Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Síða 43
LAUGARDAGUR 17. MARS 2001
55
DV
Ferðir
skemmtilegt og gaman að vera þama
segir þessi ferðagarpur og er greini-
lega hlýtt til þessarar þjóðar.
Ferðinni var haldið áfram í gegnum
fleiri lönd, allt tO Nairobi í Kenía það-
an sem áformað var að fljúga tO
London og í framhaldi af þvi tO ís-
lands.
Á leiðinni frá Kamerún lenti Guð-
bjartur í því að skera sig Ola á fæti og
gat vart gengið í margar vikur uns
hann fór að staulast við staf. Farar-
stjóri hópsins batt um sárið eftir því
sem hann gat en réð honum enidregið
frá því að leita tO læknis, því vísast
væri að tekinn yrði af honum fóturinn
eftir meðhöndlun læknisins á svæð-
Oiu.
Ufsháski og dýralíf
Afrika er þekktust fyrir fjölbreytta
fánu vOltra dýra og verður enginn
ósnortinn af því að skoða þetta stór-
kostlega dýralíf. I Zaire, sem landið þá
hét, fór hluti hópsins að skoða viOt
skógardýr. Þau voru fjögur saman með
tíu leiðsögumenn sem urðu að höggva
hópnum leið í gegnum þéttan skógar-
gróðurinn
„Leiðsögumennimir fóru með okk-
ur að leita að górOlum og það var mik-
Stríðsátök
/ Chad voru ummerki stríösins viö hvert fótmál. Hér er flugvél sem hefur oröiö átökunum aö bráö.
Fastir í Sahara
Enn einu sinni er vörubíllinn fastur í eyöimörkinni. í morgunsáriö mokar Guö-
bjartur frá hjóli bílsins, íklæddur lopapeysu frá ömmu sinni. Peysu þessa gaf
hann blökkumanninum sem var fararstjóri í feröinni og vakti þaö mikla
ánægju og þakklæti. Enda íslenska ullin engu lík.
0 ævintýraferö þó hún væri erfíð. Við
gerðum stuttan stans þama þannig að
höfðum aðeins þrjá daga tO að skoða
okkur um á þessum slóðum. En við
fúndum nokkrar górOlur. Þetta em
miklar og öflugar skepnur þannig að
maður fer ekkert of nálægt þeim. Leið-
sögumennimir vom aOir vopnaðir
spjótum og sveðjum og vom við öOu
búnir ef eitthvað bæri út af. Ég gat
ekki séð að þeir væra neitt minna
hræddn- en við þegar þessar skepnur
gáfu okkur gaum. Náttúrufegurðni í
landinu er engu lík og verður ekki
með orðum lýst. Þama sáum við bæði
hávaxnasta kynstofn manna og þann
smávaxnasta þannig að fjölbreytnin er
mikO í þessu stórbrotna landi.“
1 Tansaníu er afar stór þjóðgarður
þar sem hópurinn tók sér tvær vikur í
að skoða hið stórkostlega dýralíf. Dýr-
ni reika þar fijáls um sléttumar í stað
þess að vera í búrum eins og maður
sér þau á Vesturlöndum.
„Þessi þjóðgarður er heiO ævintýra-
heimur. Þama var stór hluti hinnar
þekktu bíómyndar Out of Africa tek-
inn, þó að hún hafi átt að gerast í Ken-
ía. Um garðinn má aka eftir vissum
slóðum og þaö gerðum við enda er fólk
ekki mikið að fara í göngutúra innan
um þessi miklu rándýr, maður er ekki
stór innan um þessar skepnur. Það
þurfa svo sem ekki aö vera stórar
skepnur tO að maður þurfi að varast
þær. Litlu apamir stálu tO dæmis öOu
steini léttara, þannig að kenningin um
aö maðurinn sé kominn af öpum virð-
ist hárrétt. Það er ekki svipur hjá sjón
að sjá þessi tignarlegu dýr í dýragörð-
um miðað við að sjá þau á heimaveOi.
Þama í náttúrunni nutu þau sín og
sýndu hvað í þeim bjó. Þessar vikur
þama í þjóðgarðinum em vafalaust
toppurinn i ferðinni."
Öskrandi Ijón
Á meðan þessi stórkostlegi þjóðgarð-
ur var skoðaður hafðist hópurinn við i
tjöldum utan við garðinn og varð á
nóttum oft fyrir truflunum af dýmm
sem vora á sveimi þama um og tor-
kennOeg hljóð héldu einatt fyrir þeim
vöku.
„Þarna komumst við í lífsháska.
Ljón og fílar þola ekki hvort annað og
einu sinni vöknuðum við upp við ösk-
ur í ljóni við tjaldið. Þá var heO fila-
hjörð að gera árás á hóp ljóna og ég
man eftir að ein stelpan hljóp með leift-
urhraða í átt að vömbílnum og bein-
línis stökk upp á hann, slík var
hræðslan. Við vorum of sein tO að
forða okkur og iágum fyrir í tjöldunum
upp á von og óvon. Filamir vora
hreinlega bijálaðir og við lágum þama
gjörsamlega að drepast úr hræðslu. Ég
hef aldrei upplOað annað eins. Það var
ekki sofið meira þá nóttina og í morg-
unsárið var staðurinn yfirgefinn,“
Ræningi í Nairobi
Guðbjartur segir að reglan hafi ver-
ið að vel hafi þurft að passa sig og hóp-
urinn hafi skipst á að vera á verði á
nætumar meðan sofið var. Víðast þar
sem þau hafi fundiö sér náttstað hafi
fjöldi innfæddra þust að þeim tO að
skoða og reyna að hafa eitthvað upp úr
krafsinu og ekki aOir með sem heiðar-
legustum hætti. Að auki varð mjög að
vera á varðbergi þegar verið var að
skipti gjaldeyri. Vegna mjög óstöðugs
stjómmálaástands í álfúnni hafði mik-
ið verið um myntbreytingar.
„Við urðum að kynna okkur vel
hvaða gjaldmiðOl var notaður í hveiju
landi því við skiptum öOum okkar
gjaldeyri á svörtum markaði. Með því
fengum við miklu meira fyrft- hann
heldur en ef við hefðum farið í banka.
Grillaður vörubíll
Olía og vatn fraus á vörubílnum um
nóttina og í morgunsáriö varö aö
koma grillinu fyrir undir bílnum og
kynda upp. Þessi uppákoma var sí-
endurtekin á leiö hópsins yfir
Saharaeyöimörkina.
Það gat verið aOt að hundraðfalt og
það munar um minna. Mörg þessara
landa vora með verðlausa gjaldmiðla
sína skráða jafnháa Bandaríkjadollar.
Það þurfti greindega hver einræðis-
herrann á fætur öðrum að gefa út seðla
með mynd af sér og um leið vora ógOt-
ir þeir seðlar sem prýddir vora mynd-
um af forveranum. Það var mikið um
að reynt væri að plata okkur með úr-
eltum seðlum. Það vora mjög ströng
viðurlög við svartamarkaðsbraski með
peninga svo maður varð að fara mjög
gætdega, hvarvetna vora uppljóstrarar
að reyna að veiða mann í gildira. Helst
var að skipta við verslunareigendur
enda vora þeir æstir í vestræna pen-
inga. Einu sinni reyndi ég að skipta á
götu í Nairobi. Maðurinn reyndist
vera ræningi sem hafði af mér fimm
pund. Þetta skipti mig ekki mddu máli
en sýndi hvað þurfti að varast."
Keypt vegabréf
í Affíku er flen-a að varast en ræn-
ingja og uppljóstrara. Lögreglan hefúr
víða vægast sagt vafasamar aðferðir
við að ná sér í aukapeninga enda era
laun þeirra ekkert tO að hrópa húrra
fyrir og er ýmsum meðulum beitt.
„í Mið-Afríku-lýðveldinu, sem þá
hét, vorum við einu sinni króuð af í
húsasundi af lögreglumönnum og
spurð um vegabréf. Auðvitað vora aO-
ir með þau og réttu þeim. Þá kom babb
í bátinn því eftir að þeir höfðu skoðað
þau neituð þeir að láta þau af hendi
nema að hver og eúin borgaði 200 pund
fyrir vegabréfin. Vitanlega hafði ekk-
ert okkar svo mikla peninga á sér, en
eftir nokkrar samningaviðræður feng-
um við vegabréfm tO baka fyrir tíu
púnd stykkið. Þetta var löggan, svo
fólk getur ímyndað sér hvemig ræn-
ingjamir vora.“
Vegna þess að vegabréfsáritun
þurfti tO aOra þeirra landa sem Guð-
bjartur fór tO í þessari ferð var hann
með tvö vegabréf með sér, annars
hefði biaðsíðufiöldinn ekki dugað fyrir
áritanir og stimpla. En sú ráðstöfun
átti eftir að draga dilk á eftir sér.
Rekinn frá Rússlandi
Þegar þau fóra að leita eftir fari frá
Nairobi tO London var mánaðarbið eft-
ir flugi nema hvaö hægt var að komast
með hinu rússneska flugfélagi Aeroflot
með mdldendingum í Moskvu og Len-
Oigrad. EftO- vandlega íhugun ákváðu
þau að láta sig hafa það að fara þessa
leið enda orðið knappt um fjárráð og
ekki séð að þau kæmust af i hOmi fjar-
lægu borg í mánuð meðan beðið væri
flugs. En nú tók við nýtt vandamál fyr-
ir Guðbjart sem vissi að ekki væri •'
hægt að komast Oin í lönd án vega-
bréfs.
„Hér var alveg nýtt uppi á tennign-
um. Þegar við komum tO Moskvu lét
ég vinkonu mína taka annað vegabréf-
ið en ég var með hitt. Herlögreglan á
flugvedinum leitaði í öUu okkar haf-
urtaski og þeir fundu vegabréfið á vin-
konu mOini. Þetta var nýtt að komast
ekki Om vegna of margra vegabréfa.
Herlögreglan sat alvopnuð yfir okkur
þama á flugveUinum þar td næsta flug
fór og þegar mdlUent var í Leningrad
urðum við að bíða undO- eftirliti í vél-
inni á meðan hún var afgreidd á veU-
inum. Að lokum komumst við svo tU
London og það var mikUl léttir. Þetta
var fyrir tima farsOnanna svo maður -
hafði engar fréttir að heiman og var
nett farnin að sakna heOnahaganna en
í London fannst mér að ég væri kom-
Oin heim enda hafði ég töluvert dvalið
í borginni áður.“
Aftur til Rússlands
Hin seinni ár hefúr Guðbjartur
einkum ferðast um Austur-Evrópu og
meðal annars td Rússlands þar sem
hann hefúr skoðað St. Pétursborg, sem
áður hét Leníngrad, og fleiri staði.
Hann segir mjög gaman að ferðast um
austan jámtjaldsins sáluga og segist4
enn eiga eftO- að skoða margt á þeim
slóðum.
„Það er einstakt að skoða sig um
þama austur frá, setja sig Om í líf
fólksins sem er langt frá því sem við
getum Onyndað okkur. Svo má ekki
gleyma því að hér í nágrenni okkar er
margt spennandi að skoða," segu- þessi
víðfórli ferðamaður sem er á fórum td
Grænlands. -GS
Kaupmannahöfn
Góð gisting,
á besta stað.
^fWWILY Hor^
Valberg
Síml +45 33252519
isl. símabókanir milli kl. 8 og 14.00.
Fax +45 33252583
www.valberg.dk
Net tilboö
Þægilegir sofar
SEM ERFITT ER AÐ YFIRGEFA
2ja sæta
BEIQC, BLÁR, QRÁR. QRÆNN, RAUDUR
Mz
SYNINGARSALU R
TM - HÚSGÖGN
Sí&umúla 30 - Simi 568 6822
Sælla er að gefa...
Hér hefur Guöbjartur hænt aö sér hjörö dýra í eyöimörkinni meö matargjöfum.
- œvintýri likust