetning hótels
Vegna þess hversu leigubílstjór-
amir em viðsjárverðir er best aö
finna sér hótel í miðborginni. Bæði
er hægt að gera það á Netinu og svo
er mikil upplýsingamiðstöð um hót-
el á flugvellinum í Prag þar sem
hægt er að panta sér hótelherbergi.
Leigubíll fyrir fjóra farþega frá flug-
velli og inn í miðborgina kostaði alls
um 1400 íslenskar krónur. Svo virö-
ist sem íslensku ferðaskrifstofumar
séu með sín hótel í löngu göngufæri
við miðbæinn þannig að fólk ætti að
leita fyrir sér með staðsetningu og
verð áður en haldið er utan. Enginn
ætti að þurfa að sjá eftir því að fara
til Prag þar sem allir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi, enda borgin
yndisleg. -GS
Skakki turninn í Pisa:
Opnaður
fyrir
gestum í
sumar
Undanfarið hafa verkfræðingar
unnið að því að rétta við Skakka tum-
inn í Pisa og fljótlega mun hann verða
opnaður almenningi á ný en hann hef-
ur verið lokaður frá 1990. Fyrir
skömmu vora fjarlægð stór og mikil
lóð sem höfðu verið sett á þá hlið sem
tuminn hallaði frá. Lóðin áttu að
draga úr hættu á að hann félli um koll.
Sérfræðingar sem unnið hafa við verk-
ið segja að nú þurfi aðeins að rétta
tuminn um nokkra millimetra til við-
bótar og þá sé hægt að veita almenn-
ingi aðgang að honum.
Tuminn var upphaflega reistur sem
klukknatum fyrir nærliggjandi dóm-
kirkju. Bygging hans hófst 1173 og var
lokið 1350. Tuminn byijaði að hallast
eftir að þriðju hæðinni var bætt ofan á
hann og árið 1850 var grafm gryfja um-
hverfis turninn sem gerði iÚt vera.
San Fransisco:
Flugvöllur
viðurkennd-
ur sem safn
Alþjóðaflugvöllurinn í San Frans-
isco er fyrstu flugvalla í Bandaríkj-
unum til að hljóta nafnbótina safn. í
síðasta mánuði var opnuð ný álma á
flugvellinum þar sem er að finna
fjóra sýningarsali, þar sem gefur að
líta bæði bandaríska og alþjóðlega
list, og eru þeir opnir allan sólar-
hringinn. Flugfarþegar geta auk
þess að heimsækja fyrmefnda sýn-
ingarsali spókað sig á flugsögusafni
sem var komið upp á flugvellinum
fyrir margt löngu.
^upmannahöfn
Góð gistlng,
á besta stað.
^MILY Hor^
Valberg
Sími +45 33252519
símabókanir milli kl. 8 og 14.0
Fax +45 33252583
www.valberg.dk
Net tilboö