Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Blaðsíða 51
50
Helqarhlaö 30V LAUGARDAGUR II. MAÍ 2002
LAU GARDAG U R II. MAf 2002
Helgarbfaö 30V
5
UMMÆLI OKUMANNA
Nick Heidfeld, Sauber, 5 stíg
.Ég hlakka verulega til austurríska kappakstursins.
Brautin hefur lítið grip og hentar bíl okkar mjög vel
og það líkar mér. Ég á góðar minningar frá besta
árangri mínum í timatökum á síðasta ári frá Austur-
ríki. Ég vonast eftir góðum úrslitum í Ijósi árangurs
míns í síðustu keppni í Barcelona."
Jenson Button, Renault, 8 stig
„Slœm útreið mín í Barcelona hindrar alls ekki undir-
búning minn fyrir þessa keppni. í hvert skipti sem ég
hef klárað á þessu ári hef ég klárað í stigum og við
vitum að ef bíllinn er áreiðanlegur náum við góðum
úrslitum. Ég geri ráð fyrir því að við verðum í sama
gceðaflokki og í síðustu keppni og býst við að
McLaren og Sauber verði aðalkeppinautar okkar."
Giancarlo Fisichella, Jordan, 0 stig
„Ég er yfirleitt mjög ánœgður með að keppa á
Zeltweg þar sem þetta er fallegur keppnisstaður
sem fœrir mér góðar endurminningar. Árið 1997 átti
ég frábœra keppni þar sem ég byrjaði 14. og end-
aði fjórði og einnig var það á A-1 ring þar sem ég
gerði minn fyrsta rásþól. Ég lít á þetta eina af fjórum
Ítalíu-keppnum sé litið á fjölda aðdáenda, í hópi
með Imola, Monza og Monte Carlo."
Ralf Schumacher, Williams, 20 stig
„Ég sagði fyrir spánska kappaksturinn og ekkert hef-
ur breyst síðan við komum til með að verða mikið
nœr Ferrari 1 Austurríki, einfaldlega því brautin hent-
ar bíl okkar vel. Við erum komnir með nýja hluti sem
œttu að gera okkur samkeppnishœfari á A-1 ring
með löngu beinu köflunum og hröðu beygjunum.
Ég vona að allir hafi unnið heimavinnuna sína vel,
þar með ég sjálfur, siðan í síðustu keppni."
1«
Þokuljós. ABS, LoflpúSar, Ný skoðaður,
næsta skoðun 2004, Fjörutíu þus km
skoðun og olíuskipyi. Asett verð samkv
„Bíló" kr. 835.000. Allt að fögura ára
DÍlalán með 239700 í útborgun.
Tilboðsvsrð kr 799.000
Flottur töffara bill.
Ek. 89 þ. Svartur. Álfelgur. "Abarth”
sport innrétting.
Þokuijós. Rafmagn i öllu. sk.04
Ásett verð 712.000.
Tilboðsverð 650.000
Marea Weekend 1,6 SX 3/97
Notadr|úgur 6 ótrúlogu vorði.
Ek. 77.000. Rauðr. ABS og loftpuðar.
Ný skoðaður. Dráttarbeisli. Tilbúinn
fyrir tjaldvagnin eða kerruna. Ný
yfirfarinn nrieð 80 þ km skoðun, ný
timareim. Ásett verð samkvæmt „Biló"
kr. 880.000
Tilboðsverð kr 699.000
Istraktor
Smiðsbúð 2 - Graðabæ
Simi 5 400 800
Heinz-Harald Frentzen,
Arrows, 1 stig
„Mér líkar verulega við Austurríki.
Brautin er að mestu gerðu úr hœg-
um beygjum, sem gera miklar kröfur
til mikils vœngafls og œtti því braut-
in að hœfa A23 bíl okkar nokkuð
vel. Verra er þó að hœgu beygjurn-
ar og háu beygjukantarnir geta oft
truflað hraðann yfir heilan hring svo
það þarf verulega að halda ein-
beitingunni 1 lagi. Eftir að hafa unnið
fyrsta stigið fyrir liðið á Spáni erum
við allir einbeittir að halda sama
taktinum áfram."
ffOTAÐlR
Fer Jordan
í kjölfar Prosts?
/
Juan Pablo Montoya,
Williams, 23 stíg
„Al-brautin er áhugaverð því hún
er hröð. Ég verð að segja að mér
líkar hún." Hún er nokkuð einföld og
hefur lítið grip sem gerir hana
skemmtilega til að keppa á. Öfugt
við aðra keppnisstaði er austurriska
A-1 brautin bókstaflega fjarri öllu.
Við hjá Williams vorum sterkir þarna
á síðasta ári, þrátt fyrir að við Ralf
brygðumst að vinna inn stig vegna
bilana vorum við í góðri stöðu. Við
verðum sterkari en í Barcelona svo
ég hlakka til."
-ÓSG
Undanfarið hafa
verið miklar umræð-
ur um það hvert For-
múla 1 stefnir. Eftir
að hafa verið vin-
sælasta sjónvarpsíþróttin í heimin-
um til fjölda ára hafa skuggar
hryðjuverkanna þann 11. september
haft sín áhrif á kappaksturinn rétt
eins og efnahaginn í heiminum öll-
um. Peningaflæði auglýsenda hefur
farið minnkandi og það hefur kom-
ið harkalega niður á nokkrum lið-
anna sem nú hafa sum hver þurft að
gripa tU aögerða tU að koma í veg
fyrir að þau fari i kjölfar keppn-
isliös Alains Prosts sem var úr-
skurðað gjaldþrota í byrjun ársins.
KaUað hefur verið eftir breytingum
á reglum Formúlunnar tU þess að
spara fjármagn ef sportið á yfir höf-
uð að geta haldið áfram á sömu
braut. Sjötta keppni ársins verður
haldin i Austurríki á A-1 hring um
þessa helgi og búast flestir fastlega
við því að sigurganga Michaels
Schumachers, sem unnið hefur íjór-
ar af fimm fyrstu keppnunum, haldi
áfram á meðan Honda-knúnu liðin
BAR og Jordan eru saman á botnin-
um og eru einu liðin sem eru enn án
stiga.
Uppsagnir hjá Jordan
Rétt fyrir Spánarkappaksturinn
fyrir hálfum mánuði tilkynnti
Eddie Jordan starfsmönnum sínum
að hann væri nauðbeygður að segja
upp stórum hluta starfsmanna
sinna til þess að geta geta séð fram
á að ná endum saman í lok ársins.
Fimmtán prósent starfsmanna
fengu að fjúka frá liðinu sem fyrir
þrem árum var þriðja besta keppn-
isliðið og vann þrjár keppnir á ár-
unum 1998 og ‘99 og ökumaður liðs-
ins, Heinz-Harald Frentzen, átti
möguleika á aö keppa um heims-
meistaratitilinn. Síðan þá hefur ár-
angur liðsins verið á hraöri niður-
leið og árið í ár stefnir í að verða
það versta í sögu liðsins. „Ég trúi
því að þessi niðurskurður komi til
með að gera okkur fært að enda árið
á sléttu,“ sagði Eddie Jordan um
síðustu keppnishelgi. „Það er ekki
hægt að halda áfram þessum tap-
rekstri. Brottför starfsmanna
minna, sem eru sumir hverjir mikl-
ir vinir mínir, er mér mjög erfið því
þetta fólk hefur verið hluti af fjöl-
skyldunni svo lengi,“ segir Jordan
og á auðvitaö við keppnislið sitt
sem hann stofnaði 1991. Eftir vel-
gengnina árið 1999 varð liðið að
sækja á til að halda stöðu sinni í
stigakeppninni og fjölgaði starfs-
mönnum verulega og útlitið varð
enn bjartara eftir að Honda gerði
við þá samning um útvegun keppn-
isvélar. Allar vonir og væntingar
hafa hins vegar brugðist liðinu því
bilanir hafa verið tíðar og Honda-
vélin er eflaust sú aflminnsta fyrir
utan Asiatech-vél Minardi-liðsins.
Jordan er nú eina liðið ásamt BAR-
liðinu sem er án stiga og er það
glöggt merki um arfaslakt gengi
Honda-vélanna. í ofanálag hefur sá
orðrómur farið á kreik að Jordan
geti misst vélar sínar því Honda
ætli að beina kröftum sínum að ein-
ungis einu liöi, BAR. Minna auglýs-
ingafé í kjölfar samdráttar eftir
hryðjuverkin og auknar kröfur um
meiri prófanir hafa gert það að
verkum að sjóðir liðsins eru á þrot-
um. „Mig tekur það verulega sárt að
Alain Prost er ekki hér lengur og ég
kæri mig ekki um að fara í kjölfar
hans og við erum aíls ekki í þeirri
stöðu,“ sagði Jordan og bætti við.
„Við reyndum of mikið, við reynd-
um að stækka fyrirtækið í þá mynd
sem aðrir hafa gert. Við héldum að
við værum á topp-þrjú og ættum
heima þar og þyrftum að hafa sömu
aðstöðu og starfsmannafjölda og
McLaren hefur. En við erum ekki
fyrirtæki, við erum fjölskylda.
Keppnislið.“
Niðurskurður á kostnaði
í stöðugri samkeppni sín á milli
hafa stóru keppnisliðin, Ferrari,
McLaren og Williams, aukið prófan-
ir og þróunarvinnu svo mikið að
aldrei hefur eins miklum peningum
verið eytt í þessa hluti í sögu For-
múlu 1. BMW.Williams ók til dæm-
is yfir 20.000 km prófunarakstur í
byrjun ársins, er með 400 manns í
vinnu og BMW er með álíka fjölda
starfsmanna. Eins og gefur að skilja
Heimsmynd Formúfu 1
Eftir mikiar umræður um samdrátt í efnahagsmálurr1 heimsins,
sem gætu haft alvariegar afieiðingar fyrir fjármögntin Formúlu, er
ekki úr vegi að skoða hver staða kappakstursins er á heimsvísu.
Hvernig stendur Formúla 1 gagnvart ððrum iþróttax iöburðum (
sjónvarpl? Formúlu 1 slrkusinn hefur verlð gerður <lð
hetmsviðburði sem veitir hundruðum miiljarða króna hefur yfir
sex milljarða sjónvarpsóhorfenda í uppsöfnuðu áhc'rfi-
Hér sjóum við heiidarmynd Formúlu 1 Grand Prix ki’PPakstursins.
Formúla 1 : Sjónvarpsstríð
Formúla 1 er sýnd beint i 195 löndum.
ífF Meóaláhorfstími á hverja keppni
erum 1000 kist á heimsvisu.
® Meðaláhorf á hverja Formúlu 1 keppni
v~/ er 350.000.000.______________________
® Mesta áhorfiö er í Bretlandl, á ftaliu,
i Rússlandi, Brasilíu, Argentínu
og víða um Asíu.
® Einu iþróttaviðburðirnir sem hafa meira
^ áhorf en Formúla 1 er HM í fótbolta og
Ólympíuleikamlr sem sýndir eru á Ijðgurra ára freíiti
Stór hluti F1 kemur frá Bretiandi Formúlan og ESB
Skýríngar á mynd
£ Þjóðerni ökumanna
é, Höfuðstöðvar liða
Brautir
Bretiand er hjarta Formúlunnar en þar eru
sjö lið, auk FlA-skrifstofunnar f London og
formuluveldls Bornie Ecclestones. Fjórir af
22 Okumönnum skarta auk þess
fánalltunum bresku.
Hjarta Formúlunnar er I Evrópu þótt þai gæti
þrayst á komandi árum. Oll litin ew þar ásamt
ellefu afsautján keppnisbrautum timaþilsins.
Michelin er með höfuóstöðvar sinar i
Frakklandi en japanski
hjólbaróaframieiðandinn Bridgestone er einnig
Gæði umfram magn
Þýskaland er í fyrsta sæti þegar kemur að
ökumönnum, bæði í fjölda og árangri.
Toyota er með höfuðstöðvar sínar f Köln.
Starfsliðið er 550 manns og
starfsmennirnir frá 27 þjóðum.
Interlagos
er það vonlaus barátta fyrir minni
liðin að keppa viö slíkan fjáraustur
og hafa þau kallaö á róttækar breyt-
ingar á reglum Formúlunnar til aö
jafna leikinn og banna prófanir og
setja einhvers konar takmörk.
Nokkur lið hafa þegar tilkynnt að
þau komi til með að minnka prófan-
ir á þessu ári sem kemur eflaust
ekki til með að hjálpa þeim í barátt-
unni um stigin. Eddie Jordan hefur
verið háværastur i gagnrýni sinni
og hefur fengið hljómgrunn frá
fleiri liðsstjórum. Nú síðast hefur
sirkusstjórinn Bernie Ecclestone
tjáð sig um þetta og er greinilega á
þeirri skoðun að það megi spara
mikla peninga með því að minnka
eitthvað af þeirri geysilegu tækni
sem notuð er í Formúlu 1. „Það er
verið að skoða kappaksturinn vel.
Það sem við komum til með að gera
er að taka í burtu einhvem tækni-
búnað og þá þörf að eyða peningum.
Það eru nokkrir hlutir sem hægt er
að gera við bílana tii að spara smá-
aura. Hver bíll kæmi kannski til
með að fara sekúndu hægar en ekki
nokkur maður mundi taka eftir
muninum," sagði Bemie sem hefur
mikilla hagsmuna að gæta í For-
múlunni og hefur eflaust áhyggur af
því að keppnisliðunum fækki. „Ef
öll keppnisliðin eru samþykk því að
bregðast við á sama hátt kemur
þetta ekki til með að gera nokkum
mun á samkeppnishæfni þeirra en
kæmi til með að muna stórlega í
kostnaði.“ Þrátt fyrir að allar skyn-
semisraddir segi að þetta sé það
eina rétta, að minnka kostnað, hafa
fulltrúar stóru liðanna sagt að það
sé ekki hægt að skikka keppnisliðin
til að spara. Ron Dennis segir til
dæmis að á meðan til sé peningur
verði hann notaður til að koma lið-
inu framar á ráslínuna en í síðustu
keppni.
Er Schumacher of góður?
Sigurganga Michaels
Schumachers hefur verið moð ólík-
indum í ár og greinilegt að heildar-
mynd Ferrari-liðsins er nánast full-
komin. Besti billinn með sennilega
m San Marínó
1 i , |M , i , , | iitíwyi
TvÖ lið, tvær keppnir, tveir mikils metnir
ökumenn, auk ástríöu Tifosi-áhangend-
anna fyrir öilu tengdu Ferrari. Ítaiía er
ótvírætt stór hluti af Formúlunni.
Melbourne
SAUBER PETRONAS
bestu vélina, mjög öflugt og hæft
starfslið, sérhannaða hjólbarða frá
Bridgestone og án vafa einn besta
ökumanninn í sögu Formúlunnar.
Niðurstaðan ætti að vera nær
ósigrandi fyrir þá sem á eftir þeim
koma. Gerhard Berger og Frank
Williams hafa viðurkennt að Ferr-
ari sé í algerum sérflokki og nærri
sé öruggt að Schumacher taki
fimmta titil sinn jafnvel fyrr en á
síðasta ári þegar hann var krýndur
meistari þegar fjórar keppnir voru
eftir og hann endaði árið á niu sigr-
um. Nú stefnir hann á að bæta það
met sem er eitt af fáum sem enn
stendur. Spennan þykir vera ansi
lítil þegar einn ökumaður virðist
vera að rúlla öUu upp með miklum
yfirburðum. En Eddie Jordan seg-
ir að við eigum að njóta þess að sjá
Schumacher slá hvert metið á fæt-
ur öðru því þama sé snillingur á
ferð. Mjög eftirminnilegt er árið
1988 er McLaren vann allar keppn-
ir ársins utan eina, og enginn tal-
ar um í dag að það hafi skemmt
spennu kappakstursins. Einnig
vann Nigel Mansell fimm fyrstu
keppnir ársins 1992 og Damon Hill
vann fyrstu íjórar keppnimar árið
1996. Þetta hefur því gerst áður og
lifir Formúla 1 enn góðu lífi. Um
þessa helgi verður fjörið í Austur-
ríki á braut sem er í einu falleg-
asta umhverfi sem hægt er að
hugsa sér fyrir kappakstur. Alp-
arnir í sinni tignarlegustu mynd,
grænt grasið og beljur á beit. Yflr-
borð A-1 ring er slétt og gefur hjól-
börðum lítið grip. Þó er áraunin
mikil á framhjól í hröðu beygjun-
um á innhluta brautarinnar og
'kemur því ending Bridgestone- og
Michelin-dekkjanna til með að
skipta höfuðmáli í baráttu Ferrar-
is og Williams um efsta þrepið á
verðlaunapallinum. Hvort
Schumacher tekst að bæta enn
frekar við 21 stigs forskot sitt í
stigakeppninni kemur í ljós á
morgun en Austurríki er eina
landið þar sem hann á enn eftir að
landa inn sigri á ferli sinum.
-ÓSG
Austurríki
A1-Ring: Spielberg
Lengd brautar
JÉ/dMk Það er ekkl nóg með að A-1 ring
kappakstursbrautin bjóði upp á nokkur góð
tækifæri tll framúraksturs, þá er umgjörð
austurrísku Alpanna eins aðlaðandi og falleg og
hægt er að hugsa sér fyrir Formúlu 1
kappakstur. ...
Undanfarin ár hefur þróunin verið sú að A-1 ring brautin í L oa
nágrenni Zeltweg hefur verið ekin með einu stoppi og 0(294
Ifklegt að svo verði áfram. Finna þarf sem best
jafnvægi og stöðugleika i bílana fyrir brautina sem er
bæði gripliti! og er samsett af löngum, beinum
köflum, hröðum beygjum og hvðssu
blindbeygjunum 1 og 2. Punnt andrúmsloftið
getur minnkað afl vélanna um 10%.
Keppnislengd
2001: Ráspóli - M Schumacher (1:09.582 s) 223.880 km/klst.
Hraðasti hringur - Coulthard (1:10.843 s) 219.832 km/klst., hringur 48
A1 Kurve
227}
Upprifjun frá 2001 Síöusiu fímm ár iA1-Ring
David Coulthard 7 Sigurvegari Póll staóa Tirni
Michael Schumacher 1 01 David Coulthard McLaren 7 01 Michael Schumacher Ferrari 1:09.582s
Rubens Barricheiio 4 00 Mika Hákkinen McLaren 1 00 Mika Hákkinen McLaren 1:10.41 Os
Kimi Raikkonen 9 99 Eddie Irvine Ferrari 3 99 Mika Hákkinen McLaren 1:10.954s
5 Olivíer Panis 10 98 Mika Hákkinen McLaren 3 98 Giancario Flsichella Benetton 1:29.598s
6 Jos Verstappen 16 97 Jacques Vllleneuve Williams 1 97 Jacques Villeneuve Williams 1:10.304s
Grafík: © Russell Lewis
Rásstaða
Upplýsingar
RENAUI.T
COMPAQ. yfirburðir 4colteeknival
Hyundai Elantra Wagon,
12/1998, beinskiptur, ek. 45 þ.
km, álfelgur, ABS og fleira.
Verð kr. 990.000.
Suzuki Baleno Gls 4x4,
02/1998, ek. 52 þ. km,
beinskiptur. Verð kr. 1.050.000.
Áhvílandi kr. 700.000.
Afb. ca 22.000.
Daewoo Lanos Hurricane
1600, 02/1999, ek. 37 þ. km,
beinskiptur. Verð kr. 990.000.
Áhvílandi kr. 900.000.
Afb. ca 19.000.
Daewoo Matiz Se-x, 05/1999,
ek. 26 þ. km, beinskiptur. Verð
kr. 890.000. Tilboð kr. 600.000.
TZIH
Daewoo Lanos 1600 S-x,
10/1999, ek. 22 þ. km,
beinskiptur, álfelgur, spoiler, 4
dyra. Verð kr. 990.000.
Nissan Almera 1400 Gx,
04/1996, ek. 120 þ. km,
beinskiptur, 4 dyra.
Verð kr. 490.000. r,ar.
BÍLASALAN®>SKEIFAN
• BÍLDSHÖFÐA 10-
S: 577 2800 / 587 1000
www.benni.is
Breyttur opnunartími: Virka daga. 10-19» Laugardaga 11-17
Akuroyri: Bilasalan Ós - Hjalteyrargötu 10 - Simi 462 1430