Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Síða 9
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
9
DV
Fréttir
íslendingar og Þjóðverjar í samstarf á sviði fiskeldis:
Býður upp á mikla möguleika
- segir fulltrúi íslenska fyrirtækisins
íslenskt sjávarsilfur ehf. og þýska
fyrirtækið United Food
Technologies AG hafa ákveðið að
taka upp samstarf um könnun á
hagkvæmni eldis fisktegunda sem
vaxa hratt. Að sögn Jóns Arnars
Guðbrandssonar er mikill fengur
fyrir íslendinga að komast í sam-
starf við þýska fyrirtækið þar sem
það er eitt stærsta fiskeldisfyrirtæk-
ið í heiminum í dag.
Hann segir að fyrirtækið sé með
nýjar hugmyndir í fiskeldi fyrir ís-
lendinga og Norður-Evrópubúa. Það
vinni meðal annars að því að rækta
tegundir sem hægt er að slátra eftir
sjö til átta mánuði í stað tveggja til
þriggja ára. „Við viljum komast í
þekkingarbók þeirra og fá þá til að
aðstoða okkur við þá tækni og
kunnáttu sem þarf til að setja þetta
af stað,“ segir Jón Arnar.
Að sögn Jóns Arnars finnst fyrir-
tækjunum spennandi kostur að fara
út í eldi á styrju. „Þjóðverjarnir
hafa framleitt styrju en úr henni
eru styrjuhrognin fengin. Þeir geta
með hjálp skurðlækninga náð
hrognum fjórum sinnum úr hverri
styrju og stefna að því að ná þeim
sjö sinnum," segir Jón Arnar. Hann
segir að fyrir kílóið af hrognum fái
Þjóðverjarnir um sjötíu til áttatíu
þúsund krónur sem gerir þau að
einu dýrasta matarhráefni í heimin-
um. „Við viljum vita hvernig þeir
vinna þessar skurðlækningar og
þeir hafa einnig mikinn áhuga á að
vinna með okkur,“ segir Jón Arnar.
Hann segir að með því að komast
að þekkingu Þjóðverjanna sleppi ís-
lendingar við að eyða miklum fjár-
munum í þróunarvinnu. Næsta
skref sé að vinna að viðskiptaáætl-
unum og um leið og fengir hafa ver-
ið íjárfestar sé hægt að taka stóru
skrefin. „Það eru miklir möguleikar
fólgnir í þessu og ég hef fulla trú á
að samstarfi muni verða mjög gott,“
segir Jón Arnár. -MA
Iðnþing Samtaka iðnaðarins:
Flestir félags-
menn vilja í ESB
(d)
SAMTOK
IÐNAÐARINS
Hátt gengi, há
laun og háir
vextir vega að
samkeppnistöðu
íslenskra fyrir-
tækja er meðal
þess sem fram
kemur í ályktun
Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem
fram fór í gær. í ályktunni kémur
einnig fram ekki megi fórna þeim
árangri sem náðst hefur í að við-
halda stöðugleika og friði í ís-
lensku efnahagslífi undanfarin ár.
Þá er bent á að stjórnvöld megi
ekki bíða of lengi með að lækka
vexti og skatta því það getur kom-
ið niður á efnahagslífinu ef það er
dregið of lengi. Líka er tekið fram
í ályktunni að EES-samningurinn
dugi ekki til frambúðar og eru
62% félagsmanna í Samtökum
iðnaðarins þeirra skoðunar að að-
ild að Evrópusambandinu sé efna-
hagslega hagkvæm. Á þinginu fór
einnig fram kosning til stjórnar
og ráðgjafaráðs. Vilmundur Jós-
efsson var kjörinn nýr formaður
samtakanna og einnig voru fjórir
nýir stjórnarmenn kjörnir.
-MA
II
Barnalán í borginni dvjviynd ingó
Svo viröist sem í sumum húsum borgarinnar sé meira barnalán en annars staðar. Ljósmyndari DV rakst á eitt slíkt
þar sem fjögur börn sváfu vært í vögnunum sínum eða kannski að þau hafi bara verið í heimsókn.
Hólpin úr árekstri:
Innilegar
þakkir fyrir
hjálpina
Elva Björk Sigurðardóttir, sem lenti
í umferðaróhappi og hörðum árekstri
á Reykjanesbraut í fyrrakvöld, vildi
kom á framfæri innilegu þakklæti við
vegfarendur, slökkviliðs- og björgunar-
menn sem komu fólkinu til aðstoðar.
Vildi hún færa Rannveigu Guðmunds-
dóttur sérstakar þakkir. „Það skipti
okkur miklu máli hvað hún var elsku-
leg við okkur öll, fyrir utan aðra sem
að komu. í okkar bil voru fjórir og það
þurfti að klippa mig úr flakinu en ég er
öll marin og blá. Við erum þó öll á lífi
og það þökkum við bílbeltunum. Það
var mjög mikils virði að fá strax alla
þessa hjálp,“ sagði Elva Björk Sigurð-
ardóttir. -HKr.
Skagafjörður:
Ekki sótt um
flóttamenn
DVÍ AKUREYRÍi '
Byggðarráö Skagafjarðar hefur
sérstaklega ályktað um það að sveit-
arfélagið Skagaijörður hafi ekki sótt
um það að taka á móti flóttamönn-
um sem fyrirhugað er að flytja til
landsins á þessu ári. Bókunina ger-
ir byggðarráðið vegna þess að
Flóttamannaráð kom þeim „frétt-
um“ á framfæri að umsókn um mót-
töku flóttamannanna hefði komið
frá Skagafirði.
Það eina sem gerst hafði var að
sveitarstjóri Skagafjaröar hafði í
tveggja manna samtali við formann
Flóttamannaráðs óskað eftir því að
sveitarfélagið fengi frest til að skoða
málið með hugsanlega umsókn í
huga. Byggðarráð Skagafjarðar hef-
ur nú samþykkt að taka upp við-
ræður við félagmálaráðuneytið og
Flóttamannaráð um hugsanlega
móttöku flóttamannanna og er það
gert án skuldbindinga. -gk
Ford Mondeo Ghia 2,0, n.skr.
09.97, ek. 60 þ. km, ssk., álfelgur,
CD. Verð kr. 1.290 þús.
VW Vento Gli 1,6, n.skr. 11.96,
ek. 60 þ. km, bsk., álfelgur, CD,
vindskeið. Verð kr. 790 þús.
Suzuki Swrft 1,3, n.skr. 08.96,
ek. 44 þ. km, bsk.
Verð kr. 540 þús.
Suzuki Baleno Wagon 1,6,
4x4, n.skr. 05.98, ek. 61 þ. km,
bsk. Verð kr. 990 þús.
Ford Escort Ghia 1,4, n.skr. Skoda Octavia 1,6, n.skr.
07.96, ek. 65 þ. km, bsk., toppl. 05.99, ek. 16 þ. km, bsk.
Verð kr. 670 þús. Verð kr. 1.090 þús.
Hyundai Elantra 1,6, n.skr.
03.99, ek. 16 þ. km, ssk.,
vindskeið, fjarstart o.fl.
Verð kr. 1.070 þús.
Subaru Legacy 2,0, n.skr.
02.92, ek.159 þ. km, bsk.
Verð kr. 550 þús.
Notaðir bílar
Þar sem þú færð notaða bíla á kóresku verði!
FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 555 6025 • www.kia.is
Suzuki Sidekick Sport 1,8,
n.skr. 01.97, ek.70 þ. km, ssk.,
krókur. Verð kr. 1.090 þús.
Toyota Corolla Xli 1,3, n.skr.
05.96, ek.71 þ. km, bsk.
Verð kr. 660 þús.
KIA
KIA ISLAND