Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR IS. MAÍ 2002 Helcjarblaö H>'Vr 49 '1* Guðjón Þórðarson fagnar ekki fleiri sigrum ineð Stoke City. Hann er nijög óhress ineð franivindu mála síðustu dagana. Hann mun eflaust taka við nýju liði áður eii langt um líður. Ekki var allt sem Það er ekki ofsögum sagt að þessi vika, sem senn er að baki, hafi verið viðburðarík hjá enska knattspyrnufélag- inu Stoke City, í tvennum skilningi þó. Félagið náði um síðustu helgi langþráðu takmarki sínu að komast upp um deild þegar liðið lagði Brentford í hreinum úrslitaleik um laust sæti í 1. deild. Áhangendur liðsins réðu sér varla fyrir gleði og menn hlökkuðu til haustsins þegar lið þeirra hæfi keppni að nýju í nýrri deild. Ekki var allt sem sýndist því að tjaldabaki voru hlutir að gerjast, sem voru síðan gerðir opinberir sl. miðvikudagskvöld, en þeir fólust i því að stjórn félagsins með íslendinga í meirihluta óskuðu ekki lengur eftir kröftum Guðjóns Þórðarsonar, knattspyrnustjóra liðsins, mannsins sem stýrði liðinu upp í 1. deild. Þetta virtist koma flestum í opna skjöldu en alveg ljóst að þetta gerðist ekki á einni nóttu. Þetta hafði lengri aðdraganda og víst að það andaði köldu á milli Guðjóns og stjórnar félagsins. Þetta sem gerst hefur skyggir óneitanlega á sigurgleð- ina en áhangendur liðsins vissu ekki betur en allt væri i stakasta lagi og Guðjón Þórðarson myndi stýra skipinu i 1. deild að hausti. Lífið er hverfult og það sannaðist held- ur betur í þessu dæmi. Hvað gerðist í raun spyrja eflaust margir en þeirri spurningu verður kannski aldrei al- mennilega svarað. Guðjón Þórðarson var ráðinn til félagsins í nóvember 1999 þegar íslenskir athafnamenn eignuðust meirihluta í þessu fornfræga félagi. Það var ekki auðvelt fyrir Guðjón að detta inn í heim knattspyrnunnar á Englandi enda kom á daginn að þetta fyrsta tímabil hans var erfitt. Hann tók við liðinu af Gary Megson sem í vor stýrði West Bromvich Albion upp i úrvalsdeildina. Guðjón hafði ekki mótað lið eftir sínu höfði en að loknu fyrsta tímabilinu var markvisst stefnt að því að komast upp í 1. deild. Þau áform gengu ekki eftir heldur þótt lið- ið hafi ekki verið langt frá því takmarki. Samningur Guðjóns við Stoke var stokkaður upp sl. Tiaust og samdi hann við félagið til eins árs. í upphafi ný- afstaðins tímabils sáu menn teikn á lofti þess efnis að nú væri tími Stoke runninn upp og stefnan var tekin á að komast upp um deild. Staðreyndin liggur fyrir og Stoke leikur í 1. deild á næsta tímabili. Árangurinn talar sínu máli Það verður aldrei tekið af Guðjóni Þórðarsyni að hann er maður fylginn sér, stundum harður í hom að taka en hann hefur mikinn metnað i þeim störfum sem hann tek- ur sér fyrir hendur. Árangur hans með félagslið hér á landi talar sínu máli og síðar þegar hann tók við stjórn- inni á landsliðinu. Undir hans stjórn náði íslenska lands- liðið mjög merkum árangri og segja má að hann hafi skot- ið Guðjóni í sviðsljós evrópskrar knattspyrnu. Það er engum vafa undirorpið að Guðjón var maðurinn á bak við gott gengi landsliðsins og frægt er jafnteflið við heimsmeistara Frakka svo eitthvað sé nefnt í því sam- bandi. Það var vitað að Guðjón horfði til vettvangs á er- lendri grundu og þar langaði hann að spreyta sig. Sagt er að Guðjón hafi viðrað þá hugmynd fyrir fjárfesta hér á landi að eignast meirihluta í félagi á Englandi. Mál þró- uðust siðan með þeim hætti að það varð að veruleika. ís- lendingarnir keyptu eitt elsta félag Englands, Stoke City, sem lifði á fornri frægð. Margir af þekktustu knattspyrnumönnum Englands hafa leikið með félaginu og liðið átti á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar marga stuðningsmenn og þeir leynd- ust allmargir hér á landi. íslendingar hafa alltaf borið taugar til Stoke og þau bönd styrktust til muna þegar at- hafnamenn frá íslandi keyptu meirihluta í félaginu. Allir áhugamenn um knattspyrnu óskuðu íslendingaliðinu alls hins besta og fylgst var með gangi mála af áhuga í dag- blöðum og ekki var verra að fá beina sjónvarpsútsend- ingu frá leikjum þess beint heim í stofu. Á þessari stundu hefði maður haldið að menn sæju fram á bjarta tíma með blóm í haga. Guðjón Þórðarson hafði skilað sinu, því að koma liðinu í 1. deild, og nú væru verkefnin ærin og hann tilbúinn sem aldrei fyrr að takast á við þau. Naut eklíi góðs af sölu leikmanna En ekki er allt gull sem glóir, segir gamalt máltæki. Guðjón hefur yfirgefið Brittania í Stoke. Það kemur i hlut annars framkvæmdastjóra að stjórna liðinu þaðan sem Guðjón Þórðarson skildi við það. Það er margt skrýtið i kýrhausnum en einhvern veginn hefði maður aldrei trú- að þessari þróun mála. Það er eins og eitthvað stórt væri að gerast á bak við tjöldin. Þetta merktu þeir sem komust í snertingu við atburðarásina, þar kraumaði undir niðri, og ekki var vitað hvaða stefnu málið myndi taka. Menn voru ekki samstiga i verkefninu og fyrir vikið fjarlægðust aðilar hvor annan smám saman, Guðjón og stjórnin. Það kom fram í vetur að Guðjón vildi meira fé til um- ráða sem hann gæti m.a. nýtt til leikmannakaupa og ann- arra þarfa sem kæmi liðinu til góða í baráttunni við að komast upp í 1. deild. Það var ljóst og kom fram í fréttum að fjárlagarammi félagsins var knappur, ekki voru til peningar til leikmannakaupa, þvert á móti skyldu leik- menn seldir. Félagið seldi um siðir tvo af sterkustu leik- mönnum sínum, þá Peter Thorne og Graham Kavanagh. Ekki voru allir á einu máli um þessar sölur og komu áköf mótmæli frá áhangendum liðsins sem og Guðjóni sjálfum. Stjórnin var á bak við þessa ákvörðun. Hún réði að lok- um enda fengust peningar í kassann og ekki þótti af veita. Gott verð fékkst fyrir umrædda leikmenn en ekki var sjá- anlegt að liðið nyti góðs af og þá Guðjón til að kaupa ein- hverja leikmenn i staðinn. Merkuin áfanga náð í þessari stöðu var ekkert annað fyrir Guðjón að gera en að spýta í lófana, sigla skipinu áfram með þá áhöfn sem hann hafði um borð. Ekki skyldi horfið frá fyrirhug- aðri stefnu, að reyna að koma liðinu upp um deild. Að vísu fékk hann einn nýjan liðsmann á seinni stigum þeg- ar Arnar Gunnlaugsson gerði skammtíma samning við fé- lagið sem skyldi gilda út tímabilið. En Guðjón fékk að kynnast ólgusjó þegar nokkrir leikmenn heltust úr lest- inni vegna meiðsla. Það þýddi ekki að gefast upp þrátt fyrir þessar mótbárur, liðið hélt sjó og eftir því sem á leið var takmarkið ekki svo langt undan. Það hafðist á endan- um og bæjarbúar í Stoke fógnuðu merkum og langþráðum áfanga. Það vita allir sem standa í viðskiptum að gott samband og trúverðugleiki verður að ríkja í allar áttir. Rekstur á knattspyrnufélagi er þar ekki undanskilinn en svo virðist sem einhver skortur hafi verið á því í þessu dæmi. Hér verður ekki lagður dómur á hver á sök en hjá því verður ekki litið að einhver alvarlegur ágreiningur hefur verið í gangi. Menn urðu varir við hann strax eftir leikinn við Brentford þar sem sætið í 1. deild var innsiglað. Á þess- ari sigurstundu hefðu allir aðilar eðlilega átt að kætast og fagna settu marki. Svo var ekki og undir niðri kraumaði mikUl ágreiningur sem einungis Guðjón Þórðarson og stjórnarmenn Stoke vissu ástæðuna fyrir. Frá því að ákvörðun stjómar Stoke City lá fyrir hafa sýndist áhugamenn um knattspyrnu spurt sig margra spurninga þessu máli tengdu en fátt er um svör. Úr því að Guðjón kom liðinu í 1. deild, hvers vegna í ósköpunum fær hann ekki að halda áfram að stjórna liðinu? Það er fátítt að knattspyrnustjóri, sem kemur liði sínu upp um deild sé ýtt til hliðar. Ágreiningurinn var djúpstæður beggja meg- in borðsins, höggva þurfti á hnútinn og það kom í hlut eigenda liðsins, skiljanlega, að gera það. Það eru þeir sem ráða ferðinni hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Eftir því sem næst verður komist voru stjórnar- menn ekki einhuga í ákvörðunartökunni að gera ekki nýj- an samning við Guðjón. Fjórir voru því fylgjandi og tveir á móti á stjórnarfundi sem haldinn var í Reykjavik á mið- vikudagskvöldið. Guðjóni var í framhaldinu kynnt niður- staðan og þegar hann mætti á skristofu sína á Brittania sl. fimmtudagsmorgun lá uppsagnarbréfið á skrifborði hans. Sögur hafa verið á kreiki þess efnis að ákvörðun um framtíð Guðjóns hafi legið fyrir áður en leikur Stoke hófst gegn Brentford en ekkert skal fullyrt í þeim efnum á þessum vettvangi. Fóllíið í Stoke vildi halda Guðjóni Á blaðamannafundi, sem Guðjón Þórðarson hélt í Stoke, sagði hann þetta viss vonbrigði en það var samt ekki að heyra á hans orðum að hann legði árar í bát, síð- ur en svo. Guðjón ætti í öllu falli ekki að þurfa að mæla göturnar lengi og hans bíður eflaust nýtt starf handan við hornið. Það hefur löngum verið sagt að heimur knatt- spyrnustjórans sé harður og því hefur Guðjón fengið að kynnast. Þegar allt virtist leika í lyndi var ekki allt sem sýndist að tjaldabaki. Hver svo sem tekur við starfi Guðjóns hjá Stoke má víst telja að hans bíði krefjandi verkefni. Meirihluti al- múgans í Stoke vildi halda Guðjóni og kröfur til nýs knattspyrnustjóra verða miklar. Hinu má ekki gleyma að töluvert skilur að því að leika í 2. deild og þeirri fyrstu og því má alveg ljóst vera að stjórnendur Stoke standa frammi fyrir því að þurfa að styrkja liðið allnokkuð. Lið- ið fer ekki langt á þeim mannskap sem fyrir er í dag þannig að það kostar töluverð fjárútlát að leika í nýrri og sterkari deild. Situr eldd lengi með hendur í skauti Hvort stjórendur félagsins eru tilbúnir til þess er ekki vitað eða þá hitt hvort peningar séu til þess á annað borð. Staðreyndin eru engu að síður sú að Stoke City sér fram á harðari og sterkari andstæðinga en áður og líklega verður ekki komist hjá því að styrkja mannskapinn. Það kemur í hlut nýs þjálfara að skipuleggja hlutina með hlið- sjón af liðinu, efla það og gera það samkeppnishæft. Úr því að mál hafa tekið þessa stefnu, Guðjón horfinn á braut, hvað gera þeir íslensku leikmenn sem hafa verið á mála hjá félaginu? Sonur Guðjóns, Bjarni, hefur verið á sölulista um allnokkrun tíma svo ætla má að framtíð hans sé óráðin. Samningur Arnars Gunnlaugssonar er runninn út þannig að staða hans er í lausu lofti, alla veg- ana þessa stundina. Brynjar Björn Gunnarsson, Ríkharð- ur Daðason og Stefán Þórðarson eru allir á samningi. Tíminn einn mun leiða í ljós hver framtíð umræddra leik- manna innan félagsins verður. Guðjón Þórðarson leggur árangur sinn í dóm næsta at- vinnurekanda. Hann talar sínu máli. Nokkur lið á Eng- landi og í Skandinavíu hafa haft augastað á Guðjóni. Það tekur eflaust einhvern tíma fyrir Guðjón að átta sig á orðnum hlut en það er mín trú og sannfæring að hann sitji ekki lengi með hendur í skauti. -JKS *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.