Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2001, Síða 31
35 FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2001 DV Tilvera Hillary 47 ára Hillary Rodam Clinton, þingmaður New York-rík- is og fyrrum forsetafrú, er afmælisbam dagsins en hún er 54 ára í dag. Hún fæddist 1 borginni Chicago í Illinois og ólst þar upp. Árið 1973 útskrifaðist hún sem lögfræðingur frá lögfræðideild Yale-há- skóla. Hún hefur hlotið fjölda viður- kenninga fyrir störf sín og barðist fyrir mörgum mikilvægum málum í forseta- tíð eiginmanns síns. Hún varð síðan fyrsta eiginkona fyrrum forseta Banda- ríkjanna til að verða kosin á þing. Jafn- framt varð hún fyrsta kona sem gegnir þingmennsku fyrir New York-riki. Gildir fyrir iaugardaginn 27. október Vatnsberinn i?o, ian.-i8. febr.n , Fólki gengur vel að vinna saman, jafhvel þeim sem eru venju- lega upp á kant. Þú ættir að nýta þér þetta einstaka tækifæri. Fiskarnir H9. fehr.-20. mars): Eitthvað sem þú reyn- lir gengur ekki upp. Forðastu að vera of bjartsýnn. Þú skalt snúa þér að einfoldum verkefnum en forðast þau flóknu i dag. Hrúturinn 121. mars-19. aprín: Ff þú hefur á tilfinn- Jingunni að búist sé við ll of miklu af þér skaltu forðast að samþykkja hvað sem er. Gættu þess að eiga afgangsorku fyrir sjálfan þig. Nautið (20. aoril-?0. mai>: / Hikaðu ekki við að sýna hvað í þér býr. Góður árangur núna leiðir til enn betri ár- angurs síðar. Eitthvað sem kemur þér verulega á óvart gerist í dag. Tvíburarnir (?t. mai-21. iúníl: Fólk virðist mjög hjálpsamt. Notalegt _ / I andrúmsloft ríkir heima fyrir og kvöldið verður skemmtilegt. Happatölur þínar eru 2, 13 og 17. Krabbinn 122. iúní-22. iúiii: Þú færð fréttir fyrri | hluta dags og þær ' verða til þess að þú ákveður að gera þér dagamun. Þú gætir þurft að fara í óvænt ferðalag. Liónið (23. íijIí- 22. áeCistl: . Heimilislífið á hug þinn allan en samt sem áður er hætta á ágreiningi innan fjöl- skyldunnar. Ef málin eru rædd í rólegheitum má jafna hann. Mevian (23. áeúst-22. sept.): a. Þó að þig langi mikið til að stilla til friðar er ^Lekki þar með sagt að ^ • f það takist. Hætt er við að þú eigir eftir að ergja þig yfir þessu. Vogin (23. sept.-23. okt.): y Það rikir gott and- rúmsloft og hjálpsemi V f í vinahópnum og r f innan fjölskyldunnar einnig. Þú nýtur þess að vera innan um fólk. Sporðdreki (24. okt.-2l. nðv.): Þú þarft á allri þolin- mæði þinni að halda ^einhvern tímann í dag, kannski vegna þess að einhver kemur illa fram við þig. Fjármálin standa vel. Bogmaðurinn (22. nóv-21. des.): .Vel þekkt aðferð til að Fmissa vini sína er að lána þeim peninga. Þessi hætta er vissu- lega fyrir hendi í dag. Haltu þig út af fyrir þig ef þú getur. Steingeitin (22. des.-l9. ianj: ^ * Dagurinn er séi’stak- lega hagstæður til fr Jr\ viðskipta, einkum ef málið krefst smekkvísi og dómgreindar. Forðastu þrasgjarnt fólk. Sjötíu og fimm ára ✓ Asa Snæbjörnsdóttir húsmóðir í Reykjavik Ása Snæbjörnsdóttir húsmóðir, Hólmgarði 46, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Fjölskylda Ása fæddist að Gjábakka í Þing- vallasveit og ólst upp hjá föðurafa sínum, Guðmundi Jónssyni Ottesen i Miðfelli í Þingvallasveit. Ása giftist 14.4. 1945 Magnúsi Helgasyni, f. 30.9. 1923, d. 1.2. 1978, leigubifreiðastjóra. Hann var son- ur Helga Kristmanns Helgasonar og Magneu Magnúsdóttur. Börn Ásu og Magnúsar eru Magnea Magnúsdóttur, f. 23.7.1944, þjónusturáðgjafi í Reykjavík, gift Svavari Stefánssyni, f. 27.10. 1931 en fyrri maður hennar var Óskar Björgvinsson og er sonur þeirra Þráinn Óskarsson; Snæbjörn Magnússon, f. 2.2.1947, hótelstjóri í Laugarási en sambýliskona hans er Elín Jóhannsdóttir sjúkraliði og eiga þau eina dóttur auk þess sem Snæbjörn á tvo syni frá þvi áður; Hafsteinn Magnússon, f. 29.7. 1949, búsettur á Sólheimum í Grímsnesi; Magnús Magnússon, f. 10.8. 1952, garðyrkjumaður í Biskupstungum en sambýliskona hans er Lilja Jós- efsdóttir og á Magnús tvær dætur frá því áður; Kristbjörg Magnús- dóttir, f. 1.5. 1955, tryggingaráðgjafi í Reykjavík og á hún tvö börn; Helga Magnúsdóttir, f. 16.3. 1963, húsmóðir í Grundarfirði, gift Sig- urjóni Gunnari Jónssyni sjómanni og eiga þau þrjú börn; Hildur Magnúsdóttir, f. 31.5. 1966, kaup- maður í Grímsnesi, búsett á Stóru- Borg í Grímsnesi, gift Þresti Sigur- jónssyni og eiga þau einn son. Systkini Ásu eru Guðrún Ottesen Snæbjörnsdóttir, f. 23.2. 1925, húsfreyja 1 Efsta-Dal 2 í Laug- ardalshreppi, gift Sigurði Sigurðs- syni, bónda þar; Magnea Ottesen Snæbjörnsdóttir, f. 10.9. 1928; Ingiríður Ottesen Snæbjörnsdóttir, f. 15.9. 1929, gift Þorkatli Kjartans- syni; Bergþóra Ottesen Snæbjöms- dóttir, f. 28.11. 1931, gift Birni Guð- mundssyni; Guðmundur Ottesen Snæbjömsson, f. 28.9. 1933; Hildur Ottesen Snæbjömsdóttir, f. 28.1. 1936, gift Guðmundi Gissurarsyni; Pétur Snæbjörnsson, f. 1.2. 1939, d. 23.12. 1941. Foreldrar Ásu voru Snæbjörn Guðmundsson, f. 3.11. 1897, d. 19.6. 1984, bóndi á Gjábakka í Þingvalla- sveit, og k.h., Hildur Magnúsdóttir, f. 15.6. 1901, d. 7.2. 1939, húsfreyja. Fékk tökuvél Sigurlína Herdís Guöbjörnsdóttir datt heidur betur í lukkupottinn í september því hún vann JVC digital tökuvél meö innbyggöri kvikmyndavél og 2“ skjá frá Sjónvarpsmiöstööinni í Áskrifendapotti DV þann mánuöinn. Þessi mynd var tekin þegar henni voru afhent verötaunin. Á myndinni eru Rebekka, Silvía Svava, Sigurlína Herdís og Ólafur Már Hreinsson frá Sjónvarþsmiðstööinni. Anne Heche Leikkonunni er ekki sama aö hverju sþurt er í viötali. Heche reiðist í viðtali við hommablað Kvikmyndastjarnan Anne Heche brást ókvæða við í viðtali við tíma- rit homma og lesbía á dögunum þeg- ar hún var spurð að því hvort ný- bakaður eiginmaður hennar ætti að baki svipaða kynlífsreynslu og hún sjálf. Eins og flestir muna eflaust varð Heche fræg á einni nóttu fyrir nokkrum árum þegar hún gerðist ástkona og sambýliskona sjónvarps- stjörnunnar Ellenar DeGeneres. Anne stökk sem sé upp á nef sér þegar blaðamaður tímaritsins The Advocate vildi vita hvort eiginmað- ur Anne hefði verið við karlmann kenndur. „Þér getur ekki verið al- vara,“ sagði leikkonan öskureið og sagði spurninguna í hæsta máta óviðeigandi. „Þessi grein er um mig,“ sagði leikkonan. Hún móðgaðist líka þeg- ar hún var spurð hvort henni stæði á sama hvort bamið sem hún á von á yrði samkynhneigt. Fjölskyldan ósátt meö ráðahaginn Fjölskylda Guy Ritchies, eiginmanns Madonnu, varð yfir sig hneyksluð þeg- ar hann tU- kynnti að hann hygðist giftast popp- gyðjunni. Þetta kemur fram í ævisögu Madonnu sem kemur út í næsta mánuði og skráð er af rithöfundinum Barböru Victor, „Þau litu niður á hana þar sem hún var í skemmtanabransanum og vUdu að Ritchie næði sér í einhverja fágaðri og virðulegri eiginkonu. Þar að auki væri hún tiu árum eldri en hann og auk þess ófríð," sagði Viktor. Laus- læti Madonnu mun einnig hafa farið fyrir brjóstið á foreldrum Ritchies, og færðu þau það tU sönnunar að hún hefði verið í eUefu ástarsamböndum áður en hún hitti Ritchie og þar af í einu á mUli þess sem hún átti bömin Lourdes og Rocco áður en hún var ófrísk að því seinna með Englendingi. Bæj'arlind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544 5514 Björgvin Halldórsson, Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar Örvarssom Allir íþróttaviðburðir í beinni á risaskjám. Pool. Góður matseðill.Tökum að okkur hópa, starfmannafélög. Stórt og gott dansgólf. tr i:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.