Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Qupperneq 9
9 LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002_ PV Útlönd Anfinn Kallsberg Lögmaður Færeyja ætlar aö sitja áfram þótt hann hafi ekki meirihluta. Meirihlutastjórn er ekki í augsýn hjá Færeyingum Anfmn Kallsberg, lögmaður Fær- eyja, staðfesti við færeyska útvarpið í gær að í bráö væri ekki útlit fyrir að tækist að mynda landstjóm með drjúgan meirihluta á lögþinginu. Þetta kom í ljós eftir viðræður hans við leiðtoga annarra stjórnmála- flokka á uppstigningardag. Samsteypustjóm Kallsbergs situr því áfram, eins og hann tilkynnti á þriðjudagskvöld, þótt hún hafi að- eins fengið sextán menn kjöma í kosningunum í apríllok. Stjórnar- andstaðan fékk jafnmarga þing- menn kjöma. í viðtali við útvarpið sagði Kalls- berg að dyrnar að stjómarráðinu væm enn opnar. Ungir karlar lifa hættulegu lífi Danskir karlmenn á aldrinum 20 til 24 ára eru þrisvar sinnum lík- legri tii að týna lífinu en konur á sama aldri, að því er fram kemur í nýjum tölum frá dönsku hagstof- unni. Munurinn hefur aukist nokk- uð undanfarin tíu ár. Danska blaðið Jyllands-Posten segir að ungir karlar séu líklegri til að taka eigið líf en konur og þeir verða fremur fómarlömb obeldis. Stærsti sökudólgurinn í þessu efnu er þó umferðarslysin. Þannig létust 52 ungir karlar í umferðarslysum á árinu 2000 á sama tíma og aðeins níu jafnaldrar þeirra af kvenkyni. Að sögn sálfræðingsins Mette Moller eru ýmsar skýringar á því að ungir karlar lenda í fleiri umferðar- slysum en konur. „Ungir karlar aka meira en ungar konur og lenda þess vegna í fleiri slysum. En karlar aka líka miklu glannalegar og ofmeta oft eigin getu,“ segir Mette Moller. George Robertson Framkvæmdastjóri NATO segir aö aukinn stööugleiki á Balkanskaga kalli á breytta stefnu í friöargæstu. NATO fækkar í Balkanskagaliði NATO ætlar að fækka í friðar- gæsluliði sínu í Bosníu og Kosovo um tuttugu af hundraði á þessu ári vegna aukins stöðugleika í stjóm- málalífi á Balkanskaga. NATO hef- ur nú 57 þúsund menn í gæsluliði sínu á þessum stöðum. Að sögn Georges Robertsons, framkvæmdastjóra NATO, hefur fjölmargt breyst til batnaðar frá því bandalagið fyrst sendi hermenn til Balkanskaga og að stefna þess breytist i samræmi við það. Sex létust í lestarslysi á Englandi í gær: Farþegar flugu út um gluggana Sex manns týndu lifi í gær þegar farþegalest fór út af sporinu við brautarstöðina í Potters Bar á Englandi í gær. Tugir manna urðu fyrir meiðslum, sumir alvarlegum. Sjónarvottar sögðu að þeir hefðu heyrt gífurlegan hvell og að farþeg- ar hefðu þeyst út um glugga lestar- innar. Hluti fjögurra vagna lestar- innar fór upp á brautarpallinn i Potters Bar sem er skammt norður af Lundúnum. „Ég heyrði hvell og sá lestina fara upp á brautarpallinn. Þessu næst kváðu við mikil öskur og ringul- reiðin var algjör," sagði líkams- ræktarkennarinn Andy Perversi sem var á brautarpallinum þegar slysiö varð um hádegisbiliö. Slysið í gær var funmta dauða- slysið í breska lestarkerfmu á jafn- mörgum árum. Margvísleg önnur vandræði hafa plagað lestarsam- REUTERSMYND Slösuðum bjargaö Björgunarsveitarmenn koma slösuö- um burt úr flaki lestar sem fór út af sporinu í Englandi í gær. göngur í landinu undanfarin ár. „Karlar í jakkafotum með bindi voru hvarvetna á gangi í losti, með hendur um höfuð sér. Það var blóð hvert sem litiö var. Þetta var hræði- legt,“ sagði Perversi við fréttamann Reuters á staðnum. Björgunarsveitarmenn sögðu að tíu væru alvarlega sárir, þar af voru sex taldir í lífshættu. Þá slösuðust tugir manna til viðbótar en þeir gátu gengið óstuddir frá flaki lestar- innar. Railtrack, fyrirtækið sem átti lestina, sagði að hún hefði verið á um 160 kílómetra hraða á klukku- stund þegar hún fór út af sporinu. Slysið í gær varð aðeins í átta kíló- metra fjarlægð frá stað þar sem ann- að slys varð árið 2000. Þá fór lest út af sporinu og létust fjórir. Lestin var á leið frá King’s Cross stöðinni í London til King’s Lynn í Norfolk. REUTERSMYND Umdelldur stjórnmálamaöur kvaddur Þúsundir manna rööuðu sér meö fram leiö iíkfytgdar hollenska stjórnmálamannsins Pims Fortuyns sem var jarösettur í heimaborginni Rotterdam í gær. Öfgasinnaöur dýraverndarsinni hefur veriö ákæröur fyrir aö myröa Fortuyn þar sem hann kom úr útvarpsviðtali í borginni Hilversum í síöustu viku. Fortuyn var afar umdeiidur stjórnmálamaöur sem haföi andúð á útlendingum meðal annars á stefnuskrá sinni. Búist er viö aö hægriöfgafiokki Fortuyns vegni vel í þingkosn- ingunum í Hollandi í næstu viku. Bush fagnar lausn á umsátrinu um Fæðingarkirkjuna: Vonast til að aftur kom- ist skriður á friðarferlið George W. Bush Bandaríkjafor- seti lýsti í gær ánægju sinni með að tekist hefði að binda enda á liðlega fimm vikna langt umsátur ísra- elskra hermanna um Fæðingar- kirkjuna í Betlehem. Jafnframt lýsti forsetinn þeirri von að lausnin yrði til þess aö koma aftur skriði á frið- arferlið fyrir botni Miðjarðarhafs. „Þetta eru jákvæðar fréttur frá þessu óróasvæði," sagði Bush í ræðu sem hann flutti á fjáröflunar- samkomu fyrir Bob Taft, ríkisstjóra í Ohio. Fyrr um daginn hafði Bush sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði meðal annars að með endalok- um umsátursins væri rutt úr vegi hindrunum fyrir áframhaldandi samvinnu deilenda í öryggismálum. „Ég sé fyrir mér friö svo að fólk REUTERSMYND Vopnin skoðuö ísraelskir hermenn skoöa vopn og skotfæri sem þeir fundu í Fæöingar- kirkjunni í Betlehem eftir aö Palest- ínumenn fóru þaöan í gær. geti lifað hlið við hlið í friöi,“ sagði forsetinn i Ohio. Palestínskir baráttumenn yfir- gáfu Fæðingarkirkjuna í morgun og héldu þegar í stað í útlegð, sam- kvæmt samkomulagi við ísraelsk stjómvöld sem fulltrúar Evrópu- sambandsins höfðu milligöngu um. Hluti Palestínumannanna fór til Kýpur en aðrir fóru til palestínska sjálfstjómarsvæðisins á Gaza, þar sem þeim var fagnað sem hetjum. Bush þakkaði bandarískum stjómarerindrekum í þessum heimshluta, svo og Evrópusamband- inu fyrir þátt þess í lausn deilunn- ar. Forsetinn hvatti deilendur einnig til að snúa baki við ofbeldis- verkum og taka aftur upp pólitískar samningaviðræður til að reyna að koma á friði. Gegn glæpum Nýskipuð ríkis- stjórn Jeans-Pierres Raffarins í Frakk- landi kom saman til fyrsta fundar síns í gær og setti skatta- lækkanir og barátt- una gegn glæpum á oddinn. Chirac for- seti, sem stjómaði fundinum, gaf stjóminni tíu daga til að koma fram með frumvarp til laga um herta lög- gæslu í landinu. Minnst á mannréttindi Gerhard Schröder Þýska- landskanslari sagðist hafa rætt ástand mannréttindamála þegar hann heimsótti Islam Karímov, for- seta Úsbekistans, í gær. Líkfundur í skoskri á Lögregla i Skotlandi sagði í gær að búkur af ungri konu hefði fund- ist i ánni Leven og að verið væri að rannsaka málið. Þræta fyrir vopnahlé Leiðtogi uppreisnarmanna maóista í Nepal hefur vísað á bug fréttum um að skæruliðar hafi til- kynnt mánaðarlangt vopnahlé í bar- áttu sinni til að steypa konungi landsins af stóli. Fjórir hellar sprengdir Breskir landgönguliðar sprengdu í gær fjóra hella í austurhluta Afganistans þar sem þeir höfðu fundið vopnabúr talibana eða víga- manna úr röðum al-Qaeda. Brosandi sprengjuandlit Luke Helder, 21 árs gamall háskóla- nemi sem grunaður er um að hafa kom- ið fyrir rörsprengj- um í fimm ríkjum Bandaríkjanna, reyndi með athæfi sínu að mynda munstur í líki andlits brosandi manns á landakortinu. Helder tókst hins vegar ekki að ljúka ætlunar- verki sínu áður en hann var hand- tekinn í Nevada. Létt á skuldunum Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, lagði til í gær að gerður yrði samningur við fátæk ríki um að létta á skuldum þeirra og auka aðstoð við þau og viðskipti gegn því að þau berðust gegn spillingu. IAndófsmenn vilja kjósa Hópur kúbverskra andófsmanna aihenti yfirvöldum undirskriftalista með ellefu þúsund nöfnum þar sem hvatt er til þess að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um umbæt- ur á stjómkerfl landsins. Kardínáli yfirheyrður EBernard Law, kardínáli kaþólsku kirkjunnar í Boston í Bandaríkjunum, þurfti aö svara fleiri spurningum í gær um hvemig kirkjan tók á máli prestsins Johns Geoghans. Presturinn misnotaði fjölda barna en í stað þess að svipta hann kjóli og kalli kusu yfirmenn kirkjudeildarinnar í Boston að flytja hann bara á milli sókna. Fórn- arlömb Geoghans hafa höfðað mál á hendur kirkjuhni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.