Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2002, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2002, Page 21
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 I3V Helgarblað 21 DV-MYND ÞÖK Sigríður Guðnadóttir Hún söng fagurlega meö Jet Black Joe hér um árið og snýr nú aftur meö lög Janis Joplin á dagskránni og stór- sveit aö baki sér. Sigga Guðna aftur á sviðið - snýr aftur með lög Janis Joplin, stórsveit og kynni Mjög margir muna eftir Sigríði Guðnadóttur þegar hún stóð í fram- línu síðhippasveitarinnar Jet Black Joe á árunum 1993 til 1994 og söng lag- ið Freedom. Þá voru vinsældir þessar- ar undarlegu sveitar, sem dýrkaði hippatónlist sjöunda áratugarins meira en allt annað, gríðarlega miklar og gott ef heimsfrægð var ekki rétt handan við hornið. Það fór nú samt svo að rétt neðan til við toppinn valt hljómsveitin Jet Black Joe um koll og liðaðist fóru- neyti hennar allt í sundur og brakið skoppaði hingað og þangað. Siðan hef- ur ekki farið mikið fyrir sveitinni sem slíkri ef frá eru taldar nokkrar tilraunir til að endurreisa flakið á síð- asta sumri. Eftir þetta gekk Sigríður Guðna- dóttir söngkona til liðs við aðrar hljómsveitir og mætti hér rifja upp sveitina Rask, sem innihélt bæði hinn síðhærða og fámála gítarsnilling Bergþór Morthens og Pétur Guð- mundsson, Þórarinssonar sem er alltaf kenndur við frelsara alls mann- kyns og kallaður Pétur Jesú. Sú varð ekki langlíf heldur og lengst af síðan hefur Sigríður látið sér nægja að koma fram í einkasamkvæmum og á árshátíðum auk þess að vera riðin við rekstur nudd- og snyrtistofunnar Englakroppa. En nú verður á þessu breyting því Sigríður ætlar að stiga aftur á sviðið og hasla sér völl sem söngkona. Hún hefur þegar fengið forsmekk af nýjum ferli þegar hún kom fram með Hirti Howser píanóleikara á Kaffi Reykja- vik og KafFi Rómans nokkrum sinn- um í haust og stundum hefur Kristján Edeistein gítarleikari verið með þeim í fór. Ekkert Southern Comfort Næsta fimmtudag ætlar svo Sigríð- ur að stiga á svið á Gauki á Stöng með sérstaka dagskrá helgaða lögum Janis Joplin. Að baki henni mun standa stórsveit skipuð þeim Hirti Howser á píanó, Kristjáni Edelstein á bassa, Ey- steini Papa á trommur, Haraldur Þor- steinsson plokkar bassann og sveit- inni til halds og trausts er siðan popp- fræðingurinn og Joplin-aðdáandinn Andrea Jónsdóttir útvarpskona sem mun verða kynnir en enginn veit meira um líf og verk Joplin en hún. Sveit Joplin hét á sínum tíma Big Brother and the Holding Company og mín ágiskun er sú að í þessu sam- starfi sé það Hjörtur Howser sem er Stóri bróðir eða Big brother. „Joplin hefur alltaf verið átrúnað- argoð mitt númer eitt,“ sagði Sigríður Guðna í samtali við DV. „Hún var að vísu aö deyja um líkt leyti og ég fæddist en ég kynntist hennar lögum þegar ég söng með Jet Black Joe og við fluttum nokkur þeirra á okkar tónleikum. Mér hefur verið sagt að ég geti vel hljómað eins og hún. Janis gerði stundum vitleysur í söngnum en til- flnningin var alltaf 100% og meira en það.“ - Eitt af vörumerkjum Joplin var að hún var ekki alltaf allsgáð á svið- inu og flaska af hinum rótsterka og dísæta Southem Comfort-drykk var sjaldan langt undan og Joplin átti það til að staupa sig ótæpilega. Verður Southern Comfort með í fór? „Nei, ég hef aldrei þurft á slíkum meðulum að halda til að komast í stuð,“ segir Sigriður og hlær innilega að þessari strákslegu uppástungu. Á tónleikunum verða lög Joplin flutt nokkum veginn í tímaröð og verður Andrea með sjaldheyröa fróð- leiksmola miili laga. Auk laga sem Joplin flutti og hennar eigin laga verða sennilega leikin þama lög sem tengjast söngkonunni og hafa t.d. ver- ið samin um hana. Móðursystirin mætt aftur Sigríður segir að siðan muni tón- leikar og skemmtanir á Kaffl Reykja- vík fylgja í kjölfarið og samningar við fleiri staði þótt söngkona telji of snemmt að upplýsa hverjir það verði. Eins og margir muna var það hinn þekkti söngvari Páll Rósin- krans sem stóð í framlínu Jet Black Joe en Sigríður er móðursystir hans. Hún segir að þetta hljómi alltaf í sínum eyrum eins og hún sé aldurhnigin frænka Páls en hið rétta er að þau era næstum jafngömul og því ekki sá kynslóðamunur milli þeirra sem nafngiftin móðursystir gæti gefið til kynna. „Við höfum alltaf verið góðir vinir og nánir, næstum eins og systkini, enda bæði hluti af mjög stórri fjöl- skyldu. Þessi fjölskylda er öll í Kross- inum og þar vorum við Palli líka þótt hvorugt okkar sé þar nú um stundir." Sigríður segist samt enn vera skráð í Krossinn og fara þangað á samkomur þegar hana fýsir að heyra Guðs orð. En um þessar mundir á söngurinn hug hennar all- an og það verkefni að komast aftur af stað sem söngkona. „Söngurinn er mitt líf og yndi. Þótt ég hafi verið að fást við skemmtileg verkefni á öðrum sviðum þá finnst mér alltaf eitthvað vanta í lífið ef ég er ekki að syngja." PÁÁ Vikulegt flug ti Rimin íl |Í nlilllil í sumar II frá 39.805 * fyrstu 300 sæti - n ■ Rimini 1 p Perlan við Adríahafið ^ Heimsferðir bjóða í sumar dvöl á hinum geysivinsæla strandstað Rimini á Ítalíu. Rimini við Adríahafið er einn stærsti og vinsælasti sumarleyfisstaður í Evrópu enda sækja hingað ferðamenn alls staðar að úr heim- inum til að njóta þess sem staðurinn hefur að bjóða. Heimsferðir bjóða þér vinsælustu gististaðina á Rim- ini, ífábærlega staðsetta við ströndina og örugga þjón- ustu fararstjóra Heimsferða, sem bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Fyrstu 300 farþegamir tryggja sér ótrúleg kjör á ferðinni til Rim- ini og stórlækkun á verði ferðar frá því í fyrra. Helmsferðir stórlækka verðið til Rimini Yfir 20.000 kr. verðlækkun á mann frá því í fyrra Fyrstu 300 sætin á sértilboði Frábærir gistlstaðir Heimsferðir bjóða þér topp gististaði í hjarta Rimini, rétt við fallega ströndina. Verðkr. 39.805 M.v. hjón með 2 böm, 23. maí, Auriga Apartments, 5 nætur með 8.000 kr. afslætti. Verðkr 58.950 M.v. 2 í stúdíó, Auriga, 12 nætur, 20. júní, með 8.000 kr. afslætti. Kynntu þér Ítalíubækling Heimsferða Beint flug alla fimmtudaga Brottför frá Keflavík kl. 17.30 Flug heim á briðjudagsmorgnum Qpið í dag frá kl. 13-16 Heimsferðir Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.