Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Síða 24
24
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
Helgarblað
I>V
Þar sem hjálpsemin
ræður ríkjum
staklega þegar um alvarleg slys er
að ræða. „Þetta starf byggist á
góðri þjálfun og almennri skyn-
semi,“ segir Eiríkur á milli þess
sem hann svarar I símann.
Veit aldrei hver hringir
næst
Auk Eiríks eru fjórir aðrir á
Neyðarlínuvaktinni þetta kvöldið
og meðal verkefna sem þeir þurfa
að sinna er að fylgjast með inn-
brotskerfum, brunakerfum og
neyðarhnöppum í fyrirtækjum á
vegum Securitas og Vara. Fimm
manns vinna á venjulegri vakt og
eru starfsmennirnir af báðum
kynjum og með ólíkan bakgrunn.
Að sögn Eiríks er mjög einstak-
lingsbundið hvað starfsmönnum
finnst erfiðast við starfið. „Það er
mjög erfitt þegar börn eiga í hlut
og þegar fólk í sjálfsvígshugleið-
ingum hringir inn,“ segir Eiríkur
og bætir við að slíkum símtölum
fari fjölgandi. Þetta er ekki í fyrsta
Gefandi starf
Stefán Kristinsson slökkviliösmaöur segir aö starfiö sé gefandi og aö þaö sé
gaman að geta hjálpað fólki og látiö því líöa vel.
Stöðvarstjórinn
Marteinn Geirsson, stöövarstjóri hjá Slökkviliöinu, fylgist meö því sem er aö
gerast í Neyöarlínuherberginu.
sinn sem Eiríkur vinnur við að
hjálpa fólki því hann hefur áður
starfað sem lögreglumaður og
slökkviliðsmaður og segir hann að
sú reynsla nýtist honum vel í
starfinu. í því hringir síminn og
beðið er um aðstoð vegna veik-
inda. Eiríkur sinnir símtalinu og
lætur sjúkraflutningamenn vita
um hvert þeir eiga að fara og lýsir
ástandi hins sjúka. Stuttu seinna
láta þeir vita um að búið sé að
sinna kailinu og veikindin hafi
ekki reynst eins alvarleg og í
fyrstu var talið. „Maður veit aldrei
hver hringir næst, það gæti verið
símagabb eða tilkynning um alvar-
legt umferðarslys," segir Eiríkur.
Sumir sem hringja eiga við ólík-
legustu vandamál að etja og nefnir
Eiríkur sem dæmi að eitt sitt hafi
ungur maður hringt inn því hann
átti í vandræðum með að setja
smokkinn rétt upp á sitt allra
heilagasta. Einnig hafi lítill gutti
hringt inn vegna þess að búið var
að stela frá honum pokémonmynd-
um og vildi hann fá lögregluna tii
að upplýsa málið. Hún fór á stað-
inn og leysti málið þannig að gutt-
inn fékk myndimar sínar aftur.
Bíiarán, hávaði og
slagsmál
Við hliðina á Eiríki hafði einn
af liðsmönnum slökkviliðsins
fengið sér sæti til að fylgjast með
því sem var að gerast. Marteinn
Geirsson er stöðvarstjóri hjá
slökkviliðinu og hefur verið
slökkviliðsmaður i 28 ár og segir
að starfið sé skemmtilegt, krefj-
andi og oft erfitt. „Það getur verið
líkamlega erfitt þegar fara þarf
inn í brennandi hús til að bjarga
fólki," segir Marteinn. Mikilvægt
Friögerður Jónsdóttir aöalvaröstjóri á
aö sinna lögreglubeiönum.
Um 260 þúsund símtöl
berast til Neyðarlínunnar
á hverju ári og eru
ástæður þeirra margvís-
legar þó flestar þeirra séu
frá fólki í neyð. í Skógar-
hlíðinni þar sem starfs-
menn Neyðarlínunnar
svara símtölum lands-
manna er einnig að finna
fjarskiptamiðstöð lögregl-
unnar og aðalvarðstöð
Slökkviliðsins í Reykja-
vik. Síðastliðna helgi
fékk blaðamaður DV að
skyggnast þar inn og
fylgjast með starfsmönn-
unum á nœturvakt.
Veörið var einstaklega gott
kvöldið sem blaðamaður lagði leið
sína í Skógarhlíðina og á himni
var fullt tungl. Sumir gætu talið
að það væri fyrirboði um að þaö
ætti eftir að vera nóg að gera á
vaktinni. Eitt af því sem einkenn-
ir störf þeirra sem þar vinna er að
enginn veit fyrirfram hvað gerist
eða hvar þeir munu lenda á vakt-
inni. Vaktstjórinn á Neyöarlín-
unni að þessu sinni er Eiríkur Jós-
epsson sem starfað hefur þar í
rúm fjögur ár. Eiríkur segir að það
geti verið krefjandi starf að svara
hjálparbeiðnum fólks í vanda, sér-
í lögreglubí! númer 271
Þau Arnar Marteinsson varöstjóri og
Ásgerður Stefánsdóttir lögreglumaöur
voru á vaktinni þessa nóttina og þurftu
aö sinna margs konar útköllum.