Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
Helgarblað
DV
Vesturbær
Míðbær
Brelöholt
Hlföahverfí
Árbær
Grafarvogur
Austurbær
Laugameshverfí
Fossvogur
Bústaöahverfí
Laugardalur
Vogahverfí
Vatnsmýri
Smáíbúöahverfí
Skerjafjöröur
f■, ■■
.._____ : 14,4%
...i 11,9%
10,2%
7,6%
22,5%
7,3%
4,7%
4,3%
2,2%
J 1,2%
§1,0%
0,7%
Draumalandið fyrir
vestan Læk Flestir Reykvíkingar vilja
búa í vesturbænum
samkvæmt könnun DV
Maðurinn þolir ekki kyrrstöðu.
Hann er aldrei ánægður með það
sem hann hefur heldur dreymir um
annað, betra. Þess vegna þekkja all-
ir orðatiltækið: Grasið er alltaf
grænna hinum megin við girðing-
una.
í skoðanakönnun DV í vikunni
voru 600 Reykvíkingar spurðir hvar
þeir vildu helst búa í borginni. Úr-
takið var jafnt milli kvenna og karla
og svörun við þessari spurningu var
afar góð því af 600 manns voru að-
eins 3% sem neituðu að svara eða
voru óákveðin.
Vesturbærinn góöi
Úrslitin eru nokkuð skýr. Vest-
urbærinn er vinsælasta hverfi
borgarinnar. Þar vildu flestir, eða
130 alls, búa. Þetta staðfestir orð
borgarskáldsins Tómasar Guð-
mundssonar sem orti um hallir
keisarans í Kina, sem kváðu skína
svo fallega, en ekkert vissi auga
hans fegra en vorkvöld í Vestur-
bænum. í hugum margra er ekkert
eins reykvískt eins og að búa i
vesturbænum og það staðfestist í
þessari könnun.
Við reiknum með að þegar fólk
nefnir vesturbæinn þá eigi það við
svæðið beggja vegna Hringbrautar
en enginn tiltók nánar hvar innan
hverfisins draumar hans lægju.
101 draumur
Næst á eftir vesturbænum kom
það sem fólk kallar miðbæ Reykja-
víkur og er póstnúmer 101 Reykja-
vík. Þetta er elsti hluti borgarinnar
og sá sem líkist einna mest stór-
borg. Þama er allt, og þá meina ég
allt, enda hefur hverfið verið gert
ódauðlegt í skáldsögu Hallgríms
Helgasonar, 101 Reykjavík, og síðar
í kvikmynd Baltasars með sama
nafni. Næturlífið í 101 er heims-
frægt. Þarna sögðust 83 aðspurðra
vilja setjast að. Nokkrir nefndu
Þingholtin sérstaklega sem sinn
draumastað sem er þá væntanlega í
hæfilegu göngufæri við hjartslátt
miðbæjarins.
S
m ** 3 * Z, 1*1 *
i • « i F * > ■
■ fÍÍsOÚ S»»* * WJ&m. » » m Mr - * .'jj- M UUUKi
rizM'A r » ilK k~z****m£& lSX mS *§.**££ S "TW 7Tf' »■»'*
Vesturbærinn í Reykjavík
Samkvæmt skoðanakönnun DV um eftirsóttustu búsvæöin í Reykjavík er vesturbærinn langvinsælastur.
Þögnin í Breiðholti
Ekki eru allir sama sinnis og taka
hin hljóðu og öruggu úthverfi fram
yfir ysinn i miðbænum. Þetta er
fólk sem vill ekki vakna viö söng
nátthrafnanna, fólk sem vill eiga fal-
legan garð og bílskúr eða una sátt í
fuglabjörgum blokkanna. Breiðholt-
ið varð í þriðja sæti í téðri könnun
með 69 atkvæði. Breiðholtið er stórt
blandað svæði þar sem uppbygging
hófst í kringum 1970. Nokkrir þátt-
takenda nefndu Seljahverfið sér-
staklega.
Hlíðarnar voru fyrsta eiginlega
úthverfið í Reykjavik og eru enn í
þægilegri fjarlægð frá miðbænum.
Þetta er afskaplega traust og vel
skeljasandsvarið hverfi og þar er
gott að búa. Það völdu 59 þátttak-
endur og Hlíðarnar urðu í fjórða
sæti.
Komdu nær
Þetta leiðir sem sagt í ljós að 45%
Reykvíkinga vilja búa í Hlíðum,
miðbænum eða vesturbæ. Miðað
við heildarflatarmál borgarinnar
mætti draga af þessu þá óvísinda-
legu ályktun að Reykvikingar vildu
gjaman búa þéttar en þeir gera. Ef
við skilgreinum Árbæ, Breiðholt og
Grafarvog sem ótvíræðustu úthverf-
in í Reykjavík þá eru aðeins 25% að-
spurðra sem vilja helst búa þar. Það
er sem sagt einn af hverjum fiórum
sem vill helst vera úthverfabúi.
Árbær í Reykjavík var lengi al-
gerlega einangraður frá borginni
því fáir eða engir íbúanna sáu til
annarrar byggðar. Þarna var og er
ein fiölmennasta gata landsins,
Hraunbær, þar sem búa fleiri en í
flestum sjávarplássum landsins.
Þetta friðsæla hverfi er vinsælt því
þar vildi 51 búa.
Ekki Grafarvog
42 aðspurðra nefndu austurbæ
sem sinn draumabústað en það er
illskilgreinanlegt hugtak og getur
verið svæðið allt frá Hlemmi að
Lækjartorgi og að Elliðaám eftir því
hve gömul viðmið eru notuð.
Grafarvogur er nýjasta og stærsta
hverfi Reykjavíkur og þar sögðust
44 helst vilja búa eða rúm 7% að-
spurðra. I raunveruleikanum munu
ríflega 11% Reykvíkinga búa í Graf-
arvogi.
25 sögðust vilja búa í Fossvogin-
um friðsæla þar sem göngustígur-
inn er aðalslagæð hverfisins og
dalsins sem var bjargað undan
hraðbrautinni á sínum tíma. 13 í
viðbót nefndu Bústaðahverfið sér-
staklega og hafa kannski átt við það
sama.