Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
Helgarblað
I>V
Gulli smyglað í flauels-
fóðruðum viðarkössum
Allt lygi sem skrifaö hefur verið
Slobodan Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíuforseti, segir allt lygi sem skrifaö hefur veriö um fjölskyldu hans. Hann
kveðst ekki eiga neina bankareikninga erlendis. Júgóslavneskir rannsóknarmenn, vestrænar leyniþjónustur og
aðalsaksóknari stríðsglæpadómstóls Sameinuöu þjóöanna leita nú falinna fjársjóöa Milosevics og manna hans.
Ekki langt frá Champs-Elysées í
París, á bak við tannlæknastofu og
nokkur tölvufyrirtæki á þriðju hæð
gamallar skrifstofubyggingar, er
fransk-júgóslavneski bankinn, fyrr-
verandi vinnustaður Miodrags
Zecevics, eins vina Slobodans Milos-
evics, fyrrverandi Júgóslavíufor-
seta.
Árið 1965 var Zecevic svaramaður
við brúðkaup Milosevics. Seint á
áttunda áratugnum var Zecevic með
skrifstofu í Belgrad nálægt skrif-
stofu Milosevics í Beogradska bank-
anum. í lok níunda áratugarins
skipaði Milosevic Zecevic yfirmann
bankaútibúsins í París þar sem
hann var tíður gestur á dýrum veit-
ingastöðum og afhenti stundum
embættismönnum í heimsókn frá
Belgrad Rolex-úr.
Zecevic er einn margra náinna
vina Milosevics og er sakaður um
að hafa komið undan gífurlegu
fjármagni frá Júgóslavíu. Sam-
kvæmt gögnum franskra saksókn-
ara færði Zecevic í leyni yfir 1 millj-
ón dollara af reikningi bankans,
sem tilheyrði seðlabanka Serbíu, yf-
ir á reikninga dóttur sinnar og ann-
ars aðila í tveimur svissneskum
bönkum, Barclays Bank og Credit
Suisse. Síðar var hluti fjárins lagð-
ur inn á útibú Beogradska bankans
á Kýpur á reikninga tveggja starfs-
manna hans, að því er rannsóknar-
menn í Belgrad greina frá. Eftir það
var innstæðunni skipt á milli fleiri
reikninga yfir 20 sinnum. Enginn
veit hver stóð á bak við færslurnar.
Handtekinn í París
Árið 1997 var Zecevic gerður að
yfirmann i JUBMES-bankans í
Belgrad þar sem margir bandamenn
Milosevics störfuðu. En áður en
hann fór frá París falsaði hann, að
sögn júgóslavneskra rannsóknar-
manna, undirskrift aðstoðarbanka-
stjóra seðlabanka Júgóslavíu til að
tryggja endurgreiðslu lána upp á 90
milljónir dollara sem banki hans
hafði veitt júgóslavneskum fyrir-
tækjum með náin tengsl við stjórn
Milosevics.
Þegar Zecevic kom í stutta heim-
sókn til Parísar í ágúst 1998 var
hann handtekinn. Honum var gefið
að sök að hafa brotið frönsk lög með
því að hafa dregið sér fé serbneskra
yfirvalda. Yfirvöld í Belgrad voru
ekki hrifin af þessari afhjúpun.
Þrjátíu háttsettir aðstoðarmenn
Milosevics voru sendir i þotu til
Parísar til þess að fara fram á að
Zecevic yrði látinn laus. Meðal
sendimannanna var utanríkisráð-
herra Júgóslavíu og bróðir Milos-
evics. Zecevic var sleppt í næsta
mánuði eftir að hann hafði lofað að
greiða háa tryggingu. Um leið og
hann var kominn heim sendi hann
300 þúsund dollara úr varasjóði
JUBMES-bankans til Parísar. Hann
mætti hins vegar aldrei þangað þeg-
ar ákæra var birt.
Nú bíður Zecevic réttarhalda í
Belgrad fyrir að hafa falsað undir-
skrift og notað sjóði bankans í eigin
þágu. Hann hefur tjáð blaðamönn-
um að hann hafi aðeins verið
bankamaður og að handtaka hans í
Frakklandi hafi verið af pólítískum
toga. í síðastliðnum mánuði gekk
eiginkona Zecevics inn í seðlabanka
Júgóslavíu og afhenti gjaldkera and-
virði 300 þúsund dollara í þýskum
mörkum. Hún kvaðst vera að endur-
greiða lánið sem eiginmaður henn-
ar fékk til að greiða tryggginguna í
Frakklandi. Nú velta menn því fyr-
ir sér hvar hún fékk peningana.
Við fall stjórnar Milosevics var
svo að segja allt þjóðfélagið gegnum-
sýrt af spillingu. Embættismaður-
inn, sem bar ábyrgð á að koma
flóttamönnum frá Kosovo fyrir, er
sakaður um að hafa komið undan
tugum milljóna dollara af fénu sem
verja átti í verkefnið. Embættismað-
ur, sem fór með utanríkisviðskipti,
stal milljónum dollara frá þeim sem
fluttu inn banana. Víðtæk spilling
var innan tollsins.
„Þetta eru rústir," segir núver-
andi fjármálaráðherra Serbíu,
Bozidar Djelic, um efnahagsástand-
ið að loknum valdatíma Milosevics.
„Það er allt rotið. Það er alls staðar
skipulögð glæpastarfsemi."
Mirja neitar ríkidæmi
eiginmannsins
Ísíðustu viku neitaði eiginkona
Milosevics, Mirjana Markovic, þvi
að eiginmaður hennar hefði orðið
ríkur á valdatíma sínum. Hún sagði
hins vegar að allir forstjórar góðra
fyrirtækja og borgarstjórar í stærri
borgum væru ríkari en hann. Hún
sagði að nýja stjórnin ætti að kanna
bankareikninga ýmissa manna,
stærðir fasteigna þeirra og kostnað
við menntun barna þeirra erlendis.
Ýmislegt myndi koma á óvart.
Þrátt fyrir yfirlýsingar Mirju eru ný
yfirvöld í Beigrad ekki í vafa um
spillingu Milosevics.
Sjálfur lýsti hann því yfir i viðtali
við ítalska blaðið La Stampa í síð-
astliðnum mánuði að hann hefði
ekki auðgast á meðan hann gegndi
forsetaembættinu. „Allt sem hefur
verið skrifað um okkur er lygi.“
Hann kvaðst aðeins hafa þegið laun
sín og ekki eiga neina bankareikn-
inga erlendis.
Falinna fjársjóða leitaö
Rannsóknarmenn frá Júgóslaviu,
bandaríska fjármálaráðuneytinu,
leyniþjónustum Vesturlanda og að-
alsaksóknari stríðsglæpadómstóls
Sameinuðu þjóðanna leita engu að
síður að földum flársjóðum Milos-
evics og manna hans. Rannsóknar-
menn segjast hafa undir höndum
gögn sem bendi til að fjölskylda
Milosevics og um 200 embættis-
menn og stjórnmálamenn, sem
stjórnuðu flestum ríkisfyrirtækjun-
um, hafi komið undan á milli hund-
raða milljóna dollara til nokkurra
milljarða til einkanota.
Um miðja þessa viku fengu rann-
sóknarmenn staðfest að náinn ætt-
ingi Milosevics ætti bankareikning
á Kýpur. Slóðin hefur hins vegar
ekki bara verið rekin til Sviss og
Kýpur heldur einnig til Grikklands,
Frakklands, Þýskalands, Ítalíu,
Rússlands, Kína, Bretlands,
Liechtenstein og Suður-Afríku.
Svissnesk yfirvöld hafa þegar
greint frá því að tveir fjölskyldu-
meðlima Milosevics og 35 nánir
samstarfsmenn hans hafi átt banka-
reikninga í Sviss. Á sumum þeirra
var yfir hálf milljón dollara í fyrra.
Hvarf hundraöa milljóna
rannsakaö
Hvarf 200 milljóna dollara af þeim
milljarði dollara, sem ítölsk og
grisk símafyrirtæki greiddu 1997
fyrir rikissímafyrirtækið PTT í
Serbíu er meðal stærstu málanna
sem verið er að rannsaka. 200 millj-
ónirnar voru aldrei lagðar inn á
bankareikninga ríkisins. Fullyrt er
að 350 milljónir dollara hafi farið til
fyrirtækja undir stjórn vina forset-
ans. Aidrei hefur verið gerð grein
fyrir þessari upphæð.
Embættismenn í Belgrad saka
Milosevic og Nikola Sainovic, fyrr-
verandi aðstoðarfjármálaráðherra,
um aö hafa rekið Bor-gullnámurnar
eins og lénsveldi. Námumenn segja
Sainovic hafa heimsótt námurnar
nær vikulega. Þar sem stjórn Milos-
evics flokkaði alla gullframleiðslu
sem hernaðarleyndarmál segjast
rannsóknarmenn innan seðlabank-
ans ekki hafa komist að því fyrr en
i síðasta mánuði að kýpverska fyrir-
tækið MCC og dótturfyrirtækið
RTB Copper hefðu skipulagt útflutn-
ing á tæpum 800 kílóum af gulli síð-
astliðin þrjú ár. „Þetta er bara örlít-
ill hluti. Okkur grunar að miklu
meira hafi verið flutt út,“ segir Mla-
djen Dinkic, bankastjóri seðlabank-
ans i Júgóslavíu. Hann segir engan
vita með vissu hver hafi hagnast á
útflutningnum en allt bendi til að
féð, sem fékkst fyrir gullið, hafi orð-
ið um kyrrt erlendis.
Svissneskir rannsóknarmenn
hafa komið upp um flutning á fimm
öðrum gullfórmum í september og
október á síðasta ári. Þeir segjast
hafa rakið hagnaðinn af. sölunni til
bankareiknings MCC-fyrirtækisins
á Kýpur. Embættismenn í Belgrad
segja að náinn samstarfsmaður
Milosevics, Dusan Matkovic, hafi
staðfest að stálfyrirtæki sem hann
stjórnar eigi fimmtung i MCC. Ekki
er vitað hverjir hinir eigendurnir
eru. Fyrirtækið hefur enga skrif-
stofu á Kýpur. Það er ekki í síma-
skrám og ekki með skilti í neinni
byggingu. I skjölum um fyrirtækið
er heimilisfangið pósthólf lög-
mannsstofu sem hefur marga
júgóslavneska viðskiptavini.
Smyglað í flauelsfóðruðum
sérsmíðuðum viðarkössum
Rannsóknarmenn segja gullsteng-
urnar hafa verið fluttar til Belgrad
frá Bor-námunum undir lögreglu-
fylgd í skotti einkabíla. Stöngunum
var pakkað inn í sérsmíðaða viðar-
kassa sem fóðraðir voru með
flaueli. Á útflutningsskjölum var
gullið skráð sem kopar. Gullið var
flutt með svissneskum þotum til
Sviss þar sem það var selt á mörk-
uðum. Að sögn talsmanna seðla-
banka Júgóslavíu var útflutningur-
inn ólögleglegur þar sem gull frá
Bor-námunum verður að fara í rík-
iskassann.
Árið 1993 beittu Sameinuðu þjóð-
irnar Júgóslavíu viðskiptaþvingun-
um vegna aðildarinnar að stríðinu í
Bosníu. Eignir júgóslavneska ríkis-
ins erlendis voru frystar og erlend-
um fyrirtækjum var skipað að
stöðva viðskipti við júgóslavnesk
fyrirtæki. En gögn, sem rannsókn-
armenn hafa undir höndum, gefa til
kynna að aðgerðirnar hafl verið
gagnslausar. Milosevic hafi gert sér
grein fyrir hvað var í vændum og
rúmu ári fyrirfram hafl hann stofn-
að net fyrirtækja, banka og reikn-
inga erlendis til að komast hjá
áhrifum viðskiptaþvingananna.
Kýpur var miðstöð peningaflutn-
inganna, að sögn vestrænna og
júgóslavneskra rannsóknarmanna.
Þá voru þar engin takmörk sett á
innflutning á reiðufé og hægt var að
stofna fyrirtæki, sem notuð voru til
að fela aðra starfsemi, á nokkrum
dögum fyrir nokkur hundruð doll-
ara. Að sögn rannsóknarmanna
voru tugir slikra fyrirtækja
stofnaðir á Kýpur. Auk þess höfðu
margir Kýpverja samúð með Milos-
evic. Þeir báru saman stríð hans við
múslíma á Balkanskaga við baráttu
sína við Tyrki á norðurhluta eyj-
unnar sinnar.
Tveir háttsettir grískir embættis-
menn, sem ekki vilja láta nafns síns
getið, segja aðstoðarmenn Milos-
evics hafa flutt kistur fullar af pen-
ingum til Grikklands.
Byggt á Washington Post og
Reuter.