Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
19
I>V
„Einu sinni komum við
að konu sem hafði ekið
bíl sínum fram af sjö-
undu hœð á bílastœða-
húsi. Hún cetlaði að stíga
á bremsuna en steig í
staðinn á bensíngjöfina
svo bílinn flaug fram af.
Það ótrúlega við þetta
var að hún slasaðist
varla neitt og gekk sjálf
inn í sjúkrabílinn, “
segir Ólafur.
Skotheld vesti í bílunum
Þrátt fyrir ýmsar óvenjulegar
uppákomur segist Ólafur aldrei
hafa lent í lífshættu í starfi sínu.
„Það eru skotheld vesti í sjúkra-
bílunum sem við fórum í í þeim til-
vikum sem það er talin þörf á því,“
segir Ólafur og bætir við að þannig
búnað sé ekki að finna í íslenskum
sjúkrabílum.
„Við grípum hins vegar aldrei
inn í atburðarás á vettvangi heldur
látum við lögregluna algjörlega sjá
um það að yfirbuga árásarmenn,"
segir Ólafur sem hefur lent í því að
koma að særðu fólki eftir skotárás
þar sem árásarmennirnir keyrðu og
skutu tilviljanakennt út um bíl-
gluggann á gangandi vegfarendur.
Sjúkrabílarnir sem notaðir eru
ytra eru svo sannarlega sjúkrahús á
hjólum og starf bráðatæknanna fer
einnig aö nokkru leyti inn á svið
læknanna.
„Nei, við erum engir læknar þó
þetta nám veiti okkur réttindi til
þess að gera ýmislegt sem flokkast
hefur undir starfssvið lækna. Það er
mikill skilningur meðal allra aðila í
heilbrigðisstéttinni að þetta er
spuming um að bjarga mannslífum.
En allir sem ganga í störf lækna
þurfa til þess réttindi,“ segir Ólafur.
Bráðatækninámið er eins árs
nám sem þýðir að íslendingarnir
þrír eru væntanlegir heim í haust.
Þrátt fyrir að það sé ekki eins mik-
ill hasar hér á landi og hjá banda-
rískum sjúkraflutningamönnum þá
segir Ólafur að námið muni koma
að góðum notum hér heima. „Við
viljum geta veitt almenningi sem
besta þjónustu þegar slys ber að
höndum og þetta nám er liður í
því,“ segir Ólafur og bætir við að
auðvitað ættu sem flestir sjúkra-
flutningamenn að hafa þessa mennt-
un. -snæ
Helgarblað
Kawasaki
fjórhjólin
traust & lipur
KLF 220 2WD. 530.000 m/vsk.
KVF 300 4WD M drif. 695.000 m/vsk.
KVF 400 4WD h/l drif. 799.000 m/vsk.
Ólafur ofar skýjum
Á eftirlitssvæði því sem Óiafur sinnir á þyrluvöktum í Pittsöurgh og nágrenni þúa þrjár milljónir manna.
www.flugfelag.is
Á fljúgandi ferð
til Keflavíkur
min.
Fljúgandi
til Vestmannaeyja
20
min.
Fljúgðu frekar...
...frá Reykjavík
Dennis Quald
Lét Andie McDowell róa.
Lét Andie sigla
Dennis Quaid gerir það ekki enda-
sleppt í kvennamálunum. Hann er
eins og flestir vita nýskilinn við hina
augnfríðu Meg Ryan en hefur samt
náð að hefja samband með Andie
McDowell. Þau voru orðin mjög náin,
sáust kyssast við ýmis tækifæri og
fóru meira að segja saman til Sikileyj-
ar.
Eins og Russell Crowe þá er Dennis
í eigin hljómsveit sem nefnist The
Sharks. Á tónleikum sveitarinnar sást
til Dennis með ljóshærðri þokkafuilri
konu. Hann keypti handa henni rósa-
vönd og fór með henni og vinkonu
hennar inn i nóttina á bílnum sínum.
Andie og ljóshærða konan eru ekki
þær einu sem hafa notið kappans síð-
an hann skildi við Meg þvi hann hef-
ur einnig verið orðaður við Caprice
Bourret og ítalska hefðarkonu. Þegar
talsmaður Dennis var spurður út í
kvennamál var eina svarið: „Hann er
á lausu. Hvað annað get ég sagt?“
Ef flugvöllurinn fer úr Vatnsmýrinni verður um
helmingi lengri ferðatími frá Reykjavík til allra
áfangastaða okkar nema Vestmannaeyja.
Ferðatíminn þangað þrefaldast.
Það sama á við um sjúkraflugið.
Meðal dagur hjá
Flugfélagi íslands
á Reykjavíkurflugvelli:
1000 farþegar;
200 erlendir ferðamenn,
3 tonn af frakt
50 leigubílaferðir
Meðal ár hjá
Flugfélagi íslands
á Reykjavíkurflugvelli:
9000 brottfarir - 9000 lendingar
350.000 farþegar;
70.000 erlendirferðamenn,
210.000 landsbyggðarbúar,
70.000 Reykvíkingar
1.000 tonn af frakt
250 starfsmenn
2.700.000.000 króna velta
17.500 leigubílaferðir
300 sjúkraflug
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
- fyrir fólk eitts og þig!