Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Page 23
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
23
DV
Helgarblað
„Satt best að segja er lít-
ið vitað um matarœði ís-
lendinga á jyrstu öldun-
um af skrifuðum lýsing-
um. Matur kemur varla
við sögu í fornsögunum
nema þegar verið er að
drekkja einhverjum í
soðkatli eða rota hann
með bjúga. Matur er svo
hversdagslegur og algeng-
ur á hverjum tíma að
mönnum hefur ekki þótt
taka því að segja sérstak-
lega frá honum. “
svæðinu hleyptu nýju lífi í þorra-
blót, svo dæmi sé tekið, og íslend-
ingar erlendis vita ekkert hátíð-
legra en matinn að heiman. Það er
vegna þess að svo mikið af menn-
ingu okkar er fólgið í matnum og
hvernig við matreiðum hann.“
Matur er kvennamenning
Hallgerður gaf út mikla bók um
íslenska matarhefð fyrir rúmu ári.
Hún segist hafa skrifað lokaritgerð
sina um eldhús en vera alin upp við
mikinn áhuga á mat og matargerð.
Hún fékk styrk úr Vísindasjóði til
þess að fara í rannsóknarleiðangra
út um land ásamt Steinunni Finn-
bogadóttur og safna þannig þekk-
ingu á vettvangi um matargerö ís-
lendinga.
„Ég fékk svo frí til að skrifa bók-
ina. Ég vildi gera þessum mikil-
væga þætti í menningu okkar skil
en fræðimenn höfðu ekki sýnt þessu
mikinn áhuga. Ég beitti mér fyrir
útsendingu spurningalista um mat
og hélt til haga flestu sem ég rakst
á.
Það vakti líka fyrir mér með
þessu að draga ákveðna kvenna-
menningu fram í dagsljósið en mat-
ur og matargerð hversdagsins hefur
alltaf verið og er kvennamenning
meðan hátíðamatreiðsla og atvinnu-
mennska er að mestu í höndum
karla. Þetta sést t.d. ágætlega á því
að það er engin kona í landsliði ís-
lands í matargerð."
Hallgerður telur að auðveldlega
mætti skrifa fleiri bækur um matar-
hefðir og matargerð íslendinga þvi
þar sé heilmikið efni óunnið. Sér-
staklega mætti sinna betur rann-
sóknum á mismunandi matarvenj-
um og siðum í ólíkum landshlutum.
Hefðir eru afstæðar
Það er freistandi að spyrja þann
sem hefur skrifað um hefðir og
venjur hvenær siður verði að hefð:
„Það er ákaflega afstætt," segir
Hailgerður.
„Þegar ég vann á Þjóðminjasafninu
fyrst þá var sá siður við lýði um nokk-
urra ára skeið að öðru hverju var
pantaður turnbauti með re-
múlaðisósu. Þetta var kölluð hefð og
er það sjáifsagt. Annað dæmi er að ég
starfa með leikfélaginu Hugleik og þar
hefur skapast sú venja að skömmu
fyrir frumsýningu er elduð bauna-
súpa sem menn borða saman í lok æf-
ingar. Þetta er ekki nema rúmlega 10
ára gamalt en þetta er talið meðal
sterkustu hefða leikfélagsins okkar.“
Þannig verður það niðurstaða okk-
ar að það sé auðvelt að skapa
skemmtilegar og ánægjulegar hefðir
og þær þurfi ekki langan tíma til að
festast í sessi. -PÁÁ
DV-MYND INGÓ
Hallgerður Gísladóttir
Hún hefur starfað á þjóöháttadeild Þjóðminjasafnsins í um 20 ár. Matur og matarhefðir eru sérstakt áhugamál
hennar og hún hefur gefið út bók um íslenska matarhefð.
Go mætir á nýjan leik
?< r /■
verð fra
14.750kr
með flugvallarsköttum
báðar lelðlr
TM
fij) ódýri
ferðamátinn til london
tryggðu þér lægsta fargjaldið
núna á www.go-fly.com
eða hringdu í síma +44 1279 66 63 88 (250 kr. símaþóknun bætist við) • samkvæmt skilmálum • 350 kr. greiðslukorts kostnaður • flogið er til stanstedflugvallar í I ondon