Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Síða 44
52
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2001
Tilvera
DV
Corus-stórmótiö, Wijk aan Zee:
Spennan í hámarki
Á Corus-mótinu 1 Wijk aan Zee í
Hollandi er spennan í hámarki þeg-
ar þrjár umferðir eru eftir en mót-
inu lýkur á morgun, sunnudag. Eft-
ir 10. umferð eru sigurmöguleikar
Kasparovs mestir en hann á eftir
léttasta prógrammið. Shirov, sem
virtist eiga auðunnið tafl gegn An-
and, missti það niður í jafntefli og
hann á að tefla við Kramnik í dag,
laugardag. Það yrði samt gaman ef
honum tækist að ná efsta sætinu,
bara til að striða hinum
heims(k)meisturunum. Þetta mót
hefur verið fjörlega teflt og húsfyllir
á hverri umferð þarna úti í
Hollandi, líkt og var hér oft forðum.
Staðan eftir 10 umferðir var þessi:
1.-2. Garrí Kasparov, 2849, og Al-
exei Shirov, 2718, 7 v. 3. Alexander
Morozevich, 2745, 6,5 v. 4.-5. Mich-
ael Adams, 2746, og Vladimir
Kramnik, 2772, 6 v. 6.-7. Vishy An-
and, 2790, og Vassilí ívantsjúk, 2717,
5,5 v. 8. Peter Leko, 2745, 4,5 v. 9.-11.
Jan Timman, 2629, Veselin Topalov,
2718, Loek van Wely, 2700, 4 v.
12.-13. Alexei Fedorov, 2575, og Jer-
oen Piket, 2632 3,5 v. 14. Sergei Tivi-
akov, 2597, 3 v.
Skákþlng Reykjavíkur
Skákþing Reykjavíkur stendur nú
sem hæst og birti ég hér hugleiðing-
ar Ingvars Þórs Jóhannessonar um
mótið: „Óhætt er að segja að spennan
hafi magnast og að hún sé að nálgast
algjört hámark eftir 8. umferð Skák-
þings Reykjavíkur sem fór fram á
miðvikudagskvöldið (24. janúar).
- spennan ekki síðri á Skákþingi Reykjavíkur
Bjöm Þorfinnsson, sem hefur ver-
ið í forystu allt mótið og hafði að-
eins leyft eitt jafntefli í fyrstu sjö
skákum sínum, varð loks að lúta í
lægra haldi fyrir Arnari E. Gunn-
arssyni, stundum nefndur Barba-
snjall. Barbasnjall er einkar lunk-
inn skákmaður og hann trikkaði
Bjössa mjög skemmtilega, drap peð
sem var valdað, og ekki mátti taka
manninn aftur því þá yrði Björn
mát og við þetta hrundi svarta stað-
an. Á öðru borði stýrði Stefán Krist-
jánsson hvítu mönnunum gegn
Benedikt Jónassyni. Báðir eru þeir
mjög skemmtilegir skákmenn og
ljóst að lítil lognmolla yrði yfir þess-
Sævar
Bjarnason
Garrí Kasparov að tafli við Vladimir Kramnik.
- sigurmöguleikar hans eru mestir.
skrifar um yjfl '■ é’
skák
Skákþátturinn
ari skák. Sikileyjarvöm var tefld og
Stefán fékk sjálfsagt örlítið betri
stöðu og síðan fórnaði Benedikt
peði fyrir spil en það reyndist ekki
vera nóg og Stefán stýrði vinningn-
um í höfn.
Sigurður Páll tefldi enska leikinn
sinn með hvítu gegn alþjóðlega
meistaranum Sævari Bjarnasyni og
án þess að til alltof mikils vopna-
skaks kæmi varð jafntefli niðurstað-
an. Sigurbjörn Bjömsson blandaði
sér einnig í hópinn með sigri á
Helga Jónatanssyni. Sigurbjörn
hafði víst betra lengst af en tæpt
stóð það í lokin þegar báðir voru
nánast á lakkinu. Sigurbirni tókst
þó að vekja upp aðra drottningu en
tæpt var það. Róbert Harðarson var
snemma búinn með Davíð Kjartans-
son, stýrði svörtu í Trompovski:
byrjun og vann skemmtilega. Jón
Viktor Gunnarsson, hinn alþjóðlegi
(karl)meistarinn, er einnig kominn
á fullt í toppbaráttuna þrátt fyrir ör-
lítil skakkafoll í byrjun.
Eftir öll þessi ósköp er Björn sem
fyrr efstur með 6,5 vinninga en nú
hefur Stefán Kristjánsson náð hon-
um og hefur einnig 6,5. Með 6 vinn-
inga koma svo: Sigurbjörn Bjöms-
son, Jón Viktor Gunnarsson, Amar
Gunnarsson og Róbert Harðarson.
Hluthafafundur
Hluthafafundur í Kaupþingi hf. verður haldinn á Grand
Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, þann 5. febrúar nk. kl. 17.00.
Dagskrá:
1) Tiltaga um að heimila stjórn að hækka hlutafé félagsins
um allt að kr. 300.000.000, með áskrift nýrra hluta.
2) Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem
löglega eru upp borin.
Við hækkun hlutafjár munu hluthafar eiga rétt til að skrá
sig fyrir nýjum hlutum í réttu hlutfalli við hlutaeign sína,
sbr. 1. mgr. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Mun
þeim sem eiga áskriftarrétt veittur kostur á að notfæra
sér áskriftarréttinn, með sérstakri tilkynningu þar um.
Stjórn Kaupþings hf.
m
KAUPÞING
Ármúli 13A • 108 Reykjavík
Sími 515 1500 • Fax 5151509
www.kaupthing.is
Með 5,5 vinninga eru Benedikt Jón-
asson, Sigurður Páll Steindórsson,
Sævar Bjamason og Guðni Stefán
Pétursson; sá síðastnefndi eftir sig-
ur á Ingvari Þór Jóhannessyni.
í 9. umferð skilst mér að Björn
mæti Sigurbirni með hvítu mönn-
unum. Þar er á ferðinni athyglis-
verð viðureign en Björn og Sigur-
björn eru formenn sterkustu skák-
klúbba landsins, (Hér er ekki átt við
taflfélög í Skáksambandinu heldur
tvo af mörgum skákklúbbum sem
tefla í heimahúsum) Heiðrúnar og
Díónýsusar, og ljóst að mikill heið-
ur er í húfi í þeirri skák, auk þess
sem hún er mjög þýðingarmikil í
mótinu. Félagarnir og Ólympíufar-
arnir Jón Viktor og Stefán mætast
svo á öðru borði og er ljóst að þar
gæti verið ein af úrslitaskákum
mótsins. Nokkuð ljóst er að fransk-
ur slagur veröur í Faxafeninu á
fóstudagskvöldið (í gærkvöld) þar
sem Jón Viktor leikur nánast und-
antekningarlaust 1. e4 og Stefán
svarar ávallt með 1. - e6. Þeir félag-
ar hafa teflt Frakkann fram og til
baka og verið gæti að undirbúning-
ur kvöldið áður réði úrslitum í þess-
ari skák.“
Fjörlega skrifað af piltinum og í
léttum tón. Alveg eins og ég reyni
sjálfur, stundum, oftast? Skoðum
skákir frá mótinu:
Hvítt: Stefán Kristjánsson
Svart: Benedikt Jónasson
Sikileyjarvörn.
Skákþing Reykjavíkur (8), 24.01. 2001
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 e6 4.
0-0 Rge7 5. Hel a6 6. Bxc6 Rxc6 7.
d4 cxd4 8. Rxd4 Dc7 9. Rc3 Be7
10. Rf5 0-0 11. Rxe7+ Rxe7.
Afbrigðið sem Benedikt velur er
frekar rólegt og ætti að henta vel
gegn ungum, áköfum skákmönnum.
En það er Stefán ekki, i skákinni!
Honum hefur farið mikið fram und-
anfarið ár og tók mig f kennslu-
stund í umferðinni á undan þessari.
Ég man eftir því þegar Stefán kom
fyrst í skákskólann um 1992-93 og
þóttist þá sjá strax að þar væri mik-
ið skákmannsefni á ferð. Það hefur
ræst. Stefán er orðinn geysiöflugur
skákmaður sem á að vísu eftir að
vinna stærstu skákmótin innan-
lands, en það fer að koma að því.
Kannski núna?
12. Dh5 f6 13. Be3 d6 14. Hadl
b5 15. a3 e5 16. Hd3 Be6 17. Hedl
Had8 18. f4 Bc4 19. H3d2 a5 20.
fxe5 Benedikt Jónasson er skriðinn
yfir fertugsaldurinn og hefur ekki
gefið sér mikinn tíma til skákiðkun-
ar undanfarin ár. Mér var það mikið
ánægjuefhi að fá einhvern öflugan á
mínum aldri til að hjálpa mér að
velgja nýju strákunum í taflfélagmu
undir uggum. Það hefur ekki tekist
almennilega enn þá en viljinn er tO
staðar. 20. - fxe5 21. Bg5 b4 22.
axb4 axb4 23. Re2 Hf7 24. Rg3
Hdf8 25. h3 Rc8 26. Be3 Be6 27.
De2 De7 28. Kh2 Dh4 29. Dh5 De7.
Benedikt leggur traust sitt á kóngs-
sóknina sem fer í hönd. En staða
hvíts er traust og betra hefði verið
að bíða átekta og valda b-peðið. En
vogun vinnur vogun tapar! 30. Hal
Db7 31. De2 De7 32. Ha4 Dh4 33.
Hxb4 g6. Hvítur hefur nú unnið peð
og næsti leikur hans er lúmskur.
Benedikt fellur f gildruna. 34. c3 h5.
Nú koma kostir c3-leiksins í ljós!
Næsti leikur hvfts er algjört rot-
högg.
35. Rf5! gxf5 36. exf5 e4 37. fxe6
Hfl 38. Hb5 H8f5 39. Hxf5 Hxf5 40.
Dc4 Re7 41. Hxd6 Kh7 42. Hd7.1-0.
Arnari tókst að leggja Björn sem
þrátt fyrir það er í efsta sæti. En
þetta var frekar snöggt bað.
Hvítt: Araar Gunnarsson
Svart: Bjöm Þorfinnsson
Vínartafl.
Skákþing Reykjavíkur (8), 24.01. 2001
1. e4 e5 2. Rc3 Rf6 3. Bc4 Bc5 4.
d3 d6 5. Be3 Bb6 6. h3 Be6. Byrjun
þessi er kennd við borgina Vín i
Austurríki en ekki eitthvað annað.
Ekki skil ég tregðu svarts að leika í
næsta leik Bxc4 og síðan að hróka.
En ég er ekki alvitur. 7. Dd2 Rbd7
8. g4 RÍ8 9. Rge2 Dd7 10. 0-0-0
Bxc4 11. dxc4 Dc6 12. Bxb6 axb6
13. Rg3 Re6.
Riddaramir ráða lögum og lofum
á borðinu. Svartur ætti þó að reyna
að langhróka, annars fer illa.
14. g5 Rd7 15. b3 Rdc5 16. Kbl
Rd4 17. f4 Rce6 18. fxe5 dxe5 19.
Rd5 Rc5 20. Rf5 Rde6 21. h4 Rxe4
22. De3 Rd6.
Nú kemur snotur leikur sem lýk-
ur taflinu. Það verður spennandi að
fylgjast með lokaumferðunum.
23. Rxg7+ Kd7 24. Dxe5 Hhd8
25. Rxe6 fxe6 26. Dg7+ 1-0.