Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002 PV Lögreglan í Reykjavík ákærir fimm unga innbrotsþjófa í „einum pakka“: Stálu og skemmdu fyrir 12-15 milljónir króna - brotist var inn í 253 íbúðir og 543 verslanir og fyrirtæki í Reykjavík á síðasta ári Fimm 17-24 ára karlmenn hafa verið ákærðir fyrir innbrot og þjófnaði þar sem verðmætum var stolið eða reynt að stela fyrir 7,7 milljónir króna. Lögreglan telur ekki óvarlegt aö ætla að piltamir hafi valdið tjóni fyrir a.m.k. 5 millj- ónir króna. Hraðbanki í MH, pen- ingaskápur í fyrirtæki, fjöldi far- tölva og stafrænna myndavéla var meðal þess sem þjófamir glímdu við. Þeir hafa játað flest af því sem lögreglan hefur ákært þá fyrir - inn- brot og þjófnaði á tugi staða, flest í fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. í sumum tilfellum voru einungis skemmdarverk unnin. Flest atvikin áttu sér stað á sið- asta ári en allt það ár voru alls á sautjánda hundrað innbrota framin í Reykjavík einni (Mosfellsbær og Seltjamames teljast með). 253 inn- brot voru i íbúðir, 543 í verslanir, fyrirtæki, skóla og stofnanir en 834 i bíla. Lögreglan segir að í langflest- um tilfellum liggi fikniefnaneysla að baki. í flestum þessara innbrota séu þjófamir neytendur sem era annaðhvort að afla sér fjármuna til að greiða fíkniefnaskuldir eða tO að fjármagna áframhaldandi neyslu. Innbrotiö á jólanótt Hraöbanki aö andviröi 2 milljónir króna var stórskemmdur í húsakynn- um Menntaskólans viö Hamrahlíö. Innbrot á jólanótt Ungu mennimir fóru viða og frömdu afbrot sín á ýmsum tímum - meðal annars á jólanótt. Þá bratu tveir þeirra sér leið inn í Mennta- skólann við Hamrahlíð, bratu rúðu í útihurð og spenntu svo upp báðar útidyrahurðimar. Reyndu þeir að brjótast inn í hraðbanka Búnaðar- bankans innandyra með því að skera og brjóta ytra byrðið en án ár- angurs. Reyndu piltamir síðan að DV og Ferðaskrifstofan Terra Nova-Sól hafa gert með sér sam- komulag annað árið í röð um sér- stakan afslátt til áskrifenda blaðs- ins. Um er að ræða verulegan afslátt í leiguflugsferðir til Algarve í Portú- gal og í sumarhús í Kempervennen í Hollandi. Báðir þessir staðir era íslending- um að góðu kunnir en þeir hafa ver- ið með vinsælustu áfangastöðum ís- lenskra ferðaskrifstofa um árabil. Ferðir Terra Nova-Sólar til Portú- gals era flognar í beinu vikulegu leiguflugi fram til loka október. Flogið er með SATA Intemational sem er annað tveggja ríkisflugfélaga Portúgals. Áskrifendum DV stendur til boða val milli tveggja íbúöahót- ela í Albufeira. Annað þeirra er Paraiso de Albufeira, sem fullyrða má að sé eitt allra glæsilegasta íbúðahótel sem íslenskar ferðaskrif- stofur bjóöa í Suöur-Evrópu. Farþegar til Kempervennen stela hraðbankanum, sem er að verðmæti 2 milljónir króna, með því að losa festingar hans en flúðu af vettvangi þegar styggö kom að þeim. Annar þeirra hafði sömu nótt farið inn í húsnæði Olís við Sunda- garða, spennt upp glugga og stolið frímerkjum og peningum fyrir tæp- ar 50 þúsund krónur. Hann fór einnig inn í Húsasmiðjuna við Skútuvog og Olís í Grafarvogi þar sem hann stal peningum. Fartölvur eftirsóttar Fartölvur era greinflega mjög eft- irstóttar hjá þjófum sé miðað við mál flmmmenninganna. Einn af ungu mönnunum fór meðal annars hm í Elkó og BT-tölvur í Kringlunni þar sem hann stal tölvum fyrir and- virði rúmlega 400 þúsund krónur. Hann braust einnig inn í fyrirtækið Vélar og þjónusta við Jámháls þar sem hann stal ferðatölvu að verð- mæti 220 þúsund. Einum af mönnunum er gefíð að sök að hafa tvo daga i röð brotist inn í verslunina BT-tölvur í Garða- bæ. Annan daginn stal hann ferða- tölvum og stafrænum myndavélum að verðmæti tæpar 1,2 milljónir króna. Peningaskápur Eigendur fyrirtækisins Stál og stansar við Vagnhöfða vora svo for- sjálir að festa peningaskáp fyrirtæk- isins tryggilega. Tveir af mönnun- um brutust þar inn á annan í jólum, spenntu upp útidyrahurð og reyndu svo að stela skápnum. Þeim tókst ekki að losa hann og hurfu þvi á braut. Sömu menn brutust nóttina eftir inn í Merkúr hf. í Skútuvogi 12a, spenntu upp útidyrahurð en stálu svo 4 tölvum, 4 tölvuskjám og 4 lyklaborðum að verðmæti um 700 þúsund krónur. Sömu nótt fóra þeir inn í fyrirtækið Uppdælingu að Fosshálsi 1 þar sem þeir stálu tölvu, Reyndu að taka peningaskáp í húsnæöi Stáls og stansa viö Vagn- höföa voru eigendur svo forsjálir aö festa skápinn tryggilega. prentara og skjá að verðmæti 120 þúsund krónur. Og enn einni nótt síðar vora greipar látnar sópa i Hans Petersen, Laugavegi 178. Þá var tölvu að verð- mæti 420 þúsund krónur stolið. Bill tekinn á Selfossi Tveir úr hópnum fóru í janúar síðastliðnum í Bílasölu Selfoss þar sem þeir tóku bíl ófrjálsri hendi og óku honum til Reykjavíkur. Hann var falinn í Seljahverfi. Tveimur nóttum síðar fóru þeir á bilnum að húsnæöi Office í Skeifunni og þaðan annað. Síðar brutust þeir inn í Office og stálu tölvu og 2 skjávörp- um samtals að verðmæti 1,5 milljón- ir króna. Fimmmenningamir frömdu fjölda annarra innbrota og þjófnaða þar sem þeir náðu sér í ýmislegt fé- mætt (sjá graf). Engu að síður voru ýmsir staðir þar sem einungis skemmdir vora unnar, það er að mönnunum tókst ekki að komast yfir það sem þeir ætluðu sér. Þeir hafa aflir mætt fyrir dómara þar sem þeir viðurkenndu aflir nema einn þau brot sem lögreglan ákærir þá fyrir. Dómur verður upp kveöinn innan nokkurra vikna. -ótt munu fljúga með þýska flugfélaginu Aero Lloyd til Dússeldorf en þar tekur fararstjóri Terra Nova-Sólar á móti farþegum og fylgir þeim tfl Kempervennen sem er í eins og hálfs klukkustundar akstursfjar- lægð. Ævintýraheimur Kemper- vennen er engu líkur og fjölbreytt- ari dægradvöl fyrir fjölskyldur er óviða að finna. Ferðaávísanir DV í ár eru að verðmæti 20.000-35.000 krónur, allt eftir því hve lengi viðkomandi hefur verið áskrifandi að blaðinu. Áskrif- endur DV sýndu sl. sumar að þeir kunnu svo sannarlega að meta að fá ferðaávísun upp á tugi þúsunda og ferðuðust rúmlega 1.300 áskrifendur með Terra Nova-Sól til sólarlanda á þessum sérkjöram. Afhending Ferðaávísana DV hefst þriðjudaginn 2. apríl. Þaö er jafn- framt fyrsti söludagur á ofangreind- um ferðum. -hlh Fréttir Lágmarkslíf- eyrir verði tryggður Þingmenn Fijálslynda flokks- ins hyggjast bera upp tiflögu til þingsályktunar um tryggan lágmarks- lífeyri Islendinga. Þar er skorað á Al- þingi að bæta þjóð- félagsstöðu lífeyris- þega sem fá minni lífeyri greiddan úr lífeyrissjóði sínum en 40 þús. kr. á mánuði með því að breyta bótareglum almannatrygginga þannig að lífeyris- greiðslur undir 40 þús. kr. á mánuði skerði ekki grunn- lífeyri, tekjutrygg- ingu, heimilisupp- bót eða aðrar bætur lífeyrisþegans. Fyr- ir hverjar 10 þús. kr. sem lífeyrir er um- fram 40 þús. kr. verði skerðingin fjórð- ungur þess sem nú er, fyrir hveijar 10 þús. kr. sem lífeyrir er umfram 50 þús. kr. verði skerðing helmingur þess sem nú er og fyrir hverjar 10 þús. kr. um- ffam 60 þús. kr. 3/4 þess sem nú er. I greinargerð segir að vitað sé að líf- eyrisgreiðslur séu of lágar til að geta ver- ið meginstoð lífeyrisþega. „Rétt er að vekja athygli á þvi að eins og reglan er út- færð minnkar hún svoköfluð jaðarskatta- áhrif. Verði tíllagan samþykkt og ffarn- kvæmd eftir efhi sínu verður hagur Uf- eyrisþega með lágan lífeyri mun tryggari en nú er,“ segir í greinargerðinni. -BÞ Haröur árekst- ur í Djúpadal Mjög harður árekstur tveggja biffeiða varð í Djúpadal, mifli HeUu og Hvolsvaflar, skömmu eftir hádegi í gær. Annarri bifreiðinni var ekið yfir brúna yfir Eystri-Rangá en þegar bif- reiðin var rétt komin yfir brúna rann hún til vegna hálku og hvassviðris og hafnaði á bifreið sem kom úr gagn- stæðri átt. Áreksturinn var mjög harð- ur en fólk í bifreiðunum sakaði þó ekki. Bifreiðimar báðar þurfti hins vegar að færa í burtu með krana. -gk Sonja W.B. de Zorrilla látin Sopja Wendel Benjamínsson de Zorrilla kaupsýslumaður lést á Landspítalanum í Fossvogi að morgni fóstu- dagsins 22. febrú- ar sl. Hún var fædd í Reykjavík 18. nóvember 1916. Foreldrar hennar vora Ólafúr Benja- minsson stór- kaupmaður og María Emelie Wendel. Sonja bjó í Danmörku, Þýska- landi, Bretlandi og Frakklandi á ár- unum 1932 til 1939 og stundaði nám i myndlist og tískuteUmun, auk þess að læra fjölda tungumála. Um það bil sem seinni heimsstyijöldin skafl á hélt hún með spænsku kaupfari til New York þar sem hún bjó næstu sex áratugina. í New York lagði hún fyrir sig myndlist og fjárfestingar á Wall Street. Sonja þótti útsjónarsöm í viðskiptum. Hún ritaði fiölda greina um tísku í Morgunblaðið á árabilinu 1938 til 1963. Sonja kynntist verðandi eigin- manni sínum, Alberto Zorrilla, Ólympíumeistara í 400 metra skrið- sundi, í New York. Þau bjuggu alla sina tíð á Park Avenue á Manhatt- an. Alberto lést árið 1986. Þau voru bamlaus. Sonja kom að mestu al- komin tfl íslands árið 2000. Útfór Sonju verður gerð ffá Reykjavík en síðar verður haldin minningarathöfn um hana í New York. -rt DV ogTerra Nova-Sól semja um afslátt í leiguflugsferðir til Portúgals og Hollands: Allt að 35 þúsund króna afsláttur til áskrifenda DV 20.000-30.000 króna afsláttur Rúmlega 1.300 áskrifendur nýttu sér feröaávísanir DV í fyrra og feröuöust meö Terra Nova-Sól til sólarlanda. Afhending Feröaávísana DV 2002 hefst þriöjudaginn 2. apríl en þaö er jafnframt fyrsti söludagur á feröum til Portú- gals og Hollands. Guðjón A. Kristjánsson. Sverrir Hermannsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.