Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 Útlönd Rugræningi settur í járn Sádi-arabískur hermaður snýr einn fiugræningjanna niður og handjárnar á flugvellinum i Medína. Þrír féllu í árás á flugránsþotuna Sádi-arabískir hermenn réðust til inngöngu í rússneska farþegaþotu, sem var á valdi flugræningja, og frelsuðu rúmlega eitt hundrað far- þega í gær. Flugræningjarnir höfðu hótað að sprengja flugvélina. Þrír menn féllu í áhlaupinu á flugvellinum í hinni helgu borg Medína, flugræningi og tveir gíslar. Annar gíslanna féll fyrir hendi flug- ræningjanna. Flugræningjamir, sem taldir eru hafa verið Tsjetsjenar, rændu vél- inni eftir að hún hafði lagt upp frá Istanbúl í Tyrklandi á leið til Moskvu. Þeir kröfðust þess að Rúss- ar létu af hernaðaraðgerðum sínum í Tsjetsjeniu. Á myndum sem sjónvarpið í Sádi- Arabíu sýndi mátti sjá hvar þrír menn voru snúnir niður fyrir utan flugvélina og handjámaðir. Erkifjendurnir í París vilja hittast Erkifjendurnir og hægrimennim- ir Philippe Séguin og Jean Tiberi, sem báðir keppa um borgarstjóra- stólinn í París, lýstu því yfir í gær að þeir væru reiðubúnir að hittast fyrir síðari umferð borgarstjómar- kosninganna á sunnudag til að reyna að koma í veg fyrir að borgin, gamalt vígi Jacques Chiracs forseta, falli í hendur vinstrimanna. Þeir Séguin, sem er frambjóðandi flokks Chiracs, og Tiberi, fráfarandi borgarstjóri, gátu þó ekki staðist þá freistni að úthúða hvor öðrum. Frambjóðandi sósíalista, Bertrand Delanoé, fékk flest atkvæði í fyrri umferðinni fyrir viku. Holger K. Nielsen Danskur lýðveldissinni skemmti sér vel á dansleik hjá drottningu sinni. Gaman á balli hjá Margréti Þórhildi Holger K. Nielsen, formaður Sós- íalíska þjóðarflokksins í Danmörku, skemmti sér vel á drottningarball- inu í vikunni og sér ekkert rangt við að hafa sótt það, að því er danska fréttastofan Ritzau greindi frá í gær. Nielsen hefur sætt nokkurri gagnrýni fyrir að mæta á ballið sem Margrét Þórhildur drottning hélt þingmönnum og mökum þeirra. Nielsen verður nú að skýra fyrir æðstu stjóm flokksins hvemig hann sem lýðveldissinni getur verið þekktur fyrir að sækja dansleik hjá drottningu. I>V Áfram barist við næststærstu borg Makedóníu: Sprengjum varpað á aðaltorg Tetovo Makedónskar hersveitir og al- banskir skæruliðar börðust þriðja daginn í röð í útjaðri Tetovo, næst- stærstu borgar Makedóníu, í gær. Vaxandi áhyggjur eru meðal þjóða heims yfir því að styrjöld kunni að vera í uppsiglingu í landinu, svipað því sem gerðist í Bosníu eða Kosovo. Þungvopnaðir makedónskir lög- regluþjónar, sem höfðu vígbúist í þröngum götum Koltuk-hverfis, skutu án afláts á skæruliða í hlíðum Baltepe-fjalls við borgarmörkin. Uppreisnarmennirnir svöruðu með því að skjóta úr vélbyssum sín- um og sjálfvirkum rifflum á hverfið þar sem flestir makedónskir íbúar Tetovo búa. Albanir eru í meiri- hluta í borginni. Þá féllu sprengjur úr sprengju- vörpum á aðaltorg borgarinnar sem er miðstöð albanska minnihlutans í Makedóníu. Lagður á flótta íbúi borgarinnar Tetovo í Makedóníu fiýr að heiman vegna bardaga. Sprengingar heyrðust á örfárra minútna fresti í nágrenni Tetovo. Handsprengja lenti meðal annars á kirkju og byssukúlur lentu á sjúkra- húsi og heilsugæslustöð. „Það var ákaft skotið á lögregl- una á nokkrum stöðum," sagði Stevo Pendarovski, talsmaður inn- anrikisráðuneytis Makedóníu. Albanskir skæruliðar skutu á þýska friðargæsluliða í Tetovo en að sögn talsmanns þýska landvama- ráðuneytisins særðist enginn. Þrjár vikur eru liðnar siðan upp- reisnarmenn í Makedóníu fóru að láta að sér kveða og hafa ráðamenn á Vesturlöndum þungar áhyggjur af gangi mála. Uppreisnarmennir segj- ast vera að berjast fyrir jöfnum rétti albanska minnihlutans. Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýska- lands, heimsótti Makedóníu í gær til að stappa stálinu í ráðamenn og lýsta yfir stuðningi við þá. Erkibiskup leggur áherslu á mál sitt Desmond Tutu, erkibiskup í Suður-Afríku, leggur áherslu á mál sitt i ræðu sem hann flutti á alþjóðlegum degi berkla í gær. Tutu, sem sjálfur þjáðist af berklum þegar hann var barn, sagði að berklar væru ekki aðeins læknisfræðilegt vandamál, heldur ættu þeir rætur i félagslegum, pólitískum og efnahagslegum aöstæðum. Reiði vegna slátrun- ar heilbrigðra lamba Nick Brown, landbúnaðarráð- herra Bretlands, ítrekaði í gær nauðsyn þess að farga tugþúsund- um dýra „í hættu“ til að stemma stigu við gin- og klaufaveikifaraldr- inum, þrátt fyrir vaxandi reiði bænda. Leiðtogar bænda í Cumbriu, sem hefur orðið einna verst úti allra hér- aða í Bretlandi, segjast vera algjör- lega andvígir áformum um að slátra bæði kindum og svínum sem virð- ast vera heilbrigð. Aðrir bændur hafa talað um „uppreisn í sveitunum" ef stjóm- vald halda fast í áform sín og sumir segjast ekki munu leyfa dýralækn- um á vegum hins opinbera að stíga fæti á landareignir sínar, að því er fram kom á fréttavef breska rikisút- varpsins BBC. „Það er fullt af bændum sem ekki Lömbunum slátrað Bresk stjórnvöld ætla að slátra tug- þúsundum heilbrigðra dýra nærri gin- og klaufaveikisýktum svæðum, þar á meðal nýfæddum lömbum. munu líða nokkrum það að koma og slátra dýrum sem ekki eru sýkt,“ sagði Andrew Spence, sem er í hópi þeirra bænda sem andvígir eru slátruninni. Stjómvöld segja aftur á móti að viðhafa verði strangar varúðarráð- stafanir. Síðdegis í gær höfðu greinst 256 tilfelli gin- og klaufa- veiki í Bretlandi. Öllum kindum og svínum innan þriggja kílómetra radíuss frá sýkt- um býlum í Cumbriu og suðvestan- verðu Skotlandi verður slátrað. Fréttir herma að allt að einni millj- ón dýra verði ef til vill slátrað. Byrja átti á verkinu í gær. „Við drepum ekki dýr sem eru laus viö sjúkdóminn, heldur drep- um við dýr sem eru I hættu,“ sagði breski landbúnaðarráðherrann Nick Brown í gær. garðana Svend Auken, umhverfisráðherra Danmerkur, hefur tekið vel í hug- myndir um að banna sölu á eit- urúða til garðeig- enda, eins og átján sveitarfélög á Kaup- mannahafnarsvæðinu hafa lagt til svo komist verði hjá mengun drykkjarvatnsins. Sveitarfélögin vilja að aðeins atvinnumenn fái að eiturúða garða. Danskir til fyrirmyndar Danskir drengir eru hlynntastir allra í heiminum að veita konum sömu réttindi og körlum, að því er fram kemur í alþjóðlegri könnun sem náði til drengja frá 28 löndum. Ekki eitur i Færeyingar í fótabað Allir farþegar færeyska flugfé- lagsins Atlantsflugs sem koma með vélum þess frá Skotlandi verða að stíga í fat með sótthreinsandi legi áður en þeir fá að fara inn í landið, vegna ótta við gin- og klaufaveiki. Lipponen hélt velii Fimm flokka samsteypustjórn Paavos Lipponens, forsætisráðherra Finnlands, stóð af sér vantrauststil- lögu í þinginu með miklum mun. Miðflokkurinn lagði tillöguna fram vegna óánægju með framlög til bar- áttunnar gegn fátækt. Gúsinskí áffam í haldi Spænskur dóm- stóll úrskurðaði í gær að rússneski fjölmiðlakóngurinn Vladímír Gúsinskí skyldi áfram dúsa í varðhaldi á meðan beðið er eftir að gengið verði frá framsali hans. Rússar vilja ná hon- um vegna ákæra um stórfelld íjár- svik í máli sem hefur dregið athygl- ina að frelsi fjölmiðla í Rússlandi. Skrúfað fyrir olíuna OPEC, samtök olíuframleiðslu- ríkja, ákváðu á fundi sínum í Vínar- borg í gær að draga úr olíufram- leiðslu um eina milljón tunna á dag, eða þar um bil. Endanlegur sam- dráttur verður tilkynntur einhvern tíma í dag. Baráttan heldur áfram 'jj fimmtudag að hann S baráttu sinni gegn --------^ Montpellier hafði þá dæmt hann í tíu mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir að eyði- leggja erfðabreyttar hrísgrjóna- plöntur árið 1999. Ekkert leynimakk Mogens Lykketoft, utanríkisráð- herra Danmerkur, þvertekur fyrir að nokkru sinni hafi verið rætt um leynilegt samkomulag við Bandarík- in um eldflaugavamarkerfi. Sprenging í Kína Talið er að 18 manns að minnsta kosti hafi farist þegar sprengingar urðu í fjórum íbúðarblokkum í norðanverðu Kína í gærmorgun. Ekki er vitað hvað geröist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.