Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Qupperneq 55
LAUGARDAGUR II. MAf 2002
Helgarbloö DV
55
Hilmar G. Jónsson
fyrrverandi bæjarbókavörður er sjötugur á morgun
Hilmar Guðlaugur Jónsson, rithöfundur
og fyrrverandi bæjarbókavörður í Keflavík,
til heimilis að Háteigi 21 í Keflavík, er sjö-
tugur á morgun, simnudaginn 12. mai.
Starfsferill
Hilmar fæddist í Fögruhlíð í Jökulsárhlíð
í Norður-Múlasýslu og ólst upp í Jökulsár-
hlíðinni.
Hann nam við Menntaskólanum í Reykja-
vík 1948-1951 og var í Sorbonne í París
1954-1955 við nám og skriftir. Sótti nám-
skeið í flokkun og skráningu bóka hjá Há-
skóla íslands og námskeið í gerð kvik-
myndahandrita, bæði hjá Háskóla íslands og Kvik-
myndasjóði. Hann var bókavörður við Borgarbóka-
safnið í Reykjavík 1956-1958 og bæjarbókavörður í
Keflavík 1958-1992.
Hilmar var stórgæslumaður Unglingareglunnar
1970-1980, stórtemplar Stórstúku íslands 1980-1990 og
gæslumaður barnastúkunnar Nýársstjörnunnar
1967-2000. Hann var formaöur fulltrúaráðs Alþýðu-
flokksins 1971-1974, formaður Leikfélags Keflavíkur
1978-1980 og 1988-1989 og í æskulýðs- og handknatt-
leiksráði Keflavíkur. Þá sat hann í stjórn Byggða-
safns Keflavikur um tíma og var í sögunefnd'Kefla-
víkur 1988-1994. Einnig átti hann sæti i barnavernd-
arnefnd Keflavikur 1970-1976. Hilmar var í stjórn
Bókavarðafélags íslands 1959-60 og hefur verið for-
maður félags eldri borgara á Suðurnesjum frá 1998.
Hilmar hefur fengist við ritstörf og eftir hann liggja
eftirtaldar bækur og rit: Nýjar hugvekjur fyrir
kristna menn og kommúnista, 1955, Rismál, 1964, Isra-
elsmenn og íslendingar, 1965, Foringjar falla, 1967,
Kannski verður þú.. 1970, Fólk án fata, 1973, Hunda-
byltingin, 1976, Undirheimamir rísa, 1977, Útkall í
klúbbinn, 1979, Ritsafn, 1. bindi, 1991, Ritsafn 2. bindi
1997.
Hilmar hefur hlotið viðurkenningar frá launþegafé-
lögum á Suðurnesjum 1992 og var listamaður Kefla-
víkur 1994. Einnig hefur hann fengið
listamannalaun og úthlutanir úr launa-
sjóði rithöfunda.
Fjölskylda
Hilmar giftist 5. september 1964 El-
ísabetu Guðrúnu Jensdóttur, kennara,
f. 3.3. 1945. Foreldrar hennar: Jens Sæ-
mundsson vélstjóri, f. 12.7. 1913, og Ás-
dís Jóhannesdóttir símstöðvarstjóri, f.
27.9. 1916. Þau eru bæði látin.
Börn Hilmars og Elísabetar eru Jens,
lögreglumaður, f. 20.3. 1965 í Reykjavík.
Sambýliskona hans er Sigfríö
Bjarnadóttir og þeirra dóttir er Bríet Björt. Börn hans
og fyrrverandi eiginkonu, Gerðar Sigurðardóttur, eru
íris Jóhannsdóttir (stjúpdóttir Jens), Elísabet Mjöll og
Guðbjörg Ylfa.
Jón Rúnar, kennari og framkvæmdastjóri Samfés, f.
23.2. 1966. Sonur hans með fyrrum sambýliskonu,
Pálínu Eysteinsdóttur, er Arnór Ingi.
Guðlaug Jóna, félagsráðgjafi á Ólafsfirði og Dalvík,
f. 26.9. 1969. Maður hennar er Jón Þór Antonsson
verktaki og börn þeirra eru Hilmar Þór og
Brimhildur Gígja.
Bróðir Hilmars er Sigurður Guðni, lyfsali á
Patreksfirði og síðar við Austurbæjarapótek í
Reykjavík, f. 21.3. 1940. Kona hans er Fjóla
Guðleifsdóttir og börn Leifur og Anna.
Foreldrar Hilmars voru Jón Guðjónsson, bóndi og
smiður, f. 26.4. 1908 d. 28.2. 1975, og Jóna
Guðlaugsdóttir, húsmóðir og verkakona, f. 27. 2. 1905,
d. 15. 10. 1968. Þau bjuggu fyrst í Fögruhlíð í
Jökulsárhlíð en frá 1946 í Keflavík.
Foreldrar Jóns voru Guðjón Einarsson og Sigriður
Jónsdóttir. Foreldrar Jónu voru Guðlaugur S.
Eyjólfsson og Málhildur Þorkelsdóttir.
Elísabet og Hilmar taka á móti gestum á morgun,
sunnudaginn 12. maí, kl. 15-18 í KK-húsinu viö
Vesturbraut í Keflavík.
Afmæli, andlát og jaröarfarir
Laugardagur 11. maí
85 ÁRA_________________
Bergþóra Guðlaugsdóttir,
áður til heimilis á Skólavegi
4, Keflavík, nú að
Garövangi, Garði. Hún tekur
á móti vinum og ættingjum
milli kl. 15 og 19 á Garð-
vangi á afmælisdaginn.
80ÁRA_________________
Sigurveig Halldórsdóttir,
Barmahlíö 33, Reykjavík.
75-Ára_________________
Katrin Ruth Jónsdóttir,
Sunnubraut 5, Akranesi.
60 ára
Hafsteinn Einarsson,
Flúðaseli 70, Reykjavík.
Helga Guðríður Bjömsdótt-
ir,
Klifagötu 12, Kópaskeri.
50 ÁRA________________
Vilbergur Kristinsson,
Háagerði 13, Reykjavík.
Guðlaug Pálsdóttir,
Smárarima 94, Reykjavík.
Sigurður R. Jakobsson,
Fensölum 2, Kópavogi.
Örn Jónsson,
Sæbóli 38, Grundarfirði.
Elísabet Pálmadóttir,
Brautarholti 9, ísafiröi.
Agnes Guönadóttir,
Eiðsvallagötu 6, Akureyri.
40 ÁRA_________________
Anna María McCrann,
Laufásvegi 20, Reykjavík.
Delfin Jucom Quiamco,
Skúlagötu 46, Reykjavík.
Mímir Ingvarsson,
Vesturgötu 73, Reykjavík.
Rúnar Gísli Guðmundsson,
Hátúni lOb, Reykjavlk.
Hafdís Huld Reinaldsdóttir,
Þórufelli 12, Reykjavík.
Hólmfríöur Lillý Ómarsdótt-
ir,
Brúnastöðum 63, Reykjavík.
Sigurbjörg Bjömsdóttir,
Hólagötu 45, Njarðvík.
Guðný Ólöf Bjömsdóttir,
Svínhóli, Búðardal.
Guörún Hallgrímsdóttir,
Túnbraut 11, Skagaströnd.
Guðrún Margrét Einarsdótt-
ir,
Drafnargötu 2, Kópaskeri.
Sunnudagur 12. maí
85ÁRA_________________
Steinunn Sveinbjörnsdóttir,
Vegamótum, Dalvík.
75ÁRA_________________
Eggert Gíslason,
Kleppsvegi 78, Reykjavík.
Valgerður G. Þórólfsdóttir,
Dvalarheimilinu Höföa, Akra-
nesi.
Jón Lúðvík Gunnarsson,
Norðurgötu 10, Akureyri.
Arnór Friðbjömsson,
Fossvöllum 24, Húsavík.
70ÁRA_________________
Ólafur Heiöar Ólafsson,
Háaleitisbraut 103, Reykja-
vík.
Gunnar Skarphéðinsson,
Aratúni 7, Garðabæ.
Reynir Hjaltason,
Bröttuhlíö 16, Hveragerði.
Sunna Guömundsdóttir,
Heiöarbrún 8, Hveragerði.
60 ÁRA________________
Ásdís Valdimarsdóttir,
Næfurholti 1, Hafnarfiröi.
Dóra Guðríður Svavarsdótt-
ir,
Brekkugötu 3, Vestmanna-
eyjum.
50ÁRA_________________
Björg Þ. Thorlacius,
Þórsgötu 29, Reykjavík.
Guöjón M. Bjarnason,
Eskihlíö 20, Reykjavík.
Ragnhildur Þorbjörnsdóttir,
Fannafold 59a, Reykjavík.
40 ÁRA__________________
Hrafnhildur Hauksdóttir,
Hæðarseli 24, Reykjavík.
Guðmundur Hansson,
Furuhjalla 5, Kópavogi.
Ómar Össurarson,
Hraunkambi 10, Hafnarfiröi.
Einar Arnaldur Melax,
Hrannarstíg 3, Grundarfirði.
Reynir Bjarnar Eiríksson,
Steinahlíð 5c, Akureyri.
Andlát_________________
Eiríkur Kúld Jóhannesson,
Keilusíðu lOf, Akureyri, lést
á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri þriðjudaginn 7.
maí.
JARÐARFARIR____________
Þorgerður S. Árnadóttir,
Sléttuvegi 15, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni mánudaginn 13.
maí kl. 13.30.
Bjami Hólmgrímsson, Sval-
baröi, verður jarösunginn frá
Svalbaröskirkju sunnudag-
inn 12. maí kl. 13.
Svanfríður Örnólfsdóttir
verður jarðsungin frá Bú-
staðakirkju mánudaginn 13.
maí kl. 13.30.
Guðni Marinó Ingibjartsson
verður jarðsunginn frá ísa-
fjarðarkirkju laugardaginn
11. mal kl. 14.
Hjördís Lára Hjartardóttir
veröur jarðsungin frá Pat-
reksfjarðarkirkju I dag, laug-
ardaginn 11. maí kl. 14.
Gott verð á góðum bílum
HyundaíAccent
á kr. 14-16, OOO/mán í 60 mánuól!
Nokkrir Hyundai Accent seljast á
sérkjörum. Einn eigandi að hverjum
bíl og allir með ábyrgð.
Allir 5 dyra bílar eru á 730.þ,
óháð vélarstærð eða skiptingu.
Allir 3 dyra bílar eru á 640.þ,
óháð vélarstærð og skiptingu.
Hyundai Accent var valinn besti
bíllinn T Ástralíu, bestu kaupin
í USA og bestu gæöin I Bretlandi.
HYunani
Hyundal fmrir þér bnlnar *Jónvarp,útH>ndlngMr tri HM 2002.
Bílaland býður öllum Islendingum
í HM veislu á notuðum bílum
HM 2002 nálgast nú óðfluga og við látum ekkl okkar eftlr llggja
og hitum upp með úrvali góðra bíla á góðu verði.
f boði eru m.a. nokkrir Hyundal Accent bílar á hrelnt ótrúlegu verðl.
Einnlg frábært verð á fjölda bfla fyrlr kröfuharða fótboltaaðdáendur.
Opel Astra Wagon
Nýskr. 11.02.97, eklnn 84 þ.,
grænn, 5 dyra, 5 gíra, 1598cc vél.
Renault Cllo RN
Nýskr. 01.06.99, eklnn 45 þ.,
hvftur, 3 dyra, 5 gfra, 1390cc vél.
->650p.
->680þ
Daewoo Musso E 23
Nýskr. 10.02.98, ekinn 80 þ.,
blár, 5 dyra, 5 gfra, 2295cc vél.
^1.250/
varðið var
780þ
verðfð var
890/j.
varólé var
1.690
Renault Megane Classic RN
NJskr. 09.06.98, ekinn 89 þ.,
dökkgrár, 4 dyra, 5 gíra, 1390cc vél.
->590þ.
&
Hyundal Elantra Glsi
Nýskr. 08.10.98, eklnn 57 þ.,
blár, 4 dyra, sjálfskiptur 1599cc vél.
730þ.
Hyundai Accent LSi
Nýskr. 18.06.01, ekinn 25 þ.,
gulur, 3 dyra, 5 gfra, 1341cc vél.
Renault Megane Classlc RT
Nýskr. 12.02.98, eklnn 68 þ„
blár, 4 dyra, S sjálfsklptur 1598cc vél.
->750þ.
->880þ
verðlð var
verðlð var
960/5
verðlð var
950/
verólé var
1.030t
575 1230
Opið mán-fös 09-18 og lau 10-16
Grjóthálsi 1
bilaland.is