Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Page 30
34 íslendingaþættir Umsjön: KJartan Gunnar Kjartansson Fólk i fréttum Birgir ísl. Gunnarsson bankastjóri Seðlabanka íslands 85 ára_________________________ Jórunn Andrésdóttir, Hásteinsvegi 39, Stokkseyri. 80 ára_________________________ Sigurður Jónsson, Hlíöarvegi 26, Kópavogi. 75 ára_________________________ Eiín Eyfells, Efstasundi 19, Reykjavlk. 60 ára_________________________ Árdís Erla Bragadóttir, Háaleitisbraut 111, Reykjavík. Helga Magndís Haraldsdóttir, Miövangi 41, Hafnarfirði. 50 ára_________________________ Baldur Hjaltason, Háaleitisbraut 93, Reykjavík. Gísli Þorláksson, Blómsturvöllum 5, Grindavík. Halldór Sigurgeirsson, Hvannavöllum 2, Akureyri. Hjalti Jóhannsson, Giljum, Varmahlíö. Ingi Kristmanns, Neöstaleiti 4, Reykjavík. Kári Pétur Sveinsson, Austurströnd 6, Seltjarnarnesi. Kristín Markúsdóttir, Torfufelli 21, Reykjavík. Kristín Sigurðardóttir, Stekkjarbergi 10, Hafnarfirði. María Rósa Jakobsdóttir, Eyrarvegi 9, Akureyri. 40 ára_________________________ Aöalsteinn Snorrason, Vættaborgum 19, Reykjavík. Auður Kristinsdóttir, Fögrubrekku 22, Kópavogi. Bergþór Bjarnason, HITöarhjalla 63, Kópavogi. Björn Líndal Gíslason, Vallargötu 12a, Sandgeröi. Einar Pálsson, ísalind 6, Kópavogi. Erla Halldórsdóttir, Álfaborgum 21, Reykjavík. Fjóla Þorvaldsdóttir, Álfaheiði 44, Kópavogi. Ingibjörg S. Ingimundardóttir, Norðurbyggð 21, Akureyri. Ragnheiður Elsa Busk, Þelamörk 58, Hverageröi. Sigríður Friðjónsdóttir, Lokastíg 1, Dalvík. Sigurður Ásgrímsson, Þórsvöllum 1, Keflavík. Sigurveig Grímsdóttir, Skógarási 11, Reykjavlk. Sveinn Víkingur Grímsson, Rauöalæk 41, Reykjavík. Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri hefur mikið ver- ið í fréttum að undanförnu vegna vaxtalækkunar og umræðu um vexti. Greinin er endurbirt vegna tæknilegra mistaka sem urðu í vinnslu blaðsins síðastliðinn miðvikudag. Starfsferill Birgir fæddist í Reykjavík 19.7. 1936. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1955, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1961, öðlaðist hdlréttindi 1962 og hrlréttindi 1967. Birgir var framkvæmdastjóri SUS 1961-63, starfrækti eigin lög- mannsstofu í Reykjavík 1963-72, var borgarstjóri í Reykjavík 1972-78, sinnti ýmsum störfum er lúta að stjórnmálum 1978-79, var alþm. Reykvíkinga fyrir Sjálfstæð- isflokkinn 1979-91, var mennta- málaráðherra 1987-88, hefur verið bankastjóri Seðlabanka íslands frá 1991 og er formaður bankastjórnar. Birgir var formaður Vöku 1956-57, formaður Stúdentaráðs HÍ 1957-58, var fulltrúi stúdenta í Háskólaráði 1958-59, í stjórn Heimdallar 1956-62 og formaður 1959- 62, í stjóm fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík 1960- 62, í stjórn SUS 1961-69 og formaður 1967-69, í flokksráði Sjálfstæðisflokksins frá 1965, í miðstjórn flokksins 1973-91, for- maður framkvæmdastjórnar Sjálf- stæðisflokksins 1979-87, borgar- fulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík 1962-82 og jafnframt í borgarráði og átti sæti í ýmsum nefndum borgarinnar, s.s. launa- málanefnd, heilbrigðismálaráði, hafnarstjórn og skipulagsnefnd. Hann sat í stjóm Landsvirkjunar 1965-91, var formaður Stúdentafé- lags Reykjavíkur 1966-67, formað- ur stóriðjunefndar 1983-87, sat í flugráði 1984-86 og var formaður nefndar um löggjöf og áætlun um flugvelli 1984-86, formaður sendi- nefndar Alþingis hjá þingmanna- samtökum NATÓ 1983-87, í sendi- nefnd íslands á allsherjarþingi Sþ 1980 og 1988, í stjórn Skógræktar- félags Reykjavíkur frá 1989, hefur setið í sóknarnefnd Hallgríms- kirkju og hefur verið formaður þróunarnefndar HÍ. Fjölskylda Birgir kvæntist 6.10. 1956 Sonju Backman, f. 26.8. 1938, skrifstofustjóra í skóla ísaks Jóns- sonar. Foreldrar hennar eru Ingi- mar Karlsson, málarameistari í Reykjavík, látinn, og Alda Carl- son, húsmóðir í New York. Börn Birgis og Sonju eru Björg Jóna, f. 24.2. 1957, námsráðgjafi við Háskólann í Reykjavík. Björg var gift Bjarna Haraldssyni og eiga þau þau tvö börn. Þau skildu. Sambýlismaður Bjargar Jónu er Már Vilhjálmsson, rektor Menntaskólans við Sund. Gunnar Jóhann, f. 19.10. 1960, hæstaréttarlögmaður í Reykjavík, var kvæntur Soffíu Thorarensen, og eiga þau tvö börn; Birgi ísleif, f. 22.8. 1980, og Unni Elísabetu, f. 12.10. 1984. Eiginkona Gunnars Jóhanns er Ragnheiður Guðmundsdóttir textílhönnuður. Þau eiga eina dóttur, Katrínu Björk, f. 17.7. 1994. Lilja Dögg, f. 17.10. 1970. Ingunn Mjöll, f. 17.10. 1970. Hún var gift Kolbeini Guðjónssyni og eiga þau eina dóttur, Björgu Sóleyju. Sambýlismaður Ingunnar Mjallar er Viktor Eðvaldsson viðskiptafræðingur. Systir Birgis er Lilja Jóhanna, f. 1.10. 1940, húsmóðir í Reykjavík, gift Guðlaugi Stefánssyni kennara og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Birgis eru Gunnar Espólín Benediktsson, f. 30.6. 1891, d. 13.2. 1955, hrl. og forstjóri í Reykjavík, og k.h., Jórunn ísleifs- dóttir, f. 2.10. 1910, húsmóðir, sem er látin. Ætt Hálfsystir Gunnars, samfeðra var Sigríður, amma Gunnars Guð- mundssonar, prófessors í læknis- fræði, og langamma Guömundar Magnússonar, forstöðumanns Þjóðmenningarhúss. Hálfbróðir Gunnars, samfeðra, var Hallgrím- ur, prentsmiðjustjóri hjá Guten- berg. Gunnar var sonur Benedikts, gullsmiðs á Laxnesi í Mosfells- FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 I>V sveit, Ásgrímssonar, b. á Laxnesi, Jónssonar, b. á Laxnesi, Eyjólfs- sonar. Móðir Benedikts var Sig- ríður, systir Jóhanns, fóður Ólaf- íu, rithöfundar og kvenréttinda- konu. Sigríður var dóttir Bene- dikts, pr. á Mosfelli, sem Messan á Mosfelli eftir Einar Benediktsson er ort um. Benedikt var sonur Magnúsar, klausturhaldara í Þykkvabæjarklaustri, Andrésson- ar, og Helgu Ólafsdóttur, systur Ingibjargar, langömmu Guðmund- ar, afa Guðmundar í. Guðmunds- sonar, ráðherra og langafa Davíðs Á. Gunnarssonar ráðuneytisstjóra og Hauks Helgasonar, fyrrum að- stoðarritstjóra DV. Móðir Gunnars var Lilja Jó- hanna Gunnarsdóttir, útvegsb. í Eyrarkoti í Vogum Jónssonar og Guðnýjar Guðmundsdóttur. Faðir Jórunnar var ísleifur, skipstjóri og fiskmatsmaður í Hafnarfirði, Guðmundsson, b. í ívarshúsum í Garði, bróður Gunn- varar, móður Gunnars M. Magn- úss rithöfundar. Guðmundur var sonur Árna, hreppstjóra á Meiða- stöðum í Garði, Þorvaldssonar. Móðir Jórunnar var Björg, syst- ir Björns, afa Björgvins banka- stjóra og Björns Vilmundarsona. Björg var dóttir Gísla, sjómanns á Bakka við Reykjavík, Björnsson- ar, á Bakka, bróður Jakobs, langafa Birgis Þorgilssonar, fyrrv. ferðamálastjóra, og Sigrúnar, móður Árna Mathiesens sjávarút- vegsráðherra. Björn var sonur Guðlaugs, b. á Hurðarbaki i Kjós, Ólafssonar, b. á Hurðarbaki, ís- leifssonar, bróður Jóns í Stóra- Botni, langafa Vigdísar, ömmu Sigmundar Guðbjarnasonar, fyrrv. háskólarektors. Jón er einnig langafi Ingibjargar, ömmu Þórðar Harðarsonar prófessors og langömmu Flosa Ólafssonar leik- ara. Móðir Björns var Margrét Torfadóttir, b. í Ánanaustum, Jó- hannssonar, bróður Sigurðar, langafa Klemens landritara, föður Agnars, fyrrv. ráðuneytisstjóra. Gunnar Sölvi Sigurösson frá Hvammstanga, til heimilis að Akraholti, lést á Sjúkrahúsi Akraness 14.11. Hrönn Viggósdóttir, Þykkvabæ 8 I Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut 13.11. Sigurður M. Jónsson, Skeiðarvogi 22 I Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 13.11. Þóra Ólafsdóttir, Laxárdal, Þistilfiröi, til heimilis á Hrafnistu I Hafnarfirði, lést 14.11. Erling Georgsson, Flyðrugranda 6 I Reykjavlk, lést 13.11. Merkir islendingar Jón Sveinsson (Nonni) fæddist 16. nóvem- ber 1857. Hann var sonur Sveins Þórarins- sonar, amtskrifara á Möðruvöllum í Hörg- árdal, og k.h., Sigríðar Jónsdóttur. Nonni ólst upp á Akureyri en var boð- in námsdvöl í Frakklandi og fór utan 1870. Hann dvaldi fyrst i Kaupmanna- höfn en lauk siðan stúdentsprófi frá Collége de la Providenee, Jesúítaskóla i Amiens í Frakklandi, 1878. Þá lærði hann heimspeki og nam guðfræði i Ditton-Hall í Lancashire á Englandi. Hann vígðist prestur í Jesúítareglunni 1891 og var kennari við St. Andreas Colleg- ium í Ordrup í Danmörku til 1912. Þá gerðist hann rithöfundur og flutti fyrirlestra víða um heim, mest um ísland, sögu þess og bókmenntir. Jón Sveinsson (Nonni) Bamabækur Nonna um bemskuár hans við Eyja- íjörðinn urðu mjög vinsælar í Þýskalandi og víðar í Evrópu og voru þýddar á þriðja tug tungumála. Nonni kom til íslands 1894 og ári síðar átti hann samstarf við kaþólska biskupinn í Dan- mörku, Johannes von Euch, um fjársöfnun fyrir holdsveikraspitala á íslandi. Danskir Oddfellow-bræður stofnuðu slíkan spítala í Laugarnesi 1898 en söfnunarfé Nonna rann til stofnunar Landakotsspítala. Hann kom aftur til íslands á Alþingishátíðina 1930 i boði ríkisstjórnarinnnar. Nonnasafn á Akureyri er bernskuheimili Nonna og á þjóðdeild Þjóðarbókhlöðunnar í Reykjavík er sérsafn Nonna þar sem sjá má bréf hans, skjöl og rit á hinum ýmsu tungumálum. Hann lést 1944. Björg S. Ólafsdóttir, Fellsmúla 9 I Reykjavik, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju 16.11. kl. 15. Marta Kristjánsdóttir, Munkaþverárstræti 2 á Akureyri, verður jarösungin frá Akueyrarkirkju 16.11. kl. 13.30. Benedikt Orri Viggósson, Sogavegi 162 I Reykjavík, veröur jarösunginn frá Grafarvogskirkju 16.11. kl. 13.30. s jjrval - gott í hægindastólinn s m á il iiÍi il a u g I ý s i n g a r n a r n á a t h y g I i 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.