Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Blaðsíða 54
66 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 Tilvera I>V lí f iö EFTIR VINNU Píanótónleikar í Salnum Vlkingur Heiðar Ólafsson pí- anóleikari heldur tónleika i dag í Salnum í tilefni þess að hann tekur einleikarapróf frá Tónlist- arskólanum í Reykjavík. Hann mun leika verk eftir Bach, Moz- art, Ligeti og Liszt og hefst gam- anið klukkan 14. Kiassík ■ FILHARMONIA FLYTUR MOZART í LANGHOLTSKIRKJU Söngsveitin Fílharmónía flytur Messu í c-moll eftir Mozart í Langholtskirkju kl. 17. Einsöngvarar eru Þóra Einarsd., Sólrún Bragadóttir, Björn Jónsson og Ólafur Kjartan Sigurösson. ■ ORKUTÓNLEIKAR í SEUA- KIRKJU Landsvirkjunarkórinn, Rarikkórinn og kór Orkuveitu Reykjavíkur halda tónleika í Selja- kirkju, klukkan 16 í dag. Einsöngv- ari er Þuríður G. Sigurðardóttir. ■ STÓRTÓNLEIKAR í NESKIRKJU Lúðrasveit Reykjavíkur heldur stór- tónleika, í dag klukkan 16 f Nes- kirkju. Á tónleikunum syngja þau Andrea Gylfadóttir, Egill Olafsson, Guðbjörn Guðbjörnsson og Margrét Eir Hjartardóttir meö sveitinni. ■ VORTÓNLEIKAR KARLAKÓRS REYKJAVIKUR I YMI Tónleikar Karlakórs Reykjavíkur verða í húsi kórsins, Ými við Skógarhlíð 17. í dag klukkan 16. Á efnisskránni eru meðal annars tvö lög eftir Pál Pampichler Pálsson. Sveitin II ÍONAS PÍÁNOlJEÍkÁRrÍ HVERÁ- GERÐISKIRKJU Klukkan 16 í dag heldur Jónas Ingimundarson píanó- tónleika í Hveragerðiskirkju. Á efnisskránni eru verk eftir Beet- hoven, Debussy og Liszt. ■ SNIGLAVEISLAN Leikfélag Akur- eyrar sýnir Sniglaveisiuna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í síðasta sinn í Samkomuhúsinu á Akureyri í kvöld klukkan 20. Leikhús B BARBÁRÁ OG ULFÁR-SPIJCTtÉR PISLAGANGAN Barbara og Ulfar - splatter píslagangan verður sýnt aftur í kvöld klukkan 19 á Litla sviði Borgarleikhússins. Sýningin er bönnuð börnum yngri en 12 ára. ■ STÚDENTALEIKHÚS í STÚD- ENTAKJALLARA Stúdentaleikhúsiö býður upp á tvær sýningar á Ungir menn á uppleið í kvöld. Sú fyrri er klukkan 20 og sú seinni 23. ■ Á SAMA TÍMA SIÐAR Leikritið Á sama tíma síðar verður sýnt í Loft- kastalanum klukkan 20 í kvöld. ■ VITLEYSINGARNIR Leikritiö Vit- leysingarnir eftir Olaf Hauk Símon- arson verður sýnt klukkan 20 í kvöld í Hafnarfjarðarleikhúsinu. ■ STRÆTI Nemendaleikhúsið sýnir Stræti eftir Jim Cartwright í Smiöj- unnl, Sölvhólsgötu 13, klukkan 20. Kabarett ■ RUSSIBANARNIR 5 ARA I KAFFILEIKHUSINU Afmæli Rússí- bananna verður fagnað meö dans- ' leik í Kaffileikhúsinu. í kvöld kl.23. Fyrir börnin__________________ ■ LOÐINBAROI Nýi brúðuleikurinn Loðinbarði eftir Hallveigu Thorlacius verður frumsýndur í dag, klukkan 14, í Gerðubergi. Fyrsta Músíktilraunakvöld Tónabæjar 2001: Noise og Anonymous áfram Spilaö í nýjum Tónabæ Hljómsveitirnar sýndu góð tilþrif á fyrsta Músíktilraunakvöldinu Fyrsta tilraunakvöldið í Mús- íktilraunum Tónabæjar 2001 fór fram á fimmtudagskvöldið. Þetta var í fyrsta sinn sem keppnin var haldin í nýja Tónabæ í Safamýr- inni. Sama form er á keppninni og undanfarin ár, en á hverju tilrauna- kvöldi leika tvær gestasveitir, önn- ur á undan hljómsveitunum í keppninni og hin á eftir, um leið og atkvæði gesta í salnum eru talin og dómnefndin gerir upp hug sinn. Á fimmtudaginn byrjaði kvöldið á Sofandi, en hún spilaði á meðan fólk var að tínast í húsið. Það var strax Ijóst þegar fyrsta keppnissveit- in, Noise, steig á svið að það væri ekkert verri mæting í nýja Tóna- bænum heldur en þeim gamla, sal- urinn var fullur út úr dyrum og langt fram á gang. Noise er skipuð þremur strákum úr Reykjavík. Þetta er klassísk rokktríó-hljóðfæra- skipan, gitarleikari (sem syngur), bassaleikari og trommari. Þeir gefa sig út fyrir að leika Seattle-rokk og þegar þeir byrjuðu á fyrsta laginu kom strax í ljós að þeir áttu fleira sameiginlegt með Nirvana en hljóð- færaskipanina. Fyrstu tvö lögin minntu mikið á Nirvana og söngv- arinn söng meira að segja áberandi líkt Kurt Cobain heitnum. Þriðja lagið var að mati undirritaðs sýnu best, þéttara og dramatískara en hin tvö. Noise komst ágætlega frá sínu, sérstaklega var trommarinn efnileg- ur. Tölvuleikir og tæknilegir örö- ugleikar Næsta hljómsveit var dúóið Fili- us Jupiter! og spilaði tölvutónlist. Það tók nokkurn tima fyrir það að koma sér í gang (tölvubúnaður er viðkvæmur). Það sem blasti við manni þegar þeir voru byrjaðir að spila var tölvuskjár sem sneri út í sal. Annar meðlimur Filius var svo í hvarfi á bak við skjáinn að fram- kalla tónlistina en hinn sat á gólf- inu fyrir framan og spilaði tölvuleik sem áhorfendur gátu fylgst með. Það er oft lítið spennandi að horfa á tölvubönd á sviði, það er eitthvað svo lítið að gerast, en þetta var til- raun til þess að bjóða áhorfendum upp á smávegis afþreyingu með tón- listinni. Filius Jupiter! spilar nokk- uð hefðbundna instrúmental teknó- tónlist, fyrsta lagið byrjaði rólega, en fór út í meiri keyrslu (í stíl við t.d. Prodigy), annað lagið var spilað yfir jungle takt og þriðja lagið var með breakbít-tilþrifum. Það vantaði þó töluvert upp á að þetta virkaði almennilega hjá þeim, til þess var of mikill byrjendabragur á þessu og sándið, sem skiptir miklu máli í svona tónlist, var of lélegt. Þriðja hljómsveitin var Rítalín sem skipuð er meðlimum úr Reykja- vík og Kópavogi. Þeir eru fimm tals- ins, tveir söngvarar, gítarleikari, bassaleikari og trommari. Tónlistin sem hún spilar er sambland af rokki og rappi með smágrúv og fönk-áhrif- um. Þetta er svona tónlist sem kall- ast á við hljómsveitir eins og Rage Against The Machine, Limp Bizkit og Red Hot Chilli Peppers. Þrátt fyr- ir ágæt tilþrif einstakra meðlima (bassaleikarinn gerði góða hluti og söngvararnir voru i flottri sveiflu á sviðinu) þá virkaði heildin ekki al- veg, þeir þurfa að spila þetta meira til og gera þetta markvissara. Það skemmdi líka fyrir þeim hvað sánd- ið var lélegt, sérstaklega í byrjun. „Rokksinfónía frá helvíti" Næsta hljómsveit var sérstaklega tilkomumikil á að líta á sviðinu. Þar var komin black-metal sveitin Mictian, en hún var skipuð sex ná- ungum úr Reykjavík og Kópavogi - söngvara, tveimur gítarleikurum, bassaleikara, hljómborðsleikara og trommara. Það er stíll yfir þessu bandi - niðurdregnir svartklæddir menn með guðlast og rúnaletur á bolunum sínum sem lifða sig inn í tónlistina. Strax á fyrstu tónunum varð manni ljóst að þarna var mik- ið band á ferðinni, vel æft og kraft- mikið. Tónlistin var í þessum svarta metalstíl, mikið um hraða- skiptingar, ómstríðir gítarar og söngur sem hljómar eins og úr iðr- um jarðar. Af og til stoppaði allt nema einn gítar eða hljómborðið sem spilaði þá einleikskafla og svo fór allt af stað á ný. Orkan í svona sveit er örugglega á við meðalstóra virkjun. Þegar Óli Palli, sem var kynnir kvöldsins, afkynnti þá fé- laga, þá kallaði hann þetta „rokksinfóníu frá helviti". Það er ein leið til að lýsa þessu! Hljómsveitin Coral sem tók við hljómaði eins og ljúfasta popp á eft- ir látunum í Mictian. Þeir voru greinilega vinsælir í salnum (mikið skrækt). Coral er fjögurra manna rokkhljómsveit og spilar grugg- rokk. Þeir stóðu sig ágætlega, söngvarinn var t.d. efnilegur og þeir eru allir nokkuð vel spilandi, en lagasmíðarnar voru samt frekar óeftirminnilegar. Þetta er ein af þessum hljómsveitum sem eiga eftir að flnna sig, efniviðurinn er fyrir hendi en það er bara eftir að vinna úr honum. Rokk og raf Næstsíðastir á sviðið voru svo hraðkjarnastrákarnir í Desibel frá Reykjavík. Þeir eru fjórir, - gítar- leikari, söngvari, bassaleikari og trommari. Styrkur Desibel felst i næmri tilfinningu fyrir rytma. Lög- in þeirra þrjú einkenndust af vel samsettum og einföldum grunnum. Veiki punkturinn er hins vegar lagasmíðarnar sjálfar sem voru frekar daufar. Desibel spila hardcore. Þeir eru andlega skyldir Mictian, en mun einfaldari og létt- ara yfir þeim. Frammistaða ein- staka meðlima var ágæt en gítar- leikurinn var kannski helst til of einfaldur og einhæfur til lengdar. Síðust i keppninni var svo hljóm- sveitin Anonymous, en hún er skip- uð næsta ættlið í Pollock-ættarveld- inu, Marlon er sonur Mikka Pollock og Tanja er dóttir Danny Pollock. Það er samt langt frá þvi að þarna séu einhver Utangarðsbörn á ferð- inni, Anonymous spilar raftónlist en ekki gitar-rokk. Það er skemmst frá því að segja að þetta er mjög efnileg hljómsveit. Öll þrjú lögin þeirra voru afbragðsgóð. í fyrsta laginu var seiðmögnuð stemning yfir frekar einföldu, en mjög flottu rafbíti. í því söng Tania og notaði röddina sem hljóðfæri - röddin rann saman við tónlistina sem gerði skemmtilegan effekt. Annað lagið byrjaði á bjöguðum röddum sem hljómuðu eins og þær væru spilaðar aftur á bak. Það var prýðis rafpopp með skröltandi takti undir. Þriðja lagið var svo enn flottara en hin tvö, poppað og melódískt, minnti svolít- ið á það sem t.d. Múm er að gera, en líka á sum verk hljómsveita eins og Orbital. Seinni gestasveitin á þessu fyrsta tilraunkvöldi ársins var Botnleðja, en á meðan hún lék voru atkvæði talin og dómnefndin ræddi málin. Niðurstaðan varð sú að salurinn kaus Noise, en dómnefndin var sam- mála um að Anonymous ætti skilið að komast áfram. Næsta tilrauna- kvöld er fimmtudaginn 23. mars. Trausti Júlíusson Einleikjadagar í Kaffileikhúsinu: Sjö einleikir og umræða Kaffileikhúsið gengst í næstu viku fyrir einleikjadögum og hefjast þeir á morgun og standa til miðvikudagsins 28. mars. Á dagskrá eru fimm einleikir sem sýndir voru í einleikjaröðinni í öðr- um heimi ... sem stóð í Kaffileikhús- inu á síðasta ári og stendur í raun enn. Þetta eru einleikirnir Bannað að blóta í brúðarkjól eftir Gerði Kristnýju sem Nanna Kristín Magnús- dóttir leikur, Barnaeinleikurinn Stormur og Ormur eftir Barbro Lind- gren og Cecilia Torudd sem leikinn er af HöUu Margréti Jóhannesdóttur, Háaloft eftir Völu Þórsdóttur i flutn- ingi hennar sjálfrar, Eva eftir Liselotte Holmene og Irene Lecomte sem Guðlaug María Bjarnadóttir flyt- ur og Missa Solemnis eftir Michael Tourniere og Kristiina Hurmerinta í flutningi Jórunnar Sigurðardóttur, leikhússtjóra Kaffileikhússins. Að auki eru sýndir einleikirnir Þá mun enginn skuggi vera tU eftir Kol- brúnu Ernu Pétursdóttur og Björgu Gísladóttur, í flutningi Kolbrúnar Ernu og Ég var beðin að koma eftir Þorvald Þorsteinsson með Sigrúnu Sól Óafsdóttur en þessir einleikir hafa báðir verið sýndir í Kaffileikhúsinu. Laugardaginn 24. mars verður um- ræða um einleikjaformið á einleikja- dögunum. DV-MYND INGÓ Bannað að blóta Nanna Kristín Magnúsdóttir, sem leikur í Bannaö aö blóta í brúöarkjól, er hér aö lesa ieikdóm í DV um Laufin í Toskana sem hún leikur í.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.