Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Síða 25
FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001_______________________________________________________________________________________________29
_____________________ ______________________________________Tilvera *
Tennishjónin Agassi og Graf
Agassi og Grafgengu í þaö heilaga
á mánudaginn.
Andre
Agassi
og Steffi
Graf í
það
heilaga
Tennisstjörnurnar Andre Agassi
og Steffi Graf gengu mörgum á
óvart í það heilga á mánudaginn og
fór athöfnin fram með hálfgerðri
leynd í Las Vegas, þar sem aðeins
nánustu ættingjar og vinir voru
viðstaddir. Þar með er óvissunni
lokið um það hvort þau myndu
gifta sig áður eða eftir fæðingu
frumburðarins, sem væntanlegur
er í heiminn í desember, en þau
höfðu nýlega upplýst heimsbyggð-
ina um að gifting væri ekki ráð-
gerð fyrr en eftirt fæðinguna. „Við
erum ágnæð með að þetta skuli yf-
irstaðið og nú einbeitum við okkur
að því næsta í lífinu sem er að und-
irbúa fæðinguna," sögðu hjóna-
kornin. Giftingin kom einnig á
óvart þar sem til stóð að Agassi
tæki þátt í tennismóti i Basen í
Sviss, sem hann afboðaði á síðustu
stundu til mikillar gremju fyrir
mótshaldara. „Ástæðan var sögð of-
þreyta," sögðu svissneskir íjölmiðl-
ar, en annað átti eftit að koma í
ljós. Þau Agassi og Graf byrjuðu að
vera saman árið 1999, eftir að
Agassi hafði unnið sigur á franska
opna meistaramótinu, sem tryggði
honum „stórfernu", þ.e.a.s. sigur á
öllum fjórum stærstu stórmótunum
i heiminum. Þetta var önnur ferð
hans upp að altarinu, en þá fyrri
fór hann til að kvænast leikkon-
unni.Brooke Shields, árið 1997.
Fjórtán ára töframaður á Nesinu:
Gaman að skemmta fólki.
og koma því á óvart
- segir Lárus Guðjónsson, öðru nafni Lalli Potter
Lárus segir að hann sé búinn að
læra ótrúlega margt af Pétri og lík-
ar vel að vera i þjálfun hjá honum.
Til gamans má geta þess að það
var einmitt Baldur Brjánsson sem
miðlaði af sinni reynslu til Péturs
þannig að segja má að Lárus sé
þriðja kynslóð töframanna. En
hvað skyldi það
vera við töfra-
brögðin sem
heillar Lárus
svona? „Það er
gaman að
skemmta fólki,
koma þvi á
óvart og leyfa
því að sjá eitthvað sem það hefur
aldrei séð áður,“ segir hann.
Óvenjulegt áhugamál
Auk sýningarinnar á Broadway
hefur Lárus meðal annars sýnt
nokkrum sinnum i sjónvarpinu, á
menningarnótt, og svo tekur
hann að sér að skemmta
í barnaafmælum.
Töfrabrögðin sem
hann sýnir eru
margs konar, til að
mynda spilagaldr-
ar og svo lætur
Flestir krakkar kannast við
hinn göldrótta Harry Potter en það
eru fáir sem vita að á Seltjarnar-
nesinu er að finna strák sem oft er
kallaður Lalli Potter og finnst fátt
skemmtilegra en að sýna töfra-
brögð. Fullu nafni heitir hann Lár-
us Guðjónsson og er fjórtán ára
nemandi í Valhúsaskóla. Lárus er
upprennandi töframaður og verð-
ur með atriði í upphafi sýningar-
innar PG magic show, galdrar á ís-
landi, næstu helgar.
og
þannig
kynnt-
ist ég
þessu.
Svo gaf
pabbi mér
líka svona
dót
hann kom
eitt sinn frá
útlöndum og
þá fór ég að prófa
þetta sjálfur,"
Lárus sem hefur ekki
getað hætt að töfra síöan.
Fyrir nokkrum árum
kynntist Lárus síðan
töframanninum Pétri
pókus sem er ein-
hvers konar læri-
meistari hans
í faginu.
hann hluti hverfa. Lárus segir að
það kosti miklar æfingar að verða
góður töframaður og til þess þurfi
mikla þolinmæði því oft getur tek-
ið langan tíma að læra ákveðinn
galdur. „Ég er til að mynda búinn
að vera að reyna að læra einn í
heilt ár og er ekki enn þá búinn aö
læra það alveg,“ segir Lárus sem
er þó ekki á því að gefast upp.
Hann segir að fjölskyldan taki
þessum galdaráhuga sinum vel
þrátt fyrir að þetta sé kannski
óvenjulegt áhugamál. Töfrabrögð
eru samt sem áður ekki bara eina
áhugamál Lárusar því hann spilar
einnig fótbolta og er að læra á
trommur í tónlistarskóla. Hann
segir að það séu hins vegar töfra-
brögðin sem hann ætli að leggja
fyrir sig í framtíðinni. -MA
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Gaman að galdra
Lárusi fmnst fátt skemmtilegra
en að galdra og kann nú
þegarýmis töfrabrögö.
Byrjaði sjö ára
Hann segir að áhuginn á töfra-
brögðum hafl byrj-
aði þegar hann
var sjö
gamall.
„Bróðir
minn átti
töfradót
-4
Gömul harmoníkulög Einars Kristjánssonar frá Hermundarfelli gefin út:
Þrjátíu lög á tvöfölda
harmoníku
„Faðir minn spilaði á harm-
oníku sem ungur maður en hvíldi
sig svo á spilamennskunni í
nokkra áratugi. Hann var um sex-
tugt þegar hann eignaðist harm-
oníku að nýju og fór að spila. Hann
átti svo sjálfur frumkvæði að því á
sínum tíma að fara til Svavars
Gests til samninga um að þessi
tónlist yrði gefin út og Svavar tók
honum eins og „Hollywoodgellu",
svo notað sé orðalag föður míns,“
segir Einar Kristján Einarsson.
Hann er sonur Einars Kristjáns-
sonar sem jafnan er kenndur við
Hermundarfell og betur þekktur
sem rithöfundur en harmoníku-
leikari.
Nýlega hefur verið endurútgefinn
geisladiskur þar sem Einar frá Her-
mundarfelli leikur á tvöfalda harm-
oníku en plata með sömu lögum
kom út árið 1979. Platan hefur verið
ófáanleg um árabil og fjölskylda
Einars gekkst fyrir þvi að afrita
hana á geisladisk i tilefni af þvi að
Einar hefði orðið níræður 26. októ-
ber.
Einar lærði á svokallaða'tvöfalda
harmoníku hjá Guðjóni Einarssyni
á Sævarlandi í Þistilfirði og lék á
dansleikjum þar í byggðarlaginu.
Tvöföld harmoníka hefur aðeins
eina nótnaröð, alls 21 nótu. Tónarn-
ir eru tvöfalt fleiri því hver nóta
breytir um tón eftir því hvort belg-
ur harmoníkunnar er dreginn sam-
an eða sundur. Það er þvi talsverð
kúnst að tileinka sér möguleika
þessa hljóðfæris.
Einar eignaðist harmoníku að
nýju árið 1970 er hann var fluttur til
Akureyrar. Fór hann þá að rifja upp
harmoníkuleikinn og gömlu lögin
og komst að því að á ferðinni væru
menningarverðmæti sem rétt væri
að varðveita fyrir komandi kynslóð-
ir. Samningar tókust við SG-hljóm-
plötur og árið 1979 kom út hljóm-
plata með 30 lögum þar sem Einar
leikur á tvöföldu harmoníkuna og
Garðar Jakobsson frá Lautum í
Reykjadal í nokkrum lögum. Meðal
laga á diskinum má nefna: Norska
bóndabrúðkaupið, Sjóarlandspolka,
Hermundarfellsræl, Arnbjargar-
polka, Árnatrylli, Vakra Skjóna,
Skerjagarðsstelpuna og Fiðluna
hans Jóa. -gk
Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli
meö tvöföldu harmoníkuna
*