Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 Helgarblað Dóra Takefusa kom 15 ára gömul í bæinn austan af Seyðisfirði þar sem hún hafði vaxið upp í skjóli austfirskra fjalla. Þá, eins og nú, varð fólki starsýnt á hana því Dóra er Japani í aðra ættina og íslendingur í hina og dökkt litaraftið, skásettu augun og villta hárið stilltu henni upp til hliðar við hópinn. Hún var eins og austurlenskt bonsai-tré í íslensk- um jurtagarði, innan um arfa, róf- ur og garðabrúður. Þrátt fyrir ungan aldur og litla reynslu fékk Dóra vinnu í Ríkis- sjónvarpinu og síöan hefur hún veriö fastur gestur á skjám lands- manna og er enn. Dóra vinnur hjá Skjá einum þar sem hún er starfsmaður á frétta- stofu en undanfarið misseri hefur hún annast ásamt fleirum umtal- aðan stefnumótaþátt sem heitir Djúpa laugin. Þetta er þáttur sem allir elska að hata og margir tala um en fáir þykjast hafa séð. Þarna fara menn og konur á létt, blint stefnumót við einhvern sem þau velja úr þriggja manna hópi óséð á grundvelli spurninga. Kon- ur velja karla, karlar velja konur eða karlar karla og konur konur. Allt er leyfilegt og eftir róman- tíska skemmtiferð og djamm er parið heppna grillað í sófanum hjá Dóru sem vill fá að vita allt. Stund- um kviknar neistinn og stundum ekki. Hugmynd sem virkar DV fór á stefnumót við Dóru eft- ir sólsetur þegar klukkan nálgaðist miðnætti og frost og myrkur var úti. Inni var hlýtt, sterkt kaffi í bollum, kertaljós og angandi kon- íak i glösum. Lágvær tónlist og Dóra Takefusa er drottning stefnumótanna „Ég held aö allt einhleypt fólk sé alltaf meö radarinn ígangi og sé alltaf aö skoöa hvaö annaö. Fólk fer á barinn og í vinahús og leitar og það mætir í þátt Á stefnumóti með ] „ Við höfum ekki verið dl- veg eins vandar á að ís- lenskir karlmenn séu herramenn. En ég held að bœði kynin séu að taka sig á í þessum efnum.“ Dóra Takefusa, baðvörðurinn í Djúpu lauginni, talar um stefnumótaleiki, samskipti kynjanna, kjaftasögur og ástina. glitrandi borgarljós langt fyrir neð- an. Þetta hafði mörg einkenni góðs stefnumóts. - Hver er formúlan bak við stefnumótaþátt eins og Djúpu laug- ina? „Þetta er hugmynd sem hefur virkað út um allan heim. Ég er af- skaplega glöð að sjá hvað við komumst langt með hann hérna þar sem við erum svo fá. Það hefur ekki enn komið fyrir að það hafi komið i ljós að fólk hafi þegar ver- ið saman eða sé skylt. Við leggjum reyndar mikla vinnu í að finna fólk af listanum sem passar saman. Sá sem situr einn öðrum megin við tjaldið á að geta fundið einhvern sem passar við hann hinum meg- in,“ segir Dóra og glottir leyndar- dómsfull á svip. - Tekst ykkur alltaf að láta Amor hafa örvar til þess aö hitta með í hjartastað? „Ég giska á að það sé í 30-40% tilvika sem eitthvað gerist meira. Stundum smellpassar fólk, nokkrir hafa farið á annað stefnumót og stundum hafa lika orðið pör úr þessu. Við vitum svo ekkert hvern- ig þessi sambönd endast." Blandan er eldfim - Hvernig sækir fólk um að koma í þáttinn og er nóg framboð af þátt- takendum? „Fólk sendir okkur tölvupóst með upplýsingum um aldur, menntun, áhugamál, starf og þess háttar og stutta lýsingu á sér. Margir senda mynd sem er mjög gott og auðveld- ar okkur að velja í þáttinn. Þar fyr- ir utan erum við alltaf að veiða fólk í þáttinn, bæði eftir okkar hug- myndum og ábendingum annarra." - Hver er svo galdurinn við að velja fólk saman? „Við reynum að fá blönduna til þess að virka. Þetta er fyrst og fremst skemmtun og fólk sem tekur þátt í þessu á að vera til í það. Þetta er samkvæmisleikur og vinir kepp- enda eru allir í salnum og stemning- in verður að vera góð.“ - Hvað um aldurstakmörk? „Við erum ekki með nein aldurs- takmörk upp á við. Það er reyndar eini vandinn að fólk sem er orðið þrítugt og eldra virðist vera feimn- ara við að taka þátt i leiknum.Við viljum fá fullorðna til að taka þátt í þessu og ég vil hvetja fólk sem er komið af unglingsaldri til að hafa samband við okkur. Við viljum end- urspegla þjóðfélagið og vera með fólk af öllum stærðum og gerðum. Við vorum með þátt með homm- um og annan með lesbíum. Við gát- um sett saman einn þátt með kon- um á miðjum aldri og ef ég gæti sett saman þátt með fólki yfir sjötugt væri ég alsæl. Við höfum hins vegar aldurstak- mark niður á við og höfum ekki tek- ið yngra fólk en tvítugt í þáttinn. Það er lögaldur til flestra hluta,“ segir Dóra. Radarinn er alltaf á - Eru þátttakendur að leita að ást- inni eða stundargamni? „Ég held að allt einhleypt fólk sé aUtaf með radarinn í gangi og alltaf að skoða hvað annað. Fólk fer á bar- inn og í vinahús og leitar og það mætir í þáttinn okkar með sama hugarfari."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.