Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Qupperneq 24
28
•4T
Tilvera
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001
DV
Star Wars: Empier Stri-
kes Back ★★★★ " #
Besta kvikmyndin í Stars
War-seríunni. Hún er nánast fullkomiö
framhald. Heldur við heíðinni og ævin-
týrinu sem komið var af stað í fyrstu
myndinni og bætir við þunga í söguna
og atburðarásina sem gerir hana að ein-
stakri upplifun. Leikarar hafa vanist
hlutverkunum og eru allir frábærir, þó
Empire Strikes Back
Logi geimgengill á tali viö Jedi.
enginn betri en Harrison Ford sem með
þessari mynd festi sig í sessi sem stór-
stjama í Hollywood. George Lucas leik-
stýrði ekki myndinni heldur lét gamlan
og góðan spennumyndaleikstjóra, Irv-
ing Kershner, hafa fyrir því að gefa
starfsliðinu skipanir en handbragð
Lucasar leynir sér ekki og hann er sá
sem ræður bak við tjöldin. Frábær kvik-
mynd.
Sýnd á Síöó 21 kvöld kl. 20.
Judy Garland syngur
Over the Rainbow.
Galdrakarlinn í OZ
2j '
★★★★i 'C|y§$?
Ein besta bama- og söngvamynd sem
gerð hefur verið. Böm hafa skemmt sér
yfir ævintýrinu allt frá því hún var
frumsýnd árið 1939. Judy Garland leik-
ur aðalhlutverkið, hana Dórótheu litlu,
sem strýkur að heiman með hundinn
sinn þegar iilgjam nágranni ætlar að
láta svæfa hann. Vindsveipur feykir
henni inn í ævintýralandið Oz en hún
vill komast þaðan aftur og heldur til
borgarinnar í leit að galdrakarlinum. Á
leiðinni hittir hún fuglahræðu sem
vantar heila, blikkkarl sem vantar
hjarta og ljón sem skortir sárlega kjark.
Myndin. gerði Judy Garland að sfiömu
sem skein skært á himni um nokkurra
ára skeið. Fyrir böm á öllum aldri.
Sýnd í Sjónvarpinu
á laugardag kl. 20.55.
Sweet and Lowdown
*★**
Sweet and Lowdown er
besta kvikmynd Woodys Allens í langan
tíma, einstaklega lifandi og gráglettin
kvikmynd um mann sem öðrum þræði
er sniliingur en á hinn bóginn sjálfselsk-
ur drykkjubolti sem traðkar á tiifinn-
ingum annarra. Myndin gerist á fimmta
áratugnum. Emmet Ray er af flestum
talinn mesti gítarsnillingur Bandaríkj-
anna og hann er í engum vafa um að
** hann sé sniilingur en viðurkennir fyrir
sér og öðrum að einn sé fremri, sígaun-
inn Django Reinhardt. Og Django er
rauði þráðurinn í lífi hans og eini mað-
urinn sem hann lítur upp til, aðrir era
aðeins til afnota.
Sean Penn fer sniildarlega með hlut-
verk Rays. Það er ekki aðeins myndin,
tóniistin hrífur einnig.
Jt Sýnd á Stöð 2 á sunnudag ki 20.25.
Betty Grable:
Síðustu árin sem Betty lifði bjó hún
með Bob Remick, dansara sem var
tuttugu og fimm árum yngri en hún.
Hann bað hana margoft um að giftast
sér en hún elskaði Harry James enn og
vildi ekki gifta sig á ný.
Betty sinnti aðdáendum sínum vel,
sendi þeim jólakort og spjallaði við þá
í síma og bauð nokkrum þeirra í heim-
sókn. Hún var alla tið afar vinsæl með-
al samstarfsmanna sem fannst hún
vingjamleg, glaðleg og skemmtileg
kona, algjörlega laus við stjömustæla.
Betty var fimmtíu og sex ára gömul
þegar hún greindist með krabbamein
og á stuttum tima veslaðist hún upp.
Harry James lést tíu árum síðar úr
krabbameini. Betty Grable á enn aðdá-
endur viðs vegar um heim. Einn
þeirra, japanskur karlmaður, kemur í
hverri viku að gröf hennar með rauð-
an rósavönd.
„Af hæfileikalausri konu að vera
hef ég verið heppin, mjög heppin,"
sagði hún eitt sinn. „Ég get sungið og
dansað dálítið en ég stenst ekki saman-
burð við alvöru leikkonu. Ég er söngv-
ari og dansari og hef aldrei tekið sjálfa
mig alvarlega."
Stjarna sem
tók sig ekki
alvarlega
Betty Grable fæddist árið 1916 i Mis- sínum. Hjónabandið endaði með skiln-
souri og var þriðja og síðasta bam for-
eldra sinna. Móðir hennar, Liilian,
hafði átt sér þá ósk að verða dansari
en varð þess í stað húsmóðir. Hún
ákvað að yngsta dóttirin yrði það sem
hún hafði sjálf ekki getað orðið. Betty
var einungis sjö ára gömul þegar móð-
ir hennar sendi hana í hæfileika-
keppni. Betty komst í úrslit og móðir
hennar faðmaði hana og kyssti. Þegar
kom að úrslitakeppninni lenti Betty
einungis í þriðja sæti. Þegar hún hljóp
til móður sinnar eftir að tilkynnt hafði
verið um úrslit sló móðir hennar hana
í andlitið og hvæsti að henni að hún
hefði ekki lagt sig nægilega fram. „Ég
leið þjáningar til að koma þér í heim-
inn. Þú skalt ekki voga þér að bregðast
mér aftur,“ sagði hún.
Betty kom fram í útvarpsþáttum og
tíu ára gömul var hún orðin bama-
stjama í heimabæ sinum. Hún var tólf
ára gömul þegar móðir hennar ákvað
að fiölskyldan skyldi flytja til
Hollywood en þar taldi hún dóttur sína
eiga mikla möguleika. Það tók hana ár
að koma Betty í prufumyndatöku hjá
kvikmyndaveri og í framhaldi fékk
hún smáhlutverk í kvikmyndum. Þeg-
ar Betty sagði móður sinni að hún
vildi verða hjúkrunarkona eða einka-
ritari sagði móðir hennar: „Hættu
þessu bulli. Þú átt eftir að verða mikil
leikkona. Þú fæddist til þess.“
aði.
Betty var rísandi stjama. Hún hafði
leikið í fyrstu litmynd sinni og mynd-
aðist einkar vel. Hún var falleg og þótti
hafa einhveija fegurstu fótleggi í
HoOywood og kvikmyndafélag hennar
tryggði þá hjá Lloyds í London fyrir
svimandi fiárhæð. Hún fékk 5000 aðdá-
endabréf á viku og framtíð hennar
virtist tryggð. Kvikmyndafélag hennar
óttaðist þó mjög að hneykslismál gæti
eyðilagt feril hennar. Hún átti í ástar-
sambandi við leikarann George Raft
sem var alræmdur vegna tengsla sinna
við mafíuna. Hann var giftur og vildi
skilja við konu sína til að giftast Betty.
Eiginkona hans var hins vegar harðá-
kveðin í því að slíta ekki hjónaband-
inu og neitaði honum um skilnað. Svo
fór að Betty yfírgaf Raft, enda vonlaust
að hann gæti gifst henni og jafn útilok-
Fræg Ijósmynd
Mynd þessi hékk víöa hjá bandarísk-
um hermönnum í seinni heimsstyrj-
öldinni og er áhersia lögö á full-
komna fótleggi leikkonunnar.
lifið eftir kvikmyndirnar
Árið 1953 endumýjaði kvikmynda-
fyrirtæki Bettyar ekki samning við
hana. Hún hafði í tíu ár verið ein vin-
sælasta leikkona Bandaríkjanna en
naut ekki jafn mikilla vinsælda i Evr-
ópu. Myndir hennar höfðu nær allar
verið léttvæg froða, þar sem hún söng
og dansaði og varð ástfangin. Tími
þessara mynda var nú liðinn. Eftir að
kvikmyndaferli Bettyar lauk kom hún
fram í kabarettum og sjónvarpi og
söng i Hello Dolly á sviði við miklar
vinsældir. Hjónaband hennar var á
fallanda fæti og eiginmaður hennar
flutti að heiman til að að búa með
dansmey í Las Vegas. Þegar dansmær-
I upphafi ferilsins
Ung 'og efnileg en ekki oröin biondína.
How to Marry a Millionaire (1953)
Betty Grable og Rory Calhoun.
Stjarna í Hollywood
Betty var smástimi í Hollywood
þegar hún giftist leikaranum Jackie
Coogan sem hafði öðlast heimsfrægð
fyrir leik sinn í Chaplin-myndinni,
The Kid. Hann var nú fallin bama-
stjama og það kom í hlut Betty að
vinna fyrir þeim meðan hann eyddi
tímanum í drykkjutúra með félögum
að var að hún gæti búið með honum í
óvígðri sambúð.
Hún kynntist trompetleikaranum og
hljómsveitarstjóranum Harry James
sem var giftur en hafði ekki búið með
konu sinni í langan tíma. Skömmu eft-
ir kynni þeirra Betty bað Harry konu
sína um skilnað sem hún veitti hon-
um, enda orðin hundleið á kvennafari
hans. Þegar Betty giftist Harry James
var hún ein tekjuhæsta leikkona í
Hollywood. Slúðurblöð spáðu því að
hjónabandið myndi ekki endast lengur
en sex mánuði. Kvensemi Harrys var á
allra ■ Vitorði svo og áfengisdrykkja
hans og fíkn í fiárhættuspil. í tilraun
til að fylgja manni sínum eftir breytti
Betty lífsstíl sínum. Hún fór að drekka,
reykti allt upp í þrjá pakka af sígarett-
um á dag og fór að stunda fiárhættu-
spil. Einstöku sirínum fékk hún slúð-
urfréttir af framhjáhaldi eiginmanns
en hún neitaði að trúa þeim sög-
um.
Hjónin eignuðust tvær dætur og
virtust lifa hamingjuríku fiölskyldu-
lífí. Með árunum varð ljóst að Harry
James var með hugann við annað en
eiginkonu sína. Hann var að heiman
yfir nótt tvisvar eða þrisvar í viku og
safnaði spOaskuldum sem hún varð að
greiða.
in varð ólétt sótti Betty um skilnað eft-
ir tuttugu og tveggja ára hjónaband.
.Síðar kom í ljós að Harry James var
ekki faðir bamsins. Hann giftist dans-
meynni eftir skilnað þeirra Betty en
hjónabandið stóð einungis í nokkra
mánuði.
_
Betty Grable 1957
Hún var í tíu ár ein vinsælasta kvikmyndastjarna í Hollywood. Myndir hennar
voru léttar söngvamyndir sem þóttu á sínum tíma notaleg skemmtun
en hafa elst fremur illa.