Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2001, Qupperneq 45
LAUGARDAGUR 27. JANUAR 2001
53
DV
Tilvera
Reykjavíkurmeistaramótið í sveitakeppni:
Subaru-sveitin
sigraði örugglega
Myndasögur
Eins og ég spáði í síðasta þætti
snerist Reykjavíkurmeistaramótið
upp í einvígi milli tveggja sveita,
sveitar Subaru og Ferðaskrifstofu
Vesturlands. Þessar sveitir áttu inn-
byrðis leik í næstsíðustu umferð
mótsins og þegar sú fyrmefnda
vann þann leik virtust úrslitin ráð-
in. Subarusveitin endaði síðan mót-
ið með stæl, með því að vinna síð-
asta leikinn með fullu húsi.
Röð og stig efstu sveitanna varð
því þessi:
1. Subaru-sveitin 424
2. Ferðaskrifstofa Vesturlands 403
3. Þrír Frakkar 382
4. Valgarð Blöndal 378
5. Skeljungur 360
6. Helgi Jóhannsson 355
I Subaru-sveitinni spila Aðal-
steinn Jörgensen, Sverrir Ármanns-
son, Matthías Þorvaldsson, Þorlák-
ur Jónsson, Jón Baldursson og Sig-
urður Sverrisson.
Árangur para í Butlerútreikningi
var bestur hjá Karli Sigurhjartar-
syni og Sævari Þorbjörnssyni, en
þeir skoruðu að meðaltali 1,10 impa
í spili. Og Karl átti einnig næstbesta
árangurinn og þá á móti syni sínum
Snorra, en þeir skoruðu að meðal-
tali 0,99 impa í sþili.
Við skulum skoða eitt spil frá leik
Subaru-sveitarinnar við sveit Sím-
onar Símonarsonar úr 5. umferð.
A/O
* G1098
* D
* D984
* D1087
♦ KD2
♦ Á54
♦ 53
N
* 53
* G98632
* K62
65
♦ Á764
** K107
ÁG107
* 32
í opna salnum sátu n-s Aðalsteinn
og Sverrir, en a-v Simon og Sverrir
Kristinsson. Sagnirnar voru þannig:
Austur Suöur Vestur Norður
2»! dobl pass 4«
pass 4 ♦ pass 4 v
pass 4* pass 4 grónd
pass 5 pass 6 ♦
pass pass pass
Opnun Símonar á tveimur hjört-
um er skólabókardæmi um það,
hvemig ekki á að nota þessar sagn-
ir og reyndar geta n-s nælt sér í 1100
með bestu vörn ef Aðalsteinn velur
að passa.
Engu að síður skapaði opnunin
erfíðleika í sögnum fyrir n-s því Að-
alsteinn á enga góða sögn við dobli
suðurs. Hann velur síðan fjögur
lauf, þá bestu í stöðunni, því frá
hans bæjardyrum er slemma nokk-
uð sjálfsögð. Sagnir þróast síðan
þvingað upp í sex lauf, sem er væg-
ast sagt nokkuð hæpin slemma.
En við skulum fá okkur sæti bak
við fyrrverandi heimsmeistarann.
Stefán
Guðjohnsen
skrifar um bridge
Símon spilaði út tígultvisti og
þótt einhver hætta sé á því að þetta
sé einspil þá velur Aðalsteinn að
láta tíuna úr blindum. Sverrir fær
slaginn á drottninguna og spilar
spaðagosa til baka. Aðalsteinn drep-
ur á ásinn í blindum, spilar laufi og
áttan kemur frá Sverri. Skipting
Simonar er nú nokkuð ljós, hann
hefir byrjað með sex hjörtu og þrjá
tígla. Hafi hann átt einspil í spaða
hefði hann líklega spilað því út og
þar af leiðandi er líklegast að hann
sé með 2-2 í svörtu litunum. Aðal-
steinn lætur því níuna og er feginn
þegar hún heldur. Næst er hjarta-
staðan skoðuð með því að spila
hjartaás. Þegar drottningin kemur
frá Sverri er engin ástæða til þess
að svína tígli og Aðalsteinn spilar
tígli upp á ás. Þá kemur lauf, gosan-
um svínað, trompin tekin og hjarta-
svíningin rekur síðan smiðshöggið
á þessa hæpnu slemmu.
Það voru 920 til n-s og 11 impa
gróði, því á hinu borðinu spiluðu n-
s fjóra spaða og unnu þá slétt.
Ég rak augun í aðra 920 á skor-
blaði spilsins og við eftirgrennslan
kom i ljós, að Sigtryggur Sigurðsson
i sveit Málningar hafði einnig spil-
að sex lauf og unnið. Hann hafði
einnig svínað laufaníu, en hvað
sagnröðina varðaði þá taldi hann
hana ekki áhugaverða fyrir lesend-
ur þáttarins.
Aöalsteinn Jörgensen.
þU stgraðir Tá-Den konung einu srnnF
og þú getur því lika unnið LOKASIGUR
é honum! Þá verður ÞU KONUNGUR
LURI