Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2001, Side 46
58 LAUGARDAGUR 17. MARS 2001 Tilvera I>V íslendingabyggð á öðrum hnetti - um ósjálfráða skrift Svissneski andamiöillinn Helen Smith (1863-1929) varö frœg fyrir störf sín um aldamót- in 1900 þegar rithöfundurinn Victor Hugo fór aö tala í gegn- um hana. Hún varö fljótlega vinsœl meðal spíritista og sagt er aö hún hafi lyft hlutum meö hugarorku, fœrt þá úr stað og að framliönir hafi talaö í gegn- um hana á ýmsum tungumál- um. í einni leiöslunni greip hún penna og fór aö skrifa af mikl- um krafti en þegar œðiö rann af henni mundi hún ekkert eftir atvikinu. Helena skrifaöi meöal annars greinargóöa lýsingu á lífi framliöinna sem höföu aö- setur á plánetunni Mars og um tíma ritaöi hún á tungumáli þeirra. Andaskrift eöa ósjálfráö skrift vakti mikla athygli meöal spíritista á nítjándu öld og fyr- irbœriö barst fljótlega til Is- lands. Höndin hreyfist sjálfkrafa í bók Nils 0. Jacobsons Er líf eftir dauðann? er ósjálfráðri skrift lýst á eftirfarandi hátt: „Maður situr þægi- lega, heldur á penna og hefur blað fyr- ir framan sig. Eftir nokkrar árangurs- lausar tilraunir fer höndin að hreyfast „sjálfkrafa". Fyrst kemur ólæsilegt krot, siðan orð og ljósar meiningar, þótt skrifarinn horfi ekki á blaðið og hugsi um allt annað. Þegar síðan er farið að lesa úr því sem skrifast hefur - og til þess þarf þolinmæöi, þvi allt er skrifað í einni striklotu, engin grein- armerki - koma í ljós orðsendingar, ýmist frá látnum ættingjum eða öðr- um öndum, þekktum eða óþekktum. Þær flytja huggun og gefa ráð, stund- um gamansamt mál, stundum alvar- legar áminningar. Mál og stíil getur verið allsendis ólikt skrifaranum og fyrir koma orð úr tungumálum, sem hann kann ekkert í. Sá, sem tjáir sig stýra hendi skrifarans býr stundum yfir þekkingu á bókmenntum og list- um langt fram yfir það, sem á valdi skrifarans er.“ Ævar R. Kvaran, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Morg- uns, segir í grein sem nefnist Ósjálfráð skrift að þessi lýsing sé nokkuð rétt en hún geri ráð fyrir því að menn setjist niður í þeim tilgangi að skrifa. „En í flestum tilfellum gerist þetta án nokk- urs fyrirfram tilgangs skrifarans, t.d. maður heldur á penna og ætlar að fara að skrifa bréf eða eitthvað annað, en finnur þá að hann missir stjóm á hendi sinni og hún tekur að skrifa allt annað en hann ætlaði sér. Oft skrifar höndin líka með miklu meiri hraða en skrifaranum er eiginlegt eða fært ella.“ Rithöfundurinn og efasemdamaður- inn James Randi, sem hefur verið óþreytandi við að berja á öllum sem fást við það sem hann kallar gervivís- indi, hindurvitni og huglækningar, er sem era með sex fótum. Þeir eru miklu stærri en ykkar hestar; þeir eru ákaflega mein- lausir og ekki eins greindir og ykkar hestar. Þeir hafa fax eft- ir öllu bakinu og tagl þeirra er mjög langt. Sjálf rófan nær niður á konungsnef, og draga þeir taglið, þeg- ar það fær að vera sjáifrátt. Eyrun eru mjög lítil og sjást tæplega fyrir faxinu. Þeir er fjögura álna háir og gildir eftir þvi.“ Á Fjörgyn eru einnig hyrndir villihestar og skepnur sem líkjast gíröffum sem ganga sjálfala á völlun- um. DV-MYND. SAMSETNING SÆMUNDUR Hörgyn íslendinganýlendan í geimnum mun vera í 369 Ijósára fjarlægö frá jöröinni og í næsta nágrenni viö stjörnu sem nefn- ist Aidebaram. aftur á móti á þeirri skoðun að ósjálf- ráð skrift sé tóm vitleysa og sama eðl- is og álíka raunveruleg og andaglas eða andalækningar. Penninn tók á rás Mörg dæmi eru um menn sem hafa misst stjórn á pennanum og skrifað alls kyns sögur og lýsingar sem eng- inn hefur getað útskýrt. Þegar Guð- mundur Jónsson frá Bakka í Amar- firði, sem síðar varð frægur sem Guð- mundur Kamban, var seytján ára gam- all tók penni hans á rás og skrifaði sjálfstætt. Sagan segir að Guðmundur hafi ekki haft hugmynd um það sem hann var að skrifa fyrr en aðrir lásu það, jafnvel þótt hann muldraði fyrir munni sér það sem á blaðið fór jafnóð- um og hann skrifaði það. Ef marka má undirskriftimar sem fylgdu voru það H.C. Andersen og Jónas Hallgrímsson sem skrifuðu i gegnum Guðmund, Andersen diktaði en Jónas þýddi. Ein sagan birtist reyndar bæði á dönsku og íslensku og undir var skrifað: J. Hallgrímsson þýddi 28/3 1906. Guðmundur Kamban mun hafa ver- ið mjög efnilegur miðill á yngri árum en svo heilsutæpur að lokað var fyrir með sérstökum að- 9 í i ur<5a &.C 3522 * í * j t / / fS x'VVfcó o- p, c * t u. V vtr X y X . (Jt V- SwfuiL -SjcutUfSS 5 Jýnc. J-jVlíúil Stafróf framliðinna á Mars Miöillinn Helen Smith skrifaöi um tíma ósjálfráöa skrift í letri íbúa á plánetunni Mars. gerðum fundi. á miðils- Fjörgyn eöa Karitatata Árið 1919 gaf Guðmundur Dav- íðsson frá Hraun- um, bróðir Ólafs þjóðsagnasafnara, út hefti sem heitir „íslendingabygð á öðrum hnetti". í heftinu sem er til- Guðmundur Davíðsson frá Hraunum Guömundur hélt því fram aö Ólafur bróöir hans og Jónas Hallgrímsson heföu stýrt hendi sinni til aö koma skilaboöum á milli heima. einkað Dr. Helga Pjeturss með mestu virðingu, pára framliðnir í gegnum Guðmund lýsingu á bústað sínum á öðrum hnetti. Guðmundur segir að þeir sem noti hönd sína séu faðir hans, tengdafaðir og Ólafur bróðir hans. Guðmundur segist ekki þurfa neina afsökun til að birta efnið opin- berlega þar sem hann beri hvort eð er enga ábyggð á því vegna þess að hann hafi ekki verið með sjálfum sér þegar hann skrifaði það niður. í heftinu er að finna bráðskemmti- lega og greinargóða lýsingu á verustað íslendinga eftir að þeir yfirgefa þenn- an heim og flytja á plánetuna Fjörgyn eða Karitatata eins og hún nefnist á handanheima islensku. Fjörgyn mun vera í 369 ljósára fjarlægð frá jörðinni og í næsta nágrenni við stjömu sem nefnist Aldebaram. íslendinganýlend- an gengur í kringum tvær sólir og kemur önnur upp þegar hin sest þannig að íbúarnir búa við eilífan dag. Geysilega stór sól Ólafur Davíðsson, bróðir Guðmund- ar, er duglegur að skrifa í gegnum hann og lýsa náttúrunni á Fjörgyn. „Afarlangt frá okkur, svo langt að við aðeins sjáum með berum augum, er geysistór hnöttur - sól.“ Sólin er svo stór að þótt allt sólkerfi sem við búum í væri horfið inn í hana miðja þá væri ekki hálfnað út að brúnum hennar frá ystu reikistjörnunni. „Dýrin eru, mörg hver, samskonar og hjá ykkur, og þar er skemst frá að segja, að mörg þeirra eru sömu dýrin, sem þið hafið þekt og ykkur hefir þótt vænt um.“ Ólafur segir Guðmundi síð- an að uppáhaldshesturinn hans, reið- skjótinn Svanar, bíði eftir honum í vörslu góðra manna. Hann áréttar að öll dýr öðlist ekki fram- haldslíf óg að ör- lög sálar málleys- ingjans fari fyrir margar nefndir sem annaðhvort gefi þeim grænt Ijós eða sameini þau alheims sál- inni og afmái éin- staklingsvitund- ina. Af upprunaleg- um dýrategundum á Fjörgyn skrifar Ólafur um „nokk- urskonar hesta, Gylt blóm í garðinum Skáldið og náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrimsson kemur einnig við sögu i tengslum við ósjálfráða skrift Guðmundar frá Hraunum, líkt og hjá nafna hans Kamban. I einu bréfi sem þjóðskáldið skrifaði í gegnum hin and- setna skrifara segir hann frá garðin- um sínum. „Ég á í garðinum mínum blá blóm, með gyltum, ekki gulum, kollum og gylt, ekki gul, blóm með blá- um kollum. [. . .] Sumar blómakrón- umar eru 2-3 fet að þvermáli og sum blómin ennþá stærri." Annar ónefndur meðlimur rithöf- undasambandsins segir að í sínum garði séu raðir af trjám. í einni röð- inni eru nokkurs konar fíkjutré. í annarri brauðaldintré og í þeirri þriðju kartöflutré. „Aldinin á því tré, eða kartöflualdinin, sem við svo nefn- um eru lík kartöflunum ykkar að út- liti og á stærð við eins punds kartöflu; en þeir eru dísætir og afar ljúffengir." Ritandinn heldur áfram og lýsir m.a. pálmatrjám, eikum og trjám sem á vaxa gullepli. Uppreisn æru Hér að framan hafa aðeins verið tínd til nokkur dæmi um ósjálfráða skrift en dæmin eru mun fleiri og greinilegt að íslendingar lögðu stund á slíkar skriftir i byijun síðustu aldar. Forvitni manna á fyrirbærinu hélt velli langt fram á tuttugustu öldina. Bókin Bréf frá Júlíu kom fyrst út hér á landi árið 1907 og aft- ur 1956, í bókinni er að finna bréf sem W.T. Stead mun hafa skrifað í leiðsluá- standi og í bæði skiptin seldist hún upp á skömmum tíma. Árið 1973 og 1974 kom ævisaga Ragn- heiðar Brynjúlfsdóttur biskups í Skál- holti, bókin mun vera að nokkru leyti skrifúð af Ragnheiði sjálfri, sem lést 1663, í miðilssambandi við Guðrúnu Sigurðardóttur. í bókinni er æra Ragn- heiðar hreinsuð og gerð tilraun til að hreinsa af henni brókarsóttarstimpill- inn sem sem Megas rifjaði svo skemmtilega upp um árið. -kip@ff.is Ósjálfráöur penni Meö þessu áhaldi átti aö vera tryggt aö skriftin væri ósjálfráö. Hugmyndin minnir óneitaniega á andaglas þar sem margir leggja til farvegi fyrir andana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.