Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001
DV
9
Fréttir
DV-MYNDIR NJÖRÐUR HELGASON
Stuðmenn
Starfsmenn Landsvirkjunar viö spennuvirki virkjunarinnar.
Vatnsfellsvirkjun tekin í notkun:
Svæðið að
verða fullvirkjað
- segir stjórnarformaður Landsvirkjunar
FVrri aflvél Vatnsfellsvirkjunar
var ræst fyrir helgina að viðstöddu
fjölmenni. Það kom i hlut Jóhannes-
ar Geirs Sigurgeirssonar að ræsa
vélina en í Vatnsfellsvirkjun eru
tvær 45 megavatta túrbínur.
Bygging virkjunarinnar hefur
tekið mettíma en rétt rúm tvö ár
eru síðan framkvæmdir hófust við
hana. „Ég held að við séum orðin á
mörkum hins mögulega með virkj-
unarhraða varðandi þessa virkjun.
Þetta var reyndar svipað með Sult-
artangavirkjunina en hér erum við
komin töluvert lengra inn í landið,
yfir 500 metra yfir sjó, sem þýðir
harðari veðráttu. En þetta hefur
gengið ótrúlega vel héma,“ sagði
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
stjórnarformaður Landsvirkjunar.
Með Vatnsfellsvirkjun er allt mögu-
legt fall nýtt frá Þórisvatni niður
fyrir Hrauneyjafossvirkjun.
Vatnsfeflsvirkjun verður þó ekki
keyrð aflt árið um kring. Það vatn
sem i gegnum hana fer er miðlunar-
vatn úr Þórisvatni sem er nýtt yfir
þann tíma sem þörf er á því til að
halda virkjunum neðar i Tungná og
Þjórsá gangandi á fullum afköstum.
Virkjunin kemur því inn á álags-
tímum og hjálpar til við aö mæta
aukinni raforkuþörf. Gert er ráð
fyrir að seinni túrbína Vatnsfells-
virkjunar veröi gangsett í desember.
Næsta virkjun í startholunum.
Framkvæmdir við Vatnsfellsvirkjun
hófust strax eftir að Sultartangavirkj-
un kláraðist. Nú eru hafnar fram-
kvæmdir við brúargerð yfir Tungná og
vegalagningu á Búðarhálsi, neðan við
Hraimeyjafossvirkjun. Þar er næsta
verkefni Landsvirkjunar á Tungna-
ár/Þjórsársvæðinu. Mögulega verður
hægt að bjóða framkvæmdina út að
vori 2002. Gert er ráð fyrir að virkja
fafl Tungnaár niður í Sultartangalón
með jarðgangagerð gegnum Búðarháls.
„Framkvæmdir við þá virkjun heijast
ekki fjTr en í ljós kemur hvað um
semst. í þá virkjun verður ekki ráðist
nema til komi samnmgar um stóriðju
á Suðvesturlandi, annaðhvort á
Grundartanga eða í Straumsvík. En ef
af henni verður verðum viö búnir að
virkja allt fall Þjórsár og Tungnaár
niður að Búrfefli. Þá eru reyndar eftir
kostir neðar, við Stóra-Núp og Urriða-
foss. Síðan eru eftir hér upp frá á áætl-
un veitur til að auka vatnið í miðlun-
inni og með því að nýta þessar virkjan-
ir enn betur. En það styttist óðum í að
vatnasvæði þessara áa sé fullvirkjað,“
sagði Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
stjómarformaður Landsvirkjunar.-NH
Dagur íslenskrar tungu:
Sérstöðu tung
unnar minnst
Dagur íslenskrar
tungu er haldinn há-
tíðlegur í dag og verð-
ur ýmislegt gert til há-
tiðarbrigða. Mennta-
málaráðuneytið efnir
tU samkomu í Reyk-
holtskirkju í Reyk-
holti í Borgarfirði þar
sem Björn Bjamason
menntamálaráðherra
mun m.a. veita verð-
laun Jónasar Hall-
grímssonar og sér-
stakar viðurkenning-
ar fyrir störf í þágu ís-
lenskrar tungu. Stóra
upplestrarkeppnin í 7.
bekk hefst í dag og munu vinnings-
hafar síðustu ára m.a. lesa upp í
Reykholti.
í dag kemur einnig út kynningar-
bæklingur um íslenska tungu á 5
tungumálum og ný skýrsla um ís-
lensku og aðstæður í íslensku mál-
samfélagi verður kynnt á norrænni
ráðstefnu í Finnlandi. Á laugardag-
inn verður svo árlegt málræktar-
þing íslenskrar málnefndar, ís-
lenska á evrópsku tungumálaári, í
safnaðarheimili Hafnarfjarðar-
kirkju og þá verður einnig leiklest-
ur á Föðumum eftir Strindberg í
Borgarleikhúsinu.
í fréttatUkynningu frá Mennta-
málaráðuneytinu segir að höfuð-
atriði sé að dagur íslenskrar tungu
sé álitinn hátíðisdagur móðurmáls-
ins, dagur sem íslendingar nota tU
að minnast þeirrar sérstöðu sinnar
sem endurspeglast í tungunni. Lögð
er áhersla á að skólar og stofnanir
minnist dagsins með viðeigandi
hætti. í tUefni dagsins verða dag-
skrár í flestum leik- og grunnskólum
landsins og ýmsar samkomur. -ÓSB
Pólsk kona sem flutti inn 1.636 e-töflur haföi komið tvisvar áður til íslands:
Sagðist hafa búið hér
í tjaldi um hávetur
- gefur þær skýringar að hún hafi talið sig vera að flytja stera fyrir pólskan mann
Konan kom meö pakka til íslands
Hún taldi sig vera aö fiytja stera hingaö til lands fyrir
pólskan mann. Konan kom hingaö frá Póllandi með
viökomu í Kaupmannahöfn.
22 ára pólsk kona, sem hef-
ur verið ákærð fyrir að hafa
flutt 1.636 e-töflur tU landsins,
segist hafa talið að efhin sem
hún flutti inn hefðu verið
steratöflur. Þegar lögreglan
rannsakaði mál hennar kom
á daginn að hún hafði tvisyar
áður komið tU landsins. Skýr-
ingar hennar á þeim ferðum
þóttu hins vegar ekki í takt
við raunveruleikann.
Konan var handtekin hér á
landi 1 lok júlí. Komu efnin
þá í ljós og hafði hún falið þau
innan klæða. Eftir þetta hefur
konan nokkrum sinnum mætt
fyrir dóm, síðast á þriðjudag
þegar málið var þingfest. Þegar konan
hefur verið spurð að því hvað hún
hefði verið að gera í tveimur fyrri ferð-
um hennar tfl landsins, sem báðar
voru um hávetur, sagðist hún hafa
búið í tjaldi á tjaldsvæði, hún hefði
verið ferðamaður að kynnast landi og
þjóð. Þegar hún var spurð að því hvar
hún hefði tjaldað gaf hún upp staði þar
sem engin tjaldstæði eru. Beindi þetta
því grun að því að ekki hefði
verið aUt með feUdu í fyrri
ferðum hennar.
Konan segist hafa hitt
pólskan mann í annarri af
fyrri ferðum sínum hingað tU
lands. Hann hafl síðan hringt
í hana tU PóUands og beðið
hana um að taka með sér
pakka tU íslands. Hún segist
hafa farið með lest til Ham-
borgar þar sem hún hefði far-
ið um borð í vél Flugleiða.
Síðan hefði verið miUUent í
Kaupmannahöfn áður en
flogið var tU Keflavíkur.
Konan sagðist hafa talið að
sterar hefðu verið í pakkan-
um. Þetta hefur verið dregið í efa og
ákærir ríkissaksóknari hana fyrir inn-
flutnmg á 1.636 e-töflum sem hafl að
verulegu leyti verið ætlaðar tU sölu
hér á landi. -Ótt
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil
nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöld sem á voru lögð: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15.
nóvember 2001, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvember 2001
og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15.
nóvember 2001 á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli,
áfengisgjaldi, launaskatti, aðstöðugjaldi, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu
árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts
vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum,
tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnaðargjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð
bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum,
eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum
á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi,
skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinbemm gjöldum, sem em:
tekjuskattur, útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald
vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjaid, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald,
markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæöi, ofgreiddar hamabætur,
ofgreiddur bamabótaauki og ofgreiddar vaxtaiwetur.
Fjámáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna, ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum.
Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vömgjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði
stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og
þungaskatt eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari
fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í
þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. nóvember 2001.
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestfjarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki