Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2001, Síða 33
FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001
37
!OV
Eiríkur á föstudegi
101 í París
þariscope
©
iistíat
Út um allt í París
Pariscope hampar 101
Reykjavík.
Auglýs-
ing fyrir
kvikmynd-
ina 101
Reykjavík
birtist á
forsíðu
franska
menningar-
tímaritsins
Pariscope
sem dreift
er um alla
Parísarborg
með kynn-
ingarefni
um það
helsta sem
í boði er i menningu og skemmtun
borgarinnar. Victoria Abril, aðal-
stjarna myndarinnar, sleikir putta
og Hilmir Snær er við að geispa
golunni í snjóskafli undir fyrir-
sögninni: Gamanmynd frá íslandi i
litum eftir Baltasar Kormák. Innan
um kynningar á öðru menningar-
efni er kvikmyndin sögð byggð á
bók eftir vinsælan, íslenskan rit-
höfund. Eða eins og segir í franska
textanum: „Anti-héros, la trentaine,
décidé a ne pas devenir adulte, un
homme vit chez sa mére. Ses
noumbreuses conquetes féminines
ne l’incitent pas á la vie de
couple...
Sýningar á 101 Reykjavík eru
auglýstar 1 sjö kvikmyndahúsum í
París og alls staðar er hún bönnuð
innan 12 ára.
Jólaótti
Jólasveinninn
Óvíst hversu
þungur pokinn
veröur í ár.
Þráinn
77/ Tvíhöföa.
Arvökull
Dan Sommer fylgist grannt meö - ekkert má skaöa viöskiptavininn.
íslenskt fyrirtæki með lífverði um allan heim:
Þekkjast á
augnaráðinu
- ekki dökkum gleraugum og svörtum jakkafötum
Smásölufyrir-
tæki hafa verið
að falla í verði á
verðbréfamörk-
uðum í Banda-
rikjunum af ótta
manna við að
jólaverslun verði
minni í ár en
endranær. Síð-
ustu fréttir
herma þó að
markaðurinn sé
á uppleið og
munar þar mestu
um aukna bflasölu vestanhafs. Ótt-
ann við samdrátt í neyslu má rekja
til hermdarverkanna í New York
og Washington 11. september.
Þríhöfði
Tvíhöfði hefur
ráðið sér nýjan
aðstoöarmann í
útvarpsþátt sinn
sem sendur er út
á hverjum
morgni á Radió -
X. Sá heitir Þrá-
inn Steinsson og
hefur áratuga-
reynslu í útsend-
ingum á útvarps-
efni. Er Þráinn
af mörgum talinn besti útsending-
arstjóri landsins.
„Það er ekkert nýtt undir sól-
inni. Ég er biiinn að fara allan
hringinn, frá Tveimur með öllu og
niður eða upp í Tvíhöfða,“ segir
Þráinn sem ekki ætlar að aðstoða
Tvíhöfða á almennum skemmtun-
um. „Ég verð aldrei þriðja hjólið,“
segir hann.
Leiðrétting
Vegna frétta um þrjár mismunandi
tUlögur að nýju nafni á Samfylking-
una skal áréttað að íjórða tillagan hef-
ur alls ekki verið kynnt tU jafns við
hinar. Hún gerir ráð fyrir að nafni
Samfylkingarinnar verði breytt í
SUKK (Samtök umbótasinnaðra karla
og kvenna). Leiðréttist þetta hér með.
GEÖ öryggisþjónusta ehf.
hefur keypt breska lifvarða-
fyrirtækið World Federation
of Bodyguards í Englandi og
er fyrir bragðið með 500 líf-
verði á sínum snærum viða
um heim. Starfsemin er tak-
mörkuð hér á landi en
blómgast í Rússlandi,
Mexíkó, Suður-Afriku, Eng-
landi, Spáni og á Ítalíu. Eig-
endur fyrirtækisins eru Jó-
hann Óli Guðmundsson
(áður Securitas) og Dan
Sommer, þrautþjálfaður lífvörður af
dönskum uppruna sem hefur verið
búsettur hér á landi með hléum frá
1988.
Dagurinn 44 þúsund
„Þetta er dýr þjónusta. Dagurinn
hér heima kostar 44 þúsund krónur
með virðisaukaskatti en best og mest
eru viðskiptin í Mexíkó enda er það
„high risk country". Þá er meira en
nóg að gera í Rússlandi," segir Dan
sem á 20 prósent í fyrirtækinu á
móti Jóhanni Óla sem á 80 prósent.
Dan segir að starfinu fylgi lífs-
hætta erlendis og í Rússlandi sé
dauði lífvarða nær því daglegt
brauð. Ef handsprengja komi
rúllandi i átt að viðskiptavini sé ekk-
ert annaö að gera fyrir lífvörð en að
kasta sér yfir hana. Starfið fari þó að
mestu fram í höfðinu við að fyrir-
Jóhann Oli
Meö lífvaröa-
sveitir í mörgum
löndum.
að
byggja að handsprengjan
eða byssukúla komist í tæri
við viðskiptavinina:
Sendiráösveislur
„Lífverðir þekkjast ekki
á sólgleraugum og svörtum
jakkafötunum. Þannig er
það er bara í bíómyndum.
Sjálfur þekki ég lífvörð
alltaf á augnaráðinu. Hann
er alltaf að fylgjast með og
horfir annað en aðrir,“ seg-
ir Dan sem hefur haft nóg
gera hérlendis eftir árásina á
Manhattan og Pentagon 11. septem-
ber síðastliöinn. Sendiráðin í
Reykjavík hafa keppst við að fá
hann til að halda námskeið um allt
sem lýtur að öryggi og sér hann
ekki fyrir endann á þeim óskum öll-
um. Þá færist það í aukana að sendi-
ráðin ráði lífverði þegar þau halda
veislur og vilja hafa vaðið fyrir neð-
an sig.
Peningar í Nígeríu
„Það geta verið miklir peningar í
langtímaverkefnum eins og aö gæta
olíuleiðslu í Nígeríu. Hér heima
tengjast lifvarðaverkefnin helst
frægum útlendingum sem hingað
koma eða óuppgerðum dómsmálum
þar sem menn telja sig ekki örugga
einhverra hluta vegna,“ segir Dan
sem kallar ekki allt ömmu sína.
:4
Frétt um hálsbindi
Skiptar skoöanir á þingi.
Rétta myndin
IMM
Bjöm Brynjúlf-
ur Björnsson
Sá sætasti.
Gunnar
Eyjólfsson
„Old flame“.
ÁgÚSt
Guðmundsson
Kemur alltaf aftur.
Ómar
Ragnarsson
Gegnheill meö
brotna styttu.
Jón
Gnarr
Einlægur í
leikaraskap sínum.
Þorfinnur
Guðnason
Eins og Nick Nolte.
□
a
Toppsex-listl Kollu bygglr á greind, útgelslun
og andlegu menntunarstlgl þelrra sem
á honum eru. Nýr llsti næsta fóstudag.
Tískulögga
vill bindi
Svavar Örn Svavarsson, hár-
greiðslumeistari og tískuhönnuð-
ur, er mótfallinn því að alþingis-
mönnum verði ekki lengur gert
skylt að nota hálsbindi við störf sín
í þingsölum:
„Mér finnst til bóta og reyndar
flott að hafa „dress-code“ á þingi.
Háisbíjridi ógna *
iýdræðinu \
Svavar Orn
Þverslaufan vond.
Blessaðir alþingismennirnir eru
ekki mjög smart fyrir og bindið
gerir þá oft flna sé það rétt valið,"
segir Svavar örn sem sjálfur notar
aldrei bindi enda ekki í stjórnmál-
um. „Ég tók hins vegar eftir því að
Össur Skarphéðinsson hætti að
nota slaufu og fékk sér bindi þegar
hann tók við formennsku í Sam-
fylkingunni. Ég vildi vita hvers
vegna.“
Svavar Örn segist ekki hrifinn af
þverslaufum: „Það er eins og menn
með slaufur hafi lesið yfir sig. Þeir
verða eitthvað svo óeðlilega gáfu-
legir og það er ekki smart."
Símaæðið í algleymingi:
30 prósent
aukning í GSM
íslendingar tala 30 pró-
sent meira í GSM-síma í
dag en þeir gerðu fyrir ári.
Um leið hefur notkun á al-
mennum talsímum dregist
saman um 5 prósent. Gert
er ráð fyrir að þróunin
haldi áfram og ef svo held-
ur fram sem horfir þá á
GSM-síminn eftir að út-
rýma gamla talsímanum
áður en langt um líður.
„Það eru 210 þúsund virk
GSM-símanúmer i notkun í
landinu en þess ber að gæta
að margir eru með fleiri en eitt
númer. Talsímarnir eru hins vegar
106 þúsund og hefur fækkað um
þúsund frá því í fyrra,“ segir
Heiðrún Jónsdóttir, upplýsinga-
stjóri Símans, sem sjálf er með fjög-
Heiörún á Sím-
anum
210 þúsund virk
GSM-númer í
landinu.
ur símanúmer. „Við send-
um út 210 þúsund símreikn-
inga í mánuði og viðskipta-
vinir okkar senda 200 þús-
und SMS-skilaboð á dag.“
Að meðaltali má gera ráð
fyrir að á hverju islensku
heimili sé einn talsími og
tveir GSM-símar. Útgjöld
heimilanna vegna síma-
notkunar hafa rokið upp þó
tölur Símans sýni annað.
Hófleg símanotkun eldra
fólks dregur meðaltalið nið-
ur en ljóst er að fólk sem
greiddi um 3.500 krónur í símreikn-
ing fyrir fimm árum er nú almennt
komið upp fyrir 10 þúsund krónur í
símakostnaði og 20 þúsund króna
símreikningar eru ekki óalgengir.
Grátt gaman
Flugleiöaþota er notuö í samsettri mynd sem birt er á sænskri vefsíöu og á aö
sýna árás hermdarverkamanna á sænska sveit. Þotan stefnir til jaröaryfir
grænum ökrum þar sem búfé er á beit. Hvers vegna Flugleiöaþota? Ekki vitaö.