Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2002, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
Fréttir
T>ir
Skilgreining starfsemi Landspítala Háskólasjúkrahúss hefst á næstu vikum
Fyrstu skref til lausnar
fjárhagsvanda LSH
Feðri barn sitt
í nýju frumvarpi
til barnalaga sem
dómsmálaráðherra
hefur kynnt er að
flnna ýmis nýmæli.
Þar er kveðið á um
að móðir verði
skylduð til að feðra
barn sitt.
Vinna við skilgreiningu starf-
semi Landspítala Háskólasjúkra-
húss mun hefjast á næstu vikum,
að sögn Magnúsar Péturssonar,
forstjóra LSH. Slík skilgreining
er forsenda þess að ljóst liggi fyr-
ir hversu mikið fjármagn þarf ár-
lega á fjárlögum til rekstrar spít-
alans.
Stjórn læknaráðs LSH hefur
sent frá sér ályktun þar sem hún
hvetur stjórnendur spítalans til
þess að skilgreina tafarlaust
starfsemi hans. Innan þeirrar
skilgreiningar verði síðan að
sækja fjármuni og leita eftir að
fyrir liggi skilgreint greiðslukerfi
með tilliti til þjónustuþátta.
„Ég lít á þessa ályktun lækna-
ráðsins sem hvatningu og stuðn-
Semjum ekki við Forum
Stefán Bald-
ursson þjóðleik-
hússtjóri segir
deilur við For-
um og Stefán
Axel Stefánsson
um rekstur
þjóðleikhús-
kjallarans nú í
höndum lög-
manna. Hann
segir ekki koma
til greina að
semja við Stefán Axel um áfram-
haldandi rekstur á staðnum.
Stefán Baldursson segir að sumt
á þeim lista sem Stefán Axel hafi
lagt fram á blaðamannafundi í
gær séu hrein ósannindi og ann-
að úr lagi fært. Þar er m.a. um
að ræða píanó sem sannanlega sé
í eigu Þjóðleikhússins. Hann seg-
ir að það hafi líka vakið undrun
sina að Stefán Axel hafi reynt að
draga Þjóðleikhúsið inn í samn-
inga sína við Björn Leifsson um
rekstur Þjóðleikhúskjallarans.
Þjóðleikhúsið hafi þó enga aðild
átt að þeim samningum. Þá séu
viðskipti Árna Johnsen og fyrri
rekstraraðila, sem Stefán Axel
hafi vísað til, enn til meðferðar
fyrir dómstólum.
- Eru líkur á að Þjóðleikhúsið
semji á ný við Forum um rekst-
ur Þjóðleikhúskjallarans?
„Nei, alls ekki, við erum búnir
að rifta samningnum út af ýmiss
konar vanefndum. Við skoðuð-
um þann möguleika í sumar að
kaupa hans hluta út úr þessu. Þá
gerðum við þann fyrirvara að fá
búnaðinn metinn og fá að kom-
ast inn í kjallarann sem Stefán
Axel hafði meinað okkur aðgang
að. Þegar við fengum að fara
þarna inn kom í ljós að þær töl-
ur sem ræddar höfðu verið varð-
andi hugsanleg kaup voru full-
komlega óraunhæfar svo við féll-
um algjörlega frá því,“ segir Stef-
án Baldursson.
-HKr.
- Sjá nánar bls. 4
Jafntefli í gær
Tékkneski stórmeistarinn Tom-
as Oral hefur nú unnið einvígi
þeirra Stefáns Kristjánssonar eft-
ir jafntefli í gær. Staðan í Hreyf-
ilseinvíginu er nú 31/2 vinningur
gegn hálfum vinningi Stefáns,
Tvær skákir eru eftir og verða
þær tefldar i dag og á morgun.
Stefán er aðeins 19 ára alþjóðleg-
ur meistari. Hann þykir hafa
staðið sig vel í einvíginu við stór-
meistarann. Reynsla meistarans
unga þykir líkleg til að duga hon-
um vel í baráttu hans fyrir stór-
meistaratitli sem hann hyggst ná
á næstu tveimur til þremur
árum. -rt
ing við stjórnendur spítalans,"
sagði Magnús í gær.
í ályktun læknaráðsins segir
enn fremur að ráðið harmi að
stjórnendur LSH hafi talið sig
þurfa að grípa hvað eftir annað
til aðgerða er skerði læknisþjón-
ustu spítalans. Ráðið hafi þó full-
an skilning á stöðu stjómend-
anna, þar sem hið opinbera gefi
vitlaust í upphafi hvers árs og
festi með fjárlögum. Af þessu
leiði árvissan rekstrarhalla því
frá verkefnunum verði ekki auð-
veldlega vikist og langvarandi ár-
viss umræða um rekstrarhalla
LSH hafi lamandi áhrif og geti
dregið úr gæðum þjónustu og
staðið í vegi nauðsynlegrar fram-
þróunar.
Áki Ármann Jónsson veiðistjóri
telur æskilegt að samfara sölubanni
á rjúpu yrði æskilegt að banna bæði
að gefa og þiggja rjúpur því annars
skapist hætta á svartamarkaðs-
braski. Þannig háttar til með æðar-,
gæsar- og andaregg að bannað er að
gefa eða þiggja þau og segir veiði-
stjóri að „óvart“ gætu komið inn
peningar fyrir „gefins“ rjúpur eftir
að sölubann verður sett.
Fyrsti fundur einkavæðingar-
nefndar og Samson-hópsins vegna
sölu Landsbankans hófst í gær og
var þar aðallega um kynningu á
verkáætlun að ræða. Á fundinum í
gær ræddu aðilar verkáætlun en
ekki liggur fyrir hve langan tima
viðræðurnar taka. Ein ástæða þess
að Samson-hópurinn varð fyrir val-
inu er að hann er talinn geta útveg-
að erlent fjármagn til kaupa á stór-
um hlut í bankanum.
Umdeilt er að einkavæðingar-
nefnd hafi gengið til viðræðna við
Samson-hópinn en hann skipa
Björgólfur Thor Björgólfsson, Magn-
ús Þorsteinsson og Björgólfur Guð-
mundsson.
Einn reyndasti nefndarmaður
einkavæðingarnefndar, Steingrím-
ur Ari Arason, sagði sig úr nefnd-
inni og er Ríkisendurskoðun að fara
í saumana á þeim vinnubrögðum
þegar gengið var fram hjá hinum
Landspítalinn.
Enn fremur segir í ályktun-
inni,að læknaráð hafi fulla
ástæðu til að ætla að hagrætt hafi
verið í starfsemi LSH jafnt og
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra kynnti í gær aðgerðir tO að
stemma stigu við bágu ástandi í
rjúpnastofninum. Rjúpnaveiðitíma-
bilið verður ekki stytt í ár og heim-
ilt verður að versla með fuglinn.
Náttúrufræðistofnun lagði hins veg-
ar til að einungis yrði heimilt að
veiða rjúpur í nóvember og bannað
yrði að selja þær. Ráðherra vill
koma á sölubanni næsta ár og stytta
aðilunum sem buðu í bankann.
Brigður hafa verið bornar á að rik-
ið hafi gengið til samningaviðræðna
við þá sem buðu best.
Formaður Vinstri grænna telur
þétt eins og kostur hafi verið og
að áfram verði gengið á þeirri
braut. Hins vegar sé LSH rang-
lega skammtað framkvæmdafé
árlega, ekki einungis til læknis-
þjónustu og verkefna háskóla-
sjúkrahúss heldur einnig til við-
halds mannvirkja sem og til við-
halds og endurnýjunar tækjabún-
aðar. Athygli veki þögn um frek-
ari framvindu í byggingu hins
nýja LSH.
Læknaráðið leggur áherslu á
hlutverk spítalans sem háskóla-
sjúkrahúss og hátæknisjúkrahúss
þar sem sé að finna alla læknis-
fræðilega sérþekkingu á einum
stað eins og hún geti best orðið á
hverjum tíma miðað við aðstæð-
ur. -JSS
veiðitímann um 20 daga. Þá verði
gert átak í ýmsum öðrum atriðum
er lúta að veiðinni, s.s. meðferð öku-
tækja og skotvopna.
Veiðistjóri telur að lágmarkið í
stofninum sé ekki sögulegt og ekki
aðalhættan en hins vegar sé
áhyggjuefni að toppamir séu ekki
jafhgóðir og verið hefur. Miklar
sveiflur eru þó kunnar í stofhinum.
-BÞ
óeðlilegt að viðræðurnar fari fram á
meöan Ríkisendurskoðun er með
vinnubrögð einkavæðingamefndar
í athugun.
-BÞ
Enginn hafis
Engan hafís er nú að finna milli
Vestfjarða og austurstrandar Græn-
lands, en að sögn kunnugra hefur
þetta ekki gerst síðan hafísrannsókn-
ir hófust fyrir áratugum. Bæjarins
besta sagði frá.
Slöpp skólasókn
Skólasókn 17 og 18 ára ungmenna
á íslandi er áberandi minni en með-
al jafnaldra þeirra annars staðar á
Norðurlöndum, samkvæmt saman-
burði OECD.
Gæsirnar burt
íbúcir í þremur húsum við Laugar-
nestanga í Reykjavík hafa óskað eft-
ir því við umhverfis- og heilbrigðis-
nefnd að gæsir verði upprættar á
lóðum þeirra. RÚV sagði frá.
Kjötflóö
Útlit er fyrir að samkeppni á kjöt-
markaði verði hörð í haust. Offram-
boð hefur verið á svínakjöti og fram-
leiðsla á kjúklingum, sem hefur ver-
ið í lægð undanfarið, er að aukast
mikið. Mbl. sagði frá.
Samið viö bændur
Tillaga landbún-
aðarráðherra um að
ganga til viðræðna
við samtök bænda
um gerð nýs samn-
ings vegna mjólkur-
framleiðslu var
samþykkt á rikis-
stjórnarfundi í gær.
Styöja Ágúst
Stjóm Ungra jafnaðarmanna í
Reykjavík lýsir yfir eindregnum
stuðningi við framboð Ágústs Ólafs
Ágústssonar, formanns Ungra jafn-
aðarmanna, í prófkjöri Samfylking-
arinnar í Reykjavík.
Líður vel í skólanum
Flestum börnum á aldrinum 10 til
15 ára líður vel í skólanum, sam-
kvæmt stórri könnun sem gerð var í
Reykjavík í vor.
Minni fiskafli
Fiskafli landsmanna í síðasta
mánuði var 44.000 tonnum minni en
í ágúst í fyrra.
Fleiri feröir
Samgönguráðherra hefur falið
Vegagerðinni að ganga til samninga
við Samskip um fjölgun ferða Vest-
mannaeyjaferjunnar Herjólfs.
Engin hindrun
Borgarráð hefur
samþykkt. að aflétta
kvöðum í kaup-
samningi og leyfa
Frumkvöðlasetri
Guðjóns Más Guð-
jónssonar í Oz að
selja húseignina í
Þingholtsstræti 29
sem íbúðarhús. Kaupandi er norski
listamaðurinn Odd Nerdrum.
Guðrún vill fram
Guðrún Ögmundsdóttir alþingis-
maður gefur kost á sér á framboðs-
lista Samfylkingarinnar i Reykjavík
fyrir komandi þingkosningar.
Vill hærri leigu
Leigusali i Reykjavík segir að
hækka þurfí leigu verulega frá því
sem nú er til að standa undir afborg-
unum af lánum og viðhaldi. -hlh
Rjúpan skal vernduö
Siv Friöleifsdóttir umhverfisráöherra kynnti í gær aögeröir til aö stemma stigu viö bágu ástandi rjúpnastofnsins.
Síðustu rjúpnajólin?
Stefán
Baldursson.
Sala Landsbankans hafin