Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2002, Síða 56
,C-
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 28. MARS 2002
r
4
4
4
4
Viðskiptabankar lækka vexti eftir lækkun stýrivaxta Seðlabanka:
Stefnubreyting hjá
Seðlabankanum
- segir Þjóðhagsstofnun sem telur að vaxtalækkun hafi ekki verið tímabær
Þjóðhagsstofiiun telur að vaxtalækk-
un Seðlabanka hafi ekki verið tíma-
bær og stendur við þær yfirlýsingar
sem fylgdu endur-
, Katrín
Ólafsdóttir.
skoðaðri þjóðhags-
áætlun í síðustu
viku þess efnis
óráðlegt væri að
lækka vexti að svo
stöddu. Þetta sjón-
armið kemur bæði
fram hjá Þórði
Friðjónssyni, for-
stjóra stofiiunar-
innar, og sérfræð-
ingi hennar í þjóðhagsspám, Katrinu
Ólafsdóttur. Katrín sagði í samtali við
DV í gær betra hefði verið að bíða þar
til efhahagslegar aðstæður gæfu ótví-
rætt tilefni til lækkunar. Aðspurð
kveðst Katrín til dæmis eiga við að
eðlilegt hefði verið að bíða með þessa
ákvörðun þar til ljóst væri hvað gerð-
ist i tengslum við rauða strikið svo-
kallaða.
Hún segir hins vegar óljóst ná-
kvæmlega hvaða þjóðhagslegu áhrif
þessi lækkun muni hafa í þeirri stöðu
sem nú er uppi, en ljóst sé að almennt
séu vaxtalækkanir þensluhvetjandi.
Kartín telur að um ákveðna stefhu-
breytingu sé að ræða í peningamála-
steftiu Seðlabankans með því að fara í
vaxtalækkun núna en er hins vegar
ekki tilbúin til að kveða upp úr um
hver ástæða þeirrar breytingar sé,
hvort hún sé til komin af pólitískum
þrýstingi eða eingöngu mati á breytt-
Smáauglýsingardeild DV er lokuð
skirdag, fóstudaginn langa, laugar-
daginn 30. apríl og páskadag.
Opið verður mánudaginn 1. apríl
frá kl. 16-20.
Blaðaafgreiðsla DV er opin í dag,
skírdag, frá kl. 6-10.
Þjónustuver DV er opið í dag, skir-
dag, frá kl. 0-18.
Lokað fostudaginn langa, páskadag
og mánudaginn annan í páskum.
Ritstjóm er lokuð skírdag, fóstud.
langa, páskadag.
Vakt á ritstjóm verður annan í
páskum, frá kl. 14-20.
Fyrsta blað eftir páska kemur út
þriðjudaginn 2. apríl á venjulegum
tíma.
Gleðilega páska!
Þjóöhagsstofnun
Þjóöhagsstofnun stendur við fyrrí
yfirlýsingar um að ekki hafi verið
tímabært að lækka vexti.
um forsendum. „En vissulega hljóta
menn að velta fyrir sér spumingunni
um sjálfstæði Seðlabankans sem slíks
og í því sambandi er mjög mikilvægt
að hann festi sig í sessi sem slíkur og
því hefði e.t.v. mátt búast viö að það
hefði verið prinsippmál hjá bankanum
að halda sínu fýrra striki,“ segir
Katrín.
Viðskiptabankamir hafa hins vegar
brugðist vel við lækkun Seðlabankans
og Ijóst er að vextir munu nú um mán-
aðamótin lækka til samræmis við
stýrivextina. Þannig reið bankastjóm
Landsbankans á vaðið strax í gær-
morgun og tilkynnti um lækkun
óverötryggðra skuldabréfa, afurða-
lána, yfirdráttarlána og víxla um 0,6-
0,9%. Það er mat bankans að ef spár
Seðlabankans um lækkandi verðbólgu
á næstunni ganga eftir megi búast við
þvi að skilyrði fyrir 1-2% almennri
vaxtalækkun geti skapast á næstu 12
mánuðum. Þetta er nokkuð í takt við
það sem greiningardeild íslandsbanka
hefur komist að en þar á bær tala
menn um 200 punkta eða um 2ja pró-
sentustiga lækkun gæti orðið á þessu
ári að lækkuninni í gær meðtalinni.
Að mati Greiningar ÍSB er það einkar
mikilvægt fyrir trúverðugleika pen-
ingastefnu Seðlabankans að vaxta-
lækkunin nú skili sér með varanlegri
hætti inn á peningamarkaðinn en
gerðist í nóvember.
„Greining ISB telur ekki líklegt að
vaxtalækkunin nú muni veikja krón-
una. Þetta er lítil lækkun m.v. vaxta-
muninn i heild sem er um 8% til
þriggja mánaða auk þess sem vextir á
millibankamarkaði hafa verið töluvert
hærri en stýrivextir Seðlabankans,"
segir í greinargerð Greiningar. ís-
landsbanki og Búnaðarbanki tilkynntu
um vaxtalækkanir í gær, Búnaðar-
bankinn um 0,75% lækkun útláns-
vaxta og Islandsbanki um 0,5% lækk-
un til viðbótar því sem ákveðið var í
siðustu viku. -BG
Val á páskaliljum
Konurnar velja páskaliljurnar af kostgæfni oggæta þess
útsprungnar um of. Fegurð blómanna þarf aö endast
DV-MYND HARI
aö þær séu ekki
alla páskana.
Ungur síbrotamaður sem lofar bót og betrun gagnvart neyslu fíkniefna:
Sautjan ara i Hegning-
arhúsinu í sex vikur
- fær nú sex mánaða fangelsi. Barnavemdarnefnd fylgdist með
Sautján ára og ólögráða piltur hefur
síðustu sex vikur verið vistaður í
gæsluvaröhaldi í Hegningarhúsinu.
Venjulega eru gæslufangar vistaðir á
Litla-Hrauni en ákveðið var að hafa
hann þama vegna ungs aldurs hans.
Engu að síður þótti nauðsynlegt að
setja piltinn irrn í byijun febrúar til að
koma í veg fyrir frekari afbrot hans.
Pilturinn var á þriðjudag dæmdur í 6
mánaða fangelsi. Dómarinn ákvað að
hafa refsingu hans óskilorðsbundna í
ljósi þess að afbrot hans þykja það
mörg og brotavilji sterkur. Hann hefúr
játaö brot sín og lýst yfir vilja til að
hættá neyslu fikniefha.
Golfklúbbur Reykjavíkur, Húsa-
skóli. Sjóvá-Almennar, ÁTVR í Spöng-
inni og eigendur fjölda bíla sem piltur-
inn skemmdi og stal munum úr hafa
lagt fram um 1,5 milljóna króna skaða-
bótakröfúr á hendur piltinum. Dómar-
inn gat ekki tekið bótakröfuna fyrir
þar sem lögráðamaður piltsins var
ekki til staðar. Hins vegar var fúlltrúi
Bamavemdamefndar Reykjavíkur í
dómsalnum.
Pilturinn gekk út í frelsið á þriðju-
dag, daginn sem gæsluvarðhaldið rann
út og eftir að hinn sex mánaða fangels-
isdómur hafði verið upp kveðinn.
Dómurinn verður nú sendur Fangels-
ismálastoínun en þar getur ungi mað-
urinn sótt um að fá að taka refsinguna
út í samfélagsþjónustu. Verði það
heimilað verður hann í vinnu á vegum
samfélagsins en undir eftirliti og verð-
ur þá m.a. kannað hvort hann standi
sig gagnvart neyslu fikniefna og áfeng-
is. Einnig er gert ráð fyrir að bama-
vemdaryfirvöld fylgist með.
Pilturinn var dæmdur fyrir 11 af-
brot. í eitt skiptið raddist hann með
sex öðrum inn í klúbb GR þar sem þeir
tóku 3 golfbíla traustataki og óku á
brott í þeim áleiðis að Geldinganesi.
GR leggur fram 348 þúsund króna
bótakröfú vegna skemmda á bílunum.
Hann stal myndvarpa og öðm að verð-
mæti 400 þúsund krónur í Húsaskóla
en hljómtækjum að verömæti 150 þús-
und i Hvassaleitisskóla. Einnig braust
pilturinn inn í fjölda bíla. -Ótt
Laugavegur:
Fermingar-
drengur rændur
„Mér fmnst þetta alveg hræðilegt
mál,“ segir Særún Lisa Birgisdóttir á
Kjalamesi í samtali við DV. Sonur
hennar, Brynjólfur Amarson, brá sér í
bæinn á mánudaginn og hugðist leggja
peningana sem hann fékk í fermingar-
gjöf á sunnudaginn inn í banka. Áður
en þangað kom hafði hann viðkomu í
versluninni Mótor á Laugavegi 81.
Hann var með peningaveskið í vasan-
um, en þegar út kom varö hann þess
áskynja að þaö var horfið. í því vom
þeir peningar sem hann fékk að gjöf,
um sjötíu þúsund krónur. Málið hefur
verið kært til lögreglu.
Magnús Ingólfsson er kaupmaður í
Mótor og hann staðfesti atburðinn í
samtali við DV. Hann kveðst hafa
ákveðna unga menn grunaða um að
hafa rænt veskinu úr vasa Brynjólfs.
Þeir hafi verið á sveimi á þessum slóð-
um um líkt leyti. „Ég er miður min
vegna þessa. Hef verið að íhuga að
setja af stað söfhun svo Brynjólfúr fái
fermingarpeningana sína aftur.“ -sbs
Ríkisstjórnin lækkar vörugjald á bensín:
Bensínlítri lækkar um 1,90 krónur
Ríkisstjómin hefur sent frá sér
yfirlýsingu um lækkun bensín-
verðs, þá sömu og sagt var frá í DV
í gær. í yfirlýsingunni segir að rík-
isstjómin telji mikilvægt að allir
leggi sitt af mörkum til þess að
tryggja áframhaldandi stööugleika á
vinnumarkaði. Hækkun bensin-
verðs á heimsmarkaði gæti haft um-
talsverð áhrif til hækkunar á bens-
ínverði hér á landi og stofnað verð-
lagsmarkmiðum kjarasamninganna
í hættu.
„Þess vegna hefur ríkisstjórnin
ákveðið að lækka bensíngjald um
1,55 krónur eða úr 10,50 í 8,95 krón-
ur á hvem
bensínlítra.
Þetta mun hafa
í för með sér
rúmlega 1,90
króna lækkun á
útsöluverði
bensins.
Ákvörðunin
gildir til
júníloka og
kostar ríkissjóð
um 80 m. kr,“ segir í yfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar.
Segir enn fremur að ákvörðunin
sé tekin í trausti þess aö olíufélögin
Runólfur
Ólafsson.
leggi jafnframt sitt af mörkum til
þess að tryggja verðlagsmarkmið
kjarasamninga þannig að ekki komi
til bensinverðshækkunar um næstu
mánaðamót.
„Ég fagna þessu og vona að menn
sjái ástæðu til að hafa verðlagsmál
bensíns áfram í sama farinu, þetta
verði ekki tímabundin ráðstöfun.
Skattar em allt of hátt hlutfall bens-
inverðsins eða 65%. Því má segja að
það hafi verið lag til lækkunar,"
sagði Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, við DV í gær. -hlh
Sjá innlent fréttaljós bls. 14.
Brother PT-2450 merkivélln er komln
Mögnuð vól
sem, með þlnnl hjálp,
hefur hlutina í röö
ogreglu.
Snjöll og góö lausn á : - -:
óreglunni.
Rafport
Nýbýlavegi 14 • sími 554 4443 • www.rafport.is!
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4