Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001
13 V
Fréttir
Heimur fíkniefnanna harðnar og vopnaburður orðinn almennari en áður var:
Fíkniefnalögregla farin
að nota skotheld vesti
Menn í fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík nota gjarnan
skotheld vesti þegar þeir ryöjast
til inngöngu í hús til að handtaka
fólk sem grunað er um að vera
með magn fíkniefna undir hönd-
um. Þetta er gert í ljósi þess að
það hefur stöðugt farið vaxandi
að afbrotafólk tengt fíkniefnum
hafi skotvopn undir höndum ekki
síður en hnífa og önnur of-
beldistól. Mjög hörð átök verða
gjarnan þegar fólk er handtekið,
hvort heldur er í húsum eða ef
hinir grunuðu eru í bílum. Dæmi
er um að lagt hafi veriö til fíkni-
efnalögreglumanns með hnífi. Sá
maður var ekki í vesti en svo
heppilega vildi til að lagið kom
þar sem lögreglumaðurinn bar
minnisblokk innan klæða.
Þegar lögreglumenn fara í hús-
leitir hjá fíkniefnasölum geta þeir
Rkniefnalögreglumaður í skotheldu vesti dvmynd þök
Lögreglumenn sem fara í húsleitir hjá fíkniefnasölum geta búist viö hverju
sem er - þeir vita aldrei hvað bíöur innandyra enda er þar oft um vopnaö fólk
aö ræöa sem er haldiö ofsóknarbrjálæði vegna neyslu. Mjög hörö átök verða
mjög gjarnan þegar fíkniefnalögregla ræöst til inngöngu í hús.
búist við hverju sem er - þeir
vita aldrei hvað bíður innandyra
endar er þar oft vopnað fólk sem
haldið er ofsóknarbrjálæði vegna
neyslu.
„ Alltaf þegar minnsti grunur er
um að menn séu vopnaðir þá
klæðast lögreglumenn okkar vest-
um,“ segir Ásgeir Karlsson, yfir-
lögregluþjónn og yfirmaður fíkni-
efnadeildarinnar. Hann segir að
vopnaburður fólks í flkniefna-
heiminum hafi greinilega aukist
mjög. Ástæðurnar eru ekki endi-
lega þær að menn hafi hugsað sér
árás heldur segja þeir oftast að
vopnin séu „til varnar“ í hinum
harða heimi fíkniefna. Sérsveit
lögreglu er oftast kölluð til þegar
rökstuddur grunur leikur á um
að skotvopn séu fyrir hendi þar
sem handtökur þurfa að fara
fram. -Ótt
Málþing um lyf:
Stuðla að rettri
notkun lyfja
Sparisjóðsstjórinn á Ólafsfirði neitar sök:
Rétt leiö vandrötuð
Lyfjahópur samtaka verslunar-
innar og Landlæknisembætið
standa fyrir málþingi á Hótel Loft-
leiðum á fostudag. Á málþinginu
verður fjallað um klínískar leið-
beiningar sem stuðla eiga að réttri
notkun lyfja.
Sigurður Guömundsson land-
læknir mun ræða um notagildi
klínískra leiðbeininga, Guðmundur
Þorgeirsson fjalar um klínískar leið-
beiningar og hjartasjúkdóma en
Hjörleifur Þórarinsson, formaður
lyfjahóps verslunarinnar og fram-
kvæmdastjóri GlaxoSmithKline, um
klínískar leiðbeiningar út frá
sjónarhóli lyfjafyrirtækja.
Hjörleifur Þórarinsson segir að
ekki megi líta svo á að lyfjanotkun
sé röng hér á landi þrátt fyrir yfir-
skrift málþingsins. „Það verður að
skoða málið í víðara samhengi. Við
ætlum að fara yfir ransóknir og
vinna að því að allar leiðbeiningar
verði eins vandaðar og hægt er og
að fólk noti rétt lyf á réttum tíma og
á réttan hátt. Það gildir ekki sist um
þessar leiðbeiningar og að við eig-
um að halda uppi ströngustu gæða-
kröfum og koma þannig í veg fyrir
ranga notkun lyfja.“
-Kip
- vitni sögöu einkum: „Ég man
Fyrrverandi sparisjóðsstjóri
á Ólafsfirði, Þorsteinn A. Þor-
valdsson, neitar öllum sakar-
giftum í ákæru ríkislögreglu-
stjóra. Þetta kom fram við aðal-
meðferð málsins í Héraðsdómi
Norðurlands eystra. Meðferðin
hófst sl. mánudag og stóð út
miðvikudaginn. Fjöldi vitna
svik, bókhaldsbrot og brot á lög-
um um ársreikninga. Sam-
kvæmt ákærunni eru brotin
stórfelld og nemur bótakrafa
Sparisjóðs Ólafsfjarðar tæpum 22
milljónum króna ásamt vöxtum.
Fram kom í héraðsdómi að
Bankaeftirlitið hafði frumkvæði
að rannsókn sem varð til þess að
sparisjóðsstjóranum var vikið
frá störfum. Það var í júní 1997
sem tengjast fjármálum á einn Þorsteinn A.
eða annan hátt var kallaður Þorvaldsson.
fyrir en rauða linan í svörum þeirra sem grunsemdir kviknuðu fyrst vegna
var: „Ég man það ekki.“ brota á árunum 1994-1997 og kom fram
Þorsteinn er ákærður fyrir umboðs- í dóminum að fordæmi eru fyrir því að
þaö ekki“
sparisjóðsstjórar hafi verið látnir sæta
refsiábyrgð. Grunur leikur á að spari-
sjóðsstjórinn hafi misnotað aðstöðu
sína og stefnt fé sjóðsins í stórfellda
hættu.
Sjálfur sagði sparisjóðsstjórinn fyrr-
verandi að það umhverfi sem hann
hefði starfað í hefði verið mjög óljóst.
„Þessar reglur eru mjög loðnar og
teygjanlegar út og suður og vandrötuð
rétt leið.“
Fjölskipað er í Héraðsdómi Norður-
lands eystra og er dóms að vænta inn-
an tiðar. -BÞ
Perlan fer í sölu
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum í gær að fela
forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur að
hefja undirbúning á sölu Perlunnar
í Öskjuhlíð. Allir 8 fulltrúar R-list-
ans greiddu þessu atkvæði, en 7 full-
trúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.
Sjálfstæðismenn sögðu í greinar-
gerðum að þeir væru í sjálfu sér
ekki andvígir sölu á Perlunni en
vegna þess hvernig málið hefði bor-
ið að, og i Ijósi þess að verið væri að
beina athyglinni frá vandræðum
Línu.Nets, greiddu þeir tillögunni
ekki atkvæði sín. R-listinn lét hins
vegar færa til bókar að afstöðuleysi
sjálfstæðismanna vegna sölu
Perlunnar væri ótrúlegt og í mót-
sögn við yfírlýsta stefnu flokksins.
-gk
Nýr sveitarstjóri í
Þórshafnarhreppi
Björn Ingimarsson,
starfsmaður Ráðgjafarstofunnar
ehf., hefur verið ráðinn til að
gegna starfi sveitarstjóra i
Þórshafnarhreppi til loka júní
2002. Þórshafnarhreppur og
Ráðgjafarstofan gerðu samning
sín á milli um ráðninguna.
Athygli vekur að þetta er í annað
sinn sem ráðgjafarstofa útvegar
bæjarstjóra til tímabundinna
verkefna, en nýverið var nýr
bæjarstóri sveitarfélagsins
Skagafjarðar fenginn með þeim
hætti eftir að sá sem fyrir var
hætti með skömmum fyrirvara.
-kip
Hafnarfjörður:
Kveikt í
barnavagni
Nokkrir ungir piltar urðu upp-
vísir að því í gær að kveikja i
barnavagni í fjölbýlishúsi í Hafn-
arfirði.
Vagninn var í sameign í kjall-
ara hússins og stóð í ljósum log-
um þegar slökkvilið kom á vett-
vang. Elduinn var snarlega
slökktur en talsverður reykur
komst upp í stigagang hússins og
olli skemmdum auk óþægind-
anna. Nokkrir unglingar höfðu í
gær viðurkennt aðild sína að
þessum verknaði. -gk
Reykjavík:
Tvö innbrot í
vesturbænum
Tvö innbrot voru framin seint í
nótt í vesturbænum í Reykjavík
og liðu ekki nema nokkrar mínút-
ur á milli tilkynninga til lögreglu
vegna þeirra.
í fyrra tilvikinu var tilkynnt
um innbrot í matvöruverslun við
Bræðraborgarstíg. Lögregla var
snör á staðinn og handtók mann í
versluninni. Nokkrum mínútum
síðar kom tilkynning um innbrot
í rakarastofu á Vesturgötu og
þaðan var saknað einhverra pen-
inga úr peningakassa stofunnar.
-gk
Veíwib í kvöW
$
•V
w.
y %
4'
181
ISJ
5“
IV
%
&
Búist við stormi
Suðvestan 18-25 og skúrir vestan til á
landinu en hægari austan til og víða bjart
veður noröaustanlands. Suðvestan 13-18
m/s í kvöld. Hiti 3 til 8 stig.
IJJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 16.25 15.55
Sólarupprás á morgun 10.03 10.06
Síödegisflóö 19.02 23.35
Árdegisflóö á morgun 07.25 11.58
Skýrmgprá vafturtaltnum
J*-- VINOÁTT < HITI -10° VINDSTYRKUR ™ncT i nwtrum i tekúndu f w HBOSKÍRT
o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
SKÝJAÐ
W w s?
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
i*
ÉUAGANGUR RRUMU- SKAF- ÞOKA
VEÐUR RENNINGUR
igfgjggs
Aðgát skal höfð
Agæt færð er um helstu vegi landsins.
Víða er mjög hvasst á Vesturlandi og
Norðurlandi vestra. Því er betra að
hafa varann á sér á feröalögum um þá
landshluta.
C=1SN)0R
ÞUNGFÆRT
HALT
OFÆRT
Skúrir vestanlands
Suðvestan 8-13 m/s síðdegis. Skúrir vestanlands en skýjað með köflum
austan til. Hiti 3 til 8 stig.
jiftsnrjiiissgaf ■-’jlSSB
í Vindttr: J Vindur: } . -'
8-13 m/tr*' 3. 10-15,«/, J
Hiti 5" til 10” . Hiti 3” tíl 8°
Sunnan og suövestan
Suövestlæg átt, 8-13 og 10-15. Rlgning og síöan
rignlng eöa súld sunnan- skúrlr sunnan- og
og vestanlands en annars vestanlands en annars
hægarl og úrkomulítiö. Hltl úrkomulitiö. Hltl 3 tll 8
5 tll 10 stlg. stig.
Suövestlæg átt og
slydduél sunnan- og
vestanlands en annars
þurrt aö kalla. Hltl 1 tll 6
stlg.
rm-i
AKUREYRI heiöskirt 12
BERGSSTAÐIR skýjaö 8
BOLUNGARVÍK skúr 7
EGILSSTAÐIR léttskýjað 8
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 8
KEFLAVÍK skúr 8
RAUFARHÖFN heiöskírt 10
REYKJAVÍK skúr 9
STÓRHÖFÐI þokumóöa 8
BERGEN alskýjaö 4
HELSINKI léttskýjaö -1
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 4
ÓSLÓ léttskýjaö 0
STOKKHÓLMUR 1
ÞÓRSHÖFN rigning 10
ÞRÁNOHEIMUR skýjaö 2
ALGARVE heiöskírt 6
AMSTERDAM skýjaö 8
BARCELONA leiftur 12
BERLÍN skýjaö 7
CHICAGO þokumóöa 14
DUBLIN þokumóöa 7
HAUFAX skýjaö 8
FRANKFURT skýjað 0
HAMBORG léttskýjað 6
JAN MAYEN snjóél -2
LONDON mistur 8
LÚXEMBORG skýjaö 2
MALLORCA léttskýjaö 10
MONTREAL 13
NARSSARSSUAQ snjókoma -2
NEW YORK léttskýjaö 15
ORLANDO alskýjað 18
PARÍS léttskýjaö 0
VÍN léttskýjaö 0
WASHINGTON heiöskírt 7
WINNIPEG heiöskírt -1
■saHMBBBMai!