Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001
Skoðun
x>v
Ætlarðu að fara utan
fyrlr jól?
Lilja Kjartansdóttir nemi:
Mig langar til Bandaríkjanna, þaö er
oröiö svo ódýrt aö fljúga þangaö.
Bjargey Ingólfsdóttir nemi:
Nei, en ég væri til í að fara.
Heiöur Gestsdóttir:
Ég er aö hugsa um aö fara
til Boston.
Valgerður Sigurjónsdóttir húsmóöir:
Ég býst ekki viö því, en mig langar
til sólarlanda.
Kristín Guönadóttir matráöskona:
Nei, ekki neitt. Gott aö versta
hér heima.
Irena Björk Asgeirsdóttir nemi:
Nei, ég hef engan tíma til þess.
Fæðingarorlofið fé-
þúfa hinna ríku
Katrín Jónsdóttir
skrífar:
Mikið er nú rætt um
fæðingarorlofið manna
í milli og sífellt fleiri
sjá að þessi tegund fé-
lagsmálapakkans er
með miklum agnúum
og stenst i raun ekki
þegar grannt er skoð-
að. Ég vil taka undir
lesendabréf sem birtist
í DV sl. miðvikudag
undir yfirskriftinni
„Ótrúlegt fæðingaror-
lof‘.
Sú staðreynd liggur
fyrir að hátekjufólkið
fær hæstu styrkina frá
ríkinu til að vera með
börnum sínum í fæð-
ingarorlofi. Þeir tekju-
lægstu fá lægstu bæt-
umar. Heimavinnandi
einstæðingar (t.d. ekkj-
ur) fá aðeins 200 þús-
und krónur fyrir 6
mánaða orlof en hjón
með 1 milljón á mánuði
í laun hvort fá 7,2 millj-
ónir í styrk frá ríkinu til að vera
með barni sínu í fæðingarorlofi.
Ætli þetta séu ekki hæstu félagslegu
bætur í heimi? Hvenær breyttist
velferðarkerfið úr aðstoð við þá sem
minnst mega sín í féþúfu ríka fólks-
ins?
Það hefur oft verið rætt um nauð-
syn þess að koma í veg fyrir að vel-
megandi geti misnotað velferðar-
kerfið. Nú er búið að gera þessa
misnotkun löglega með nýju lögun-
um um fæðingarorlof. Mér skilst að
allir flokkar hafi samþykkt að hafa
þetta svona, en nær engar umræður
hafi farið fram á Alþingi um þetta.
Hvernig getur þingið samþykkt
svona ólög án ítarlegrar umræðu?
IVIeö börnunum í fæöingarorlof
Lögleg misnotkun?
„Ætli þetta séu ekki hœstu
félagslegu bcetur í heimi?
Hvenœr breyttist velferðar-
kerfið úr aðstoð við þá sem
minnst mega sín í féþúfu
ríka fólksins?“
Mig langar að vekja sérstaka at-
hygli á því að vinstriflokkarnir,
sem berja sér á brjóst í nafni samúð-
ar með minni máttar, samþykktu
þessar háu bætur til hátekjufólksins
einum rómi á Alþingi, og til háð-
ungar fyrir þá sjálfa fógnuðu þeir
þessu sérstaklega. Þingmennirnir
Ögmundur Jónasson, Jóhanna Sig-
urðardóttir, Steingrímur J. Sigfús-
son og Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir studdu öll lög sem veita
hæstu velferðarbætur í heimi til
ríka fólksins! - Sumir þingmenn
stjórnarandstöðunnar hafa jafnvel
sagt þessi ólög það „eina góða sem
ríkisstjómin hefur gert“.
Mér finnst sjálfsagt að allir for-
eldrar fái sömu aðstoð í fæðingaror-
lofi. En nú er svo komið að forstjóri
eða hátekjumaður sem hefur tífalt
hærri laun en verkamaður fær tífalt
hærri styrk frá ríkinu í fæðingaror-
lofi! - Þörf og litrík lagasmíð þetta,
og ber þjóðinni gott vitni, eða hitt
þó heldur.
Spírall á alvarlegu máli
Ómar Jónsson
skrifar:
Ég hef fylgst með umhverfisþætt-
inum Spíral í Ríkissjónvarpinu. Þátt-
urinn er ætlaður börnum. Það er
mikilvægt að kynna börnum um-
hverfismál enda um alvarleg mál að
ræða sem skipta framtíð okkar allra
miklu máli. Ýmislegt gott er um boð-
skap þáttarins að segja og mikilvægt
að börnin tileinki sér rétta hugsun í
umhverfismálum á unga aldri. Þegar
börnin eldast er þó hætt við að
neyslukapphlaupið fangi hug þeirra
eins og dæmin hafa sannað svo ill-
þyrmilega.
Þegar bömin eldast er þó
hætt við að neyslukapp-
hlaupið fangi hug þeirra
eins og dœmin hafa sannað
svo illþyrmilega.
En það er framsetning efnisins í
þessum þætti sem kemur mér á
óvart. Höfundar handrits virðast
hafa einsett sér að gera einhvers kon-
ar farsa úr þessu alvarlega efni. Hin-
ir ágætu leikarar sem fara með aðal-
hlutverkin eru látnir haga sér eins
og trúðar og helst eru gestir þáttar-
ins einnig látnir haga sér eins og
furðuverk. Aðalpersónur eru á sí-
felldu iði og tala einhvers konar ung-
barnamál eða babl til bamanna. Ef
svo vill til aö leikurinn er eðlilegur
er bmgðið á það ráð að sýna hann á
vitlausum hraða til að ná fram af-
káralegum áhrifum.
Allt er þetta með ólíkindum, en
kannski í takt við það sem sett er upp
i sjónvarpi ríkisins og hefur verið
tíska þar um árabil. En umhverfismál
eiga betra skilið en að vera snúið upp
í fíflalæti og fáránleika sem börn eiga
bágt með að átta sig á og skilja frá
hinum raunverulega boðskap.
Vinstri-grænt íhald
Garra þykja niðurstöður úr skoðanakönnun
DV í gær fróðlegar. Þar kemur fram ákveðin
„pólarísering" hvað það varðar að ílokkarnir
sem skilgreina sig sem miðjuflokka minnka um
helming. Framsókn og Samfylking fá samanlagt
rétt rúm 26% atkvæða sem lætur nærri aö vera
það fylgi sem báðir þessir flokkar - hvor í sínu
lagi - hafa gert sér vonir um að vera með.
Flokkarnir á köntunum, Vinstri grænir og
íhaldið, sækja hins vegar verulega á og geta
hreykt sér hátt - þrír fjórðu hlutar þjóðai'innar
fylkja sér að baki þeim. Garri er auðvitað einn
af þeim sem fylgja sigurvegurunum í það og það
sinnið og flokkar sig því sem „vinstri-grænan
íhaldsmann" þessa dagana.
Skrautfundir brýnir
Margir hafa hins vegar átt í erfiðleikum með
að skilja hvaða stjómmálastefna það er sem
kaliast: „vinstri-græn ihaldsstefna" og sér Garri
sér því ekki annað fært en fara nokkrum orðum
um hvað felst í þvi vinningshugtaki. Þeir sem
aðhyllast vinstri-grænu íhaldsstefnuna eru á
móti Evrópusambandinu, miklum og hröðum
breytingum i þjóðfélaginu og eru jafnframt hall-
ir undir flokkseiningu og skýrar línur i flokks-
stefnu. Það skiptir því í raun meira máli að
flokksmenn viti hver stefna flokks- *
ins er en að þeim finnist hún góð
eða jákvæð. Og það skiptir líka höf-
uðmáli að flokkm-inn geti sýnt sam-
stöðu sína og þor með einhvers kon-
ar skrautfundum þar sem leiðtogar
eru kjörnir með slíkum samhljóm að
hugtakið rússnesk kosning fær á sig
blæ sundrungar í samanburðinum.
Örfá atriði skipta hins vegar fylk-
ingu vinstri-grænna íhaldsmanna
upp í undirhópa, t.d. afstaðan til
hemaðarins í Afganistan og hafa því
þeir sem era á móti þessum hemaði
lent í flokki VG, en hinir í Sjálfstæð-
isflokknum.
Breytt stefna
Vandi Samfylkingar og Framsókn-
ar felst i því að tilheyra ekki hinni
miklu breiðfylkingu vinstri-grænna
íhaldsmanna. Garri sér því ekki ann-
að úrræði fyrir þessa flokka en
breyta um stíl og tileinka sér grunn-
atriði þessarar stefnu, sem augljóslega á hug og
hjarta íslenskra kjósenda. Þeir félagar Össur og
Halldór verða umsvifalaust að láta af Evrópu-
Skoðanakönnun DV um fylgi sijómmálaflokkanna:
Samfylking á niöurleiö
- Sjálfstæðlsflokkur or Vlnstri grænlr bæta við sig fylgi
MdfltUui „
u.
■YÆÉí
1% ...
ksiMi
mM
i3f= Skipan þingsæta cæj
gælum sinum og
taka upp staðfasta
þjóðemishyggju
þar sem fullveldið
verður í fyrirrúmi.
Síðan - og það er
ekki síður mikil-
vægt - verða þessir
flokkar að drífa sig
f að halda lands-
fundi þar sem for-
ingjamir eru kosn-
ir og klappaðir upp
með lófataki og
húrrahrópum.
Sjálfsagt væri betra
fýrir þá að gera
þetta nokkrum
sinnum, jafnvel
einu sinni í viku
um skeið, svona
rétt á meðan þeir
era að vinna upp
forskot hinna
flokkanna. Hins
vegar gætu þeir
haft sínar litlu sér-
áherslur í einstök-
um málum og orðið þannig að nýjum undir-
flokkum í hinni nýju alltumlykjandi
vinstri-grænu íhaldsstefnu. Gðfn
]-J 1" ■ :lpl m ■ ±
„u. lii «§» SrnmfyminQln »
|o
ilhv-'fUilH llliíiiJ
Aöeins dollarar bjarga okkur
Hvað segir Seðlabankinn?
Prófessorarnir og ESB
Magnús Sigurðsson skrifar:
Tveir þekktir prófessorar í við-
skiptafræðum við Háskólann telja
það verða okkur íslendingum tii
bjargar að sækja um aukaaðild að
Myntbandalagi Evrópu. Þetta yrði þó
ekki til annars en að stíga fyrstu
skrefin inn í Evrópusambandið. Ekk-
ert slíkt samkomulag styrkir okkur
íslendinga. Aðeins eitt ráð er eftir til
að bjarga okkar fjármálum, þ.e. að
tengja krónuna dollaranum eða
hreinlega taka upp bandaríska doll-
ara og þá með aðild okkar að stóra
tollabandalaginu sem er senn að kom-
ast á koppinn, þ.e. við Bandaríkin,
Kanada, Mexíkó og fleiri suður-amer-
ísk ríki og síðar allri Ameríku. Að
þessu þarf að vinna hratt og örugg-
lega. - Ekki rétt, Seðlabankamenn?
Okkur að kenna?
Hrafnhildur Kristjánsdóttir hringdi:
í fréttatengdum kvöldþætti RÚV-
hljóðvarps, Speglinum, sl. þriðjudag
var rætt við mann að nafni Magnús
Þorkell Bemharðsson. Hann ræddi
spuminguna: Af hverju hata þeir
okkur? Og átti þá við múslíma og
hugsanlega aðra í vanþróuðum ríkj-
um Asíu. Heyrðist mér helst að
Magnús þessi Þorkell teldi að Vestur-
landabúar, og þá auðvitað Ameríkan-
ar sérstaklega, ættu alla sök á því
meinta hatri sem múslímar kunna að
bera í garð Vesturlanda. Svona tala
þeir gjaman sem mest hafa fengið í
hendur og oft ókeypis frá þeirri gjöf-
ulu og óeigingjörnu þjóð Bandarikja-
mönnum. - En sjálfsagt að halda úti
áróðrinum hér á landi í gegnum
RÚV. Þar tala flestir í skjóli preláta
þeirra sem lengst hafa notið RÚV og
ríkisins í löndum og lausum aurum.
Smávinsemd í garð neytenda
Ódýrara kjöt, takk!
Kjöt á síðasta söludegi
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Ég furða mig á þeim verslunarhátt-
um sem hér tíðkast í matvöruverslun
þegar borið er saman við slíkar versl-
anir í nágrannalöndum. Eitt er það
að hér virðist aldrei vera á boðstólum
kjöt á niðursettu verði, þ.e. kjöt sem
komið er á síðasta söludag. í Svíþjóð
þar sem ég þekki vel til (og ekki eru
Svíarnir á því að borða eitur) er
ávallt einn dagur í viku í matvöru-
verslunum þar sem ganga má að sér-
stöku borði þar sem kjöt og unnar
kjötvörur er selt á 50% lægra verði
vegna þess að leyfilegur sölutími er
að renna út. - Hér er bara límmiði á
pökkuðu kjöti þar sem stendur „Til-
boð“ eða „Ódýrt“, en er samt rándýrt.
Er ekki hægt að sýna neytendum hér
smá vinsemd í þessum málum?
En tapar Flugfélagið
Eýsteinn hringdi:
Enn tapar Flugfélag íslands pening-
um, og nú 400 milljónum króna í ár.
Ég heyrði forstjóra Flugfélagsins segja
fyrir nokkrum mánuðum að ekki
mætti verða taprekstur hjá félaginu
aftur því þá yrði að taka til skoðunar
að leggja af reksturinn eða skera nið-
ur í spað eins og ég kalla það ef Flug-
félagið ætlar að minnka hann frá því
sem hann er nú. - En líklega er þó
besti kosturinn að leggja af allt innan-
landsflug sem ríkið greiðir með.
DVl Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.